Erlendar
154 155 156 157 158 159 160 161 162 … 264 ›
Neville meiddur, Rooney klár Englendingar urðu fyrir nokkru áfalli í dag þegar bakvörðurinn Gary Neville þurfti að hætta á æfingu liðsins eftir aðeins 15 mínútur vegna meiðsla á læri. Neville hefur barist við þessi meiðsli síðan tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni lauk og er nú talinn afar tæpur fyrir leikinn gegn Trinidad á morgun. Sven-Göran Eriksson fullyrðir hinsvegar að Wayne Rooney sé klár í slaginn og gæti hann jafnvel komið við sögu á morgun. Hann ætlar að tefla fram sama byrjunarliði og í opnunarleiknum. Sport 14.6.2006 15:32
Risatilboð í Torres í vændum? Breska blaðið Manchester Evening News hefur greint frá því að Manchester United sé að undirbúa risatilboð í spænska framherjann Fernando Torres hjá Atletico Madrid. Blaðið heldur því fram að enska liðið muni bjóða 25 milljónir punda í spænska landsliðsmanninn fljótlega, en hann var einmitt einn af markaskorurum liðsins í sigrinum á Úkraínumönnum á HM í dag og hefur verið einn eftirsóttasti framherji heimsins í nokkur ár. Sport 14.6.2006 15:27
Dökkt útlit hjá Baros Tékkneski framherjinn Milan Baros er ekki mjög bjartsýnn á að geta leikið með liðinu á HM eftir að hann reyndi fyrir sér á æfingu í dag, en þurfti að hætta eftir aðeins 30 mínútur. Baros var sprautaður með verkjalyfjum, en allt kom fyrir ekki. Það er því ljóst að tékkneska liðið er í bullandi vandræðum með framherja sína á mótinu, en Jan Koller er meiddur á læri og verður frá í að minnsta kosti eina viku í viðbót. Sport 14.6.2006 15:21
Auðvelt hjá Spánverjum Spánverjar burstuðu Úkraínumenn 4-0 í H-riðli heimsmeistaramótsins í dag. Mörk Spánverja skoruðu þeir Xabi Alonso, Fernando Torres og David Villa skoraði tvö mörk. Úkraínumenn léku manni færri frá því í upphafi síðari hálfleiks. Ljóst er að Spánverjar eru til alls líklegir í keppninni. Sport 14.6.2006 14:48
Það er auðvelt að dekka Ronaldo Robert Kovac, miðvörður króatíska landsliðsins í knattspyrnu, sagði að það hefði verið auðvelt að dekka brasilíska framherjann Ronaldo í leiknum í gærkvöldi og sagði að Ronaldo hefði verið fjarri sínu besta. Sport 14.6.2006 14:40
Stóðst læknisskoðun hjá Barcelona Nú styttist í að haldinn verði blaðamannafundur hjá spænska liðinu Barcelona þar sem tilkynnt verða kaup félagsins á landsliðsfyrirliðanum Eiði Smára Guðjohnsen. Eiður stóðst læknisskoðun hjá félaginu í dag og skrifar undir fjögurra ára samning nú innan stundar. Sport 14.6.2006 14:27
Spánverjar komnir í 3-0 gegn Úkraínu Spánverjar eru komnir langt með að vinna sigur í sínum fyrsta leik í H-riðlinum á HM, en liðið hefur náð 3-0 forystu gegn Úkraínu eftir aðeins 50 mínútur og leika manni fleiri. Xabi Alonso kom Spánverjum yfir og David Villa er búinn að skora tvö mörk, annað úr aukaspyrnu og hitt úr víti. Vladislav Vashchuk hefur verið vikið af leikvelli hjá Úkraínu. Sport 14.6.2006 14:07
Eiður skrifar undir samning við Barcelona Eiður Smári Guðjohnsen skrifar í dag undir fjögurra ára samning við Evrópumeistara Barcelona. Fréttamannafundur vegna málsins verður klukkan þrjú. Innlent 14.6.2006 08:54
Ótrúlegur sigur Miami Miami Heat forðaði sér naumlega frá því að lenda undir 3-0 í lokaúrslitum NBA í nótt þegar liðið vann afar dramatískan sigur á Dallas Mavericks á heimavelli sínum 98-96. Svo virtist sem lið Miami væri heillum horfið í gær, en liðið var á kafla 13 stigum undir í fjórða leikhluta. Dwyane Wade bar sína menn á herðum sér og skoraði 42 stig og hirti 13 fráköst fyrir Miami. Sport 14.6.2006 04:32
Beckham róar félaga sína David Beckham segir að hann sem fyrirliði þurfi að fylgjast með því sem gerist á vellinum. „Ég sagði við Crouchy (Peter Crouch) að hann ætti ekki að stökkva með olbogana úti, það gæti engin mótherji stokkið nógu hátt“. Sport 13.6.2006 23:00
Brasilía lagði Króatíu Heimsmeistarar Brasilíu sigruðu Króata 1-0 í F-riðli heimsmeistaramótsins í kvöld með glæsimarki frá Kaka skömmu fyrir leikhlé. Lið Króata sýndi hetjulega baráttu og vel skipulagðan varnarleik, en glæsilegt einstaklingsframtak Kaka gerði gæfumuninn í kvöld. Þetta var áttundi sigur Brasilíumanna í röð á HM og það er afrek sem ekkert lið hefur áður náð í sögu keppninnar. Sport 13.6.2006 22:25
Leikur Brasilíu og Króatíu að hefjast Nú er komið að því sem margir hafa beðið eftir á HM, því heimsmeistarar Brasilíu spila sinn fyrsta leik nú klukkan 19 þegar þeir mæta Króötum í H-riðli. Brassar tefla fram sókndjörfu liði með þá Ronaldo, Adriano, Kaka og Ronaldinho í fararbroddi. Sport 13.6.2006 18:39
Eiður í háttinn fyrir ellefu Spænsku dagblöðin sem hafa fullyrt í hverri fréttinni á fætur annarri að Eiður Smári Guðjohnsen sé á leið til Barcelona eru nú einnig farin að velta sér upp úr persónulegum lífsvenjum íslenska landsliðsfyrirliðans. Sport 13.6.2006 16:45
Markalaust hjá Frökkum og Svisslendingum Frakkar og Svisslendingar gerðu markalaust jafntefli í leik sínum í g-riðli sem lauk nú fyrir stundu. Franska liðið, sem fyrirfram var álitið sigurstranglegra, virkaði hugmyndasnautt í leiknum og hefur eflaust rifjað upp slæmar minningar fyrir stuðningsmenn sína frá síðasta HM - þar sem liðið sat eftir í riðlakeppninni án þess að skora mark. Sport 13.6.2006 17:51
Jafnt hjá Frökkum og Svisslendingum í hálfleik Staðan í leik Frakka og Svisslendingum er enn markalaus þegar flautað hefur verið til leikhlés. Frakkar hafa verið betri aðilinn í leiknum, sem er enn nokkuð daufur. Svisslendingar áttu þó stangarskot í hálfleiknum og Frakkarnir áttu klárlega að fá vítaspyrnu undir lokin þegar Thierry Henry boltanum í hönd eins varnarmanna svissneska liðsins, en ekkert var dæmt. Sport 13.6.2006 16:51
Fær formlegt leyfi frá Chelsea til að ræða við Barcelona Chelsea hefur gefið Eiði Smára Guðjohnsen formlegt leyfi til að hefja samningaviðræður við spænsku meistarana Barcelona, en fréttatilkynning þess efnis var að birtast á heimasíðu félagsins. Það er því ljóst að landsliðsfyrirliðinn er kominn langt á veg með að ganga til liðs við Evrópumeistaranna. Sport 13.6.2006 16:34
Larsson getur komist í metabækurnar Framherjinn sterki Henrik Larsson í sænska landsliðinu getur heldur betur skráð nafn sitt í sænskar sögubækur á fimmtudaginn þegar liðið mætir Paragvæ í b-riðlinum. Larsson mun að öllum líkindum jafna sænska landsleikjametið á HM þegar hann spilar sinn 11. leik fyrir Svía á þeim vettvangi og skori hann í leiknum, jafnar hann met Kennet Andersson yfir flest mörk skoruð á HM. Anderson skoraði 5 mörk á sínum tíma en Larsson og fimm aðrir leikmenn hafa skorað 4 mörk á HM. Sport 13.6.2006 15:24
Leikur Frakka og Svisslendinga að hefjast Nú styttist í að leikur Frakka og Svisslendinga í G-riðli HM fari að hefjast og er hann í beinni útsendingu á Sýn eins og allir aðrir leikir í keppninni. Fabien Barthez stendur í marki Frakka og Thierry Henry er einn í framlínunni, en hann nýtur góðs stuðnings frá þeim Zidane, Ribery og Wiltord á miðjunni. Sport 13.6.2006 15:30
Peter Taylor tekur við Palace Crystal Palace hefur ráðið Peter Taylor sem næsta knattspyrnustjóra félagsins, en Taylor er þjálfari U-21 árs liðs Englendinga og stýrði áður liði Hull City. Talið er að Taylor hafi orðið fyrir valinu eftir að Graeme Souness dró sig til baka úr viðræðum við félagið, en Mike Newell hjá Luton hafði einnig verið orðaður við starfið. Taylor tekur því við Palace af Ian Dowie sem er tekinn við Charlton í úrvalsdeildinni. Sport 13.6.2006 15:13
Suður-Kórea lagði Tógó Suður-Kóreumenn lögðu Tógó 2-1 í leik liðanna í g-riðli HM í dag. Tógó hafði yfir í hálfleik með marki frá Mohammed Kadar, en Kóreumennirnir skoruðu tvívegis í þeim síðari gegn aðeins 10 leikmönnum Afríkuliðsins. Sport 13.6.2006 15:01
Þriðji leikur Miami og Dallas í kvöld Þriðji leikur Miami Heat og Dallas Mavericks í úrslitaeinvíginu um NBA-titilinn verður á dagskrá Sýnar klukkan eitt efir miðnætti í nótt. Framherjinn Udonis Haslem hjá Miami verður líklega í byrjunarliði Miami, en óvíst var talið að hann gæti spilað eftir að hann meiddist illa á öxl í síðasta leik. Dallas vann fyrstu tvo leikina á heimavelli sínum, en næstu leikir fara fram í Miami. Sport 13.6.2006 13:58
Stjóri McLaren ánægður með Alonso Martin Whitmarsh, stjóri McLaren-liðsins í Formúlu 1, segist gríðarlega ánægður með frábæran árangur heimsmeistarans undir merkjum Renault það sem af er tímabili, en Alonso hefur sem kunnugt er gert samning við McLaren frá og með næsta keppnistímabili. Sport 13.6.2006 13:45
Tógó yfir í hálfleik Spútniklið Tógó hefur yfir 1-0 í hálfleik gegn Suður-Kóreu í viðureign liðanna í g-riðli sem hófst klukkan 13 og er í beinni á Sýn. Það var Mohammed Kader sem skoraði markið á 31. mínútu með glæsilegri afgreiðslu, en Kóreumennirnir virðast vera á hælunum og þurfa að endurskoða sinn leik ef þeir ætla að ná í stig í dag. Sport 13.6.2006 13:52
Verðum að stöðva Dwight Yorke David Beckham, fyrirliði enska landsliðsins, segir að helsta markmið félaga sinna í leiknum gegn Trinidad og Tobago á fimmtudaginn verði að halda aftur af fyrrum félaga hans hjá Manchester United, hinum magnaða Dwight Yorke. Sport 13.6.2006 13:34
Ólíklegt að Rooney spili gegn Trinidad Nú þykir frekar ólíklegt að Wayne Rooney snúi aftur í enska landsliðshópinn fyrir leikinn gegn Trinidad á fimmtudaginn eins og talað hefur verið um í gær og í morgun. Forráðamönnum enska liðsins þykir ekki heppilegt að taka þá áhættu í leik gegn liði sem Englendingar ættu vel að geta unnið án hans. Læknum Manchester United hefur verið lofað að fá að skoða Rooney áður en hann spilar sinn fyrsta leik fyrir landsliðið. Sport 13.6.2006 13:26
Mourinho ber ekki virðingu fyrir Robben Serbneski landsliðsmaðurinn Mateja Kezman gagnrýnir fyrrum stjóra sinn hjá Chelsea, Jose Mourinho, fyrir að láta hollenska vængmanninn Arjen Robben ekki spila meira hjá Chelsea. Kezman lét hafa þetta eftir sér eftir að Robben fór illa með Serbana í viðureign liðanna á HM á dögunum. Sport 13.6.2006 13:19
Meiðslin ekki jafn alvarleg og óttast var Nú er útlit fyrir að framherjinn stóri Jan Koller í liði Tékka gæti jafnvel spilað meira með liðinu á HM eftir að í ljós kom að meiðslin sem hann varð fyrir í gær eru ekki eins alvarleg og óttast var. Koller meiddist á læri eftir að hafa skorað fyrsta mark Tékka í sigrinum á Bandaríkjamönnum í gær og óttast var að hann missti af restinni af mótinu, en nú er komið í ljós að hann gæti náð sér á um viku. Sport 13.6.2006 13:09
Beðið eftir staðfestum fréttum Breskir fjölmiðlar eru uppfullir af því í dag að nú sé aðeins tímaspursmál hvenær íslenski landsliðsfyrirliðinn Eiður Smári Guðjohnsen gangi í raðir Barcelona, en enn sem fyrr hefur ekkert fengist staðfest í þeim efnum. Spænskir fjölmiðlar eru þó löngu búnir að fullyrða að félagaskiptin séu allt nema frágengin. Sport 13.6.2006 13:03
Suður-Kórea - Tógó að hefjast Leikur Suður-Kóreu og Tógó í G-riðli á HM er að hefjast nú klukkan 13 og er í beinni útsendingu á Sýn. Otto Pfister stýrir liði Tógó í dag, en hefur snúið aftur eftir að hafa sagt starfi sínu lausu um helgina. Byrjunarliðin má sjá hér fyrir neðan. Sport 13.6.2006 12:45
Cannavaro þriðji leikreyndasti landsliðsmaðurinn Fabio Cannavaro náði þeim áfanga í leiknum við Gana í gær að verða þriðji leikjahæsti ítalski landsliðsmaðurinn frá upphafi þegar hann spilaði sinn 94. leik á ferlinum og var jafnframt fyrirliði liðsins. Aðeins Paolo Maldini (126) og markvörðurinn Dino Zoff (112) hafa spilað fleiri landsleiki en Cannavaro, sem spilaði sinn fyrsta leik fyrir þá bláu árið 1997. Sport 13.6.2006 11:54
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent