Samherjaskjölin
1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 16 ›
Boðaður í yfirheyrslu vegna umfjöllunar um Samherja Aðalsteinn Kjartansson, blaðamaður á Stundinni, hefur verið boðaður í yfirheyrslu hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra í næstu viku vegna umfjöllunar sinnar um aðferðir hinnar svokölluðu „skæruliðadeildar Samherja.“ Innlent 14.2.2022 18:19
Helgi Seljan frá RÚV á Stundina: „Veitir mér leyfi til að svara fyrir mig“ Fréttamaðurinn Helgi Seljan hefur sagt upp störfum hjá RÚV. Helgi, sem hefur starfað á miðlinum frá árinu 2006, hefur verið í leyfi frá störfum og hyggst ekki snúa aftur. Hann tekur við sem rannsóknarritstjóri Stundarinnar þann 15. febrúar. Innlent 13.1.2022 13:15
Ársreikningar með fyrirvara vegna stöðunnar í Namibíu Samstæðan Samherji Holding ehf. hagnaðist um 27,4 milljónir evra á seinasta ári eða sem nemur um 4,04 milljörðum króna, samkvæmt ársreikningi. Hagnaður nam 1,4 milljónum evra árið 2019. Viðskipti innlent 30.12.2021 12:57
Staðhæfingar Páls koma Páleyju spánskt fyrir sjónir Páll Vilhjálmsson bloggari og framhaldsskólakennari fullyrðir að rannsókn á hvarfi síma Páls Steingrímssonar skipstjóra hjá Samherja sem og hvort og hvernig hafi verið eitrað fyrir skipstjóranum sé langt komin og niðurstaða liggi fyrir í drögum. Innlent 19.11.2021 11:16
Jóhannes uppljóstrari verðlaunaður í Svíþjóð Jóhannes Stefánsson, uppljóstrari og fyrrverandi stjórnandi hjá Samherja í Namibíu, fékk sjálfbærnisverðlaun Gautaborgar í dag, sem kallast Win Win. hann fékk um fimmtán milljónir króna í verðlaunafé. Innlent 21.10.2021 22:37
Anna Sigrún lætur í veðri vaka að Páll Vilhjálmsson sé siðblindur Anna Sigrún Baldursdóttir, framkvæmdastjóri skrifstofu forstjóra Landspítala, ritar grein þar sem hún lætur að því liggja að Páll Vilhjálmsson bloggari og framhaldsskólakennari sé siðblindur. Innlent 20.10.2021 09:15
Páll Vilhjálmsson sér ekkert bogið við umdeildan pistil um Helga Seljan Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands og Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar, fordæma skrif Páls Vilhjálmssonar framhaldsskólakennara við Fjölbrautarskólann í Garðabæ. Sjálfur segir Páll hugleiðingar sínar fullkomlega eðlilegar. Innlent 18.10.2021 14:51
Íslendingur rakst á „Samherja-bol“ á markaði í Namibíu Ásgeir Guðmundsson, sem staðsettur er í Namibíu, rakst á sérkennilegan bol á markaði þar í landi í dag. Bolurinn ber yfirskriftina „Good Samaritan“ og skartar meðal annars mynd af Þorsteini Má Baldvinssyni, forstjóra sjávarútvegsfyrirtækisins Samherja. Lífið 14.10.2021 22:55
Ný Samherjaskjöl: „Er hugsanlegt að múta einhverjum?“ „Er hugsanlegt að múta einhverjum?“ Að þessu spurði Aðalsteinn Helgason árið 2012 um það leyti sem Samherji var að hefja innreið sína í Namibíu og vildi tryggja sér þar fiskveiðikvóta. Innlent 24.9.2021 12:29
Karl Eskil ráðinn til að stýra heimasíðu og miðlum Samherja Karl Eskil Pálsson fjölmiðlamaður hefur verið ráðinn til Samherja og mun hann miðla fréttum á heimasíðu og samfélagsmiðlum félagsins, auk þess sem hann mun sinna innri vef Samherja þar sem upplýsingum og fræðsluefni er komið til starfsfólks. Viðskipti innlent 1.9.2021 11:39
Félagi í eigu Samherja gert að greiða namibískum sjómönnum bætur Félagið ArcticNam, sem er í helmingseigu Samherja, hefur verið dæmt í félagsdómi til að greiða 23 namibískum sjómönnum togarans Heinaste samtals 15,7 milljónir íslenskra króna í sáttabætur. Sjómönnunum var sagt upp fyrirvaralaust árið 2019 og skipt út fyrir ódýrara vinnuafl. Erlent 6.7.2021 17:02
Páll segir skipun Kristjáns Þórs hafa skaðað Sjálfstæðisflokkinn Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir í grein í Morgunblaðinu að það hafi verið sjálfskaparvíti að gera Kristján Þór Júlíusson að sjávarútvegsráðherra. Hægt hefði verið að komast hjá því að valda grunsemdum um hagsmunaárekstra með því að sleppa því. Innlent 3.7.2021 12:49
Segja ábyrgðina alfarið á herðum Jóhannesar Eftir að hafa birt afsökunarbeiðni í formi heilsíðuauglýsinga í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu í morgun, hafa forsvarsmenn Samherja nú birt yfirlýsingu og aðra afsökunarbeiðni á heimasíðu félagsins. Viðskipti innlent 22.6.2021 08:34
Þorsteinn Már biðst afsökunar fyrir hönd Samherja Þorsteinn Már Baldvinsson undirritar afsökunarbeiðni sem birtist sem heilsíðuauglýsing í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu í dag. Þar segir hann að „ámælisverðir viðskiptahættir“ hafi fengið að viðgangast í starfsemi útgerðar Samherja í Namibíu. Viðskipti innlent 22.6.2021 06:24
Aðför Samherja einsdæmi á Norðurlöndum Norrænir fjölmiðlar virðast flestir kannast við hótanir, ofbeldi og hatur í sinn garð, sem stórt vandamál. Enginn þeirra hefur þó heyrt af eins alvarlegum árásum fyrirtækis á hendur fjölmiðlafólki og þeim sem Samherji réðst í eftir umfjöllun fréttaskýringaþáttarins Kveiks um Namibíumálið. Innlent 14.6.2021 22:45
Arna McClure ekki lengur kjörræðismaður Kýpur á Íslandi Utanríkisráðuneytinu barst tilkynning þar um 2. júní síðastliðinn að aðallögfræðingur Samherja væri ekki lengur ræðismaður Kýpur. Innlent 9.6.2021 15:10
Afsökunarbeiðni á leikskólaplani Samherji baðst afsökunar í vikunni. Þeirri afsökunarbeiðni hefur verið tekið fálega ef ekki beinlínis illa. Og reyndar á það við um þær afsökunarbeiðnir sem fallið hafa á árinu. Innlent 6.6.2021 07:00
Telur umræðuna um Samherja smita út frá sér Neikvæð umræða um stórútgerðina Samherja smitar út frá sér og hefur áhrif á tiltrú almennings á sjávarútveginn í heild sinni, að mati Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegsráðherra. Hann telur Samherja ekki hafa gert hreint fyrir sínum dyrum. Innlent 5.6.2021 08:08
Þingmenn skulda Samherja engar skýringar Rætt var um Samherjamálið í umræðum um störf þingisins á Alþingi í dag og gerði Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar, bréf sem fyrirtækið sendi menntamálaráðherra að umtalsefni. Innlent 1.6.2021 14:08
Ætla ekki að tjá sig um afsökunarbeiðnina Stjórnendur Samherja ætla sér ekki að útskýra frekar yfirlýsingu þeirra þar sem beðist var afsökunar á harkalegum viðbrögðum þeirra við umfjöllun um fyrirtækið og málefni þess í Namibíu og víðar. Yfirlýsingin, sem send var út í gær, hefur vakið spurningar. Innlent 31.5.2021 23:00
Samherji bað Lilju um útskýringu á ummælum hennar Lögmaður á vegum Samherja sendi bréf til Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, þar sem þess var óskað að hún útskýrði nákvæmlega hvað hún átti við þegar hún sagði á þingi að fyrirtækið hefði gengið of langt. Innlent 31.5.2021 19:22
Hver er að biðja hvern afsökunar á hverju? Starfsmenn Ríkisútvarpsins fagna afsökunarbeiðni frá Samherjamönnum en eru hugsi; vita ekki alveg hvernig ber að skilja afsökunarbeiðnina sem sögð er úr hófi fram loðin. Innlent 31.5.2021 11:30
„Einstakt, fordæmalaust og grafalvarlegt“ Rakel Þorbergsdóttir fréttastjóri Ríkisútvarpsins gefur lítið fyrir þá gagnrýni að frétta- og fjölmiðlamenn séu viðkvæmir og þoli ekki gagnrýni. Þeir sem starfi á þeim vettvangi séu ýmsu vanir og því sé kjánalegt að setja hlutina í það samhengi. Þá sé það fordæmalaust að fjölmiðlamaður þurfi að þola árásir líkt og Helgi Seljan hefur gert í kjölfar umfjöllunar Kveiks um Samherja. Innlent 30.5.2021 17:06
Samherji biðst afsökunar „Stjórnendur Samherja hafa brugðist harkalega við neikvæðri umfjöllun um félagið og ljóst að of langt hefur verið gengið í þeim viðbrögðum. Af þeim sökum vill Samherji biðjast afsökunar á þeirri framgöngu.“ Innlent 30.5.2021 11:43
Ekkert í störfum Kristjáns Þórs sem gefur tilefni til vantrausts Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segist ekki hafa séð neitt í störfum Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Sjálfstæðisflokksins, sem gefi henni tilefni til að vantreysta honum. Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, og formanni Sjálfstæðisflokksins finnst ekki eðlilegt að hann tjái sig um samskipti Kristjáns við meðlim svokallaðrar „skæruliðadeildar“ Samherja. Innlent 28.5.2021 16:24
Segir „skæruliðadeildina“ hluta af stærra neti innan Samherja: „Þetta er komið á mjög hættulega braut“ Jóhannes Stefánsson, uppljóstrari og fyrrverandi stjórnandi hjá Samherja í Namibíu, segir fregnir síðustu daga af „skæruliðadeild“ Samherja ekki koma sér á óvart. Hún sé aðeins hluti af stærra neti innan fyrirtækisins sem „ráðist á fólk“ og fleiri vinni að slíkum herferðum. Að hans mati muni enda illa ef yfirvöld stigi ekki inn í málið. Innlent 27.5.2021 23:51
Bein útsending: Jóhannes uppljóstrari ræðir Samherja Jóhannes Stefánsson, fyrrverandi starfsmaður Samherja betur þekktur sem uppljóstrarinn í Samherjamálinu, mun sitja fyrir svörum í beinni útsendingu klukkan 17 í dag. Innlent 27.5.2021 16:30
Hefur áhyggjur af afskiptum af komandi kosningum Píratar hafa farið fram á að Öryggis- og framfarastofnun Evrópu sinni kosningaeftirliti í komandi alþingiskosningum. Innlent 26.5.2021 19:34
Grætur kaldar kveðjur frænku sinnar krókódílstárum Jóhann Páll Jóhannsson, frambjóðandi Samfylkingarinnar, segir þá staðreynd að Kristján Þór Júlíusson sé ekki horfinn úr sjávarútvegsráðuneytinu ótvíræð skilaboð um að ríkisstjórnin sé fyrst og síðast um óbreytt ástand. Innlent 26.5.2021 17:13
Rannsókn á kæru starfsmanns Samherja á frumstigi Lögreglan á Norðurlandi eystra segir að kæra starfsmanns Samherja vegna þjófnaðar sé til skoðunar hjá embættinu. Þetta kemur fram í Facebook-færslu lögreglunnar. Innlent 26.5.2021 12:49