BlueBay rennir hýru auga til íslenskra ríkisbréfa Ísland er að verða áhugaverður kostur fyrir skuldabréfafjárfesta á ný en það er mat sjóðstjóra BlueBay Asset Management, eins stærsta sérhæfða skuldabréfastýringarfyrirtæki Evrópu. Fyrirtækið var um tíma stærsti erlendi eigandi íslenskra ríkisbréfa. 2.5.2022 14:29
Spár um vaxtahækkun: Markaðurinn klofinn milli 75 og 100 punkta Ríflega helmingur markaðsaðila gerir ráð fyrir því, samkvæmt könnun Innherja, að Seðlabanki Íslands hækki vexti um 100 punkta á miðvikudaginn. Laust taumhald peningastefnu, mjög lágir raunstýrivextir og vaxandi verðbólguþrýstingur eru meginstef í þeim svörum sem bárust. 2.5.2022 08:58
ÍL-sjóður tapaði nærri 14 milljörðum króna í fyrra ÍL-sjóður tapaði 13,9 milljörðum króna á síðasta ári samkvæmt nýbirtum ársreikningi sjóðsins og eigið féð var í árslok neikvætt um 196,6 milljarða króna. 30.4.2022 14:00
Félag Reynis komið í hóp stærstu hluthafa Kviku Fjárfestingafélag Reynis Grétarssonar, stofnanda Creditinfo, hefur bæst við hóp stærstu hluthafa Kviku banka. Samkvæmt lista bankans yfir hluthafa sem eiga meira en eins prósents hlut fer félagið með 50 milljónir hluta, um 1,04 prósent, sem eru metnir á 1,1 milljarð króna miðað við núverandi markaðsvirði Kviku. 29.4.2022 14:07
Hagar hafa mun meiri áhyggjur af verðhækkunum en vöruskorti Finnur Oddsson, forstjóri Haga, segist ekki hafa áhyggjur af því að skortur verði á ákveðnum vörutegundum hér á landi vegna hnökra í aðfangakeðjum. Helsta áhyggjuefni smásölufélagsins eru áhrif verðbólgu og vaxtahækkana á ráðstöfunartekjur heimila. Þetta kom fram í máli Finns á uppgjörskynningu Haga í morgun. 29.4.2022 11:37
Íslandsbanki kominn í einkaviðræður um sölu á gagnaverinu á Korputorgi Íslandsbanki er samkvæmt heimildum Innherja kominn í einkaviðræður um sölu á hátæknigagnaverinu Reykjavík DC á Korputorgi en bankinn tók yfir gagnaverið á síðasta ári vegna fjárhagsvandræða. Um er að ræða innlenda aðila sem njóta stuðnings frá erlendum fjárfestum og gæti salan gengið í gegn á næstu vikum. 29.4.2022 07:01
Erfitt fyrir sjóðina að kaupa í Marel vegna umsvifa í Rússlandi, segir greinandi Marel þarf að svara fyrir viðskipti sín í Rússlandi þótt lítil séu og á meðan það heldur umsvifum sínum þar óbreyttum kann að vera erfitt fyrir lífeyrissjóði að réttlæta aukningu á eignarhlut í fyrirtækinu. Þetta kemur fram í hlutabréfayfirliti greiningarstofunnar Jakobsson Capital. 28.4.2022 16:16
Opinberir starfsmenn leiddu launahækkanir í fyrra Laun opinberra starfsmanna hafa hækkað mun meira en laun á almennum vinnumarkaði á síðustu árum og er það einkum launaþróunin á síðasta ári sem skýrir þennan mun. 28.4.2022 11:49
Brýnt að innleiða skýrar leiðbeiningar fyrir samstarf fyrirtækja Mikilvægt er að íslensk stjórnvöld innleiði nýjar leiðbeiningar Evrópusambandsins um samstarf fyrirtækja eins fljótt og auðið er svo að Ísland verði ekki eftirbátur samanburðarríkja. Þetta segir Hallmundur Albertsson, meðeigandi lögmannastofunnar Deloitte Legal en hann, ásamt fleiri framsögumönnum, verður með erindi á sumarfundi lögmannastofunnar um samkeppnismál sem verður haldinn í Hörpu í hádeginu. 28.4.2022 06:53
Verðhækkun á innfluttu byggingarefni brýst fram með látum Vísitalan fyrir innflutt byggingarefni hækkaði um 5,5 prósent í apríl en ekki hefur sést viðlíka hækkun á verði innflutts byggingarefnis frá því að Hagstofan byrjaði að birta sundurliðun byggingarvísitölunnar í byrjun árs 2010. 27.4.2022 06:00