Innlent

At­burðarás gær­dagsins í myndum

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Hraun rann í átt að Bláa lóninu á umtalsverðum hraða. Hraunið þakti bílastæði lónsins en rann svo meðfram varnargörðum sem reistir höfðu verið utan um athafnasvæði þess.
Hraun rann í átt að Bláa lóninu á umtalsverðum hraða. Hraunið þakti bílastæði lónsins en rann svo meðfram varnargörðum sem reistir höfðu verið utan um athafnasvæði þess. Vísir/Vilhelm

Eldgos hófst á Sundhnúkagígaröðinni klukkan 23:14 síðastliðinn miðvikudag. Nóttin var ekki úti þegar hraun hafði flætt yfir Grindavíkurveg, og snemma morguns á fimmtudag var hraun komið yfir Njarðvíkuræð, sem sér Suðurnesjum fyrir heitu vatni. Æðin hélt þó.

Rafmagn fór tímabundið af Grindavík og keyra þurfti orkuverið í Svartsengi á varaafli, eftir að svokölluð Svartsengislína fór út. Rafmagn komst þó aftur á í Grindavík síðar um daginn. 

Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, var á vettvangi frá því rétt eftir að gosið hófst og fram eftir degi í gær. Hér að neðan má sjá brot af þeim myndum sem hann tók, og sýna vel aðstæður á og við upptök eldgossins.

Svona var um að litast aðfaranótt fimmtudags, rétt eftir að gosið hófst.Vísir/Vilhelm
Hraunið flæddi um langa leið frá gossprungunni.Vísir/Vilhelm
Hraun náði Grindavíkurvegi um klukkan hálf fimm aðfaranótt fimmtudags.Vísir/Vilhelm
Svartur og þykkur reykur steig upp þar sem hraunið lá yfir veginum.Vísir/Vilhelm
Rauðglóandi hraunið gleypir hér skilti Vegagerðarinnar, sem við sáum einnig á myndinni að ofan.Vísir/Vilhelm
Skiltin bráðna í hitanum.Vísir/Vilhelm
Hraunið teygir sig hátt, þannig að meiri hluti staursins sem þetta skilti stendur á er horfinn.Vísir/Vilhelm
Þessi mynd sýnir vel þann gríðarlega hita sem stafaði af hrauninu.Vísir/Vilhelm
Hraunið flæddi yfir bílastæði við Bláa lónið. Stæðið var utan varnargarða, ólíkt lóninu sjálfu og athafnasvæði þess.Vísir/Vilhelm
Einingahús á bílaplani Bláa lónsins var lítil fyrirstaða fyrir glóandi hrauntungurnar.Vísir/Vilhelm
Einingahúsið var fljótt að fara eftir að hraunið kom klóm sínum í það.Vísir/Vilhelm
Skilti sem sýnir staðsetningu Bláa lónsins bráðnar hér og brennur.Vísir/Vilhelm



Fleiri fréttir

Sjá meira


×