Lög og regla
104 105 106 107 108 109 110 111 112 … 120 ›
Fyrrverandi forstjóri SÍF sýknaður Gunnar Örn Kristjánsson, fyrrverandi forstjóri SÍF, var í dag sýknaður af öllum ákærum um brot í starfi sem endurskoðandi Tryggingarsjóðs lækna á síðasta áratug. Innlent 13.10.2005 15:05
Íhugar meiðyrðamál Fyrrverandi endurskoðandi Tryggingarsjóðs lækna var sýknaður í Hérðasdómi Reykjavíkur í gær. Hann var sakaður um að hafa vanrækt skyldur sínar sem löggiltur endurskoðandi. Innlent 13.10.2005 15:05
Ók á konu og lét sig hverfa Lögreglan í Keflavík leitar nú ökumanns sem ók á unga konu á mótum Strandgötu og Vesturgötu í Sandgerði um klukkan hálfsex í gærkvöldi og ók af vettvangi þar sem konan lá slösuð í götunni. Vegfarendur sem komu að kölluðu þegar á lögreglu og sjúkrabíl og var konan flutt rænulítil á slysadeild Landspítalans. Innlent 13.10.2005 15:05
22 yfirheyrðir vegna barnsráns Lögreglan í Kópavogi hefur enn ekki haft uppi á manninum sem í síðustu viku nam níu ára telpu á brott úr miðbæ Kópavogs, ók með hana upp á Mosfellsheiði og skildi hana þar eftir. Lögreglan hefur yfirheyrt 22 karla á þrítugsaldri í tengslum við málið en þeir hafa allir verið hreinsaðir af grun um að vera viðriðnir það. Innlent 13.10.2005 15:05
Tekinn réttindalaus tvisvar í nótt Lögreglan í Hafnarfirði stöðvaði réttindalausan ökumann tvisvar í nótt með tæplega fimmtán mínútna millibili og var bíllinn þá tekinn af honum. Í fyrra skiptið fékk farþegi með ökuréttindi að aka bílnum áfram en í síðara skiptið var brotlegi ökumaðurinn einn á ferð og þarf nú að leita að einhverjum með réttindi til að leysa bílinn út. Innlent 13.10.2005 15:04
Lá á miðjum veginum Maðurinn, sem lést þegar ekið var yfir hann á Eyrarvegi á Selfossi um helgina, lá nánast á miðju vegarins þegar slysið varð. Maðurinn var dökkklæddur og rann klæðnaðurinn saman við svart og blautt malbikið en slagveðurs rigning og myrkur var þegar slysið varð. Innlent 13.10.2005 15:04
Maðurinn enn ófundinn Þrátt fyrir mikla eftirgrennslan er maðurinn sem rændi níu ára stúlku í Kópavogi í síðustu viku ófundinn. Lögreglan hefur fengið margar vísbendingar en engin þeirra hefur enn leitt til handtöku. Stúlkan telur að maðurinn sé um tvítugt, krúnurakaður og með skeggtopp neðan við neðri vör. Innlent 13.10.2005 15:04
Rætt við á annan tug manna Rætt hefur verið við á annan tug manna sem lýsing níu ára stúlku, sem rænt var í Kópavogi á miðvikudaginn í síðustu viku, getur átt við. Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn í Kópavogi, segir á þriðja tug ábendinga hafa borist lögreglunni en engin þeirra hafi leitt til handtöku. Innlent 13.10.2005 15:04
Slökkviliðið kallað að 22 Slökkviliðsmenn og -bílar frá fjórum slökkvistöðvum á höfuðborgarsvæðinu voru sendir að veitingahúsinu við Laugaveg 22 laust fyrir klukkan sjö í gærkvöldi eftir að tilkynning hafði borist um að reyk legði upp af húsinu. Innlent 13.10.2005 15:04
Átak gegn ölvunarakstri Átak lögreglunnar í Reykjavík til að koma í veg fyrir ölvunarakstur fyrir jólin er hafið. Um helgina voru 560 ökumenn stöðvaðir og ástand þeirra kannað. Fjórir þeirra reyndust vera undir áhrifum áfengis og tveir reyndust án ökuréttinda. Innlent 13.10.2005 15:04
14 teknir fyrir ölvunarakstur Fjórtán ökumenn voru teknir úr umferð í Reykjavík um helgina vegna ölvunar sem þykir vel í meira lagi. Frá föstudagskvöldi og fram á sunnnudagskvöld voru hátt í 700 bílar stöðvaðir og var þetta afrakstur þess átaks lögreglunnar. Innlent 13.10.2005 15:04
Vill leggja hegningarhúsið niður Fangelsismálastofnun leggur til að hegningarhúsið við Skólavörðustíg og kvennafangelsið í Kópavogi verði lagt niður. Eins er talið brýnt að nýtt fangelsi með 55 til 60 klefum rísi á Hólmsheiði. Kemur þetta fram í markmiðum í fangelsismálum sem Fangelsismálastofnun gerði fyrir vinnuhóp dómsmálaráðuneytisins. Innlent 13.10.2005 15:04
Hámarkshraði 80 kílómetrar Víða þyrfti að lækka hámarkshaða úr 90 kílómetrum á klukkustund upp í 80 yrðu reglur Norðmanna um leyfilegan aksturshraða á tveggja akgreina þjóðvegum teknar upp hér á landi. Innlent 13.10.2005 15:04
Banaslys á Selfossi Ekið var á karlmann sem lést samstundis snemma á sunnudagsmorgun á Selfossi, atvikið átti sér stað sunnarlega á Eyrarveginum. Innlent 13.10.2005 15:04
Leita barnaræningjans enn Lögreglan í Kópavogi leitar enn mannsins sem nam níu ára stúlku á brott í Kópavogi síðdegis á miðvikudag. Innlent 13.10.2005 15:04
Enn leitað Lögreglan leitar enn manns sem nam níu ára stúlku á brott á mótum Bröttubrekku og Álfhólsvegarm í Kópavogi á miðvikudag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu berst fjöldi upplýsinga til lögreglu. Eins og fram hefur komið, lýsir stúlkan manninum þannig að hann sé um tvítugt, sköllóttur, með svört plastgleraugu og skeggtopp undir efri vörinni. Innlent 13.10.2005 15:04
Erill hjá lögreglunni Töluverður erill var hjá lögreglunni í Reykjavík í nótt. Sjö ökumenn voru teknir fyrir ölvun við akstur. Einn þeirra lenti í árekstri á mótum Kringlumýrarbrautar og Sæbrautar laust fyrir klukkan tvö í nótt. Tveir voru fluttir á sjúkrahús eftir áreksturinn með minniháttar meiðsl. Innlent 13.10.2005 15:04
Nokkrir yfirheyrðir Lögreglan hefur yfirheyrt nokkra karlmenn vegna barnsránsins í Kópavogi í fyrrakvöld. Hugsanlegt er að sá sem ginnti stúlkuna upp í bíl sinn hafi verið á rauðum fernra dyra Lexus. Lögreglunni í Kópavogi hafa borist fjölmargar vísbendingar sem unnið er eftir, en þeir sem telja sig geta veitt einhverjar upplýsingar um málið geta hringt í númerið 560-3041. Innlent 13.10.2005 15:03
Lögregla leitar enn mannsins Lögreglan í Kópavogi leitar enn manns um tvítugt sem nam níu ára gamalt stúlkubarn á brott í austurbæ Kópavogs síðdegis í gær. Einhverjar vísbendingar hafa þó borist til lögreglu sem verið er að kanna. Innlent 13.10.2005 15:03
Skólastjórar ræði við börn Brýnt verður fyrir skólastjórum í Kópavogi að ræða við grunnskólabörn vegna brottnáms níu ára stúlku í bænum í fyrradag. Innlent 13.10.2005 15:03
Ríkið greiði 2,5 milljóna bætur Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi íslenska ríkið í dag til að greiða karlmanni á fimmtugsaldri 2,5 milljónir króna í bætur. Maðurinn var starfsmaður á Hótel Íslandi árið 1995 þegar hann lenti í miklum átökum við drukkinn gest. Í kjölfar atburðarins var maðurinn úrskurðaður 25% öryrki. Innlent 13.10.2005 15:03
Níu ára stúlku rænt í Kópavogi Maður nam níu ára stúlku á brott í Kópavogi rétt fyrir klukkan fjögur á miðvikudag, ók með hana upp veginn að Skálafelli og skildi hana þar eftir. Stúlkan veifaði til vegfaranda á Þingvallavegi sem tók hana upp í bílinn og hafði hann samband við lögreglu og foreldra stúlkunnar. Maðurinn var ekki fundinn þegar blaðið fór í prentun í gær. Innlent 13.10.2005 15:03
Sýknaður af ákæru um hnífsstungu Hæstiréttur sýknaði í gær karlmann um fertugt fyrir að hafa stungið fyrrverandi sambýliskonu sína með hnífi eða skærum í bringu í heimahúsi í Fellahverfi í Breiðholti á aðfangadag árið 2002. Hæstiréttur sneri þar með við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem dæmdi manninn í 18 mánaða óskilorðsbundið fangelsi í mars. Innlent 13.10.2005 15:03
Flutti inn hass með tengdamömmu 25 ára maður hefur verið ákærður, ásamt tengdamóður sinni, fyrir innflutning á tæpum níu kílóum af hassi. Hassið var flutt hingað til lands í febrúar. Tengdamóðirin var ein ákærð fyrir innflutning á fimm kílóum af hassi í sama mánuði. Innlent 13.10.2005 15:03
Slökkvilið aftur kallað að svæði Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fór að svæði Hringrásar rétt rúmlega tíu í fyrrakvöld vegna reyks og hitamyndunar í öðrum haugnum sem varð til í stórbrunanum á mánudagskvöld. Innlent 13.10.2005 15:03
Tekinn með 140 grömm af kókaíni Maður á þrítugsaldri var handtekinn í Leifsstöð í fyrrakvöld. Hann var að koma frá Amsterdam og var grunaður um fíkniefnasmygl. Við leit fundust 140 grömm af kókaíni, falin í endaþarmi hans. Innlent 13.10.2005 15:03
9 ára stúlku rænt Níu ára stúlka var numin á brott í austurbæ Kópavogs síðdegis í gær og var skilin eftir við afleggjarann að Skálafelli. Lögregla lýsir eftir manninum. Innlent 13.10.2005 15:03
Tældi 9 ára telpu upp í bíl sinn Lögreglan telur sig hafa greinargóða lýsingu á ungum karlmanni sem í gær lokkaði 9 ára telpu upp í bifreið sína í Kópavogi og ók með hana upp að Skálafelli. Hann laug að telpunni að móðir hennar hefði slasast alvarlega í umferðarslysi. Innlent 13.10.2005 15:03
Íslenska ríkið sýknað Hæstiréttur hefur sýknað íslenska ríkið af tugmilljóna skaðabótakröfu konu sem fór í misheppnaða brjóstaminnkunaraðgerð fyrir 13 árum. Henni eru dæmdar ein og hálf milljón króna í miskabætur vegna mistaka sem lúta að útliti brjóstanna. Konan segist vera sár og hissa eftir dóminn og býst við að leita til mannréttindadómstóls Evrópu. Innlent 13.10.2005 15:03
Slökkvistarfi nánast lokið Slökkvistarfi á athafnasvæði Hringrásar við Sundahöfn lauk á miðnætti og hafa aðeins fjórir slökkviliðsmenn verið á vettvangi í nótt til að vakta svæðið og slökkva í glæðum þar sem þeirra hefur orðið vart. Búist er við að starfi slökkviliðsins verði endanlega lokið á hádegi. Innlent 13.10.2005 15:02