Joe Biden
10 11 12 13 14 15 16 17 18 … 20 ›
Biden sækir G20-fund og hittir páfann fyrir loftslagsráðstefnuna Joe Biden Bandaríkjaforseti er kominn til Evrópu þar sem hann verður viðstaddur tvo fundi á næstu dögum. Forsetinn byrjar í Róm þar sem G20 ríkin hittast til að ræða skattamál og þá mun hann hitta Frans Páfa í Vatíkaninu en Biden er aðeins annar kaþólikkinn í sögu Bandaríkjanna sem sest á forsetastól. Erlent 29.10.2021 07:01
Frestar útgáfu Kennedy-skjalanna aftur Hvíta húsið tilkynnti á föstudaginn að skjöl sem snúa að morði John F. Kennedy, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, verði ekki opinberuð strax. Opinberuninni verði frestað vegna Covid-19 þar sem sérfræðingar þurfi meiri tíma til að fara yfir skjölin og tryggja að þau innihaldi engin leyndarmál. Erlent 25.10.2021 14:52
Kosningafrumvarp Demókrata stöðvað í þriðja sinn Öldungadeildarþingmenn Demókrataflokksins gerðu í kvöld þriðju tilraunina til að greiða atkvæði um kosningafrumvarp þeirra og í þriðja sinn komu Repúblikanar í veg fyrir umræðu og atkvæðagreiðslu um frumvarpið. Erlent 20.10.2021 23:25
Trump vill koma í veg fyrir að nefndin komist í skjöl frá forsetatíð hans Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur stefnt rannsóknarnefnd fulltrúardeildar Bandaríkjaþings sem rannsakar áhlaupið á þinghús Bandaríkjanna í janúar. Trump vill koma í veg fyrir að nefndin komist í skjöl frá forsetatíð hans. Erlent 18.10.2021 23:31
Loftslagsáætlun Bidens í vanda Metnaðarfull loftslagsaðgerðaáætlun Joes Biden Bandaríkjaforseta virðist vera að sigla í strand. Fjármögnun orkuskipta, sem var einn burðarstólpa áætlunarinnar, verður líklega felld út úr fjárlagafrumvarpi sem nú er í meðferð í öldungadeild Bandaríkjaþings. Erlent 16.10.2021 12:58
Vilja vindorkugarða við nær alla strandlengju Bandaríkjanna Ríkisstjórn Joes Biden vill láta reisa vindorkuver við nærri alla strandlengju Bandaríkjanna á næstu árum. Stefnt er að því að vindorkuframleiðendur geti byrjað að sækja um leyfi til að reisa vindtúrbínur fyrir utan ströndina fyrir árið 2025. Erlent 14.10.2021 10:39
Eygja samkomulag til að forðast efnahagslegar hörmungar Demókratar og repúblikanar á Bandaríkjaþingi færðust nær samkomulagi um tímabundna hækkun skuldaþaks ríkissjóðs. Bandaríkin gætu lent í sögulegu greiðsluþroti síðar í þessum mánuði sem er talið myndu hafa hörmulegar afleiðingar í för með sér verði þakið ekki hækkað. Erlent 6.10.2021 23:55
Biden segir repúblikana í „rússneskri rúllettu“ með hagkerfið Repúblikanar á Bandaríkjaþingi bera ábyrgðina á því ef ríkissjóður Bandaríkjanna getur ekki staðið við skuldbindingar sínar síðar í þessum mánuði, að sögn Joes Biden Bandaríkjaforseta. Flokkarnir tveir deila enn hart um svonefnt skuldaþak sem verður að hækka ef Bandaríkin ætla ekki að lenda í sögulegum vanskilum. Erlent 4.10.2021 20:20
NASA horfir lengra út í geim Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa ákveðið að gera breytingar á starfseminni, sem eiga að stjórna áherslum opinberra geimferða næstu áratugina. Markmiðið er að leggja meiri áherslu á lengri geimferðir og þróun tækni sem þarf til þeirra. Erlent 28.9.2021 13:07
Bandaríkin skrefinu nær vanskilum Öldungadeildarþingmenn Repúblikanaflokksins felldu í gær frumvarp sem ætlað var að tryggja áframhaldandi rekstur Bandaríkjastjórnar og koma í veg fyrir vanskil ríkisins. Til stendur að reyna aftur að koma frumvarpinu í gegn í vikunni. Erlent 28.9.2021 11:04
Umdeild endurskoðun í Arizona staðfestir sigur Biden Sex mánaða löng og afar umdeild endurskoðun einkafyrirtækis á úrslitum bandarísku forsetakosninganna í Arizona sem repúblikanar létu fara fram sýndi að opinber úrslit voru rétt. Stofnað var til könnunarinnar vegna samsæriskenninga um að stórfelld svik hefðu kostað Donald Trump sigurinn í Arizona og fleiri ríkjum. Erlent 24.9.2021 09:00
Skera upp herör gegn öflugum gróðurhúsalofttegundum í kælibúnaði Umhverfisstofnun Bandaríkjanna tilkynnti um verulega hertar reglur um framleiðslu svonefndra vetnisflúorkolefna, öflugra gróðurhúsalofttegunda sem eru notaðar í ískápum og loftkælitækjum. Erlent 23.9.2021 15:41
Segir af sér vegna „ómannúðlegrar“ brottvísunar Biden-stjórnarinnar á Haítum Sérstakur sendifulltrúi Bandaríkjastjórnar vegna ástandsins á Haítí sagði af sér í dag til að mótmæla umdeildum brottvísunum Haíta sem sóttust eftir hæli í Bandaríkjunum. Hundruðum Haíta hefur verið flogið til heimalandsins þrátt fyrir ófremdarástand sem ríkir þar. Erlent 23.9.2021 14:11
Biden og Macron vilja byggja upp traust aftur Sendiherra Frakklands mun snúa aftur til Washington DC í næstu viku. Emmanuel Macron, forseti Frakklands, kallaði sendiherrann heim eftir að Bandaríkjamenn, Ástralar og Bretar tilkynntu nýjan varnarsáttmála. Erlent 22.9.2021 18:35
Biden lagði áherslu á samvinnu í skugga deilna við bandamenn Joe Biden Bandaríkjaforseti sagði þjóðir heims þurfa að vinna saman sem aldrei fyrr í fyrsta ávarpi sínu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í dag. Kastast hefur í kekki á milli Bandaríkjastjórnar og hefðbundinna bandalagsríkja vegna brotthvarfsins frá Afganistan og umdeilds kafbátasamnings við Ástrali. Erlent 21.9.2021 14:52
Bandaríkin slaka á ferðabanni til landsins Yfirvöld í Bandaríkjunum munu frá og með nóvember næstkomandi slaka á ferðabanni til landsins sem verið hefur í gildi frá því í mars á síðasta ári. Fullbólusettir íslenskir ferðamenn munu því að öllum líkindum geta ferðast til Bandaríkjanna á ný eftir langt hlé. Erlent 20.9.2021 14:55
Líkti bandarískum öfgamönnum við hryðjuverkamennina frá 2001 George W. Bush, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, lýsti ofbeldisfullum bandarískum öfgaöflum við hryðjuverkamennina sem gerðu árásirnar á Tvíburaturnana og Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna 11. september 2001. Hann sagði að heimaræktaðir hryðjuverkamenn gætu ógnað Bandaríkjunum eins og erlendir hryðjuverkamenn. Erlent 12.9.2021 07:58
Óbólusettir ellefu sinnum líklegri til að deyja Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna (CDC) segir óbólusetta vera ellefu sinnum líklegri til að deyja vegna Covid-19 en þeir sem hafa verið bólusettir. Þetta kemur fram í nýjum rannsóknum sem stofnunin opinberaði í gær og sýna að bóluefnin draga verulega úr alvarlegum veikindum og koma í veg fyrir dauðsföll. Erlent 11.9.2021 08:12
Ætlar að skylda ríkisstarfsmenn í bólusetningu Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, stefnir á að skylda alla starfsmenn sem starfa fyrir alríkisstjórn Bandaríkjanna í bólusetningu. Erlent 9.9.2021 21:25
Dómsmálaráðuneytið fer í hart við Texas vegna „hjartsláttarlaganna“ Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur stefnt yfirvöldum í Texas-ríki Bandaríkjanna vegna umdeildra laga um þungunarrof sem nýlega tóku gildi í ríkinu. Ráðuneytið segir lögin vera andstæð stjórnarskrá Bandaríkjanna. Erlent 9.9.2021 20:31
Leynd verður aflétt af rannsóknargögnum FBI vegna hryðjuverkanna 11. september 2001 Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur tilkynnt að leynd skuli aflétt af nær öllum rannsóknargögnum sem urðu til við upprunalega rannsókn bandarísku alríkislögreglunnar FBI á hryðjuverkunum í Bandaríkjunum 11. september árið 2001. Erlent 4.9.2021 23:21
Biden ver ákvörðunina um að yfirgefa Afganistan Joe Biden Bandaríkjaforseti varði þá ákvörðun að kalla alla hermenn heim frá Afganistan í ræðu sem hann hélt í gærkvöldi. Erlent 1.9.2021 07:37
„Við munum finna ykkur og láta ykkur gjalda“ Joe Biden Bandaríkjaforseti var harðorður í garð hryðjuverkasamtakanna ISIS-K, sem stóðu að baki mannskæðri sprengjuárás á flugvellinum í Kabúl í dag, á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í kvöld. Erlent 26.8.2021 23:02
Gripið til aðgerða til að flýta brottflutningi fólks Joe Biden forseti Bandaríkjanna segir að gripið hafi verið til aðgerða til að flýta flutningi flóttafólks frá Afganistan og hafi bandarískar hersveitir útvíkkað öryggissvæði í kring um flugvöllinn í Kabúl í því augnamiði. Erlent 23.8.2021 06:36
Íbúar Kabúl óttaslegnir Þótt Talibanar hafi gefið út almenna sakaruppgjöf í Afganistan og skorað á fólk að halda til vinnu eru margir íbúar höfuðborgarinnar Kabúl óttaslegnir og halda sig heima. Erlent 19.8.2021 06:29
Sér ekki hvernig hefði verið hægt að komast hjá ringulreið á flugvellinum Joe Biden Bandaríkjaforseti segir að það sé vel hugsanlegt að bandarískir hermenn verði lengur í Afganistan en til 31. ágúst ef ekki hefur tekist að koma öllum Bandaríkjamönnum úr landinu fyrir þann tíma. Hann sér ekki hvernig hægt hefði verið að komast hjá ringulreið á flugvellinum í Kabúl síðasta mánudag. Erlent 19.8.2021 00:01
Varði ákvörðunina og skellti skuldinni á ráðamennina sem flúðu Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, varði ákvörðun sína um að draga bandarískt herlið frá Afganistan er hann ávarpaði bandarísku þjóðina í kvöld. Hann segist standa við ákvörðunina en viðurkennir að Talibanar hafi náð völdum hraðar en gert hafði verið ráð fyrir. Það sé hins vegar ráðamönnum í Afganistan að kenna. Erlent 16.8.2021 21:41
Biden segir Afgana þurfa að berjast fyrir landinu sínu Joe Biden forseti Bandaríkjanna segist ekki sjá eftir að hafa kallað herlið Bandaríkjamanna í Afganistan heim þótt Talibanar hafi að undanförnu náð hverri héraðshöfuðborg landsins á sitt vald. Erlent 11.8.2021 06:39
Biden hvetur Cuomo til að segja af sér Þrýstingur á að Andrew Cuomo, ríkisstjóri New York, segi af sér stigmagnast nú vegna ásakana um kynferðislega áreitni hans. Joe Biden Bandaríkjaforseti og flokksbróðir ríkisstjórans bættist í hóp þeirra sem hvetja hann til þess að stíga til hliðar í dag. Erlent 3.8.2021 23:27
Demókratar flúðu Texas aftur Ríkisþingmenn Demókrataflokksins í Texas í Bandaríkjunum hafa flúið ríkið á nýjan leik til að reyna að koma í veg fyrir samþykkt umdeildra lagafrumvarpa í ríkinu. Athygli þeirra beinist sérstaklega að lagafrumvarpi sem mun gera fólki erfiðara að kjósa í Texas en einnig lögum um fósturrof og kennslu um rasisma í Bandaríkjunum. Erlent 13.7.2021 15:41