Sveitarstjórnarmál
35 36 37 38 39 40 … 40 ›
Stefna á framboð í sex sveitarfélögum Frjálslyndir stefna á framboð í minnst sex sveitarfélögum næsta vor. Í síðustu sveitarstjórnarkosningum buðu þeir fram lista í þremur sveitarfélögum og komu manni í bæjar- eða borgarstjórn í tveimur þeirra. Innlent 7.12.2005 08:05
Tveir listar í framboði Tveir listar verða í framboði við sveitarstjórnarkosningar í sameinuðu sveitarfélagi Bólstaðarhrepps, Sveinsstaðahrepps, Svínavatnshrepps og Torfalækjarhrepps laugardaginn 10. desember næstkomandi. Listarnir eru Listi framtíðar og Nýtt afl. Þá verður kosið milli þriggja tillagna að nafni nýja sveitarfélagsins. Innlent 29.11.2005 17:03
Ólafur Þór Gunnarsson leiðir listann Ólafur Þór Gunnarsson öldrunarlæknir verður í fyrsta sæti Vinstri Grænna í Kópavogi í sveitarstjórnarkosningum í vor. Innlent 26.11.2005 22:04
Íhuga nýtt framboð í Eyjum Nýtt framboð gæti bæst í flóruna í Vestmannaeyjum fyrir bæjarstjórnarkosningar næsta vor. Fréttavefurinn Eyjar.net greinir frá því að um tíu manns hafi komið saman til fundar í gær til að ræða framtíðarsýn Vestmannaeyja og hugsanlegt framboð við næstu bæjarstjórnarkosningar. Innlent 25.11.2005 14:20
Orkuveitan tapaði dómsmáli Hæstiréttur vísaði í gær frá dómi kröfu Orkuveitu Reykjavíkur um að álit Kærunefndar útboðsmála þess efnis að Orkuveitan væri skaðabótaskyld gagnvart Toshiba vegna útboðs fyrir búnað til Hellisheiðarvirkjunar. Innlent 22.11.2005 06:33
Vestmannaeyjar og Reykjanesbær verst stöddu bæjarfélögin Vestmannaeyjar og Reykjanesbær eru verst stöddu bæjarfélög landsins, en Bessastaðahreppur og Akranes þau best stöddu. Þetta sést þegar rýnt er í ársreikninga sveitarfélaganna. Innlent 14.11.2005 18:40
Ómar leiðir listann Ómar Stefánsson leiðir lista Framsóknarflokksins í Kópavogi fyrir bæjarstjórnarkosningarnar næsta vor. Hann bar sigur úr býtum í prófkjöri Framsóknarflokksins í gær og hlaut 666 atkvæði í fyrsta sæti listans. 2.556 greiddu atkvæði. Ómar er eini sitjandi bæjarfulltrúi flokksins sem gaf kost á sér í prófkjörinu. Innlent 13.11.2005 08:51
250 höfðu kosið á hádegi 250 höfðu tekið þátt í prófkjöri Framsóknarflokksins í Kópavogi á hádegi. Fjórtán eru í framboði, þar af fimm sem stefna á fyrsta sæti á lista flokksins fyrir næstu bæjarstjórnarkosningar. Innlent 12.11.2005 12:21
Átta bítast um efsta sæti Prófkjör Framsóknarmanna í Kópavogi hófst klukkan tíu í morgun. Fjórtán eru í framboði og þar af átta sem gefa kost á sér í fyrsta sæti á lista flokksins fyrir bæjarstjórnarkosningar sem haldnar verða næsta vor. Innlent 12.11.2005 09:44
Aukna þjónustu til sveitarfélaga Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra lýsti yfir vonbrigðum sínum með nýafstaðnar sameiningarkosningar á fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna í morgun. Hann sagði ríkisvaldið hafa staðið við sitt með því að leggja fram tvo og hálfan milljarð en sú hvatning hafi greinilega ekki skilað sér. Innlent 10.11.2005 14:43
400 milljóna rekstrafgangur Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir næsta ár gerir ráð fyrir tæplega 400 milljóna króna rekstrarafgangi en áætlunin var tekin til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar í gær. Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri segir vöxt og grósku hafa sett mark á bæjarbraginn á Akureyri undanfarin ár og svo verði áfram. Innlent 9.11.2005 02:10
Borguðu fyrir eiginkonurnar Fjórir bæjarráðsfulltrúar Akraness fóru með forsvarsmönnum HB Granda til Leeds í Englandi. Þeir hittu Alex Ferguson sem fékk heimboð upp á Skaga. Innlent 9.11.2005 02:15
Ætla að tvöfalda íbúafjöldann Hreppsstjórn Vatnsleysustrandar stefnir að því að tvöfalda íbúafjöldann á næstu fimm árum. Gangi það eftir verða íbúarnir orðnir tvöþúsund við lok þessa áratugar, hátt í þrefalt fleiri en þeir voru um miðbik síðasta áratugar. Innlent 7.11.2005 10:54
Vatnsleysuströnd verður að bæ Hreppum landsins fækkar um einn á næstunni, verði hreppsstjórn Vatnsleysustrandarhrepps að ósk sinni. Hreppsstjórnin hefur ákveðið að óska eftir því við félagsmálaráðuneytið að Vatnsleysuströnd og Vogar verði hér eftir bær en ekki hreppur. Innlent 7.11.2005 08:52
Já símaskrá ekki til sölu Hvorki Já símaskrá né starfsstöð fyrirtækisins á Ísafirði eru til sölu. Þetta voru svörin sem Halldór Halldórsson, bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ, fékk á fundi sínum með stjórnarformanni Já símaskrár í dag að því er fram kemur á vef Bæjarins besta. Innlent 4.11.2005 17:49
Meiri afgangur en búist var við Gert er ráð fyrir að bæjarsjóður Kópavogs verði rekinn með tvöfalt meiri aðgangi í ár en stefnt var að þegar fjárhagsáætlun bæjarins var samþykkt í fyrra. Innlent 2.11.2005 22:32
Bærinn vill kaupa starfsstöðina Halldór Halldórsson, bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ, hefur óskað eftir viðræðum við stjórnendur Já Símaskrár, um að kaupa vinnustöð fyrirtækisins á Ísafirði. Beiðni Halldórs kemur í kjölfar þess að fyrirtækið ákvað að leggja starfsstöðina niður og flytja starfsemina annað en þar með glatast fimm störf á Ísafirði. Innlent 28.10.2005 10:56
Fyrstu íbúðirnar fyrir eldri borgara Vinna er hafin við byggingu fyrstu íbúðanna fyrir eldri borgara sem reistar eru í Snæfellsbæ. Í gær var tekin skóflustunga að fyrra af tveimur parhúsum sem verða reist. Húsin verða á Ólafsvík en að því er fram kemur á vef Skessuhorns eru það Grundfirðingar sem sjá um bygginguna. Innlent 28.10.2005 10:24
Göngubrúin er slysagildra Aðstæður fyrir gangandi vegfarendur við Hringbraut eru víða erfiðar og hættulegar. Göngubrú yfir götuna endar í lausu lofti. Innlent 26.10.2005 22:22
Sveitarstjórnarmenn ekki á eitt sáttir Hugmyndir að breyttri skipan lögregluembætta víða um land fara mis vel í sveitarstjórnarmenn. Sveitarstjórinn í Reykhólahreppi undrast að samgöngubætur í sýslunni skuli ekki hafa verið höfð til hliðsjónar. Bæjarstjórinn á Hornafirði segir að við fyrstu sýn virðist tillögurnar ganga þvert á hugmyndir um nærþjónustu og ákvarðantöku íbúa í héraði. Innlent 26.10.2005 07:21
Deildarstjóri fái miskabætur Akureyrarbær verður að greiða deildarstjóra hjá bænum sjö hundruð þúsund krónur í miskabætur samkvæmt dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra. Maðurinn heldur jafnframt starfi sínu hjá bænum en hann og bæjaryfirvöld deildu um hvort hann ætti enn rétt á starfinu eða ekki. Innlent 24.10.2005 13:50
Borgin fær hálfan milljarð Reykjavíkurborg fær allt að 488 milljónir króna fyrir byggingarétt á lóðum undir atvinnuhúsnæði í Norðlingaholti. Tilboð í lóðirnar voru opnuð fyrir helgi. Innlent 24.10.2005 08:38
Tekur fyrir uppsagnartillöguna Sveitarstjórn Skagafjarðar mun í dag taka afstöðu til tillögu sem Gísli Gunnarsson, oddviti sveitarstjórnar, hyggst leggja fram um uppsögn Ársæls Guðmundssonar, sveitarstjóra Skagafjarðar. Innlent 23.10.2005 15:02
Kosið um 16 sameiningartillögur Kosningar um sameiningu 61 sveitarfélags hér á landi fara fram næstkomandi laugardag. Kosið er um 16 sameiningartillögur en tillögurnar varða um 96 þúsund manns vítt og breitt um landið. Á kjörskrá eru 69.144. Fæstir eru á kjörskrá í Mjóafjarðarhreppi, eða 32, en flestir í Hafnarfirði, eða 15.570. Innlent 23.10.2005 15:02
Hótar sameiningu með lögum? Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir Árna Magnússon félagsmálaráðherra hafa hótað þeim, sem ekki samþykktu sameiningu sveitarfélaga í kosningunum nú, að sveitarfélögin verði sameinuð með lögum. Hann segir Árna nær að skoða réttlátari og sanngjarnari tekjuskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga. Innlent 23.10.2005 15:02
Allir andvígir sameiningu Allir bæjarfulltrúar í Sandgerði eru andvígir því að sveitarfélagið sameinist Reykjanesbæ og Garði. Þetta varð ljóst eftir bæjarstjórnarfund í gær. Kjósa á um sameiningu sveitarfélaganna áttunda október. Innlent 14.10.2005 06:42
Hvetja til að hafna sameiningu Samtök sem ætla að hvetja landsmenn til að hafna sameiningu sveitarfélaga í kosningum í næsta mánuði eru að verða til í Svarfaðardal. Bitur reynsla heimamanna af sameiningu norðanlands veldur því að forsvarsmenn sjá ástæðu til að vara aðra landsmenn við. Innlent 14.10.2005 06:41
Dróst vegna fjarveru starfsmanna Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri Akureyrar, hefur svarað fyrirspurnum Oktavíu Jóhannesdóttur, bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar, um umdeilda lífskjararannsókn sem unnin var fyrir bæjarstjórn Akureyrar. Í svörum bæjarstjórans segir að ástæða þess að kynning niðurstaðna dróst frá maí fram í júlí hafi verið veikindi og fjarvera starfsmanna og bæjarfulltrúa. Innlent 13.10.2005 19:37
Leyndi því að stjórnin væri fallin Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, virðist hafa ætlað að leyna því að meirihluti sjálfstæðis- og framsóknarmanna í bæjarstjórn Akureyrar er fallinn, samkvæmt skoðanakönnum Gallups fyrir Akureyrarbæ í vor. Innlent 13.10.2005 19:35
Hætt við spillingu í lóðaúthlutun? Síðustu lóðum Kópavogsbæjar við Elliðavatn verður úthlutað í sumar. Í Kópavogi er hvorki lóðaútboð né lotterí, heldur úthlutar bæjarráð lóðunum. Formaður skipulagsnefndar segir þetta fyrirkomulag ekki þurfa að bjóða upp á spillingu - flestir sem vilji byggja í Kópavogi fái á endanum lóð. Innlent 13.10.2005 19:23