Lögreglumál
159 160 161 162 163 164 165 166 167 … 281 ›
Hefði verið heppilegra að sleppa símtölunum Dómsmálaráðherra var kölluð fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis í morgun vegna samskipta sinna við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu eftir Ásmundarsalarmálið. Þingmaður Pírata telur að samskiptin hefðu verið heppilegri í formlegri búning. Innlent 1.3.2021 12:04
Færður í fangaklefa eftir bílveltu Klukkan hálftíu í gærkvöldi barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um bílveltu á Þingvallavegi við Mosfellsbæ. Innlent 1.3.2021 06:28
Lokuðu tveimur veitingahúsum á Akureyri Lögreglan á Norðurlandi eystra lokaði tveimur veitingahúsum í umdæminu í gærkvöldi. Öðru þeirra var lokað vegna útrunnins rekstrarleyfis en hinu vegna brots á sóttvarnalögum. Innlent 28.2.2021 08:16
Fötin tekin og færð á milli skápa í sundi Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um þjófnað í Árbæ í Reykjavík skömmu fyrir klukkan fimm síðdegis í gær. Sundlaugargestur hafði týnt lykli að skáp sínum í sundklefanum. Innlent 28.2.2021 07:38
Lögregla leiðbeindi starfsfólki veitingastaða um opnunartíma og reglur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór í reglubundið eftirlit með veitingahúsum í miðborginni í gærkvöldi og voru nokkrir veitingastaðir sóttir heim. Samkvæmt lögreglu var ástandið nokkuð gott þó skerpa hafi þurft á nokkrum reglum. Innlent 28.2.2021 07:29
Lögreglan á Suðurnesjum á harðaspretti Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af í vikunni, vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna, tók á rás frá lögreglu en var hlaupinn uppi og handtekinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Innlent 27.2.2021 09:59
Partígestur ýtti við lögregluþjóni og sparkaði í lögreglubíl Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um partíhávaða frá íbúð í Hlíðahverfinu í Reykjavík klukkan hálf eitt í nótt. Samkvæmt dagbók lögreglu var þar fjöldi ungmenna með múgæsing og fóru fæst þeirra eftir fyrirmælum lögreglu, sem ekki kemur fram hver voru. Innlent 27.2.2021 07:37
Málið umfangsmikið og rannsókn rétt að hefjast Margeir Sveinsson yfirlögregluþjónn segir rannsókn á morðinu í Rauðagerði gríðarlega umfangsmikla og langt í land að hún klárist. Karlmaður á fimmtugsaldri var í morgun úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald í tengslum við málið. Innlent 26.2.2021 21:05
Glæpahópar farnir að nýta sér kunnáttu sérfræðinga Lögregla áætlar að um fimmtán glæpahópar séu starfræktir hérlendis. Hóparnir virðast í auknum mæli nýta sér aðstoð sérfræðinga við afbrot sín. Allir eiga þeir sameiginlegt að hafa einhverja tengingu við fíkniefnaframleiðslu eða -dreifingu. Innlent 26.2.2021 20:04
Áfram í gæsluvarðhaldi grunaður um aðild að morðinu Karlmaður á fimmtugsaldri var í morgun úrskurðaður í áframhaldandi vikulangt gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á morðinu í Rauðagerði þann 13. febrúar. Í tilkynningu frá lögreglu segir að úrskurðurinn sé á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Innlent 26.2.2021 10:13
Handtekinn vegna þjófnaðs úr skartgripaverslun Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók í gær mann eftir að tilkynnt var um þjófnað úr skartgripaverslun í miðborg Reykjavíkur. Innlent 26.2.2021 07:33
Telja fimmtán hópa í skipulagðri glæpastarfsemi hér á landi Lögregluyfirvöld telja að alls séu fimmtán hópar sem tengjast skipulagðri glæpastarfsemi sem séu starfandi hér á landi. Glæpastarfsemin einskorðist þó ekki við Ísland heldur teygi hún anga sína víðar. Innlent 26.2.2021 06:54
„Hafið við Vestmannaeyjar hefur tekið marga“ Það verður að teljast ólíklegt að líkamsleifar sem komu í troll við Vestmannaeyjar árið 1980 séu Geirfinnur Einarsson. Spurningin er hvar þær eru niðurkomnar og hvers vegna þær hafa ekki verið rannsakaðar. Innlent 26.2.2021 06:16
Virti ekki grímuskyldu og fór áður en lögregla mætti á svæðið Óskað var eftir aðstoð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í verslun í Hlíðahverfi í Reykjavík á fimmta tímanum í dag. Eftir því sem fram kemur í dagbók lögreglu neitaði viðskiptavinur að virða grímuskyldu. Hann var þó haldinn sína leið þegar lögregla mætti á svæðið. Innlent 25.2.2021 20:36
Hefur boðað Áslaugu á fund vegna samskipta hennar og lögreglustjóra Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, fór fram á það við Jón Þór Ólafsson, formann stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra komi fyrir nefndina sem fyrst til. Innlent 25.2.2021 17:08
Rektor MH: „Auðvitað er manni brugðið að fá svona tölvupóst“ „Auðvitað er manni brugðið að sjá svona tölvupóst,“ segir Steinn Jóhannsson, rektor Menntaskólans við Hamrahlíð um sprengjuhótunina sem send var á skólann í nótt. Innlent 25.2.2021 10:14
Sprengjuhótanir hjá þremur stofnunum til viðbótar Lögreglu hafa borist fleiri tilkynningar um sprengjuhótanir í morgun og hefur verið gripið til aðgerða vegna þessa hjá þremur öðrum stofnunum, auk Menntaskólans við Hamrahlíð sem Vísir greindi frá fyrr í dag. Innlent 25.2.2021 09:55
Lögregluaðgerð við MH vegna sprengjuhótunar Sprengjuhótun barst á netfang Menntaskólans við Hamrahlíð í nótt. Skólahald fellur því niður framan af degi. Lögreglan telur sig vita hver stendur að baki hótuninni en sá er staddur erlendis og hefur áður haft í hótunum með þessum hætti. Innlent 25.2.2021 08:31
Beit í fingur lögreglumanns Skömmu eftir klukkan tíu í gærkvöldi barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um umferðaróhapp á Kjalarnesi. Að því er segir í dagbók lögreglu ók tjónvaldur af vettvangi en var stöðvaður skömmu síðar á Þingvallavegi. Innlent 25.2.2021 06:54
Fallist á gæsluvarðhald yfir öllum fimm Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fallist á kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir fimm karlmönnum í tengslum við rannsóknina á morðinu í Rauðagerði þann 13. febrúar síðastliðinn. Innlent 24.2.2021 16:49
Krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir fimm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ætlar að krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir fimm karlmönnum í tengslum við rannsókn sína á morðinu í Rauðagerði þann 13. febrúar síðastliðinn. Þegar mest var voru níu í gæsluvarðhaldi en tveimur var sleppt í gær en gerð krafa um farbann. Innlent 24.2.2021 11:49
Ein líkamsárás í miðbænum og önnur í Mosfellsbæ Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust tvær tilkynningar um líkamsárásir í nótt. Annars vegar var tilkynnt um líkamsárás miðbænum laust eftir klukkan hálfeitt í nótt. Innlent 24.2.2021 06:16
Bar því við að hafa ekki haft nægilega þekkingu á lífslokameðferðum Læknir, sem grunaður er um röð alvarlegra mistaka í störfum sínum hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, bar því við að hafa ekki haft nægilega þekkingu á svokölluðum lífslokameðferðum sem hann hafði umsjón með hjá stofnuninni, samkvæmt heimildum fréttastofu. Þá hefur fréttastofa einnig heimildir fyrir því að athugasemdir hafi borist á hendur fleiri læknum hjá stofnuninni. Innlent 23.2.2021 20:49
Flestar skammbyssurnar íþrótta- eða atvinnutæki Lögregla verður ekki mikið vör við að skotvopnum sé smyglað til landsins. Þetta sagði Jónas Hafsteinsson, lögreglufulltrúi í leyfadeild hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Reykjavík síðdegis í dag. Innlent 23.2.2021 20:24
Hringdi í lögreglustjórann vegna Ásmundarsalar á aðfangadag Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra ræddi tvisvar við Höllu Bergþóru Björnsdóttur lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu á aðfangadag eftir að lögregla tilkynnti fjölmiðlum um sóttvarnabrot í Ásmundarsal, hvar fjármálaráðherra var staddur. Ríkisútvarpið greinir frá þessu og hefur eftir Áslaugu að hún hafi ekki verið að skipta sér af rannsókn málsins. Innlent 23.2.2021 20:16
Segir lækninn hafa neitað móður hans um meðferð Sonur aldraðrar konu sem þurfti að leita læknisaðstoðar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í kjölfar slyss segir að móður sinni hafi hreinlega verið neitað um meðferð af lækni hjá stofnuninni, en sá er grunaður um röð alvarlegra mistaka í störfum sínum með þeim afleiðingum að minnsta kosti einn sjúklingur er látinn. Innlent 23.2.2021 18:51
Meintur fíkniefnabarón áfram í gæsluvarðhaldi Íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri, sem grunaður er um aðild að morðinu í Rauðagerði að kvöldi 13. febrúar, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag úrskurðaður í áframhaldandi vikulagt gæsluvarðhald. Varðhaldið, sem rennur út 2. mars, er á grundvelli rannsóknarhagsmuna að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 23.2.2021 16:16
Nokkrum sleppt úr haldi vegna Rauðagerðismálsins Lögregla hyggst sleppa nokkrum sakborningum í Rauðagerðismálinu úr haldi í dag, samkvæmt heimildum fréttastofu. Farið verður fram á farbann yfir mönnunum á meðan rannsókn stendur yfir. Innlent 23.2.2021 12:15
Ökumaður og farþegar grunaðir um brot á vopnalögum Alls voru sex ökumenn stöðvaðir af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna eða áfengis. Innlent 23.2.2021 06:39
Lögregla telur sig vera nær því að upplýsa málið Lögreglan telur sig vera nær því að upplýsa um morðið í Rauðagerði fyrir rúmri viku síðan, en yfirheyrslur fóru fram um helgina og vinnur lögregla að því að kortleggja ferðir sakborninga. Til skoðunar er hvort einhverjir hópar tengist málinu. Innlent 22.2.2021 20:37
Uppgjörið: Króatía - Slóvenía 29-26 | Dagur stýrði Króötum til sigurs og sendi strákana okkar heim Handbolti
Stærsta kristal-amfetamínmál sögunnar: Sagði bílinn fluttan inn vegna kvikmyndaverkefnis Innlent