Innlent

Lá á miðjum veginum

Maðurinn, sem lést þegar ekið var yfir hann á Eyrarvegi á Selfossi um helgina, lá nánast á miðju vegarins þegar slysið varð. Maðurinn var dökkklæddur og rann klæðnaðurinn saman við svart og blautt malbikið en slagveðurs rigning og myrkur var þegar slysið varð. Rannsókn málsins beinist meðal annars að ferðum mannsins fyrir slysið. Maðurinn, sem var á fimmtugsaldri, er talinn hafa látist samstundis en krufning fer fram í dag. Lögreglan á Selfossi biður alla sem áttu leið um Eyrarveg, frá hringtorginu á Fossheiði að Haga, frá klukkan fimm til sex aðfaranótt sunnudagsins, að hafa samband í síma 480-1010.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×