Kynþáttafordómar
2 3 4 5 6 7 8 9 10 … 10 ›
Sér ekki hvað lögreglan hefði getað gert öðruvísi Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri, segir að það sé óþolandi að saklaus ungur drengur skyldi hafa orðið fyrir ítrekuðu áreiti af hálfu lögreglu eingöngu vegna uppruna og kynþáttar. Á sama tíma sjái hún ekki hvað lögreglan hefði getað gert öðruvísi því hún hafi verið að leita að hættulegum manni en verið var að leita að gæsluvarðhaldsfanga sem flúði úr héraðsdómi. Lögreglan hefur nýlokið stefnumótun en upp úr henni spruttu einkunnarorðin: Að vernda og virða. Innlent 17.5.2022 12:14
Opinn fundur í allsherjar- og menntamálanefnd: Fræðsla og menntun lögreglumanna um fjölmenningu og fordóma Allsherjar- og menntamálanefnd verður með opinn fund sem hefst klukkan 9:10 í dag. Efni fundarins er fræðsla og menntun lögreglumanna um fjölmenningu og fordóma. Innlent 17.5.2022 08:40
Svör frá framboðum í Reykjavík varðandi kynþáttafordóma Aðgerðarhópur gegn fordómum sendi á dögunum spurningar til allra framboða í Reykjavík og birtir hér svör þeirra. Þrjár spurningar voru sendar á flokka í framboði í borginni* og vísa þær í nýliðna atburði og viðbrögð við þeim. Skoðun 13.5.2022 06:46
Opið bréf til framboðslista varðandi sýn þeirra á kynþáttafordóma Nýverið opinberuðust rasísk viðhorf í samfélaginu í tengslum við flótta ungs hörundsdökks manns úr haldi lögreglunnar. Í kjölfar þess opinberaðist mjög glögglega að kynþáttafordómar lifa góðu lífi hér sem annas staðar. Skoðun 11.5.2022 11:00
Ísland er land kynþáttafordóma – eins og öll önnur lönd Í kjölfar málsins í kringum Gabríel Douane Boama hef ég rekið mig á eftirfarandi fullyrðingu: „Það er ekki rasismi á Íslandi, þið eruð að ímynda ykkur þetta.“ Ég hef heyrt þetta í fyrstu persónu frá fólki í nærumhverfi mínu og lesið það á vefmiðlum. Skoðun 4.5.2022 10:31
Kallaði eigin leikmenn karríætur og sjálfsmorðssprengjumenn Crawley Town, sem er í 12. sæti ensku D-deildarinnar, hefur sent knattspyrnustjórann John Yems í leyfi meðan rannsókn enska knattspyrnusambandsins á kynþáttafordómum hans í garð eigin leikmanna stendur yfir. Enski boltinn 4.5.2022 09:31
Einkamál innviðaráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, gerðist uppvís að því að fara með rasísk, eða eins og hann komst að orði, helst til „óviðurkvæmileg“ ummæli fyrir fáeinum vikum síðan. Málið varð kveikja að talsverðri samfélagsumræðu – en hvert hras ríkisstjórnarinnar á fætur öðru gerði það að verkum að umræðan snerist fljótlega annað. Mér þykir þó einstaklega mikilvægt að við skiljum ekki við málið og látum þar við sitja. Skoðun 29.4.2022 20:00
Viðbrögð flokksins ekki óvænt í ljósi sögu hans um „daður við rasisma“ Kynja-og fjölbreytileikafræðingur segir mál þingmanns Flokks fólksins, sem upp kom í gær, bera með sér kvenfyrirlitningu, rasisma og stéttamisnotkun. Afstaða þingflokksins og ákvörðun um að standa með þingmanninum valdi vonbrigðum en komi henni ekki á óvart því flokkurinn hafi daðrað við rasisma í stefnumálum og orðræðu. Innlent 29.4.2022 13:36
Spyr hvort hörð umræða tengist ummælum á Búnaðarþingi eða sveitarstjórnarkosningum Innviðaráðherra velti því upp á Alþingi í morgun hvort þungar ásakanir í kjölfar ummæla á Búnaðarþingi tengist ummælunum sem slíkum eða komandi sveitarstjórnarkosningum þar sem Framsóknarflokkurinn mælist á mikilli siglingu. Innlent 29.4.2022 12:07
Rasismi á Íslandi Rasismi er vandamál á Íslandi eins og annars staðar í veröldinni. Íslenska lögreglan er þar ekki undanskilin. Í þessu felst ekki ásökun eða upphrópun heldur er um að ræða fyrsta skrefið í að takast á við vandann, það er að viðurkenna skilyrðislaust að til staðar sé vandamál. Án slíkrar viðurkenningar er ekki von á því að okkur takist að bæta samfélagið hvað þetta varðar. Skoðun 29.4.2022 11:15
Segir Ingu standa stolta með körlum sem lítillækki konur Ragna Sigurðardóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir ljóst að Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, standi með körlum sem lítillækki konur. Þegar á hólminn sé komið vilji Inga ekki taka raunverulega afstöðu gegn kvenfyrirlitningu. Innlent 29.4.2022 10:00
Arnar biðst afsökunar eftir Vikuna með Gísla Marteini „Þó ég sé vel vanur að koma fram í sjónvarpi þá er ég ekki vanur umræðu á opinberum vettvangi um málefni er varðar kynþáttamisrétti og svör mín gætu hafa komið þannig út eins og ég væri ekki alveg í takt við raunveruleikann.“ Innlent 27.4.2022 09:44
Aðgerðastefna gegn rasisma og fordómum fyrir réttlátara samfélag Það er sorgleg staðreynd að á Íslandi grasseri fordómar og rasismi. Slíkir fordómar og hatur hafa mikil og neikvæð áhrif á stóran hóp fólks á Íslandi. Það er ekki bara ógagnlegt að afneita vandamálinu og gaslýsa fólk sem upplifir slíka fordóma, heldur er það einnig særandi, skaðlegt og stór hluti vandamálsins. Skoðun 25.4.2022 08:31
Fékk símtal sem allar svartar mæður hræðast Móðir unglingspilts, sem lögregla hafði í tvígang afskipti af vegna leitar að strokufanga í vikunni, segist hafa verið hrædd og niðurlægð þegar lögreglu var sigað á son hennar. Hún telur lögreglu hafa gert alvarleg mistök og segir vitundarvakningu um raunveruleika ungmenna af erlendum uppruna nauðsynlega. Innlent 24.4.2022 19:22
Stígur fram vegna máls sonar síns Claudia Ashanie Wilson lögmaður telur lögreglu á höfuðborgarsvæðinu hafa gert alvarleg mistök við afskipti af sextán ára syni hennar í vikunni. Lögregla vitjaði piltsins í tvígang í tengslum við leit að ungum strokufanga en þeir eru báðir dökkir á hörund. Rætt verður við Claudiu um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 en hún hefur ekki tjáð sig um það við fjölmiðla fyrr en nú. Innlent 24.4.2022 15:38
Segir rauðhærða og skeggjaða oft lenda í „þessu veseni“ Brynjar Níelsson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, telur að fólk þurfi að vera „sérkennilega innréttað“ til að sjá kynþáttafordóma í máli þar sem sextán ára þeldökkur drengur var í tvígang stöðvaður af lögreglu í tengslum við leit hennar að strokufanga. Innlent 22.4.2022 10:21
Lögregla hafi ekki átt annarra kosta völ: „Við erum að leita að hættulegum manni“ Ríkislögreglustjóri segist ekki geta útilokað fordóma í lögreglunni en telur lögreglu ekki hafa sýnt fram á rasisma í tengslum við leitina að strokufanga. Hún segir lögreglu ekki hafa val um að fylgja eftir ábendingum í leit að eftirlýstum manni og að viðbrögð lögreglu hafi verið rétt. Henni þyki leitt að ungur maður hafi dregist inn í málið og að verið sé að ræða hvernig bæta megi aðgerðir í framhaldinu. Innlent 21.4.2022 20:00
Telur mál piltsins ekki merki um rasisma í lögreglunni Doktor í afbrotafræði telur ekki að viðbrögð lögreglu, sem hefur nú haft afskipti af unglingspilti í tengslum við leit að strokufanga tvígang, beri vott um rasisma. Pilturinn er ekkert tengdur málinu en er dökkur á hörund eins og strokufanginn. Innlent 21.4.2022 19:05
Club Brugge notar QR-kóða gegn kynþáttafordómum Belgíska félagsliðið Club Brugge ætlar að fara nýjar leiðir í baráttunni gegn kynþáttafordómum. Félagið hefur prentað út rúmlega 24.000 QR-kóða sem verða límdir aftan á sæti á heimavelli félagsins, Jan Breydel vellinum. Fótbolti 21.4.2022 10:00
Öfgamanni tókst að skapa það upplausnarástand sem hann vildi Páskahelgin í Svíþjóð hefur einkennst af ofbeldisfullum átökum á milli lögreglu og mótmælenda víða um landið. Einn er grunaður um manndrápstilraun á hendur lögreglumanni og fleiri en fjörutíu hafa verið handteknir. Rasmus Paludan, danskur róttækur hægrimaður, á töluverðan hlut að máli. Erlent 18.4.2022 21:30
Kjarninn tók út frétt vegna yfirgengilegs rasisma Vefmiðlinn Kjarninn tók út frétt sem birtist á vefnum vegna persónuárása, rasisma og hatursorðræðu gegn Lenyu Rún Taha Karim, varaþingsmanns Pírata. Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Kjarnans segir að sig hafi sett hljóðan við lestur ummælanna. Innlent 17.4.2022 19:37
Hefja rannsókn eftir að lögreglumaður skaut svartan mann til bana Lögreglan í Michigan-ríki í Bandaríkjunum rannsakar nú mál hvíts lögreglumanns sem skaut hinn 26 ára Patrick Lyoya, sem var svartur, til bana. Myndbönd sýna átök milli Lyoya og ónefnds lögreglumanns vegna rafbyssu, sem enduðu með því að lögreglumaðurinn skaut Lyoya. Mótmælendur krefjast þess að lögreglumaðurinn verði nafngreindur. Erlent 14.4.2022 08:49
Afkomendur Ásmundar segja listakonurnar vega að æru hans Barnabarn Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara segir listakonurnar Bryndísi Björnsdóttur og Steinunni Gunnlaugsdóttur hafa vegið harkalega að æru Ásmundar þegar þær sögðu styttu af Guðríði Þorbjarnardóttur rasíska. Innlent 13.4.2022 20:10
Feilskot við Nýló Árið 1938 mótaði afi minn Ásmundur Sveinsson myndhöggvari mynd sem hann kallaði Fyrsta hvíta móðirin. Verk þetta sýnir Guðríði Þorbjarnardóttur en talið er að hún hafi verið fyrsta evrópska konan sem ól barn í Ameríku og var það um árið 1000. Skoðun 13.4.2022 17:01
„Ef það er einu sinni of mikið sagt, þá á ekki að endurtaka það“ Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, segir að til standi að biðja Vigdísi Häsler, formann Bændasamtakanna, afsökunar. Hann hafi gert það opinberlega en ekki gert það persónulega. Þau munu hittast á morgun. Innlent 7.4.2022 19:10
Formaður Framsóknar vankaður eftir svall á Búnaðarþingi Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, hefur hingað til verið talinn einhver traustasti stjórnmálamaður landsins. Með báða fætur fast á jörðu. En um nótt á Búnaðarþingi á dögunum felldi hann grímu geðfelldninnar með umdeildum ummælum og stendur eftir vankaður pólitískt. Innlent 6.4.2022 13:00
Segist hafa látið ummælin falla í pirringi eftir mikla skemmtun Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir ummæli sín um Vigdísi Häsler framkvæmdastjóra Bændasamtakanna hafa fallið eftir mikinn gleðskap og í pirringi. Sigurður Ingi tjáði sig í fyrsta sinn um málið við fjölmiðla í kvöldfréttum RÚV eftir að hafa komið sér undan fréttamönnum eftir ríkisstjórnarfund í dag. Innlent 5.4.2022 21:34
Ummæli Sigurðar óverjandi Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að Sigurður Ingi Jóhannsson verði sjálfur að ákveða hvort hann þurfi að segja af sér ráðherraembætti vegna ummæla hans um framkvæmdastjóra Bændasamtakanna í síðustu viku. Sigurður Ingi kom sér undan fréttamönnum eftir ríkisstjórnarfundi í dag. Innlent 5.4.2022 20:38
Þvertekur fyrir að Framsókn sé rasískur flokkur Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra þvertekur fyrir að Framsókn sé á einhvern hátt rasískur flokkur og segir það duga þingflokki Framsóknar að Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og formaður flokksins, hafi beðist afsökunar á ummælum sínum um Vigdísi Häsler, framkvæmdastjóra Bændasamtakanna. Innlent 5.4.2022 15:01
Segir ráðherra reyna að stjórna umræðunni Ragna Sigurðardóttir, forseti Ungra jafnaðarmanna, hefur ýmislegt við hegðun Sigurðar Inga Jóhannssonar, innviðaráðherra, að athuga. Bæði varðandi ummælin sem hann lét falla í garð Vigdísar Häsler, framkvæmdastjóra Bændasamtakanna, en líka hvernig hann hefur kosið að bregðast við eftir að fréttir af atvikinu tóku að spyrjast út. Innlent 5.4.2022 14:39
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent