Lífið

Vinur Patriks kom upp um hann

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Vinur tónlistarmannsins Patriks Atlasonar kom upp um hann og upplýsti að hann væri á Akureyri, en ekki í beinni útsendingu í Söngvakeppninni. 
Vinur tónlistarmannsins Patriks Atlasonar kom upp um hann og upplýsti að hann væri á Akureyri, en ekki í beinni útsendingu í Söngvakeppninni.  Skjáskot/RÚV

Tónlistarmaðurinn Patrik Snær Atlason, betur þekktur sem Prettyboitjokko, virðist ekki hafa verið í beinni útsendingu í Söngvakeppni sjónvarpsins í Gufunesi í Reykjavík á laugardagskvöldið. Vinur hans kom upp um hann og upplýsti að Patrik væri á Akureyri.

Mikil stemmning og spenna var á laugardagskvöldið þar sem VÆB bræður enduðu á að hafa betur í keppninni um farseðilinn til Basel í Sviss í maí.

Meðal skemmtiatriða á meðan símakosning fór fram var atriði með kynnunum Benedikt Valssyni, Fannari Sveinssyni og Guðrúnu Dís Emilsdóttur þar sem Patrik Snær og Herbert Guðmundsson stigu á stokk. Tónlistarmaðurinn Benjamín Snær Höskuldsson, betur þekktur sem Séra Bjössi úr samnefndri sveit, upplýsti í færslu á TikTok að Patrik væri ekki staddur í Gufunesi heldur á Akureyri.

Séra Bjössi leggur sérstaklega á það í myndbandinu á TikTok að í hægra horni á skjá RÚV standi „beint“ sem geti ekki verið, nema Patrik búi yfir þeim leyndu hæfileikum að vera á tveimur stöðum í einu.

Því virðist sem RÚV hafi tekið upp umrætt atriði og spilað upptökuna á laugardagskvöldinu. Dómararennsli var á keppninni á föstudagskvöldinu og því hefði RÚV getað nýtt sér upptöku frá því og spilað á laugardaginn.

@serabjossi @RÚV - fréttir ♬ original sound - Séra Bjössi

Tengdar fréttir

Setja markið á 29. sætið

Sigurvegarar Söngvakeppni sjónvarpsins eru alsælir með sigur laugardagskvöldsins, og eru enn að átta sig á því að þeir verði fulltrúar Íslands í Eurovision. Aðalmarkmið þeirra er að gleðja þjóðina og gera hana stolta.

Ísland í næstneðsta sæti veðbankanna

Ísland þykir næstólíklegast landið til að sigra Eurovision í ár samkvæmt veðbönkum, þar sem við sitjum í 36. sæti af 37. Sigurlíkur eru taldar eitt prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.