Erlendar
115 116 117 118 119 120 121 122 123 … 264 ›
Denilson til reynslu hjá Portsmouth Brasilíumaðurinn Denilson er nú til reynslu hjá enska úrvalsdeildarliðinu Portsmouth og svo gæti farið að hann geri samning við félagið ef allt gengur að óskum. Denilson varð heimsmeistari með landsliði Brasilíu árið 2002, en hefur verið samningslaus eftir að hafa verið látinn fara frá franska liðinu Bordeaux. Talið er að Middlesbrough hafi einnig augastað á Denilson, sem árið 1998 varð dýrasti knattspyrnumaður í heimi þegar Real Betis keypti hann á 22 milljónir punda. Sport 13.9.2006 13:45
Risastökk hjá Íslenska landsliðinu Íslenska landsliðið í knattspyrnu tekur mikið stökk á FIFA-listanum sem birtur var í dag, en liðið hefur hækkað um 19 sæti síðan listinn var birtur síðast. Ísland var í 106. sæti síðast en er nú komið í 87. sætið. Englendingar eru komnir í 4. sætið, upp fyrir heimsmeistara Ítalíu og er þetta besti árangur Englendinga á listanum í sögunni, en liðið náði í 4. sætið árið 1997. Sport 13.9.2006 13:34
Ánægður með markalaust jafntefli Rafa Benitez var mjög ánægður með að ná markalausu jafntefli á útivelli gegn hollenska liðinu PSV Eindhoven í meistaradeildinni í kvöld og varði ákvörðun sína um að hafa marga af lykilmönnum sína á varamannabekknum með því að segja að þeir hefðu einfaldlega ekki úthald í að spila alla þá leiki sem á dagskránni væru. Fótbolti 12.9.2006 22:21
Ánægður með sigur á sterku liði Bremen Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, var mjög ánægður með sigur sinna manna á Werder Bremen í meistaradeildinni í kvöld, en viðurkenndi að þýska liðið hefði verið betri aðilinn á köflum. Fótbolti 12.9.2006 22:05
Fabregas samþykkir nýjan átta ára samning Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur gefið það upp að spænski landsliðsmaðurinn Cesc Fabregas sé í þann mund að undirrita nýjan átta ára samning við félagið. Fabregas hefur verið hjá Arsenal síðan hann var 16 ára og er talinn einn efnilegasti miðjumaður heimsins í dag. Hann hefur verið eftirsóttur af liðum eins og Real Madrid um nokkurt skeið. Sport 12.9.2006 20:55
Meistararnir byrja með tilþrifum Evrópumeistarar Barcelona hófu titilvörn sína með tilþrifum í kvöld þegar liðið valtaði yfir Levski Sofia 5-0 á Nou Camp. Börsungar létu úrhellisregn ekki hafa áhrif á sig á heimavelli sínum og var sigur liðsins aldrei í hættu eftir að það náði forystu strax í upphafi. Eiður Smári Guðjohnsen spilaði síðasta hálftímann með Barcelona en náði ekki að setja mark sitt á leikinn. Fótbolti 12.9.2006 20:36
Eiður kominn inn í lið Barcelona Eiður Smári Guðjohnsen er kominn inn í lið Barcelona sem varamaður eftir um klukkustundar leik á Nou Camp, en Börsungar eru að valta yfir Levski Sofia 4-0. Úrhellisrigning hefur sett svip sinn á leikinn, en þeir Puyol og Eto´o skoruðu þriðja og fjórða mark liðsins í síðari hálfleik eftir að staðan var 2-0 í leikhléi. Fótbolti 12.9.2006 20:08
Tveir leikir í kvöld Tveir leikir fóru fram í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Hjálmar Jónsson var í liði IFK frá Gautaborg sem vann góðan 4-1 útisigur á Häcken og Emil Hallfreðsson spilaði síðasta hálftímann þegar lið hans Malmö tapaði 3-1 á útivelli fyrir Helsingborg. IFK Gautaborg er í þriðja sæti deildarinnar með 30 stig, en Malmö er í því fjórða með 28 stig. Fótbolti 12.9.2006 20:00
Barcelona yfir í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í viðureignum kvöldsins í meistaradeild Evrópu. Barcelona er að eiga náðugt kvöld í rigningunni á Nou Camp og hefur yfir 2-0 gegn Levski Sofia, Chelsea hefur yfir 1-0 gegn Werder Bremen og markalaust er hjá PSV og Liverpool í Hollandi. Fótbolti 12.9.2006 19:33
Frábær sigur hjá Blikum Kvennalið Breiðabliks vann í kvöld frækinn 2-1 sigur á finnsku meisturunum HJK Helsinki í Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu. Greta Mjöll Samúelsdóttir skoraði sigurmark Kópavogsliðsins gegn heimamönnum rétt fyrir leikslok, en áður hafði Ólína Viðarsdóttir skorað fyrir Blika. Sport 12.9.2006 19:18
Benayoun ætlar að framlengja við West Ham Ísraelski landsliðsmaðurinn Yossi Benayoun segist ætla að skrifa undir nýjan fimm ára samning við West Ham í vikunni, en þessi 26 ára gamli miðjumaður var nokkuð eftirsóttur í sumar og var meðal annars orðaður við Arsenal og Liverpool. Benayoun segist hæst ánægður í herbúðum liðsins og segir ekkert því til fyrirstöðu að það verði með í baráttunni um titla á næstu árum. Sport 12.9.2006 19:10
Lennon farinn að æfa á ný Hnémeiðsli enska landsliðsmannsins Aaron Lennon hjá Tottenham virðast ekki hafa verið eins alvarleg og talið var í fyrstu, því breskir fjölmiðlar greina frá því í dag að vængmaðurinn ungi hafi mætt á æfingu liðsins í dag. Lennon var ekki með Tottenham um helgina, en því er haldið fram að hann verði jafnvel í hópnum fyrir Evrópuleikinn við Slavia Prag á fimmtudagskvöldið. Sport 12.9.2006 18:57
Eiður Smári á bekknum Eiður Smári Guðjohnsen er á varamannabekk Barcelona í kvöld þegar liðið tekur á móti búlgörsku meisturunum Levski Sofia á Nou Camp í meistaradeildinni í kvöld. Leikurinn er sýndur beint á Sýn Extra, PSV - Liverpool er sýndur beint á Sýn og viðureign Chelsea og Werder Bremen er sýndur beint á Sýn Extra 2. Fótbolti 12.9.2006 18:34
Sættast Zidane og Materazzi? Alþjóða Knattspyrnusambandið, FIFA, vinnur nú í því að fá franska snillinginn Zinedine Zidane og ítalska varnarmanninn Marco Materazzi til þess að hittast opinberlega og sættast. Eins og frægt er orðið lenti þeim saman í úrslitaleik HM í sumar þar sem Zidane skallaði Materazzi í bringuna. Sport 12.9.2006 16:04
Jimmy Bullard úr leik Jimmy Bullard leikur ekki meira með Fulham í ensku úrvalsdeildinni á þessu keppnistímabili eftir að hafa meiðst illa á hné á dögunum. Bullard byrjaði ferilinn vel hjá Fulham í sumar eftir að hann kom frá Wigan, en nú er ljóst að hann verður frá keppni í að minnsta kosti níu mánuði. Sport 12.9.2006 17:30
Thatcher sleppur ótrúlega vel Varnarmaðurinn Ben Thatcher hjá Manchester City hefur verið dæmdur í átta leikja bann af aganefnd enska knattspyrnusambandsins eftir líkamsárás sína á Pedro Mendes hjá Portsmouth í leik liðanna á dögunum. Thatcher hefur þegar tekið út tvo leiki af sex sem hann fékk í bann frá City og missir því aðeins af sex leikjum í viðbót með liði sínu. Sport 12.9.2006 17:13
Lætur Schumacher heyra það Heimsmeistarinn Fernando Alonso hjá Renault segir að Michael Schumacher hjá Ferrari sé óíþróttamannslegasti ökuþór í sögu Formúlu eitt og hlakkar til að losna við hann úr keppni á næsta ári eftir að Þjóðverjinn tilkynnti að hann ætlaði að hætta eftir yfirstandandi keppnistímabil. Formúla 1 12.9.2006 15:48
Veislan hefst í kvöld Hin árlega veisla knattspyrnuáhugamanna hefst í kvöld þegar riðlakeppni meistaradeildarinnar hefst með látum. Sjónvarpsstöðin Sýn lætur sitt ekki eftir liggja á þeim bænum frekar en venjulega og verður með þrjár beinar útsendingar frá keppninni í kvöld. Þá verða þeir Guðni Bergs og Heimir Karls að sjálfssögðu á sínum stað og fara yfir stöðu mála í leikjum kvöldsins. Fótbolti 12.9.2006 14:16
Blikar í eldlínunni í dag Kvennalið Breiðabliks hefur leik í milliriðlum Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu í dag þegar liðið mætir finnsku meisturunum í HJK Helsinki. Sport 12.9.2006 14:23
Henry verður ekki með gegn Hamburg Thierry Henry, fyrirliði Arsenal, verður ekki með liði sínu annað kvöld þegar það mætir Hamburg í mestaradeild Evrópu eftir að hafa meiðst á fæti á æfingu. Unglingurinn Theo Walcott er aftur kominn í hóp Arsenal eftir að hafa verið hvíldur og þá er reiknað með að Julio Baptista verði í hópnum. Jens Lehmann snýr einnig aftur í lið Arsenal eftir að hafa tekið út leikbann. Fótbolti 12.9.2006 13:49
United vinnur Celtic Roy Keane, fyrrum leikmaður Manchester United og Glasgow Celtic, segist hafa grunað að liðin ættu eftir að mætast í meistaradeildinni í ár þegar hann hætti að leika með enska liðinu á sínum tíma. Keane telur að United muni fara með sigur af hólmi í "Baráttunni um Bretland" annað kvöld. Fótbolti 12.9.2006 13:16
Benitez mætir Koeman á ný Rafa Benitez, stjóri Liverpool, mun í kvöld reyna að forðast að tapa fyrir liði undir stjórn Ronald Koeman annað árið í röð í meistaradeildinni þegar Liverpool mætir PSV Eindhoven. Koeman stýrði liði Benfica á síðustu leiktíð þegar liðið sló Liverpool úr keppni, en viðureign PSV og Liverpool í kvöld verður sýnd beint á Sýn. Fótbolti 12.9.2006 13:05
Inter Milan er með besta hóp í heimi Jose Mourinho segir að þó vissulega verði Chelsea að teljast eitt af þeim liðum sem eru sigurstrangleg í meistaradeildinni í ár, séu að minnsta kosti tíu lið sem hafi alla burði til að vinna keppnina. Hann segir ítalska liðið Inter Milan vera með sterkasta leikmannahóp allra liða í heiminum í dag. Fótbolti 12.9.2006 12:38
Hefur engar áhyggjur af Shevchenko Jose Mourinho, stjóri Chelsea, segist styðja Andrei Shevchenko heilshugar í baráttu sinni við að skora fleiri mörk en Úkraínumaðurinn hefur aðeins skorað eitt mark í fyrstu fjórum leikjum liðsins. Það er undir þeirri tölfræði sem vænst var af honum í kjölfarið á 30 milljón punda sölunni frá AC Milan í sumar. Sport 10.9.2006 20:56
Við erum að nálgast okkar besta form Thierry Henry, franska markamaskínan hjá Arsenal, er sannfærður um að liðið muni brátt finna sitt besta form. Arsenal hefur farið afar hægt af stað í ensku úrvalsdeildinni í ár og aðeins hlotið tvö stig í fyrstu þremur leikjum sínum. Sport 10.9.2006 20:47
Nistelrooy skoraði þrennu Hollenski framherjinn Ruud van Nistelrooy fór hamförum og skoraði þrennu þegar Real Madrid burstaði Levante 4-1 á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Þetta var fyrsti sigur Real í deildinni í ár. Fótbolti 10.9.2006 20:40
Einn sá besti í sögu Man. Utd. Sir Alex Ferguson sparaði ekki stóru orðin í garð Ryan Giggs eftir frammistöðu hans gegn Tottenham í gær og segir hann vera einn besta leikmann í sögu Manchester United. Giggs skoraði sigurmarkið í leiknum, var valinn leikmaður mánaðarins í úrvalsdeildinni og virðist aldrei hafa verið í betra formi. Sport 10.9.2006 13:00
Raikkönen tekur við af Schumacher Það verður Finninn Kimi Raikkönen sem mun taka sæti Michael Schumacher sem ökumaður Ferrari á næsta keppnistímabili í formúlu 1. Þetta tilkynnti stjórn Ferrari eftir Ítalíu-kappaksturinn í dag en áður hafði Schumacher greint frá því að hann hyggðist draga sig í hlé eftir tímabilið. Formúla 1 10.9.2006 15:11
Góður dagur hjá Íslendingunum Fjölmargir leikir fóru fram í norsku og hollensku úrvalsdeildunum í fótbolta í kvöld. Öll Íslendingaliðin unnu góða sigra í sínum leikjum. Sport 10.9.2006 20:28
Crouch er ekki öruggur Terry Venables, aðstoðarmaður Steve McLaren hjá enska landsliðinu í fótbolta, segir að Peter Crouch, sóknarmaður Liverpool, sé ekki öruggur með byrjunarliðssæti í enska liðinu þrátt fyrir að hafa skorað 11 mörk í 14 landsleikjum. Sport 10.9.2006 15:00
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent