NATO
8 9 10 11 12 13 14 15 16 … 20 ›
Heimurinn farinn að átta sig á að bregðast þurfi við: „Þetta gengur lengra en tvíhliða stríð og smáar skærur“ Sendiherra Georgíu gagnvart Íslandi segir mikilvægt að Georgía fái aðild að Atlantshafsbandalaginu, ekki síst í ljósi ástandsins í Úkraínu. Georgíumenn finni til með Úkraínumönnum á hátt sem aðeins þeir sem hafa lent í innrásarhernum geta gert. Ljóst sé að fleiri lönd séu í hættu takist ekki að stöðva Rússa. Erlent 2.5.2022 20:01
Engin þjóðaratkvæðagreiðsla um NATO-aðild í Svíþjóð Magdalena Andersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, segir ekki verði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort ríkið eigi að sækja um aðild að Atlantshafsbandalaginu (NATO) eða ekki. Erlent 28.4.2022 23:31
Finnar og Svíar stefna að NATO-umsókn samtímis Finnar og Svíar stefna að því að sækja um aðild að Atlantshafsbandalaginu samtímis. Umsóknir ríkjanna gætu borist strax í næsta mánuði. Erlent 25.4.2022 21:52
Ítalski flugherinn á leið til landsins Von er á sveitum ítalska flughersins til landsins á morgun, mánudaginn 25. apríl. Liðsmennirnir, sem eru 135 talsins, koma með fjórar F-35 herþotur með sér. Innlent 24.4.2022 22:08
Segir Rússa geta ráðist inn í fleiri Evrópulönd Bretar ætla að opna aftur sendiráð sitt í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu, og munu aðstoða Pólverja við að gefa Úkraínumönnum skriðdreka. Forseti Úkraínu varar Vesturlönd við því að Rússar ætli sér að ráðast inn í fleiri lönd í álfunni. Erlent 23.4.2022 12:08
Meirihluti Svía vill í NATO Meirihluti Svía er hlynntur aðild að Atlantshafsbandalaginu samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Þetta er í fyrsta sinn sem meirihluti íbúa hefur verið fylgjandi aðild að bandalaginu. Erlent 21.4.2022 13:24
Innganga Finna geti breytt öryggisstrúktúrnum Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að ef Finnar ganga í Atlantshafsbandalagið geti það að einhverju leyti breytt öryggisstrúktúrnum í Evrópu. Finnska þingið hefur umræðu í dag um hvort að sótt verði um inngöngu í Atlantshafsbandalagið. Innlent 20.4.2022 10:47
Ísland myndi styðja NATO-aðild Finna Íslensk stjórnvöld munu styðja aðildarumsókn Finna að Atlantshafsbandalaginu, komi til þess að Finnar sæki um aðild. Innlent 19.4.2022 07:39
Umsóknarferli Úkraínu um aðild að ESB farið af stað Sérfræðingur í innanríkisráðuneyti Úkraínu greindi frá því í kvöld á samfélagsmiðlinum Telegram að Úkraína hefði hafið umsóknarferli um aðild að Evrópusambandinu. Erlent 17.4.2022 22:08
Ísland búi sig undir hörð viðbrögð af hálfu Rússa Stjórnmálafræðiprófessor telur að Ísland þurfi að vera viðbúið því að verða fyrir barðinu á refsiaðgerðum Rússa, ef Finnland og Svíþjóð sækjast eftir aðild að NATO. Velta megi fyrir sér hvort Ísland sé „veikasti hlekkurinn í varnarkeðju NATO.“ Innlent 14.4.2022 12:00
Finnar og Svíar færast nær NATO-aðild Forsætisráðherrar Finnlands og Svíþjóðar segja báðir að öryggislandslag Evrópu hafi tekið grundvallarbreytingum með innrás Rússa í Úkraínu. Það geti leitt til þessa að bæði ríki sæki um aðild að NATO, Atlantshafsbandalaginu. Erlent 13.4.2022 15:00
Hátt í tvö hundruð bandarískir hermenn æfðu landgöngu í Hvalfirði Bandarískir landgönguliðar eru við lendingaræfingar í Hvalfirði í dag í tengslum við varnaræfinguna Norður-Víking. Um sjö hundruð manns taka þátt í varnaræfingunni sem hófst 2. apríl og sendur til fimmtudags. Innlent 11.4.2022 16:39
Rýnt í stöðuna: Vopnakapphlaup í austri Rússar vinna enn hörðum höndum að því að koma liðsauka til hersveita í austurhluta Úkraínu. Markmið þeirra er að ná fullum tökum á og halda Donbas-héraði en miklar efasemdir eru uppi um það hvort Rússar geti það yfir höfuð. Erlent 11.4.2022 15:01
Kuleba segir Rússa undirbúa tangarsókn í Donbas í anda seinni heimsstyrjaldar Utanríkisráðherra Úkraínu segir Vesturlönd ekki hafa tíma til bollalegginga. Auki þau ekki hernaðaraðstoð sína við Úkraínu á næstu dögum verði það of seint. Rússar hafi þegar byrjað stórsókn sína í Donbas sem verði á svipaðri stærð og verstu bardagar síðari heimsstyrjaldarinnar. Erlent 7.4.2022 20:47
Utanríkisráðherra reiknar með að NATO-ríki auki stuðninginn við Úkraínu Utanríkisráðherra reiknar með að NATO ríkin muni auka stuðning sinn við Úkraínu en hún situr nú fund utanríkisráðherra bandalagsins í Brussel. Úkraínu menn segja auknar vopnasendingar nauðsynlegar til að koma í veg fyrir skelfilegar fórnir og útbreiðslu innrásar Rússa til annarra Evrópuríkja. Erlent 7.4.2022 12:05
Stærsta herskip sem sést hefur á Íslandi við bryggju í Reykjavík Stærsta herskip sem komið hefur til Íslands og flaggskip breska sjóhersins, flugmóðurskipið Prince of Wales, verður í Reykjavík fram á föstudag. Koma skipsins tengist þó ekki varnaræfingunni Norður-Víkingi heldur er liður í reynslusiglingum skipsins um Norður-Atlantshaf. Innlent 4.4.2022 20:42
Sannfærð um að hinir seku verði sóttir til saka Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, segist sannfærð um að Rússar verði sóttir til saka vegna stríðsglæpa. Það sagði hún í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag og sagði hún einnig að fregnir af ódæðum rússneskra hermanna í norðurhluta Úkraínu muni hafa áhrif á viðhorf umheimsins gagnvart innrásinni. Innlent 4.4.2022 18:53
Úkraínuforseti hvetur til að sett verði hafnbann á Rússa um allan heim Allt bendir til að Rússar séu að safna liði til stórsóknar í austurhluta Úkraínu. Flóttafólk sem kom til Póllands í dag segir ekkert að marka yfirlýsingar þeirra um að hernaðaraðgerðum væri lokið í norðurhluta landsins. Forseti Úkraínu skorar á ríki heims að setja hafnbann á rússnesk skip. Erlent 31.3.2022 19:45
Flugu vísvitandi inn í lofthelgi Svíþjóðar með kjarnorkuvopn Rússneskar orrustuþotur sem flogið var inn í lofthelgi Svíþjóðar í byrjun mánaðarins báru kjarnorkuvopn. Með þessu eru Rússar sagðir hafa viljað ógna Svíum en um þetta leyti var verið að tala um aukinn áhuga á NATO-aðild í Svíþjóð og Finnlandi. Erlent 30.3.2022 16:49
Tvö þýsk herskip komin til Reykjavíkur Tvö þýsk herskip komu til hafnar við Skarfabakka í Reykjavík í morgun. Þau liggja þar við bryggju. Á Marine Traffic má sjá að annað þeirra ber nafnið Schleswig Holstein en hitt Sachsen eftir samnefndum þýskum sambandslöndum. Innlent 30.3.2022 10:15
Rússar sagðir reiðubúnir til að slaka á kröfum Rússnesk yfirvöld eru sögð hafa slakað á kröfum til Úkraínu í aðdraganda frekari vopnahlésviðræðna á morgun. Rússar eru sagðir ekki vera mótfallnir því að Úkraína gangi í ESB svo lengi sem ríkið fái ekki aðild að NATO. Erlent 28.3.2022 23:17
Leiðtogar NATO-ríkja ekki á sömu bylgjulengd Leiðtogar ríkja Atlantshafsbandalagsins eru ekki á sama máli um hvernig best sé að nálgast mögulegar viðræður við Vladimír Pútín Rússlandsforseta um vopnahlé á milli Rússa og Úkraínu. Frakkar og Þjóðverjar telja að hægt sé að semja við Pútín. Bretar og Pólverjar segja hins vegar að ekki sé hægt að treysta Pútín. Erlent 28.3.2022 21:52
Samskiptaóreiða sögð hafa kostað Rússa mikið Leiðtogar rússneskra hersveita í Úkraínu hafa að miklu leyti notast við samskiptabúnað sem er ekki dulkóðaður. Má þar nefna farsíma og talstöðvar sem hver sem er getur hlustað á. Þetta hefur kostað Rússa verulega þar sem ætlanir þeirra og staðsetningar hafa verið aðgengilegar. Erlent 28.3.2022 11:54
Vill að umdeilt listaverk til heiðurs samstarfi Rússa og NATO verði fjarlægt Ritari Samtaka hernaðarandstæðinga vill að listaverk fyrir utan Hótel Sögu verði fjarlægt. Verkið er tuttugu ára gamalt og táknar vináttu og samstarf Rússlands við NATO-ríkin. Innlent 25.3.2022 22:51
Uppgjafartónn og ofsóknaræði runnið á rússneska ráðamenn Uppgjafartónn og ofsóknaræði er runnið á æðstu ráðamenn Rússlands sem segja Vesturlönd hafa sameinast um að gereyða Rússlandi. Vestrænir leiðtogar heita því að standa saman þar stríðinu ljúki með sneypuför Putins. Nú er talið að minnsta kosti þrjú hundruð manns hafi fallið í árás Rússa á leikhús í Mariupol. Erlent 25.3.2022 19:21
Rússar segja Vesturlönd hafa lýst allsherjarstríði á hendur Rússlandi að hætti nasista Utanríkisráðherra Rússlands segir Vesturlönd hafa lýst yfir allsherjarstríði við Rússland að hætti nasista með það að markmiði að tortíma landinu. Bandaríkin og Evrópusambandið ætla að vinna saman að því að Putin Rússlandsforseti geti ekki lengur beitt aðgangi Evrópu að rússneskri orku sem vopni í samskiptum við bandalagið. Erlent 25.3.2022 11:58
Leiðtogarnir sýndu samstöðu en tóku engin ný skref Leiðtogar NATO, Evrópusambandsins og G7 ríkjanna funduðu í Brussel í dag um stöðuna milli Úkraínu og Evrópu. Aðildaríki Atlantshafsbandalagsins samþykktu að auka viðbúnað og hernaðaraðstoð til Úkraínu en í heildina að sjá var lítið um breytingar. Prófessor í stjórnmálafræði segir líklegast að fundurinn verði notaður til að þrýsta á kínversk stjórnvöld. Erlent 24.3.2022 23:14
Zelenskyy gagnrýnir Vesturlönd fyrir skort á vopnum Úkraínuforseti sakar Rússa um að nota fosfórsprengjur í stríðinu í Úkraínu og gagnrýnir Vesturlönd fyrir að útvega Úkraínumönnum ekki flugvélar og skriðdreka. Innrás Rússa sé aðeins byrjunin á árásum þeirra á Evrópuþjóðir nái þeir sínu fram gagnvart Úkraínu. Erlent 24.3.2022 20:01
Rússar uppskera gerbreytt og öflugra NATO með innrásinni Framkvæmdastjóri NATO segir innrás Rússa í Úkraínu hafa breytt stefnu bandalagsins varanlega en leiðtogar þess ákváðu í dag að efla herafla sinn í austur Evrópu verulega. Rússar áskilja sér rétt til notkunar kjarnorkuvopna. Erlent 24.3.2022 19:21
„Við erum staðráðin í að gera allt sem við getum til að styðja Úkraínu“ Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, segir leiðtoga bandalagsins hafa ákveðið að auka viðbúnað þess á öllum sviðum. Á láði, leiði og í lofti. Þeir hafi sömuleiðis samþykkt aukna aðstoð við Úkraínumenn til að hjálpa þeim að verjast innrás Rússa. Erlent 24.3.2022 14:05