Hundar
2 3 4 5 6 7 … 7 ›
Segir hund nágrannans hafa ráðist á litla stelpu: „Maður bara fékk sjokk“ Íbúi á Akureyri segist ráðalaus vegna hunds sem börnum stafi ógn af. Hundurinn hafi glefsað í litla stelpu fyrr í dag, og kallað hafi verið á lögreglu. Hún segir hundinn sitja bundinn úti í garði heilu og hálfu dagana og gelta stanslaust. Íbúinn vill hundinn burt. Innlent 26.9.2022 21:11
Vilja stækka Hundavinahópinn: „Þeim mun fleiri sem við náum til, því betra er það fyrir okkar skjólstæðinga“ Hundavinir Rauða krossins leita að sjálfboðaliðum sem vilja bætast í starfið en þegar eru 42 virk pör sem sinna heimsóknum til einstaklinga og stofnana. Verkefnastjóri segir alltaf þörf á fleiri sjálfboðaliðum og eru allir og hundar þeirra, stórir sem smáir, velkomnir. Innlent 20.9.2022 17:32
Andrés mun sjá um hunda drottningarinnar Andrés prins, annar sonur Elísabetar II, og fyrrverandi eiginkona hans, Sara, munu sjá um Corgi-hunda drottningarinnar, Muick og Sandy, eftir andlát hennar. Hundana fékk drottningin að gjöf frá syni sínum. Erlent 12.9.2022 06:57
Dolly selur hárkollur ætlaðar hundum Ástsæla tónlistarkonan Dolly Parton hefur sett vörumerkið „Doggy Parton“ á laggirnar en merkið selur vörur fyrir hunda. Hluti af ágóðanum frá sölu varningsins mun fara til samtaka sem bjarga dýrum og gefa þeim heimili. Lífið 1.9.2022 23:58
Hundrað hundar hlupu hundahlaup með húsbændum Hundrað hundaeigendur sprettu fyrr í kvöld úr spori í hundahlaupi UMFÍ á Seltjarnarnesi. Þetta er fyrsta skiptið sem hundahlaupið er haldið. Innlent 25.8.2022 20:35
Dýralæknar mátu að aflífa þyrfti Kasper eftir að hann beit mann „mjög illa“ í hendina Lögregla segir að hundur fjölskyldu á Siglufirði hafi bitið gamlan mann „mjög illa“ í hendina að ástæðulausu, hann hafi verið ógn við nágranna sína „í langan tíma“ og að dýraeftirlitsmaður og dýralæknar hafi metið það svo að aflífa þyrfti hundinn. Innlent 25.8.2022 15:18
„Allt við þetta mál er fyrir neðan allar hellur“ Fyrrverandi formaður Dýraverndarsambands Íslands segir fyrir neðan allar hellur að hundur á Siglufirði hafi verið aflífaður innan við tveimur tímum eftir að hann var tekinn frá fjölskyldu sinni. Reglur sveitarfélaga um hvernig haga eigi gæludýramálum séu ekki samræmdar, sem sé miður. Innlent 23.8.2022 13:29
Í sárum eftir að hundurinn var aflífaður án nokkurs fyrirvara Hundur fjölskyldu á Siglufirði var aflífaður á föstudaginn, einum og hálfum tíma eftir að hann var tekinn af þeim. Hundurinn var ekki settur í geðmat líkt og Heilbrigðiseftirlitið fer fram á. Fjölskyldan segist ekki hafa fengið að vita að það ætti að aflífa hann fyrr aðgerðin var þegar hafin í öðru bæjarfélagi. Innlent 22.8.2022 17:14
Mæla gegn því að taka hunda að gosstöðvunum Matvælastofnun (MAST) ræður fólki eindregið frá því að taka hunda og önnur dýr með að gosstöðvunum í Meradölum. Mengun getur haft afar skaðleg áhrif á dýrin. Innlent 17.8.2022 16:29
Vissi ekki að hundahlaup væri íþrótt Dýrahjúkrunarfræðingurinn Kolbrún Arna hefur hlaupið með husky-hundunum sínum í mörg ár. Hún segir mikilvægt að vera með rétta búnaðinn svo að bæði hundar og fólk njóti hlaupsins. Samstarf 17.8.2022 11:14
Hefur engar áhyggjur af hundasjúkdómi sem getur smitast í menn Starfandi sóttvarnalæknir segir að bakterían sem grunur leikur á að hafi greinst í hundi hér á landi í fyrsta skipti smitist mjög ólíklega yfir í menn þó hún geti það vissulega. Hún hefur ekki áhyggjur af stöðunni sem Matvælastofnun hafi þegar náð vel utan um. Innlent 26.7.2022 17:26
Grunur um nýja bakteríusýkingu í hundum hér á landi Matvælastofnun hefur borist tilkynning um grun og Brucella canis bakteríusýkingu í hundi hér á landi. Sýkingin er súna, sem sagt sjúkdómur sem getur smitast á milli dýra og manna. Þetta er í fyrsta sinn sem grunur um Brucella canis kemur upp hér á landi. Innlent 26.7.2022 14:00
Í útrýmingarhættu fyrir 70 árum en nú í stórsókn í Bandaríkjunum Dagur íslenska fjárhundsins er haldinn hátíðlegur í sjöunda sinn í dag með fjölbreyttri dagskrá um allt land. Forsvarsmaður segir alþjóðlegan aðdáendahóp tegundarinnar fara sístækkandi - enda hundarnir þeir bestu í heimi, að hennar sögn. Innlent 18.7.2022 11:13
Sjö ára drengur bitinn af hundi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í póstnúmerinu 113 í gærkvöldi eftir að sjö ára drengur var bitinn af hundi. Drengurinn var með bitsár á öðru lærinu og var roði í kringum sárið. Innlent 15.7.2022 06:53
Sparkaði í konu og hundana hennar Lögreglu barst í dag tilkynning frá konu sem hafði orðið fyrir árás manns en hún segir árásarmanninn hafa sparkað í sig og hundana sína. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Innlent 14.7.2022 17:31
Íslenska fjárhundinum fagnað á Árbæjarsafni Dagur íslenska fjárhundsins verður haldinn hátíðlegur á Árbæjarsafni mánudaginn 18. júlí frá klukkan eitt til fimm. Þar munu íslenskir fjárhundar og eigendur þeirra koma saman til að heilsa upp á gesti og gangandi. Menning 14.7.2022 16:56
4.000 dýrum bjargað í „hundaverksmiðju“ í Bandaríkjunum Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa bjargað 4.000 hundum í „hvolpaverksmiðju“ í Virginíu í kjölfar fjölda brota á lögum og reglum um dýravelferð. Þau hafa nú um tvo mánuði til að finna heimili fyrir dýrin. Erlent 13.7.2022 13:01
Björguðu hundi sem féll um tuttugu metra Björgunarsveitir á Sauðárkróki og Mývatni voru kallaðar út með stuttu millibili á áttunda tímanum í kvöld. Fyrsta útkallið sneri að hundi sem lenti féll um tuttugu metra fram af kletti í Skagafirði og hið seinna var vegna mótorhjólaslys við afleggjarann að Herðubreiðalindum. Innlent 5.7.2022 22:41
Yrðlingur og hundur bestu vinir á Mjóeyri á Eskifirði Tíkin Skotta og nokkra vikna yrðlingur á bænum Mjóeyri við Eskifjörð eru bestu vinir og leika sér mikið saman. Þá er mjög gæf maríuerla líka á bænum og heiti potturinn á staðnum vekur sérstaka athygli. Innlent 5.7.2022 21:01
Binni og Bassi í skrautlegri hundaþjálfun Fjórða þáttaröðin af Æði er farin í loftið og eru þættirnir á dagskrá Stöðvar 2 á miðvikudagskvöldum. Þar er fylgst með lífi Patreki Jaime, Binna Glee og Bassa Maraj. Lífið 9.6.2022 13:31
Fræðum fólkið! Ég var reyndar ekki spurður álits en í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna hefði ég innt frambjóðendur eftir því hvað þeir hyggðust gera til að bæta aðbúnað og lífskjör okkar hunda í Reykjavík. Skoðun 8.6.2022 15:30
„Lifði hamingjusöm til æviloka“ Nanna Lovísa Zophoníasdóttir gerði sér lítið fyrir og tók ákvörðun sem breytti öllu hennar lífið. Hún seldi yfirskuldsett húsið sitt í Hafnarfirði og flutti á Vatnsleysuströnd þar sem hún er að gera upp gamlan bóndabæ alveg niður við sjóinn. Lífið 2.6.2022 16:30
Besti vinur mannsins eða vinalegur óvinur? Fyrstu hundarnir á Íslandi komu hingað með landnámsmönnum í kringum árið 870. Síðan þá hefur stofninn þróast og stækkað, tegundum fjölgað og getum við verið stolt af okkar eigin tegund, Íslenska fjárhundinum, sem nýtur töluverðar sérstöðu þar sem afbrigðið var lengi vel einangrað frá öðrum afbrigðum. Skoðun 5.5.2022 12:01
Biðlisti á námskeið um aðskilnaðarkvíða Biðlisti er hjá hundaþjálfara sem sérhæfir sig í aðskilnaðarkvíða hunda en í verstu tilvikum þarf að gefa hundinum kvíðalyf. Talið er að allt að fjórir af hverjum tíu hundum þjáist af aðskilnaðarkvíða. Innlent 10.4.2022 22:02
„Það stenst enginn þetta augnaráð“ Það mun vanta sjö leiðsöguhunda fyrir blinda og sjónskerta á landinu á næstu árum. Við hittum Kela, eiganda leiðsöguhunds, í miðbæ Reykjavíkur í gær sem lýsti afar nánu sambandi sínu við besta vin sinn - Gaur. Innlent 3.4.2022 13:28
Rauða fjöðrin og hundar sem eru ekki gæludýr Um þessar mundir standa Lionshreyfingin og Blindrafélagið fyrir söfnunarátaki undir yfirskriftinni „Rauða fjöðrin“ með því einmitt að selja barmmerki í formi rauðrar fjöður. Ágóði söfnunarinnar rennur til leiðsöguhundaverkefnis Blindrafélagsins, en hún markar upphafið að þriggja ára verkefni Blindrafélagsins sem hefur það að markmiði að fjölga leiðsöguhundum á Íslandi. Skoðun 2.4.2022 09:00
Mæðgur segjast ætla að búa á Dalatanga til eilífðarnóns Mæðgur sem sinna búskap, veðurathugunum og vitavörslu á Dalatanga, einni afskekktustu bújörð landsins, eru búnar að kaupa húsakost á jörðinni af ríkinu. Þar rækta þær sauðfé og hunda og segjast vera að fjárfesta til framtíðar. Innlent 23.2.2022 22:05
Margfaldir verðlaunahundar en eru þó taldir heimskustu hundar í heimi Hann heitir Tinni og er alþjóðlegur meistari, Norðurlandameistari, íslenskur meistari og íslenskur ungliðameistari og hún heitir Nóra og er ungliðameistari í Bozniu&Herzegovinu, Króatíu, Slóveníu, Macedoniu og Rúmeníu. Hér erum við að tala um tvo hunda þar sem eigendur þeirra hafa ekki undan við að taka á móti viðurkenningum og verðlaunum fyrir þá. Innlent 13.2.2022 20:03
Hundahósti orsakast líklega af kórónuveiru Undanfarið hefur dularfullur hósti herjað á hunda á höfuðborgarsvæðinu. Matvælastofnun hafa nú borist vísbendingar um að hóstinn orsakist af hundakórónuveiru. Innlent 4.2.2022 18:48
„Allir hundarnir í þessu máli eru hundrað þúsund prósent hreinræktaðir hundar“ Mæðgum sem vísað var úr Hundaræktarfélaginu (HRFÍ) í vikunni telja illa að sér vegið og segja mannorð sitt eyðilagt. Þær eru ósáttar við stjórn félagsins og formann og gera alvarlegar athugasemdir við málsmeðferðina. Innlent 30.1.2022 20:55