Morð í Rauðagerði
1 2 3 4 5 … 5 ›
Dómari gagnrýnir lögreglu fyrir vinnubrögð í Rauðagerðismálinu Guðjón St. Marteinsson, dómari í Rauðagerðismálinu, gagnrýnir vinnubrögð lögreglu við gerð skýrslu sem lögð var fyrir dóminn í málinu. Segir hann að lögregla hafi ekki gætt meginreglu um hlutlægnisskyldu við gerð skýrslunnar. Það sé ámælisvert. Innlent 21.10.2021 13:47
Anton Kristinn og sakborningar féllust í faðma Anton Kristinn Þórarinsson, sem sætti gæsluvarðhaldi í Rauðagerðismálinu en var ekki ákærður, fagnaði með sakborningum sem sýknaðir voru í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Anton féllst í faðma með ákærðu í morgun. Innlent 21.10.2021 11:00
Lögmaður Antons harðorður: „Mesta klúður sem ég hef séð“ Steinbergur Finnbogason lögmaður vill meina að rannsókn lögreglu á Rauðagerðismálinu sé eitt það mesta klúður sem hann hefur orðið vitni að. Hann boðar skaðabótamál fyrir hönd Antons Kristins Þórarinssonar, skjólastæðins síns. Innlent 21.10.2021 10:43
„Það verða eftirmálar af þessu“ Oddgeir Einarsson, lögmaður Angjelin Sterkaj, segir fangelsisdóm í málinu gegn honum í takt við væntingar, þar sem hann hafði játað morðið á Armando Beqirai. Verjandi Murat Selivrada var afar harðorður í garð ákæruvaldsins og sagði málinu ekki lokið. Innlent 21.10.2021 09:11
Angjelin dæmdur í sextán ára fangelsi Angjelin Sterkaj var dæmdur í sextán ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir að hafa myrt Armando Beqirai, fjölskylduföður á fertugsaldri, með því að skjóta hann fyrir utan heimili sitt í Rauðagerði um miðjan febrúar. Innlent 21.10.2021 08:53
Dómur í Rauðagerðismálinu kveðinn upp í dag Uppfært klukkan 8:52:Angjelin Sterkaj hefur verið dæmdur fangelsi í 16 ár fyrir morðið á Armando Beqirai, fjölskylduföður á þrítugsaldri, sem var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt í Rauðagerði um miðjan febrúar.Ákærðu Claudia Sofia Coelho Carvalho, Murat Selivrada og Shpetim Qerimi eru sýknuð af kröfum ákæruvaldsins. Innlent 21.10.2021 06:41
Dómur kveðinn upp í Rauðagerðismálinu á morgun Dómur verður kveðinn upp í Rauðagerðismálinu svokallaða í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan 8:50 í fyrramálið. Fjórir eru ákærðir í málinu þeirra á meðal Angjelin Sterkaj sem er sakaður um að hafa ráðið Armando Beqirai bana í Rauðagerði í Reykjavík í febrúar. Innlent 20.10.2021 13:52
„Lögregla sleppir framburði sem hreinsar manninn af þátttöku í manndrápi“ Lögmaður Murats Selivrada, sem er einn ákærðu í Rauðagerðismálinu svokallaða, gagnrýndi harðlega skýrslu lögreglu í málinu. Hvergi hafi komið fram í niðurstöðukafla skýrslunnar að Angjelin Sterkaj hafi gengist við því að hafa fyrirskipað Claudiu Sofiu Coelho Carvalho að vakta bifreiðar í eigu Armandos Beqirai kvöldið sem hann var skotinn til bana. Innlent 23.9.2021 17:25
Bótakröfur upp á tugi milljóna í Rauðagerðismálinu Réttargæslumaður Þórönnu Helgu Gunnarsdóttur, ekkju Armando Beqirai, tveggja barna þeirra og foreldra Armandos fór fram á tæplega 70 milljónir króna í bótagreiðslu frá sakborningum í Rauðagerðismálinu. Ýmist er um miskabótakröfur að ræða eða kröfur vegna missis á framfærslu. Innlent 23.9.2021 11:18
Farið fram á 16 til 20 ára dóm: „Hrein og klár aftaka“ Síðasti dagur aðalmeðferðar í Rauðagerðismálinu svokallaða fer fram í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur. Ákæruvaldið hefur farið fram á að Angjelin Sterkaj verði dæmdur til 16 til 20 ára fangelsisvistar. Innlent 23.9.2021 10:35
Angjelin Sterkaj fer fram á refsileysi Angjelin Sterkaj, sem er einn þeirra sem ákærð eru fyrir morðið á Armando Beqiri, fer fram á að honum verði ekki gerð refsing á grundvelli þess að hann hafi einungis farið út fyrir lögmæta neyðarvörn vegna þess að hann hafi orðið svo skelfdur að hann hafi ekki getað gætt sín fullkomlega. Hann heldur því fram að hann hafi gripið til örþrifaráðs þegar hann skaut Armando margsinnis þann 13. febrúar síðastliðinn í Rauðagerði. Innlent 17.9.2021 18:56
Faldi sig inni í herbergi af ótta við Angjelin Spænskur vinur Antons Kristins Þórarinssonar segist hafa verið hræddur við Angjelin Sterkaj. Hann hefði falið sig inni í herbergi í íbúð þangað sem Angjelin mætti daginn eftir morðið, af ótta við Angjelin. Innlent 16.9.2021 11:21
Lögreglan með viðveru við héraðsdóm vegna Rauðagerðismálsins Rauðagerðismálið þykir afar sérstætt á íslenskan mælikvarða og til marks um það þá hefur lögreglan haft talsverðan viðbúnað Héraðsdóm Reykjavíkur í dag. Innlent 15.9.2021 18:33
„Ég þekki þessa hluti, þetta eru ekki manneskjur“ Góðvinur og samstarfsmaður Armando Beqirai var harðorður í garð sakborninga í Rauðagerðismálinu svokallaða þegar hann bar vitni fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Hann sagði sakborningana fjóra ekki manneskjur heldur hluti. Innlent 15.9.2021 17:01
Ellen segir fjölskyldunni sundrað vegna Rauðagerðismálsins Ellen Egilsdóttir, eiginkona Antons Kristins Þórarinssonar, sagði fyrir dómi í dag að fjölskyldu hennar hefði verið sundrað í tengslum við Rauðagerðismálið. Innlent 15.9.2021 15:12
Anton Kristinn segir ekkert til í fullyrðingu um 50 milljóna króna sekt Anton Kristinn Þórarinsson segir ekki eiga við rök að styðjast að aðilar í undirheimum hafi ætlað að sekta hann um tugi milljóna króna. Hann þvertekur fyrir að hafa vitað af fyrirætlunum Angjelin Sterkaj um að gera Armando Beqirai mein. Hefði hann vitað það hefði hann tekið fyrir það. Innlent 15.9.2021 14:34
Óku 300 kílómetra norður í land með föt og bíl fyrir Angjelin og Claudiu Rúmenskt par sem bjó við hliðina á Angjelin Sterkaj og Claudiu Sofiu Coelho Carvalho í Brautarholti 4 segja að Angjelin Sterkaj hafi oft verið með skotvopn heima hjá sér. Parið ók norður í land með bíl og föt fyrir Angjelin og Claudiu eftir að Armando Beqirai var ráðinn bani í Rauðagerði rétt fyrir miðnætti laugardagskvöldið 13. febrúar. Innlent 15.9.2021 12:12
Atlagan í Rauðagerði tók innan við mínútu Sérfræðingur í að vinna myndefni kom fyrir dóminn í Rauðagerðismálinu í dag og útskýrði hvernig hann hefði notað upplýsingar úr ólíkum áttum, svo sem eftirlitsmyndavélum og farsímagögn, til að búa til myndband sem sýnir atburðarásina laugardagskvöldið 13. febrúar þegar Armando Beqirai var ráðinn bani við heimili sitt í Rauðagerði í Reykjavík. Innlent 14.9.2021 14:20
Lögreglumenn sáu hvergi haglabyssu heima hjá Armando Lögreglumenn, sem sinntu rannsókn á vettvangi morðsins í Rauðagerði í febrúar, segjast ekki hafa séð nein ummerki um að haglabyssa hafi verið á heimilinu. Angjelin Sterkaj hélt því fram við vitnaleiðslur í gær að hann hafi skotið Armando Beqirai í sjálfsvörn, eftir að Armando teygði sig eftir haglabyssu. Innlent 14.9.2021 13:04
Aldrei séð skotvopn á heimilinu í Rauðagerði Ekkja Armando Beqirai, sem var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt við Rauðagerði í febrúar, segir að ekkert skotvopn hafi verið geymt á heimili þeirra, þrátt fyrir staðhæfingu Angjelins Sterkaj um það fyrir dómi í gær. Þetta kom fram þegar hún vitnaði fyrir dómi í morgun við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur Innlent 14.9.2021 10:52
Skothylkin fuku í vindinum í Rauðagerði Lögreglukona sem bar vitni í Rauðagerðismálinu í dómsal í morgun segir að skothylki hafi fokið til í vindinum í Rauðagerði þegar hana bar að garði. Önnur lögreglukona sagðist ekki hafa verið meðvituð um að skotárás hefði átt sér stað þegar hún mætti á vettvang. Innlent 14.9.2021 10:08
Bílstjóri Angjelins segist hafa komið fullkomlega af fjöllum Shpetim Qerimi, sem er sakaður um að eiga hlutdeild í morðinu á Armando Beqirai í Rauðagerði í febrúar, neitaði sök við skýrslutöku í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Shpetim er sagður hafa ekið Angjelin Sterkaj í Rauðgerði kvöldið sem Angjelin skaut Armando til bana. Innlent 13.9.2021 16:21
Hló og sagðist halda að Angjelin væri undir áhrifum fíkniefna „Armando var vinur minn,“ sagði Murat Selivrada við aðalmeðferð Rauðagerðismálsins í Héraðsdómi Reykjavíkur. Armando var skotinn til bana af Angjelin Sterkaj í Rauðagerði 13. febrúar síðastliðinn. Innlent 13.9.2021 15:10
Átti að senda „hæ sexy“ ef annar bíllinn yrði hreyfður Aðalmeðferð í Rauðagerðismálinu var framhaldið eftir hádegi í dag þar sem tekin var skýrsla af Claudiu Sofiu Coehlo Carvalho, unnustu Angjelin Sterkaj, sem hefur játað að hafa myrt Armando Beqirai í Rauðagerði í febrúar síðastliðnum. Innlent 13.9.2021 14:08
Segir Armando og félaga hans hafa viljað 50 milljónir frá Antoni Kristni Angjelin Sterkaj segist hafa verið einn að verki þegar hann skaut Armando Beqirai til bana í Rauðagerði í Reykjavík í febrúar síðastliðnum. Angjelin segir Armando og Goran Kristján Stojanovic hafa viljað hvor um sig 25 milljónir frá Antoni Kristni Þórarinssyni. Innlent 13.9.2021 10:34
Skýrslutaka í Rauðagerðismálinu hefst í héraðsdómi í dag Aðalmeðferð í Rauðagerðismálinu svokallaða hefst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag og munu skýrslutökur standa yfir fram á fimmtudag. Málflutningur fer fram fimmudaginn 23. september næstkomandi. Innlent 13.9.2021 07:11
Tæpar þrjár vikur í aðalmeðferð í Rauðagerðismálinu Stefnt er á að aðalmeðferð í hinu svokallaða Rauðgerðismáli fari fram í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 13. september. Fjórir eru ákærðir í málinu vegna morðsins á Armando Beqiri, fjölskylduföður á þrítugsaldri, sem skotinn var til bana fyrir utan heimili sitt í Rauðagerði um miðjan febrúar. Innlent 26.8.2021 13:30
Ók Angjelin í Rauðagerði en segist ekkert hafa vitað um tilganginn Shpetim Qerimi, einn fjögurra sem ákærður er fyrir manndráp í Rauðagerðismálinu svokallaða, hefur verið úrskurðaður í farbann til 1. október. Aðalmeðferð í málinu er fyrirhuguð í september. Innlent 9.6.2021 16:00
Anton Kristinn ákærður fyrir vopna- og fíkniefnalagabrot Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ákært Anton Kristinn Þórarinsson fyrir brot á vopnalögum og fíkniefnalögum sem rekja má til húsleitar lögreglu á heimili hans í Akrahverfinu í Garðabæ í mars 2019. Þrjú rafmagnsvopn, rafstuðbyssur, fundust á heimili Antons Kristins auk kókaíns og lítilræði af tóbaksblönduðu kannabisefni. Innlent 9.6.2021 13:14
Angjelin játar en segist hafa verið einn að verki Angjelin Serkaj segist hafa verið einn að verki þegar hann réð Armando Beqirai bana í Rauðagerði laugardagskvöldið 13. febrúar síðastliðinn. Innlent 25.5.2021 08:40