Eldgos og jarðhræringar „
13 14 15 16 17 18 19 20 21 … 132 ›
„Við höfum ekki séð svona áður“ Ísak Finnbogason hefur á undanförnum árum verið iðinn við að sýna frá eldgosum á Íslandi í beinni útsendingu með drónum. Í gær fangaði hann hraun flæða inn í Melhólsnámu og fylgdust þúsundir með útsendingunni. Innlent 22.3.2024 15:48
Hyggjast opna námuna og sækja efni Verktakar sem vinna að vegagerð og varnargörðum á Reykjanesi hyggjast freista þess að opna Melhólsnámu, þar sem hraun flæddi inn í gærkvöldi. Til stendur að reyna að útvíkka námuna svo hægt sé að ná í efni sem notað yrði til að hækka varnargarða við Grindavík. Innlent 22.3.2024 11:04
Ekki útilokað að gosið endist í marga mánuði Kvikan sem safnaðist fyrir í Svartsengi flæðir nú beint upp og landri stöðvast. Jarðeðlisfræðingur segir yfirstandandi eldgos sambærilegt atburðum í Fagradalsfjalli. Engin merki séu um að gosið sé að minnka og það geti varað í margar vikur, jafnvel mánuði. Innlent 21.3.2024 23:45
Hraun fossar ofan í Melhólsnámu: „Bagalegt“ að missa námuna Hraunið sem kemur upp úr eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni fossar nú ofan í Melhólsnámu, sem hefur verið nýtt við gerð varnargarðanna. Innlent 21.3.2024 19:38
Starfsmaðurinn á batavegi og stjórnendum brugðið Starfsmaður Bláa lónsins, sem leitaði á bráðamóttöku í gær vegna öndunarfæraeinkenna af völdum gasmengunar, er á batavegi. Framkvæmdastjóri hjá Bláa lóninu segir að stjórnendum sé brugðið vegna málsins og það sé tekið alvarlega. Innlent 21.3.2024 18:45
Hækkun varnargarða hafin: „Þetta er ekki snjór sem bráðnar“ Vinna við hækkun varnargarða norðaustan við Grindavík er þegar hafin að sögn jarðverkfræðings. Innlent 21.3.2024 17:48
Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Stjórn Fasteignafélagsins Þórkötlu ehf. hefur ráðið Örn Viðar Skúlason sem framkvæmdastjóra. Örn Viðar var á meðal 27 umsækjenda um starfið. Félaginu er ætlað að annast uppkaup ríkisins á fasteignum í Grindavíkurbæ vegna náttúruhamfara á Reykjanesi. Viðskipti innlent 21.3.2024 16:19
Starfsmaður Bláa lónsins á sjúkrahús vegna gaseitrunar Starfsmaður Bláa lónsins leitaði á sjúkrahúsí gær í kjölfar eitrunareinkenna vegna gasmengunnar. Alvarleiki veikindanna liggur ekki fyrir en öryggisstjóri aðgerða í Grindavík fundar með forsvarsmönnum Bláa lónsins. Innlent 21.3.2024 15:45
Hraunið að færast upp á varnargarðana Hraunrásin í eldgosinu á Reykjanesskaga hefur skriðið kröftuglega fram í dag og þrýstir nú á varnargarðana fyrir framan Grindavík. Mögulegt er að hraunið komist yfir garðana á næstu klukkustundum. Innlent 21.3.2024 14:48
Landris í Svartsengi hefur stöðvast Áfram er góður kraftur í eldgosinu á Reykjanesskaga milli Hagafells og stóra Skógfells. Ljóst þykir að landris í Svartsengi hefur stöðvast. Því virðist jafnvægi komið á kerfið þar sem innflæði kviku upp í jarðskorpuna er til jafns við það sem streymir út í eldgosinu. Innlent 21.3.2024 13:26
Lönduðu eldsnemma í morgun þrátt fyrir eldgosið Áhöfn á Sturlu GK og landverkafólk útgerðafélagsins Þorbjarnar láta eldgosið sem er í námunda við Grindavík ekki á sig fá og lönduðu í Grindavíkurhöfn eldsnemma í morgun. Framkvæmdastjóri Þorbjarnar segir baráttuvilja í sínu fólki en það sé óskandi að náttúruöflin drægju sig í hlé. Innlent 21.3.2024 12:24
Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamála- og viðskiptaráðherra, hefur sett 100 milljónir í markaðssetningu til að svara og leiðrétta erlendan fréttaflutning um stöðuna á Íslandi í kjölfar eldsumbrotanna síðustu mánuði. Peningurinn rennur til Íslandsstofu, áhrifavalda og fleiri aðila. Viðskipti innlent 21.3.2024 08:58
Gosið stöðugt en dregur mögulega úr landrisi við Svartsengi Veðurstofa Íslands hefur uppfært hættumat á Reykjanesi vegna eldgossins. Eldgosið er enn stöðugt en mögulega dregur úr landrisi við Svartsengi. Innlent 20.3.2024 14:10
Vísbendingar um að gosið geti varað lengi Virkni eldgossins við Sundhnúk er enn stöðug nú þegar hátt í fjórir sólarhringar eru frá því það hófst. Jarðeðlisfræðingur segir vísbendingar um að þetta eldgos gæti orðið svipað þeim sem urðu í Fagradalsfjalli og því varað lengur. Innlent 20.3.2024 11:16
Bein útsending: Svona er staðan á gosstöðvunum Sprungan sem gýs á milli Stóra-Skógfells og Hagafells virðist vera að þéttast í sjö til átta gíga. Lítið dró úr eldgosi í nótt. Innlent 20.3.2024 10:38
Töluverð kvikustrókavirkni enn í gangi Lítið virðist hafa dregið úr gosinu á Reykjanesi í nótt en sprungan sem gýs á virðist vera að þéttast í sjö til átta gíga. Innlent 20.3.2024 07:18
Landris geti leitt til lengra goss Sérfræðingur hjá Almannavörnum segir núverandi eldgos skera sig úr hinum þremur sem orðið hafa á Reykjanesskaganum síðustu mánuði að því leyti að landris sé hafið að nýju meðan það gýs enn. Það geti leitt til þess að eldgosið, sem er þegar orðið lengra en síðustu þrjú, lengist enn fremur. Innlent 19.3.2024 20:53
Segir ástandsskoðanir NTÍ í Grindavík fúsk Grindvíkingurinn Hilmar Freyr Gunnarsson vill að Alþingi fari yfir framkvæmd ástandsskoðana Náttúruhamfaratryggingu Íslands (NTÍ) á húsum í Grindavík. Hann segir framkvæmdina forkastanlega og fúsk. Forstjóri NTÍ segir aðeins um fyrstu matsgerð að ræða og hvetur fólk til að skila inn athugasemdum sé það ósátt. Innlent 19.3.2024 15:56
Eldgosið toppar þrjú síðustu Eldgosið sem hófst á níunda tímanum á laugardagskvöld hefur nú staðið lengur en síðustu þrjúgos síðan í desember síðastliðnum. Það hefur nú staðið í tvo og hálfan sólarhring. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands. Innlent 19.3.2024 12:06
Opna Grindavík aftur Grindavík hefur verið opnuð aftur og Grindvíkingum og þeim sem starfa í bænum leyft að dvelja þar og vinna. Í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum segir að lítil sem engin hreyfing sé á hraunrennsli, bæði inn í Svartsengi og fyrir ofan Suðurstrandaveg. Innlent 19.3.2024 10:30
Stöðug virkni í nótt Virknin í gosinu á Reykjanesi hefur verið óbreytt í nótt frá því sem var í gærkvöldi. Innlent 19.3.2024 06:49
Eldgosið hagi sér öðruvísi og gæti varað lengur Prófessor í jarðeðlisfræði segir eldgosið sem hófst á laugardag hegða sér öðruvísi en hin þrjú sem komið hafa upp á Sundhnúksgígaröðinni. Stöðug virkni í því gæti þýtt að það vari talsvert lengur en síðustu gos. Innlent 18.3.2024 20:30
Enn mikið sjónarspil á gosstöðvunum Talsvert sjónarspil er enn á gosstöðvunum milli Stóra-Skógfells og Hagafells, þar sem eldgos hófst á laugardagskvöld. Innlent 18.3.2024 19:17
Virkni gossins enn stöðug og hætta enn talin mikil Nýtt hættumat Veðurstofu Íslands tekur gildi í dag og mun gilda næstu tvo daga til 20. mars. Hætta er enn talin mjög mikil í Sundhnúksgígaröðinni og þá er mikil hætta vegna gasmengunar í kringum Svartsengi og vegna hraunflæðis. Innlent 18.3.2024 16:56
Endurskoða aðgangstakmarkanir á morgun Vel hefur gengið á hættusvæðinu við Svartsengi og í Grindavík í dag. Þó hefur verið töluverð mengun á svæðinu og verða aðgangsreglur inn í Grindavík endurskoðaðar á morgun. Innlent 18.3.2024 15:55
Engin löndun í bili í Grindavík Ekki verður landað í dag í Grindavík eins og vonir stóðu til um. Hafnarstjóri segir varnargarða þó hafa blásið mönnum byr í brjóst. Fyrirtæki fá að fara inn í bæinn í dag en fyrst stóð til að það yrði ekki leyft. Viðskipti innlent 18.3.2024 14:03
Hraunið á um 330 metra í Suðurstrandarveg Virkni í eldgosinu hefur verið nokkuð stöðug síðan seinnipartinn í gær. Það gýs á tveimur svæðum á gossprungunni í nokkrum gosopum, en svo virðist sem slökknað hafi í nyrstu gosopunum. Innlent 18.3.2024 11:57
Svartsengi rýmt vegna gasmengunar Forsvarsmenn HS Orku ákváðu að rýma starfsstöðina í Svartsengi í morgun vegna gasmengunar sem leggur yfir svæðið vegna eldgossins í Sundhnúkagígaröðinni. Innlent 18.3.2024 11:39
27 vilja stýra fasteignafélaginu Þórkötlu Alls sóttu 27 manns um starf forstjóra fasteignafélagsins Þórkötlu. Umsóknarfrestur rann út 5. mars síðastliðinn. Viðskipti innlent 18.3.2024 10:32
Zara tók sjálfur með gosinu Sænska ofurstjarnan Zara Larsson nýtti sér stund milli stríða vel á laugardagskvöldinu þegar það byrjaði að gjósa. Hún tók nokkrar sjálfur af sér með gosinu af toppi tónlistarhússins Hörpu þar sem hún var með tónleika það kvöldið. Lífið 18.3.2024 10:09