Umferðaröryggi
6 7 8 9 10 11 12 13 14 … 28 ›
Lögregla kölluð til vegna mannlausrar bifreiðar sem olli miklu öngþveiti Mikið umferðaröngþveiti myndaðist vegna mannlausrar bifreiðar sem var skilin eftir á miðri Reykjanesbraut nærri Mjóddinni. Lögregla var kölluð til á staðinn og var bifreiðin að endingu fjarlægð af vettvangi með kranabíl. Innlent 27.8.2023 18:15
Ástandið ekki nógu gott við grunnskóla Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir óhætt að segja að ástand umferðar við grunnskóla sé ekki nógu gott. Þetta kemur fram í tilkynningu þar sem lögreglan segist vera við umferðareftirlit þessa dagana. Innlent 25.8.2023 14:55
„Krossbrá“ þegar krafa Isavia barst í sumar Borgarstjóri segir ekki halla á borgina, sem hafi uppfyllt sína samninga og átt í góðu samstarfi við Isavia undanfarin ár. Honum hafi því krossbrugðið þegar krafa barst um að fella tæplega þrjú þúsund tré í Öskjuhlíð vegna flugöryggis. Málið verði ekki notað sem tól í baráttunni um að fá flugvöllinn burt úr Reykjavík. Innlent 18.8.2023 15:07
„Það getur enginn viljað ógna flugöryggi þeirra sem ferðast um Reykjavíkurflugvöll“ Yfirflugstjóri hjá flugfélaginu Erni segir ekki annað koma til greina en að borgin gangi að kröfu Isavia og felli um þriðjung skógarsins í Öskjuhlíð. Annað ógni flugöryggi þeirra sem ferðast um Reykjavíkurflugvöll. Innlent 18.8.2023 12:41
Reykjavíkurborg hafi eitt ár til að fella skóginn Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri innanlandsflugvalla hjá ISAVIA, segir tímann nauman til að höggva niður um þriðjung skógarins í Öskjuhlíð. Trén skagi upp í fleti sem megi ekki hindra samkvæmt alþjóðaflugreglum. Innlent 17.8.2023 21:00
Heimila ekki skógarhögg í Öskjuhlíð án mótvægisaðgerða Þröstur Eysteinsson skógræktarstjóri segir að Skógræktin myndi ekki heimila að þrjú þúsund tré í Öskjuhlíðinni yrðu felld án þess að önnur yrðu gróðursett í staðinn. Á svæðinu þyrfti að vera áfram skógur. Innlent 17.8.2023 18:23
Isavia krefst þess að um þrjú þúsund tré verði felld í Öskjuhlíð Innanlandssvið Isavia hefur krafist þess að 2.900 tré í Öskjuhlíð verði felld tafarlaust og til vara 1.200 hæstu trén. Erindi þessa efnis hafi verið lagt fyrir borgarráð í dag og hafi verið samstaða um þá málsmeðferð að beiðnin færi til umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs borgarinnar. Innlent 17.8.2023 13:21
Nýtur þess að hjóla og taka upp kjánaskap í umferðinni Á leið sinni í vinnu á hjóli tekur hjólreiðamaðurinn Bragi Gunnlaugsson upp umferðina á myndband og sýnir á samfélagsmiðlum. Árekstrar og ýmsar furðulegar uppákomur eru daglegt brauð að hans sögn. Lífið 15.8.2023 10:29
Stutt á milli feigs og ófeigs í umferðinni á Seltjarnarnesi Litlu mátti muna að ekið hefði verið á fimm ára gamlan strák þar sem hann hjólaði yfir götuna við einu ljósagatnamót Seltjarnarness á föstudag þar sem Suðurströnd og Nesvegur mætast. Íbúi sem varð vitni að atvikinu segir of algengt að ökumenn keyri hraðar en takmarkanir leyfi á svæðinu. Innlent 15.8.2023 06:45
Líta aksturinn alvarlegum augum Eimskip líta glæfralegan framúrakstur bílstjóra á þjóðveginum alvarlegum augum. Myndband af löngum vörubíl Eimskipa í framúrakstri hefur vakið athygli og hneykslan. Rætt verður við bílstjórann í dag. Innlent 12.8.2023 10:58
Olli stórhættu með glæfralegri framúrkeyrslu Bílstjóri Eimskipa olli mikilli hættu á þjóðveginum við Skeiðarársand með glæfralegri framúrkeyrslu sem náðist á myndband. Stutt er síðan sambærilegt myndband náðist af flutningabíl Samskipa sem varð til þess að bílstjóranum var sagt upp störfum. Innlent 11.8.2023 23:15
Vonast til að geta skemmt sér eitthvað líka Að venju leggja fjölmargir Íslendingar land undir fót þessa stærstu ferðahelgi ársins og hefur umferð í gegnum Selfoss borið þess merki. Töluverður fjöldi ökumanna fór yfir Ölfusárbrú á sjöunda tímanum í kvöld og hefur umferðin þar almennt gengið vel í dag. Innlent 4.8.2023 19:39
Lögreglan hefur ekki yfir neinu að kvarta Umferðin var heldur farin að þéttast út úr höfuðborginni nú síðdegis, en gengur vel að sögn Árna Friðleifssonar, aðalvarðstjóra umferðardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 4.8.2023 16:48
Börn á smáfarartækjum sláandi stór hluti umferðarslysa Börn á smáfarartækjum voru sláandi stór hluti þeirra sem lentu í umferðarslysum í júlí, að sögn varðstjóra hjá umferðardeild lögreglunnar. Um sé að ræða nýjan veruleika í umferðinni sem verði að taka á. Innlent 4.8.2023 08:57
Sú stóra er framundan Framundan er ein stærsta ferðahelgi ársins, verslunarmannahelgin. Þessa línu höfum við heyrt oft áður og varnaðarorð í aðdraganda verslunarmannahelgar. En sjaldan er góð vísa of oft kveðin. Sér í lagi þegar stóraukinn fjöldi ferðamanna hefur bæst við umferðina á vegum landsins. Við viljum að allir skili sér heilir heim og til þess að svo megi verða þurfum við að taka höndum saman um að fara varlega í akstri og öðru atferli. Skoðun 3.8.2023 11:45
Fæst dauðsföll á íslenskum vegum Íslenska vegakerfið er það öruggasta í heimi þegar kemur að dauðsföllum. Hlutfallslega séð deyja átjánfalt fleiri árlega á vegunum í Sádi Arabíu. Innlent 27.7.2023 10:34
Ökumenn beri ábyrgðina Ökumenn fyrir aftan hjólreiðamenn á vegum úti sem geta ekki tekið fram úr með öruggum hætti verða að hægja á sér þar til aðstæður leyfa segir samskiptastjóri Samgöngustofu. Taki þeir fram úr skulu ökumenn passa að hliðarbil milli bíls og hjóls séu að lágmarki einn og hálfur metri. Innlent 26.7.2023 10:19
„Lögreglan gerir ekkert til þess að framfylgja þessu“ Formaður Reiðhjólabænda, furðar sig á tvískinnungi lögreglu þegar kemur að rannsókn á umferðarbrotum þegar um bíla er að ræða annars vegar og hjól hins vegar. Sjálfsagt sé að nota myndefni þegar ofsaakstur vöruflutningabílstjóra á Vesturlandi sé rannsakaður en ekki þegar um brot gegn hjólreiðafólki sé að ræða. Innlent 14.7.2023 06:45
Fær engar bætur eftir árekstur við barn Reiðhjólakona fær engar bætur eftir slys þegar fimmtán ára drengur ók hana niður rafhlaupahjóli. Drengurinn var á 25 kílómetra hraða á klukkstund á gangstétt þegar hann skall saman við konuna, sem var á tíu kílómetra hraða. Innlent 13.7.2023 10:49
Líta málið alvarlegum augum og boða tilkynningu Nokkur hætta var á ferðum þegar flutningabílstjóri Samskipa með tengivagn reyndi að taka fram úr bílum á milli Borgarness og Munaðarness síðdegis í gær. Forstöðumaður innanlandsflutninga Samskipa segir atvikið engan veginn í samræmi við öryggiskröfur fyrirtækisins og að rætt verði við bílstjórann í dag til að ljúka málinu. Innlent 12.7.2023 14:59
Bílstjóri vörubíls hafi lagt fjölda fólks í hættu Nokkur hætta var á ferðum þegar vörubílstjóri Samskipa reyndi að taka fram úr bílum á milli Borgarness og Munaðarness um klukkan fjögur í dag. Engum varð meint af en sjónarvottur gagnrýnir bílstjórann harðlega fyrir að taka slíka áhættu á þröngum vegi. Samskip segja málið litið mjög alvarlegum augum. Innlent 11.7.2023 20:54
„Þessi manneskja má vera mjög þakklát fyrir að hafa ekki drepið einhvern“ Kona í Vesturbænum segir það mikla lukku að ökumaður, sem ók á miklum hraða yfir á rauðu ljósi við gangbraut yfir Hringbraut, hafi ekki keyrt á dóttur hennar. Hún segir Hringbrautina dauðagildru og atvik sem þessi séu alltof algeng. Innlent 6.7.2023 07:00
2% ökumanna telja sig verri en meðalökumaðurinn Júlí er umferðarþyngsti mánuðurinn á Ísland en þá leggja flestir land undir fót. Nær allar helgar eru hátíðir í bæjum og sveitum sem vel eru sóttar. Fólk fer í sumarbústaði og umferð erlendra ferðamanna er einnig mikil. Skoðun 30.6.2023 10:00
Hinrik Ingi dæmdur fyrir líkamsárás og fjárkúgun Hinrik Ingi Óskarsson, crossfit keppandi og einkaþjálfari, hefur verið dæmdur til tveggja ára skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir uppsöfnuð brot. Lárus Guðmundur Jónsson, félagi hans, hlaut sex mánaða skilorðsbundið fangelsi. Innlent 21.6.2023 15:51
Bein útsending: Á réttri leið - Ráðstefna um öryggi í samgöngum Klukkan 13 í dag hefst ráðstefnan Á réttri leið í Veröld – Húsi Vigdísar. Hægt verður að fylgjast með streymi af henni hér. Innlent 6.6.2023 12:30
Auðjöfur sektaður um átján milljónir fyrir hraðakstur Auðugasti íbúi Álandseyja var sektaður um meira en 120.000 evrur, jafnvirði um 18,3 milljóna íslenskra króna, fyrir að aka of hratt um helgina. Hraðasektir eru tekjutengdar í Finnlandi og segist auðmaðurinn vonast til þess að sektin nýtist til að bæta heilbrigðisþjónustu. Erlent 6.6.2023 11:33
Skógræktarstjóri segir fullyrðingar VÍN ekki standast skoðun Skógræktarstjóri segir að fullyrðingar samtakanna VÍN og fyrrverandi landgræðslustjóra um skógrækt standist ekki skoðun. Ferðamenn sæki í skóginn og að hann auki öryggi við vegi. Innlent 20.5.2023 07:00
Samið við Aðalverktaka um breikkun Reykjanesbrautar Fulltrúar Vegagerðarinnar og Íslenskra aðalverktaka skrifuðu í gær undir verksamning um tvöföldun Reykjanesbrautar milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns ásamt aðliggjandi hliðarvegum. Aðalverktakar áttu lægsta tilboð þegar þau voru opnuð 5. apríl síðastliðinn, buðu tæpa fjóra milljarða króna í verkið, sem var meira en einum milljarði undir áætluðum verktakakostnaði. Viðskipti 18.5.2023 08:58
Skrunað undir stýri Á sólríkum sunnudegi ákváðum við hjónin að henda nokkrum pylsum á grillið í síðbúinn hádegismat. Þegar lagerstaðan var tekin í eldhússkápum kom hinsvegar í ljós að steikta laukinn vantaði og því stökk ég upp í fjölskyldubílinn og brenndi (á löglegum hraða vitaskuld) í Krambúðina á Eggertsgötu. Skoðun 16.5.2023 10:30
Rýkur úr hringveginum í Hveradalsbrekku Vegfarendum er talin engin hætta búin af aukinni jarðhitavirkni sem mælist nú undir hringveginum í Hveradalabrekku við Skíðaskálann í Hveradölum. Rannsóknir sýna að hiti neðst í vegfláum er 86 gráður rétt undir yfirborðinu. Innlent 11.5.2023 22:54