Mál Josef Fritzl
1 2 3 … 3 ›
Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Dómstóll í Austurríki hefur úrskurðað að flytja eigi hinn 89 ára Josel Fritzl af réttargeðdeild og í venjulegt fangelsi. Fritzl var árið 2009 dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa misnotað og haldið dóttur sinni innilokaðri í kjallara í bænum Amstetten í 24 ár. Á þeim tíma eignaðist hann með henni sjö börn. Erlent 14.5.2024 08:19
Fritzl verður áfram á réttargeðdeild Josef Fritzl verður ekki fluttur í almennt fangelsi í Austurríki í bili og verður þess í stað áfram á réttargeðdeild í öryggisfangelsi. Fyrri ákvörðun hefur verið snúið af áfrýjunardómstól en upprunalegi úrskurðurinn byggði á því að ekki væri talið að ógn stafaði af Fritzl. Erlent 11.3.2024 12:25
Dómstóll í Vín úrskurðar um flutning Fritzl Saksóknari í Austurríki hefur áfrýjað ákvörðun héraðsdómstóls í Krems í Austurríki um að flytja Josef Fritzl af réttargeðdeild í öryggisfangelsi í venjulegt fangelsi. Erlent 1.2.2024 23:22
Fritzl fluttur í venjulegt fangelsi Dómstóll í Austurríki samþykkti í morgun að flytja Josef Fritzl af réttargeðdeild í öryggisfangelsi í venjulegt fangelsi. Erlent 25.1.2024 10:06
Fritzl mögulega fluttur úr öryggisfangelsi Austurríski kynferðis- og ofbeldismaðurinn Josef Fritzl verður mögulega fluttur í almennt fangelsi eða á elliheimili. Fritzl hefur afplánað dóm sinn á réttargeðdeild í öryggisfangelsi frá því hann var handtekinn árið 2009. Erlent 16.1.2024 10:06
Fylla kjallara Fritzls með steypu Í gær hófst vinna við að dæla steypu niður í kjallarann þar sem Josef Fritzl, eða skrímslið frá Amstetten, hélt Elisabeth dóttur sinni fanginni í 24 ár. Þar ól hún honum 7 börn. Innlent 21.6.2013 09:40
Josef Fritzl fer fram á skilnað Austurríkismaðurinn Josef Fritzl, einnig þekktur sem Skrímslið í Amstetten, hefur sótt um skilnað frá eiginkonu sinni til margra ára. Mál Fritzl vakti heimsathygli en hann var fundinn sekur um að hafa nauðgað dóttur sinni og haldið henni fanginni í 24 ár. Erlent 25.10.2012 12:18
Annað skrímsli í Austurríki - Fritzl málið endurtekur sig Lögreglan í Austurríki hefur handtekið áttræðan mann fyrir að hafa haldið tveimur dætrum sínum föngnum og misnotað þær kynferðislega í áratugi. Dæturnar eru nú 53 og 45 ára gamlar. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Austurríki, og Daily Mail greinir frá, eru báðar konurnar alvarlega veikar á geði. Erlent 25.8.2011 21:34
Elísabet Fritzl hefur nýtt líf Elísabet Fritzl sem faðirinn hélt fanginni í kjallarakompu í 24 ár er samámsaman að venjast því að lifa eðlilegu lífi. Erlent 22.11.2010 14:47
Fritzl segir eiginkonuna ennþá elska sig Austurríkismaðurinn Josef Fritzl segist viss um að eiginkonan elski hann ennþá þrátt fyrir allt sem á undan er gegnið. Erlent 1.11.2010 10:21
Elísabet Fritzl komin með kærasta Austurrískir fjölmiðlar skýra frá því að Elísabet Fritzel hafi fundið ástina í fyrsta skipti. Sá útvaldi er einn af lífvörðum hennar. Faðir Elísabetar hélt henni í fangelsi í tuttugu og fjögur ár og eignaðist með henni sjö börn. Hún er nú fjörutíu og fjögurra ára gömul en kærastinn er sagður allnokkuð yngri. Þau eru sögð hafa hafið sambúð. Erlent 1.6.2009 09:56
Eiginkona Josefs Fritzls og sonur einnig kærð Eiginkona Josefs Fritzls og sonur hafa verið kærð fyrir að hafa átt þátt í að halda dótturinni Elísabet fanginni í kjallarakompu í tuttugu og fjögur ár. Erlent 27.3.2009 12:08
Óttast að Fritzl svipti sig lífi Fangelsismálayfirvöld í Austurríki hafa aukið eftirlit með Josef Fritzl sem í síðustu viku var dæmdur til ævilangrar vistunar á hæli fyrir geðsjúka vegna dóms fyrir nauðgun, sifjaspell og morð. Talið er að hann muni reyna að svipta sig lífi og á að koma í veg fyrir það. Breska blaðið Guardian greinir frá þessu í dag. Erlent 22.3.2009 13:52
Fritzl gæti verið laus eftir 14 ár Vissulega hafa austurrískir dómstólar dæmt Josef Fritzl til ævilangrar vistunar á hæli fyrir geðsjúka. Óvíst er þó að sú vistun verði í raun svo löng þar sem lögin gera ráð fyrir því að sýni Fritzl framför við geðlæknismeðferð megi færa hann til afplánunar í venjulegt fangelsi þar sem hann getur svo sótt um reynslulausn að liðnum 15 árum en sú regla gildir um lífstíðardóma í Austurríki. Erlent 20.3.2009 08:08
Fritzl dæmdur til ævilangrar vistunar á geðdeild Josef Fritzl, Austurríkismaðurinn sem hélt dóttur sinni í gíslingu í 24 ár og átti með henni sjö börn, var í dag fundinn sekur um öll ákæruatriði, þar á meðal morð af völdum vanrækslu þegar eitt barna hans lést. Hann mun enda ævina á geðsjúkrahúsi. Erlent 19.3.2009 13:12
Elísabet Fritzl var í dómsalnum Helsta ástæða þess að Austurríkismaðurinn Josef Fritzl lýsti sig að fullu sekan í gær af ákærum um nauðgun, sifjaspell og morð var sú að dóttir hans Elísabet var í dómssalnum. Erlent 19.3.2009 09:11
Allt mömmu að kenna Verjandi Jósefs Fritzels segir að það sé mömmu hans að kenna að hann lokaði dóttur sína inni og nauðgaði henni í tuttugu og fjögur ár. Erlent 18.3.2009 18:30
Fritzl viðurkennir allt Josef Fritzl, austurríkismaðurinn sem er sakaður um að hafa haldið dóttur sinni í gíslingu í 24 ár og átt með henni sjö börn, hefur breytt afstöðu sinni til allra ákæruliða í ákæru sem gefin var út á hendur honum. Erlent 18.3.2009 09:44
Fritzl boðin áfallahjálp Hinum 73 ára gamla Josef Fritzl, sem nú er fyrir rétti í Austurríki fyrir nauðgun og frelsissviptingu á dóttur sinni, hefur verið boðin áfallahjálp til að takast á við réttarhöldin og það andlega álag sem þeim fylgir. Erlent 18.3.2009 07:24
Dóttir Fritzl bar vitni gegn föður sínum í dag Elísabet dóttir Josef Fritzl, sem ákærður hefur fyrir að hafa haldið henni nauðugri í kjallara heimilis þeirra árum saman og getið með henni sjö börn, bar vitni gegn honum í gegnum myndbandsupptöku við réttarhöldin í dag. Innlent 17.3.2009 21:56
Fámáll og reyndi að hylja andlit sitt Austurríkismaðurinn Josef Fritzl fékk í dag að heyra fyrir dómi vitnisburð dóttur sinnar sem hann er ákærður fyrir að hafa fangelsað í nær aldarfjórðung, nauðgað ofsinnis og alið með sjö börn. Við upphaf réttarhalda yfir Fritzl í dag gekkst hann við hluta þeirra brota sem hann er ákærður fyrir. Erlent 16.3.2009 19:00
Fritzl viðurkennir að hafa nauðgað dóttur sinni Austurríkismaðurinn Josef Fritzl játaði í morgun fyrir dómi að hafa nauðgað dóttur sinni og þar með framið sifjaspell. Hann játar ekki á sig um morð eða að hafa hneppt dóttur sína og börn þeirra í ánauð í áratugi. Erlent 16.3.2009 11:51
Réttarhöld hefjast yfir Josef Fritzl Þegar Elísabet Fritsel var átján ára gömul bað Jósef faðir hennar hana um að hjálpa sér að bera eitthvað dót ofan í kjallara. Þaðan átti Elísabet ekki afturkvæmt í tuttugu og fjögur ár. Erlent 15.3.2009 12:00
Fritzl ákærður fyrir morð Austurríkismaðurinn Josef Fritzl hefur verið ákærður fyrir morð á einu þeirra sjö barna sem hann eignaðist með dóttur sinni. Það lést skömmu eftir fæðingu, í kjallaranum þar sem Fritzl hélt dótturinni fanginni í 24 ár. Erlent 13.11.2008 13:30
Fritzl færður í hryllingskjallarann Austurríski faðirinn Josef Fritzl hefur verið færður í kjallarann þar sem hann hélt Elíabetu dóttur sinni fanginni í 24 ár og nauðgaði henni. Erlent 26.9.2008 14:02
Fritzl líklega ákærður fyrir þrælahald Hinn austurríski Josef Fritzl, sem hélt dóttur sinni fanginni í kjallara í meira en 24 ár og misnotaði hana kynferðislega gæti átt yfir höfði sér ákæru fyrir þrælahald. Þetta hefur fréttastofa Breska ríkisúvarpsins, BBC, eftir saksóknurum í Austurríki. Erlent 4.8.2008 11:59
Skýrslutökur yfir Elisabeth Fritzl hafnar Saksóknari í Austurríki er byrjaður að taka skýrslur af Elisabeth Fritzl, sem var haldið nauðugri í kjallara föður síns, í 24 ár. Erlent 11.7.2008 09:43
Kerstin Fritzl ætti að ná sér að fullu Hin 19 ára Kerstin Fritzl ætti að ná fullri heilsu samkvæmt lækni hennar. Hún er ein af börnunum sem Josef Fritzl átti með dóttur sinni Elisabeth sem hann hélt fanginni í kjallara sínum í 24 ár. Kerstin hefur verið meðvitundarlaus frá því að veikindi hennar ljóstruðu upp um fangana í kjallaranum í apríl en hún vaknaði úr dái fyrir nokkrum dögum. Erlent 11.6.2008 12:12
Kerstin Fritzl til meðvitundar Kerstin Fritzl, sem haldið var nauðugri í kjallara á heimili föður síns í 18 ár, er komin til meðvitundar. Frá þessu greindu spítalayfirvöld í Austurríki í dag en sögðu jafnframt að hún væri enn nokkuð veik. Erlent 10.6.2008 13:20
Gæsluvarðhald yfir Fritzl framlengt Gæsluvarðhald hefur verið framlengt yfir hinum austurríska Josef Fritzl þangað til dómari endurmetur stöðuna eftir tvo mánuði. Fritzl er ásakaður fyrir að hafa nauðgað dóttur sinni Elisabeth Fritzl og lokað hana inni í 24 ár. Á þeim tíma gat hann henni 7 börn. Lögreglan í Austurríki segir að Fritzl hafi játnað verknaðinn á sig. Erlent 6.6.2008 16:31