Sýrland
1 2 3 4 5 6 7 … 19 ›
Vörpuðu sprengjum á byltingarverði í Sýrlandi Bandaríkjamenn gerðu í kvöld loftárásir í austurhluta Sýrlands, sem sagðar eru hafa beinst gegn byltingarvörðum Írans og vígahópum sem Íran styður. Þá var bandarískur dróni skotinn niður af Hútum yfir Rauðahafinu. Erlent 8.11.2023 23:09
Málaliðar Wagner færa Hezbollah loftvarnarkerfi Málaliðhópurinn rússneski, Wagner Group, er sagður ætla að senda hryðjuverkasamtökunum Hezbollah í Líbanon rússneskt loftvarnarkerfi, með mögulegri aðstoð Bashar al-Assad, forseta Sýrlands. Óttast er að Hezbollah ætli að opna nýja víglínu gegn Ísrael í norðurhluta landsins. Erlent 3.11.2023 11:43
Bandaríkjamenn gera árásir á skotmörk í Sýrlandi Bandaríski herinn gerði loftárásir á tvö skotmörk í Sýrlandi tengd Byltingarvarðsveit Íran (e. Revolutionary Guard Corps) nú í morgun. Reuters hefur eftir heimildarmanni að um hafi verið að ræða vopna- og skotfærageymslur. Erlent 27.10.2023 06:22
Árásir gerðar á herstöðvar Bandaríkjanna Bandarískir hermenn eru sagðir hafa slasast lítillega í drónárásum á herstöðvar Bandaríkjanna í Írak í gær. Tveimur drónum var flogið að al Asad flugstöðinni í vesturhluta Íraks og einum að annarri herstöð í norðurhluta landsins. Erlent 19.10.2023 14:20
Meintur „Bítill ISIS“ gengst við hryðjuverkastarfsemi Maður sem grunaður er um að hafa verið einn af „Bítlum Íslamska ríkisins“, hefur játað aðild að hryðjuverkastarfsemi fyrir dómi í Bretlandi. Aine Leslie Davis játaði í morgun að hafa borið skotvopn í hryðjuverkatilgangi og gekkst hann einnig við tveimur ákærum um að hafa fjármagnað hryðjuverkastarfsemi. Erlent 16.10.2023 11:49
Ísraelar hæfðu flugvöllinn í Aleppo í loftárás Ísraelar eru sagðir hafa hæft Aleppo-flugvöll í Sýrlandi í loftárás. Talið er að loftárásin eigi að trufla íranskt birgðakerfi til Sýrlands. Erlent 14.10.2023 22:00
Síðustu dagar Prígósjíns: Kepptist við að halda veldi sínu saman Rússneski auðjöfurinn Jevgení Prígósjín, sem stofnaði og fjármagnaði meðal annars málaliðahópinn Wagner Group, varði sínum síðustu dögum á flakki um heiminn og reyndi að halda lífi í viðskiptaveldi sínu í Afríku og Mið-Austurlöndum. Varnarmálaráðuneyti Rússlands beitti hann miklum þrýstingi og var að bola Wagner út. Erlent 28.8.2023 11:19
Leita enn réttlætis áratug eftir efnavopnaárás Assads Íbúar í Ghouta, úthverfi Damaskusar, eru gramir yfir því að enginn hafi verið látinn sæta ábyrgð á efnavopnaárás sýrlenska stjórnarhersins sem varð á annað þúsund manns að bana árið 2013. Þvert á móti sé Bashar al-Assad, forseti, aftur boðinn velkominn í alþjóðasamfélagið. Erlent 22.8.2023 21:01
Rússar skemmdu bandarískan dróna með blysum Rússneskir flugmenn tveggja orrustuþota eru sagðir hafa skemmt bandarískan dróna yfir Sýrlandi með því að varpa blysum á hann. Atvikið átti sér stað þann 6. júlí en flugher Bandaríkjanna birti myndband af því í dag. Erlent 25.7.2023 14:34
Lítil pilla gefur Assad mikil völd Ein helsta ástæða þess að nágrannar Sýrlands eru tilbúnir til að hleypa Bashar al-Assad, forseta landsins, inn úr kuldanum snýr að flæði fíkniefna frá Sýrlandi. Ríkið framleiðir og leyfir framleiðslu gífurlegs magns af Captagon-amfetamínpillum en hundruð milljóna slíkra pilla hefur verið smyglað til Jórdaníu, Írak, Sádi-Arabíu og annara ríkja Mið-Austurlanda. Erlent 9.6.2023 22:31
Segir Tyrki hafa fellt leiðtoga ISIS Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, segir tyrknesku leyniþjónustuna hafa fellt Abu Hussein al-Qurashi, sem sagður er hafa tekið við stjórn Íslamska ríkisins eftir að Abu Ibrahim al-Qurayshi lést í árás Bandaríkjamanna á heimili hans í febrúar í fyrra. Erlent 30.4.2023 22:39
ISIS-systur aftur komnar til Noregs Tvær systur frá Bærum í Noregi og þrjú börn þeirra hafa verið flutt frá Sýrlandi til Noregs. Konurnar tilheyra hóp sem kallaður hefur verið „eiginkonur ISIS“ en þær gengu til liðs við hryðjuverkasamtökin á árum áður. Erlent 30.3.2023 11:06
Gerðu loftárásir eftir mannskæða drónaárás Bandarískur verktaki féll í drónaárás í Sýrlandi í nótt þar sem skæruliðahópur studdur af stjórnvöldum í Íran notaðist við dróna frá ríkinu til árásarinnar á herstöð í norðausturhluta landsins. Annar verktaki og fimm bandarískir hermenn særðust í árásinni. Erlent 24.3.2023 10:07
Dæmdu fyrrum fyrirliða landsliðsins í lífstíðarbann Fótboltaferill Ahmed Al-Saleh er á enda. Honum er hreinlega bannað að stíga aftur inn á fótboltavöllinn. Fótbolti 9.3.2023 15:01
ISIS-brúður tapar áfrýjun gegn sviptingu ríkisborgararéttar Shamima Begum, ung kona sem fæddist í Bretlandi en gekk sem unglingur til liðs við Ríki íslams í Sýrlandi, tapaði áfrýjun gegn ákvörðun breskra stjórnvalda að svipta hana ríkisborgararétti í gær. Lögmaður hennar segir að baráttunni sé hvergi nærri lokið. Erlent 23.2.2023 09:12
Annar öflugur skjálfti á landamærum Tyrklands og Sýrlands Jarðskjálfti af stærðinni 6,4 reið yfir á landamærum Tyrklands og Sýrlands fyrir skömmu. Aðeins tvær vikur eru frá því að skjálfti af stærðinni 7,8 skók svæðið með þeim afleiðingum að 47.000 hafa látist og gríðarlegur fjöldi mannvirkja jafnaðist við jörðu. Erlent 20.2.2023 18:30
Atsu fannst látinn í rústum Ganverski knattspyrnumaðurinn Christian Atsu hefur fundist látinn í rústum heimilis síns í Tyrklandi. Hans hafði verið saknað frá því að jarðskjálfti skók stóran hluta Tyrklands og Sýrlands þann 6. febrúar síðastliðinn. Fótbolti 18.2.2023 08:48
Tala látinna komin í 45 þúsund Tala látinna eftir jarðskjálftann í Tyrklandi og Sýrlandi er komin í 45 þúsund og óttast er að hún hækki. 264 þúsund íbúðarhús hrundu í Tyrklandi en síðast í gær var þremur bjargað úr rústum þar í landi. Stríðsátök eru hafin á ný í Sýrlandi, sem hamlar björgunarstarfi. Erlent 18.2.2023 08:05
Fundu fólk á lífi eftir átta daga Björgunarsveitarmenn, hermenn og aðrir leitarmenn í Tyrklandi fundu í morgun fólk á lífi í rústum húsa sem hrundu fyrir átta dögum síðan. Minnst þrír fundust á lífi í rústum húsa en leitað er í þremur héruðum Tyrklands. Sérfræðingar segja litlar líkur á því að margir muni finnast á lífi. Erlent 14.2.2023 10:20
Fannst lifandi eftir 174 klukkustundir en vonir um að finna fleiri dvína Sífellt færri finnast nú lifandi í rústunum í Tyrklandi en vika er liðin frá mannskæðustu jarðskjálftum á svæðinu í áratugi. Kona fannst í dag lifandi eftir 174 klukkustundir en vonir fara dvínandi og spjótin beinast að gölluðum mannvirkjum. Íslenskt sérfræðingateymi stýrir enn aðgerðum rústabjörgunarsveita en færði sig um set í gær. Erlent 13.2.2023 12:50
Sýrlendingar örvæntingarfullir og enn berst lítil aðstoð Sýrlendingar sem lifðu tvo stóra jarðskjálfta, sem riðu yfir norðurhluta Sýrlands og suðurhluta Tyrklands í síðustu viku, af eru örvæntingarfullir. Lítil aðstoð hefur borist, enda landsvæði þeirra undir stjórn uppreisnarmanna, en þeir sem lifðu hryllinginn af glíma nú við sult og kulda. Erlent 13.2.2023 08:18
Færri bjargað í dag og eyðileggingin algjör Ríflega 22 þúsund eru nú sagðir látnir eftir skjálftana í Tyrklandi og Sýrlandi en einhverjum hefur verið bjargað úr rústum bygginga í dag eftir meira en hundrað klukkustundir. Björgunarstarf er þó að renna út á tíma en aðgerðarstjórnandi íslenska teymisins segir töluvert færri finnast á lífi. Erlent 10.2.2023 16:56
Rúmlega tuttugu og eitt þúsund látnir Opinberar tölur yfir dauðsföll í jarðskjálftunum í Tyrklandi og Sýrlandi standa nú í 21.719 og fjölgaði í hópi látinna um 668 í nótt. Erlent 10.2.2023 06:52
Litlar líkur á að fleiri finnist á lífi Tala látinna í Tyrklandi og í Sýrlandi eftir jarðskjálftana sem þar riðu yfir nálgast nú sextán þúsund manns óðfluga. Erlent 9.2.2023 07:15
Stjórnvöld harðlega gagnrýnd fyrir hæg viðbrögð Tyrknesk stjórnvöld hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir að bregðast of hægt við afleiðingum jarðskjálftanna á mánudag. Nú er talið að yfir ellefu þúsund hafi farist í skjálftunum. Íslenskt björgunarfólk er komið á hamfarasvæðið í Tyrklandi. Við vörum við myndefni í þessari frétt. Erlent 8.2.2023 19:00
Lítil stúlka fæddist í húsarústum Þessi nýfædda stúlka fannst í rústum í Sýrlandi en hún kom í heiminn þremur klukkutímum áður en hún fannst. Allir fjölskyldumeðlimir stúlkunnar eru látnir. Erlent 8.2.2023 14:59
Hópur Landsbjargar nálgast hamfarasvæðið: „Ekkert rafmagn og skortur á bensíni“ Heildarfjöldi látinna í jarðskjálftanum í Tyrkjaldi og Sýrlandi er nú kominn upp í ellefu þúsund en búist er við að sú tala muni hækka. Hópur Landsbjargar lenti í Tyrklandi í nótt og er nú á leið með rútu inn á hamfarasvæði en íbúar gagnrýna stjórnvöld fyrir hægagang í björgunaraðgerðum. Innlent 8.2.2023 12:04
„Hvað á ég að gera? Hvert á ég að fara?“ Heildarfjöldi látinna í jarðskjálftanum í Tyrklandi og Sýrlandi stendur nú í 8.400 en raunverulegur fjöldi er talinn mun meiri. 5. 894 hafa fundist látnir í Tyrklandi og 2.470 í Sýrlandi en þúsundir eru taldar fastar undir húsarústum. Erlent 8.2.2023 06:48
Samstaða borgarbúa sé ótrúleg Þúsundir hafa farist eftir öfluga jarðskjálfta í Tyrklandi og Sýrlandi í gær. Íslenskt björgunarsveitarfólk fer til Tyrklands til að aðstoða við björgunaraðgerðir. Samstaða íbúa Tyrklands er aðdáunarverð að mati íslenskrar konur sem býr á skjálftasvæðinu. Erlent 7.2.2023 19:00
Í kappi við kuldann Björgunarsveitir og aðrir leitaraðilar í Sýrlandi og Tyrklandi vinna nú hörðum höndum að því að ná fólki úr rústum húsa sem hrundu í öflugum jarðskjálftum í gær. Mikið kapp er lagt í að vinna hratt en mikill kuldi er á svæðinu. Erlent 7.2.2023 17:51