Drengnum hafi ekki verið trúað í fyrstu Móðir sex ára drengs sem varð fyrir árás á skólalóð í Kópavogi í gær segir son sinn hafa brugðist hárrétt við, en starfsmenn skólans hafi ekki trúað honum í fyrstu. Upptökur öryggismyndavéla hafi þó staðfest frásögn hans. Hún hafi fengið ábendingar um sambærilegar árásir í Fossvogi sama dag. 20.9.2024 20:30
Vinna málið saman og nýta greinargerð vegna fyrri umsóknar Oddvitar Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps eiga von á því að geta unnið umsókn Landsvirkjunar um framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun í Þjórsá fljótt og örugglega. Stefnt er að því að sveitarfélögin afgreiði umsóknina á sama tíma. 20.9.2024 13:58
Hvítabjörninn felldur: Forðaði sér inn og sendi skilaboð á dóttur sína Hvítabjörn sem kom á land á Höfðaströnd í Jökulfjörðum var felldur nú fyrir skömmu. Hann fannst skammt frá sumarhúsi, þar sem konan sem tilkynnti um hann dvaldist einsömul. 19.9.2024 16:01
„Alls konar fólk heyrt í mér um alls konar hluti“ Þórður Snær Júlíusson fyrrverandi ritstjóri, hyggur á útgáfu fréttabréfsins Kjarnyrt, hvers útgáfa hefst á morgun. Hann segist með þessu ekki vera að snúa aftur á vettvang fjölmiðlanna, en gefur lítið upp um hvað framtíðin ber í skauti sér. 19.9.2024 15:51
Senda vopnaða menn á svæðið Sá sem tilkynnti um að hvítabjörn hefði gengið á land á Höfðaströnd í Jökulfjörðum var staddur í sumarhúsi á svæðinu, og er einn eftir því sem lögregla kemst næst. Ekki hefur náðst aftur í viðkomandi. Lögreglumenn eru á leið á svæðið ásamt mönnum frá Landhelgisgæslunni sem eru sérþjálfaðir í meðferð skotvopna. 19.9.2024 14:59
Tilkynnt um ísbjörn og þyrla gæslunnar ræst út Lögreglan á Vestfjörðum fékk fyrir skömmu tilkynningu um að hvítabjörn hafi gengið á land á Höfðaströnd í Jökulfjörðum. 19.9.2024 14:26
Brynjar snýr sér að mannréttindamálum Brynjar Níelsson mun taka sæti í stjórn Mannréttindastofnunar, nái tillaga þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins að ganga. Brynjar sagði af sér varaþingmennsku fyrir flokkinn í dag. 19.9.2024 11:34
Útlit fyrir frekari verðhækkanir á kaffimarkaði Framkvæmdastjóri Tes og kaffis segir kaffiverð líklega koma til með að hækka á næstu mánuðum. Hann telur ekki að nýir samkeppnisaðilar myndu geta náð verðinu niður, líkt og á matvörumarkaði með tilkomu Prís. 18.9.2024 21:38
„Afleitt“ að sjá Yazan gerðan að leiksoppi í deilum ráðherra Formaður Miðflokksins segir miður að Yazan Tamimi, ellefu ára palestínskur drengur með vöðvarýrnunarsjúkdóminn Duchenne, hafi orðið að bitbeini í pólistíkum deilum ráðherra í ríkisstjórninni. Hann telur hagsmuni hans hafa verið hafða að leiðarljósi við meðferð máls hans í stjórnkerfinu og furðar sig á misvísandi fullyrðingum ráðherra um hvort eðlileg stjórnsýsla hafi verið viðhöfð í málinu. 18.9.2024 21:33
Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Bandaríski seðlabankinn hefur lækkað stýrivexti um hálft prósentustig. Um er að ræða fyrstu lækkunina í rúmlega fjögur ár, en vextir hafa verið óbreyttir í Bandaríkjunum í 14 mánuði. 18.9.2024 20:42