Írak

Fréttamynd

48 látnir og 10 særðir í Najaf

Að minnsta kosti 48 eru látnir og 90 særðir eftir sjálfsmorðsárás í hinni heilögu borg Najaf í Írak í dag. Árásarmaðurinn ók bíl upp að strætisvagnastöð, þar sem mikill mannfjöldi var samankominn, og sprengdi sig þar í loft upp. 

Erlent
Fréttamynd

Kosningastarfsmenn drepnir í Írak

Öflug bílsprenging sprakk fyrir stundu í borginni Kerbala í Írak. Í það minnsta tíu fórust. Þrír starfsmenn kjörstjórnar fyrir kosningarnar í næsta mánuði voru drepnir í Bagdad fyrr í morgun.

Erlent
Fréttamynd

Þekktasta fórnarlambið á batavegi

Þekktasta fórnarlamb stríðsins í Írak er á batavegi. Ali Abbas, drengurinn sem missti hendurnar þegar sprengja lenti á heimili hans í Bagdad, vill snúa aftur heim til að starfa með öðrum sem misst hafa útlimi.

Erlent
Fréttamynd

Tugir létust í Najaf og Karbala

Mesta mannfall á einum degi í Írak í nokkra mánuði varð í gær þegar tvær sprengjur sprungu í helgustu borgum sjíamúslima. Þrír starfsmenn kosninganefndar voru skotnir til bana. Myndband með tíu íröskum gíslum sýnt.

Erlent
Fréttamynd

62 liggja í valnum eftir daginn

Sextíu og tveir liggja í valnum eftir hrinu grimmdarlegra árása í Írak í dag. Skotmörk hryðjuverkamannanna í dag voru helgistaðir sjíta í borgunum Najaf og Kerbala. Tilgangurinn er að sögn stjórnmálaskýrenda að reka fleyg á milli sjíta og súnníta í von um trúarbragðastríð.

Erlent
Fréttamynd

Unglingsstúlka lést í sprengjuárás

Unglingsstúlka lést þegar sprengja sprakk í vegkanti í þann mund sem skólarúta átti leið hjá í Mósúl í Írak í dag. Sex særðust í árásinni, sumir mjög alvarlega. Sprengjutilræðinu virðist hafa verið beint gegn bandarískum hermönnum sem óku rétt á undan skólabílnum.

Erlent
Fréttamynd

Þrjár árásir á kosningaskrifstofur

Tveir hafa látist og níu særst í þremur árásum sem gerðar hafa verið á kosningaskrifstofur í Írak í dag. Sú mannskæðasta varð í borginni Dudsjæl í norðurhluta landsins þar sem tveir féllu.

Erlent
Fréttamynd

Sjálfsmorðsárás við græna svæðið

Einn eða tveir eru taldir hafa farist í sjálfsmorðssprengjuárás við græna svæðið í Bagdad fyrir stundu. Þetta er annan daginn í röð sem öflug sprenging skekur græna svæðið þar sem ríkisstjórn landsins, erlend sendiráð og herstjórnin eru til staðar. Tólf eru sagðir sárir, sumir hverjir alvarlega, samkvæmt fyrstu fregnum.

Erlent
Fréttamynd

79 listar í kosningunum í Írak

Sjálfsmorðsárás var gerð á græna svæðið í Bagdad í morgun, annan daginn í röð. Árásin var nákvæmlega eins og gerð á sama stað. Sjötíu og níu listar hafa verið lagðir fram fyrir fyrstu frjálsu kosningarnar í Írak sem haldnar verða í næsta mánuði.

Erlent
Fréttamynd

Samstarfsmaður Zarqawis drepinn

Náinn samstarfsmaður hryðjuverkamannsins alræmda Abu Musabs al-Zarqawis hefur verið drepinn af írökskum öryggissveitum að sögn Iyads Alllawis, forsætisráðherra bráðbirgðastjórnarinnar í Írak. Maðurinn, Hassan Ibrahim Farhan að nafni, er meðlimur al-Kaída hryðjuverkasamtakanna og er sagður hafa staðið fyrir fjölda mannnrána og aftaka í Írak að undanförnu.

Erlent
Fréttamynd

Hinir staðföstu halda heim

Uppreisnarmenn í Írak halda áfram árásum sínum og er lögregla vinsælt skotmark. Fyrir vikið fækkar í röðum írakskra sveita og hinir staðföstu halda heim á leið.

Erlent
Fréttamynd

13 óbreyttir borgarar fórust

Í það minnsta þrettán fórust og töluverður fjöldi særðist í sjálfsmorðssprengjuárás í Bagdad í morgun, allt óbreyttir borgarar. Bíl ku hafa verið ekið upp að eftirlitsstöð hersins nærri græna svæðinu, þar sem Bandaríkjaher og bráðabirgðastjórn Íraks hafa aðsetur, og hann sprengdur í loft upp.

Erlent
Fréttamynd

70 uppreisnarmenn handteknir

Rúmlega 70 írakskir uppreisnarmenn voru handteknir í Bagdad í dag þegar þeir gerðu tilraun til að ráðast að inn á lögreglustöð í borginni. Ekkert mannfall virðist hafa orðið í átökunum en árásir á írakskar lögreglustöðvar hafa verið tíðar undanfarið þar sem tugir lögreglumanna hafa fallið.

Erlent
Fréttamynd

Írakskur Hitler að fæðast?

Írakskur Hitler gæti fæðst haldi óöldin í Írak áfram með niðurlægingu og örvilnun írakskra borgara. Þetta sagði forseti Íraks, Ghazi Yawar, í viðtali við arabískt dagblað í morgun. Hann sagði ástandið sambærilegt við það sem var í Þýskalandi eftir fyrri heimsstyrjöldina, og minnti á að að hefði reynst frjór jarðvegur fyrir Adold Hitler og nasisma.

Erlent
Fréttamynd

Látlausar blóðsúthellingar í Írak

Blóðsúthellingarnar í Írak virðast látlausar. Fjöldi fólks týndi lífi í morgun þegar hryðjuverkamaður sprengdi sig í loft upp í miðri mannmergð í Bagdad. 

Erlent
Fréttamynd

Ár liðið frá handtöku Saddams

Ár er liðið frá því að Saddam Hússein var gómaður í holu í Írak. Örlög hans eru enn óráðin, en á meðan yrkir hann ljóð og uppreisnarmönnum vex ásmegin.

Erlent
Fréttamynd

Friður er forsenda uppbyggingar

Hálft annað ár er liðið síðan ráðist var á Írak og ógnarstjórn Saddams steypt af stóli. Engu að síður er enn róstusamt í landinu og talsvert vantar upp á að þjóðlíf komist í eðlilegt horf.

Erlent
Fréttamynd

Blair vill ekki rannsókn í Írak

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hefur hafnað kröfum um að hann setji á fót óháða rannsókn á því hve margir óbreyttir borgarar hafi látið lífið í Írak síðan ráðist var inn í landið. Hópur fyrrverandi sendiherra, fræðimanna, auk biskups og herforingja sendu Blair í dag áskorun þess efnis að hann setti slíka rannsókn af stað.

Erlent
Fréttamynd

Sex Írakar hafa fallið í morgun

Þrír Írakar féllu þegar sjálfsmorðssprengjuárás var gerð á bandaríska hervagnalest í borginni Samarra í Írak í morgun. Bíl var ekið upp að bílalestinni og hann sprengdur í loft upp. Írakskur lögreglumaður féll einnig þegar uppreisnarmenn réðust á hóp bandarískra hermanna í borginni.

Erlent
Fréttamynd

Kosningarnar fari fram á 2-3 vikum

Óháð nefnd sem fjallar um framkvæmd kosninga í Írak útilokar ekki að kosningarnar fari fram á tveggja til þriggja vikna tímabili. Sem fyrr verður viðmiðunardagurinn þó 30. janúar á næsta ári.

Erlent
Fréttamynd

Stuðningsmenn Saddams í Sýrlandi

Uppreisnarmenn í Írak njóta aðstoðar Sýrlendinga. Þetta er mat heimildarmanna <em>Washington Post</em> úr röðum herleyniþjónustumanna og byggir matið á upplýsingum sem aflað var í Bagdad og Fallujah í síðasta mánuði. Talið er að fyrrverandi stuðningsmenn Saddams Hússeins séu í Sýrlandi og komi þaðan fé til uppreisnarmannanna.

Erlent
Fréttamynd

Þúsundasti hermaðurinn fallinn

Þúsundasti bandaríski hermaðurinn er fallinn í átökum í Írak samkvæmt upplýsingum frá bandaríska hersetuliðinu. Hann féll þegar skotárás var gerð á hersveit hans sem var í eftirlitsferð. Alls hafa hátt í þrettán hundruð hermenn týnt lífi í Írak, þar af dágóður hluti í slysum af ýmsu tagi.

Erlent
Fréttamynd

Svartsýni um framtíð Írak

Ástandið í Írak fer versnandi og óvíst hvort það batnar nokkuð í náinni framtíð. Þetta er mat fyrrum stöðvarstjóra bandarísku leyniþjónustunnar CIA í skeyti sem hann sendi yfirmönnum sínum seint í síðasta mánuði, skömmu áður en hann lét af embætti. Þessu greindi dagblaðið The New York Times frá í gær.

Erlent
Fréttamynd

Alþingi og Íraksmálið

Utanríkisráðherra og forsætisráðherra ákváðu að setja Ísland á lista yfir hinar staðföstu þjóðir og veita þar með innrásaröflunum í Írak móralskan stuðning. Málið virðist ekki hafa komið til kasta utanríkismálanefndar eins og lög kveða á um.

Erlent
Fréttamynd

21 hefur látist í Írak í morgun

Sautján Írakar létust og þrettán særðust í árás uppreisnarmanna í norðurhluta Íraks í morgun. Uppreisnarmennirnir óku tveimur bifreiðum og gerðu skothríð á strætisvagna. Í vögnunum var fólk á leið til vinnu. Yfirmaður í þjóðvarðliði Íraka var einnig drepinn skammt norður af Bagdad í morgun, sem og þrír lífverðir hans. 

Erlent
Fréttamynd

Uppreisnarmenn sækja í sig veðrið

21 Íraki lést í þremur árásum uppreisnarmanna í landinu í morgun. Svo virðist sem uppreisnarmenn sæki í sig veðrið eftir því sem nær dregur kosningum í landinu.  

Erlent
Fréttamynd

Kröfur um frestun kosninga aukast

Nær hundrað manns létust í árásum vígamanna í Írak frá föstudegi til sunnudags. Aukið mannfall hefur orðið mörgum tilefni til að krefjast þess að kosningunum í næsta mánuði verði frestað. </font /></b />

Erlent
Fréttamynd

Nýtt Abu Grahib hneyksli?

Bandarísk hernaðaryfirvöld kanna nú myndir sem virðast sýna sérsveitarmenn flotans beita írakska fanga pyntingum. Þær þykja minna um margt á hinar óhugnanlegu myndir frá Abu Grahib fangelsinu í Írak.

Erlent
Fréttamynd

Þúsundir hermanna til Íraks

Fimmtán létust og um fimmtíu manns slösuðust þegar tvær öflugar bílasprengjur sprungu í nágrenni við græna beltið í Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Pentagon tilkynnti í gær að þúsundir hermanna yrði sendir til Íraks til að reyna tryggja ástandið fyrir kosningarnar sem fram fara í næsta mánuði.

Erlent
Fréttamynd

Hermönnum fjölgað um tólf þúsund

Að minnsta kosti sextán létust og tugir manna slösuðust þegar tvær öflugar bílasprengjur sprungu í Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Bandarísk hernaðaryfirvöld stefna nú að því fjölga í hersetuliði sínu um tólf þúsund til að tryggja ástandið. Þá verða 150 þúsund bandarískir hermenn við störf í Írak.

Erlent