Rússland
42 43 44 45 46 47 48 49 50 … 97 ›
Segja íbúa verjast af hörku en saka Rússa um að varpa fosfórsprengjum Úkraínskir hermenn berjast af hörku við rússneskar hersveitir í norðurhluta Úkraínu en ekkert lát er á árásum Rússa í austurhlutanum. Úkraínski herinn hefur meðal annars sakað Rússa um að varpa fosfór sprengjum á Snákaeyju. Talsmaður hersins segir Rússa óttast mótspyrnu heimamanna. Erlent 2.7.2022 20:41
Fordæma mögulega dauðarefsingu bresku hermannanna Bresk stjórnvöld hafa fordæmt það að tveir Bretar, Dylan Healy og Andrew Hill, skyldu fá dauðadóm í Rússlandi. Skýrsla frá rússneskum dómstólum var lekið í gær en samkvæmt henni verða mennirnir dæmdir til dauða. Erlent 2.7.2022 15:51
Úkraínuforseti skorar á Vesturlönd að hætta orkuinnflutningi frá Rússlandi Zelenskyy Úkraínuforseti segir Evrópu verða að hætta öllum gas- og olíuinnfluttningi frá Rússlandi en Rússar noti ágóðann bæði í stríðinu í Úkraínu og til að sundra Evrópu. Nítján óbreyttir borgarar, þar af eitt barn, féllu í tveimur eldflaugaárásum Rússa á bæ nálægt hafnarborginni Odessa í Úkraínu í gærkvöldi. Erlent 1.7.2022 13:43
Vaktin: Tala látinna fer hækkandi eftir loftárás Rússa í Odesa Tala látinna fer hækkandi eftir loftárásir Rússa sem lentu á íbúðabyggingu og tómstundamiðstöð í úkraínsku borginni Odesa í nótt. Staðfest tala látinna er nú 21 en þar af eru tvö börn. Auk þess voru 38 fluttit á sjúkrahús eftir árásina. Erlent 1.7.2022 08:35
Rússar hafa nánast lagt Luhansk hérað undir sig Rússar eru við það að ná fullum yfirráðum yfir síðustu borginni í Luhansk héraði eftir harða bardaga undanfarnar vikur. Utanríkisráðherra Bretlands segir Vesturlönd verða að útvega Úkraínumönnum þau vopn sem dugi til að þeir vinni stríðið í Úkraínu. Erlent 30.6.2022 21:00
Putin segir sókn Rússa stöðuga og samkvæmt áætlun Putin Rússlandsforseti þvertekur fyrir að ráðist sé á borgaraleg skotmörk í Úkraínu. Sókn rússneskra hersveita væri stöðug og gengi samkvæmt áætlun. Utanríkisráðherra Bretlands segir Vesturlönd verða að auka stuðning sinn við Úkraínumenn og sjá til þess að þeir gersigri rússneska innrásarliðið. Erlent 30.6.2022 11:53
Pútín vísar fullyrðingum Johnson til föðurhúsanna Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, fullyrti í gær að Vladimir Pútín Rússlandsforseti hefði ekki ráðist inn í Úkraínu ef hann væri kona. Pútín hefur nú vísað staðhæfingu Johnson til föðurhúsanna og látið kné fylgja kviði. Erlent 30.6.2022 10:42
Vaktin: Pútín hafnar því að Rússar haldi úkraínskum flutningaskipum föstum Vladímír Pútín Rússlandsforseti hafnar því að Rússar haldi flutningaskipum föstum í úkraínskum höfnum. Einnig gerði hann lítið úr áhrifum kornskorts á heimsmarkað og sagði refsiaðgerðir Vesturlanda valda hækkandi matarverði. Erlent 30.6.2022 08:57
Bergmál úr fortíðinni Allt frá upphafi Úkraínustríðsins þegar Rússland þverbraut alþjóðalög enn á ný og réðist inn í Úkraínu, hafa þingmenn og stjórnvöld verið einhuga um algjöra samstöðu með Úkraínu og með öðrum lýðræðisríkjum. Það er jákvætt enda eiga fáar þjóðir meira undir því en við Íslendingar að brot á alþjóðalögum séu ekki liðin. Á þeim tíma sem liðinn er frá innrásinni hafa úrtöluraddir og samúð með rússneskum stjórnvöldum sem betur fer farið mjög lágt hér á landi. Skoðun 30.6.2022 08:01
Bandaríkjamenn telja Pútín enn vilja ná stórum hluta Úkraínu á sitt vald Öryggisyfirvöld í Bandaríkjunum telja Vladimir Pútín Rússlandsforseta enn vilja ná stórum hluta Úkraínu á sitt vald. Þau segja hersveitir Rússa hins vegar orðnar svo rýrar að þær séu eingöngu færar um hægfara sókn. Erlent 30.6.2022 06:58
NATO skilgreinir Rússland sem helstu öryggisógn Evrópu Rússland er helsta ógnin við öryggi Evrópu samkvæmt nýrri hernaðarstefnu sem leiðtogar Atlantshafsbandalagsins samþykktu í dag. Forsætisráðherra segir óviðeigandi að Tyrkir hafi blandað málefnum Kúrda inn í aðildarviðræður Svía og Finna að bandalaginu. Erlent 29.6.2022 19:21
Vaktin: Myndskeið sýnir árásina á verslunarmiðstöðina Sergei Ryabkov, aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands, segir aðild Svía og Finna að Atlantshafsbandalaginu skapa óstöðugleika og að í augum stjórnvalda í Rússlandi sé um að ræða neikvæða þróun. Erlent 29.6.2022 08:56
„Þetta er 1937 augnablikið okkar,“ segir yfirmaður breska hersins Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segir leiðtoga G7-ríkjanna hafa verið sammála um að veita Úkraínumönnum þann stuðning sem þeir þurfa til að snúa stríðinu sér í hag. Þetta sé það sem Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hafi óskað eftir. Erlent 28.6.2022 12:31
Vaktin: NATO hafi áhyggjur yfir tengslum Kínverja og Rússa Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, segir bandalagið ekki líta á Kínverja sem andstæðinga sína en þau hafi áhyggjur af sterkum tengslum Rússa og Kínverja og því að Kínverjar dreifi fölskum áróðri um bæði NATO og Vesturlönd. Erlent 28.6.2022 08:58
Að minnsta kosti sautján látnir eftir árás Rússa á verslunarmiðstöð Ljóst er að sautján hið minnsta létust þegar Rússar gerðu eldflaugaárás á verslunarmiðstöð í Kremenchuk í miðhluta Úkraínu í gær. Erlent 28.6.2022 07:21
Tilraun til að taka Krímskaga leiði til þriðju heimsstyrjaldarinnar Dmitry Medvedev, fyrrverandi forseti Rússlands og náinn bandamaður Vladímír Pútín, segir að ef ríki sem er í Atlantshafsbandalaginu sæki í átt að Krímskaga leiði það til þriðju heimsstyrjaldarinnar. Erlent 27.6.2022 23:34
Körfuboltastjarna fór fyrir dómara í Rússlandi í dag Bandaríska körfuboltakonan Brittney Griner fór fyrir dómara í undirbúningsyfirheyrslu í Rússlandi í dag. Griner var handtekinn fyrir rúmlega fjórum mánuðum á Sheremetyevo-flugvelli í Moskvu fyrir vörslu á kannabis þegar það fannst hassolía í rafrettu hennar. Erlent 27.6.2022 14:17
Vaktin: Loftárás á verslunarmiðstöð í Kremenchuk Serhai Haidai, ríkisstjóri Luhansk, hefur hvatt íbúa Lysychansk til að yfirgefa borgina og segir ástandið afar erfitt. „Bjargið sjálfum ykkur og ástvinum. Passið upp á börnin. Þið getið verið fullviss um að það verður séð um ykkur í öruggum borgum Úkraínu.“ Erlent 27.6.2022 08:31
„Síðan vöknum við við sprengingar klukkan sex í morgun“ Einn lét lífið eftir að Rússar vörpuðu í morgun sprengjum á að minnsta kosti tvær íbúðablokkir í Kænugarði höfuðborg Úkraínu. Íslendingur sem býr í borginni segir óþægilegt að vakna upp við sprengingar á ný. Hann er orðinn langþreyttur á stríðinu sem hann segir verða blóðugra með hverjum deginum. Erlent 26.6.2022 15:29
Sprengdu íbúðarblokkir í Kænugarði Rússar vörpuðu sprengum á að minnsta kosti tvær íbúðarblokkir í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu, eldsnemma í morgun. Borgarstjóri Kænugarðs segir að sjö ára gamalli stúlku hafi verið bjargað úr rústunum. Erlent 26.6.2022 07:53
Lysychansk síðasta vígi Úkraínumanna í Luhansk Úkraínskir hermenn hafa hörfað frá borginni Severodonetsk í Luhansk-héraði. Nú er Lysychansk eina borgin í Luhansk sem Úkraínumenn ráða enn yfir. Erlent 25.6.2022 16:53
Rússar létu sprengjum rigna yfir Luhansk Rússar reyna nú eftir fremsta megni að ná borgunum Sieveródonetsk og Lysychansk í Luhanskhéraði á sitt vald. Þeir létu sprengjum rigna yfir borgirnar í morgun og hæfðu meðal annars efnaverksmiðju þar sem hundruð almennra borgara hafa leitað skjóls undanfarið. Erlent 25.6.2022 12:05
Rússar saka FIFA um mismunun Rússneska knattspyrnusambandið RFS og rússneska úrvalsdeildin í fótbolta hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA er sakað um mismunun eftir að FIFA gaf leikmönnum og þjálfurum leyfi til að segja samningum sínum við rússnesk félög lausum. Fótbolti 25.6.2022 11:30
Úkraínski herinn hörfar frá Sieveródonetsk Eftir margra vikna hernaðarátök hefur úkraínski herinn ákveðið að hörfa frá Sieveródonetsk í Lúhansk-héraði til að forða því að verða umkringdur af Rússum. Héraðsstjóri Lúhansk-héraðs segir ekkert þýða að að halda kyrru fyrir í borginni og því hafi úkraínska hernum verið skipað að hörfa. Erlent 24.6.2022 15:25
Vaktin: Úkraínska hernum skipað að hörfa úr Sieveródonetsk Stjórnvöld í Úkraínu hafa ákveðið að láta hersveitirnar sem barist hafa í Sieverodonetsk hörfa og segja ekkert vit í því að láta þær sæta mannfalli í langan tíma til að verja svæðið. Ríkisstjórinn segir 90 prósent allra heimila í borginni skemmd eða eyðilögð. Erlent 24.6.2022 08:26
Vaktin: íhuga að hörfa frá Lysychansk Besta öryggistrygging Úkraínu liggur í aðild að Evrópusambandinu, sem myndi gera Vladimir Pútín Rússlandsforseta erfiðara fyrir að ráðast aftur inn í landið. Þetta segir Jonathan Powell, fyrrverandi starfsmannastjóri Tony Blair og samningamaður Breta í málefnum Norður-Írlands. Erlent 23.6.2022 08:36
Telur líklegt að Rússar skrúfi fyrir gasið í vetur Forstjóri Alþjóðaorkumálastofnunarinnar telur líklegt að Rússar muni skrúfa fyrir gasleiðslurnar til Evrópu í vetur. Erlent 22.6.2022 23:30
Íslenskur fréttamaður á vegum Pútíns tók viðtal við meintan stríðsglæpamann Haukur Hauksson hefur ferðast á átakasvæði í Úkraínu í boði rússneskra stjórnvalda. Nýlega tók Haukur viðtal við Graham Phillips, annan sjálfstætt starfandi blaðamann, sem nú er sakaður um stríðsglæp. Erlent 22.6.2022 17:12
Vaktin: Ráðast að öryggisstofnunum í Lysychansk Finnar eru reiðubúnir ef Rússar ráðast gegn þeim og munu verjast ötullega, segir Timo Kivinen, yfirmaður finnska heraflans. Erlent 22.6.2022 08:17
Spá takmörkuðum landvinningum en síðan pattstöðu Samkvæmt umfjöllun New York Times telja embættismenn vestanhafs að myndin í Úkraínu sé að skýrast; Rússar muni líklega leggja undir sig meira svæða í austurhluta landsins en mæta harðri andspyrnu sífellt betur vopnaðra Úkraínumanna og ekki ná algjörum yfirráðum yfir Donbas. Erlent 21.6.2022 12:42