Ástin á götunni
302 303 304 305 306 307 308 309 310 … 334 ›
Kári og félagar í góðum málum Kári Árnason lék allan leikinn með Djurgårdens IF sem vann 2-0 sigur á Malmö í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld og náði þar með þriggja stiga forskot á toppnum þegar aðeins fimm umferðir eru eftir. Djurgårdens IF hefur 43 stig, þremur stigum meira IFK Göteborg sem gerði markalaust jafntefli í kvöld. Sport 14.10.2005 06:42
Makaay klár með Bayern Hollenska markamaskínan Roy Makaay verður í liði Bayern Munchen sem sækir Rapid Vín heim í Meistaradeildinni á miðvikudag. Makaay varð fyrir því óláni að meiðast á hné fyrir nokkru og missti af leik liðsins í þýsku úrvalsdeildinni um helgina. Sport 14.10.2005 06:42
Leik Lokeren aflýst í gær Leik Íslendingaliðs Lokeren gegn Lierse í belgísku deildinni í gær var frestað vegna hættuástands sem myndaðist á vellinum í kjölfar ausandi rigningar og þrumuveðurs. Sport 14.10.2005 06:41
Vieira hefur ekki trú á Arsenal Patrick Vieira, fyrrum leikmaður Arsenal og núverandi leikmaður Juventus á Ítalíu, hefur ekki mikla trú á sínum gömlu félögum í Lundúnum og segist fagna því að eiga miklu betri möguleika á því að vinna Meistaradeildina í röðum þeirra. Sport 14.10.2005 06:42
Reid hefur ekki áhuga á Plymouth Fyrrum knattspyrnustjórinn Peter Reid segist ekki vera rétti maðurinn til að taka við liði Bjarna Guðjónssonar í ensku fyrstu deildinni, en hann er einn þeirra sem orðaður er við stöðu knattspyrnustjóra félagsins. Sport 14.10.2005 06:42
Lyon ætlar að sigra Real Madrid Forsvarsmenn frönsku meistaranna í Lyon ætlast til sigurs þegar liðið mætir Real Madrid í Meistaradeild Evrópu annað kvöld, en það eykur vonir Frakkanna að spænska liðið verður án þeirra Zinedine Zidane og Ronaldo í leiknum. Sport 14.10.2005 06:41
Owen segir mörkin á næsta leiti Michael Owen hjá Newcastle segir að stutt sé í að hann og Alan Shearer fari að raða inn mörkunum í ensku úrvalsdeildinni og spáir því að þeir félagar eigi eftir að verða öflugt framherjapar. Sport 14.10.2005 06:41
Benitez ekki smeykur við Betis Rafa Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, segist hvergi banginn við landa sína í Real Betis, en liðin mætast á Spáni í Meistaradeildinni annað kvöld. Benitez segir að þekking sín á spænska boltanum muni koma sínum mönnum að góðu gagni í leiknum. Sport 14.10.2005 06:41
Jörundur tilkynnir landsliðshópinn Jörundur Áki Sveinsson hefur tilkynnt kvennalandsliðshópinn sem mætir Tékkum í undankeppni HM í Kravare í Tékklandi þann 24. september næstkomandi, en þar ber hæst að markadrottningin Olga Færseth hefur verið valin á ný í hópinn. Sport 17.10.2005 23:42
Del Horno meiddur Spænski landsliðsmaðurinn Asier del Horno, sem nýverið gekk í raðir Chelsea, meiddist á læri í leiknum við Sunderland í gær og verður ekki með liðinu á næstunni. Jose Mourinho segir að menn verði að sætta sig við að mikið álag í kring um landsleiki verði til þess að menn lendi í meiðslum. Sport 14.10.2005 06:41
Luque frá í sex vikur Sóknarmaðurinn Alberto Luque hjá Newcastle verður frá keppni í allt að sex vikur eftir að hann var borin af velli í leik liðsins gegn Fulham í gær, en hann er meiddur á læri. Sport 14.10.2005 06:41
Best vill reka Eriksson Knattspyrnugoðsögnin George Best, sem gerði garðinn frægan hjá Manchester United á sínum tíma, liggur ekki á skoðunum sínum þegar kemur að málum enska landsliðsins í knattspyrnu og segir að reka ætti Eriksson úr starfi hið snarasta. Sport 14.10.2005 06:41
Hartley skaut Hearts á toppinn Markahrókurinn Paul Hartley skoraði tvívegis þegar lið hans Hearts frá Edinborg lagði botnliði Livingston 4-1 í skosku úrvalsdeildinni í dag og því hefur liðið nú fimm stiga forystu á Glasgow Celtic á toppi úrvalsdeildarinnar þegar sex umferðir hafa verið leiknar. Sport 14.10.2005 06:41
Jenas vill Evrópusæti Jermaine Jenas, sem lék sinn fyrsta leik fyrir Tottenham Hotspurs í jafntefli liðsins við Liverpool í gær, segir að liðið eigi raunhæfa möguleika á að ná Meistaradeildarsæti í úrvalsdeildinni í ár. Sport 14.10.2005 06:41
Guðjón æfur út í dómara Guðjón Þórðarson lét dómarann sem dæmdi leik Notts County og Chester City í gær, hafa það óþvegið í viðtali við heimasíðu Notts County eftir leikinn, sem endaði 1-1. Guðjón sagði sorglegt að jafn óreyndur dómari fengi að dæma leiki af þessu tagi. Sport 14.10.2005 06:41
Óvænt úrslit á Spáni og Ítalíu Óvænt úrslit urðu í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í gær þegar Real Madríd tapaði á heimavelli fyrir nýliðum Celta de Vigo. Þá mátti Internazionale þola ósigur gegn Palermo á Ítalíu. Sport 14.10.2005 06:41
Ronaldo fær frí á miðvikudag Ungstirnið Cristiano Ronaldo fær frí frá leik Manchester United og Villareal á Spáni á miðvikudagskvöldið, vegna fráfalls föður hans á dögunum. Ronaldo var ekki með liði sínu í jafnteflinu gegn grannaliðinu Manchester City á laugardaginn og Alex Ferguson ætlar að gefa honum lengri tíma til að jafna sig. Sport 14.10.2005 06:41
Áform KR heilluðu Teit Teitur Þórðarson, nýráðinn þjálfari KR í knattspyrnu, sagði að ekki hefði staðið til að koma strax aftur heim til Íslands, en sagði tilboð KR hafa freistað sín vegna þeirra áætlana sem þeir hafi uppi um uppbyggingarstarf á næstu árum. Sport 14.10.2005 06:41
Benitez vill skerpa sóknina Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, er ánægður með leik sinna manna það sem af er leiktíðinni, en segist þó vilja skerpa á sóknarleik liðsins, sem hefur ekki verið upp á marga fiska í undanförnum leikjum. Sport 14.10.2005 06:41
Bolton og Blackburn skildu jöfn Nú rétt í þessu lauk sunnudagsleiknum í enska boltanum, en það var viðureign Bolton og Blackburn á Reebok Stadium í Bolton. Leiknum lauk með markalausu jafntefli og fyrir vikið er Bolton í 5. sæti deildarinnar með átta stig úr fimm leikjum, en Blackburn, sem fékk sitt fyrsta stig á útivelli í dag, er með fimm stig í 12. sætinu. Sport 14.10.2005 06:41
Gunnar Heiðar tryggði sigurinn Íslenski landsliðsframherjinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson heldur áfram að minna á sig í sænska boltanum, en nú fyrir stundu var að ljúka leik Hacken og Halmstad í sænsku úrvalsdeildinni. Leiknum lauk með 1-0 sigri Halmstad og það var Gunnar Heiðar sem skoraði sigurmarkið á 70. mínútu leiksins. Sport 14.10.2005 06:41
Maccarone kemur Boro í 2-0 Massimo Maccarone hefur komið Middlesbrough í 2-0 gegn Arsenal í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni og því er útlitið orðið svart hjá bikarmeisturunum. Aðeins um stundarfjórðungur er eftir af leiknum. Sport 14.10.2005 06:41
Wenger slær á létta strengi Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, er ekki vanur að vera mikill háðfugl, en þegar hann var spurður út í ráðningu grannaliðsins Tottenham á Damien Comolli á dögunum, sá hann ástæðu til að slá á létta strengi. Sport 14.10.2005 06:41
Middlesbrough lagði Arsenal 2-1 Middlesbrough vann frækinn sigur á Arsenal í síðasta leiknum í ensku úrvalsdeildinni í dag. Það voru þeir Yakubu og Massimo Maccarone sem komu heimamönnum í 2-0, en Spánverjinn Jose Antonio Reyes minnkaði muninn í uppbótartíma fyrir Arsenal, sem hefur nú tapað tveimur af fyrstu fjórum leikjum sínum í deildinni. Sport 14.10.2005 06:41
Breiðablik komið yfir Blikastúlkur voru rétt í þessu að komast yfir 2-1 gegn KR í bikarúrslitaleik kvenna á Laugardalsvelli. KR stúlkur komust í 1-0 eftir aðeins fimm mínútna leik, en Blikastúlkur komust yfir 2-1 í blálokin á hálfleiknum. Sport 14.10.2005 06:41
Jol hrósar Michael Carrick Martin Jol, knattspyrnustjóri Tottenham Hotspurs, hrósaði miðjumanni sínum Michael Carrick í hástert eftir leikinn við Liverpool í dag og sagði hann hafa átt miðjuna í leiknum. Jol segist ekki skilja af hverju Carrick er ekki valinn í enska landsliðið. Sport 14.10.2005 06:41
Blikastúlkur bikarmeistarar Kvennalið Breiðabliks er bikarmeistari í kvennaflokki eftir sannfærandi 4-1 sigur á KR á Laugardalsvellinum, en leiknum lauk nú fyrir stundu. Breiðablik vann því tvöfalt í ár og gleðin er allsráðandi í Kópavogi í dag, því skömmu áður fengu karlarnir afhentann bikarinn fyrir sigurinn í fyrstu deild. Sport 14.10.2005 06:41
Þrír leikir á Sýn í dag Þrír leikir verða sýndir beint á Sýn í dag og í kvöld. Klukkan 16 hefst leikur Palermo og Internazionale í ítölsku úrvalsdeildinni. Strax á eftir klukkan 18 verður skipt yfir til Madrídar á Spáni en þá hefst leikur Real Madríd og Celta Vigo. Sport 14.10.2005 06:41
Leikjum lokið í ensku Leikjunum sem hófust klukkan 14 í ensku úrvalsdeildinni er nú lokið. Meistarar Chelsea unnu Sunderland nokkuð auðveldlega 2-0 og Manchester liðin skildu jöfn 1-1,í æsilegum grannaslag, eins og reyndar Tottenham og Liverpool í London. Sport 14.10.2005 06:41
Teitur Þórðarson næsti þjálfari KR Teitur Þórðarson verður næsti þjálfari meistaraflokks karla hjá KR. Teitur tekur við liðinu í haust af þeim Sigursteini Gíslasyni og Einari Þór Daníelssyni sem stýrt hafa KR frá því Magnúusi Gylfasyni var vikið frá störfum í lok júlí. Teitur Þórðarson var væntanlegur til landsins í kvöld en fyrirhugað er að skrifa undir samkomulag við hann í fyrramálið um þjálfun KR. Þá er blaðamannafundur fyrirhugaður fyrir hádegi þar sem ráðning hans verður kynnt. Sport 14.10.2005 06:41