Skoða tvöföldun á framleiðslugetu kísilversins á Bakka Stjórnendur kísilversins á Bakka hafa til skoðunar hvort ákjósanlegt sé að tvöfalda framleiðslugetu kísilversins á næstu árum í ljósi batnandi rekstrar og markaðsaðstæðna. Þetta staðfestir Rúnar Sigurpálsson, forstjóri PCC Bakka, í samtali við Innherja. 26.4.2022 14:30
Útlánaskrið gæti hvatt Seðlabankann enn frekar til að grípa fast í taumana Kraftmikill útlánavöxtur bankanna í mars er enn eitt merkið um að efnahagsumsvif séu meiri en áður var búist við og því eru auknar líkur á því að Seðlabanki Íslands bregðist harkalega við aukinni verðbólgu á vaxtaákvörðunarfundi bankans í næstu viku. Þetta segir Stefán Broddi Guðjónsson, sérfræðingur hjá markaðsviðskiptum Arion banka. 26.4.2022 12:01
Félag Bjarna bætti verulega við hlut sinn í Fáfni Offshore í fyrra Sjávarsýn ehf., fjárfestingafélag Bjarna Ármannssonar, og Hlér ehf., sem er í eigu Guðmundar Ásgeirssonar, bættu verulega við eignarhluti sína í Fáfni Offshore á síðasta ári þegar félögin keyptu út framtakssjóðinn Horn II og þrjá aðra hluthafa. Þetta kemur fram í nýbirtum ársreikningi Fáfnis Offshore. 26.4.2022 06:41
Nýjar tölur sýna sögulega mikinn útlánavöxt í mars Nýjar tölur Seðlabanka Íslands fyrir marsmánuð sýna að hrein ný útlán íslenskra innlánsstofnana hafa aldrei verið jafnmikil í einum mánuði frá því að Seðlabankinn byrjaði að halda utan um tölurnar í byrjun árs 2013. Mikill vöxtur var í útlánum til bæði fyrirtækja og heimila. 25.4.2022 10:59
Þungt launaskrið í borginni og veltufé frá rekstri fer þverrandi Launahlutfallið í A-hluta Reykjavíkurborgar er komið upp í 60 prósent eftir að launakostnaður fór töluvert fram úr fjárheimildum á síðasta ári. Þetta má lesa úr nýbirtum ársreikningi Reykjavíkurborgar. 22.4.2022 14:11
Arion: Hækkanir íbúðaverðs gætu reynst þrálátari en árið 2017 Ný verðbólguspá Arion banka gerir ráð fyrir því að aprílmæling Hagstofunnar á vísitölu neysluverðs sýni 7,1 prósenta verðbólgu samanborið við 6,7 prósent í mars. Samkvæmt spánni verður verðbólga yfir 7 prósentum í sumar. 22.4.2022 09:20
Ný stefna minnkar pólitík í stjórnum borgarfyrirtækja Ný eigandastefna Reykjavíkurborgar, sem er afrakstur þverpólitískrar vinnu og verður að öllum líkindum samþykkt fyrir næsta kjörtímabil, hefur þær breytingar í för með sér að stjórnir fyrirtækja sem borgin á eignarhlut í verða ekki alfarið pólitískt skipaðar heldur blanda af óháðum og pólítískum fulltrúum. 21.4.2022 06:16
Formaður Gildis segir stöðu sjóðsins ósjálfbæra til framtíðar Staða Gildis lífeyrissjóð er ósjálfbær til framtíðar sem þýðir að yngri kynslóðum er lofað hærri lífeyrir en hægt er að standa við. Þetta kemur fram í ávarpi Gylfa Gíslasonar, stjórnarformanns Gildis og framkvæmdastjóra Jáverks, í nýbirtri árskýrslu sjóðsins en hann telur nauðsynlegt að grípa til aðgerða svo að bregðast megi við þessu ójafnvægi. 20.4.2022 13:00
Vaxandi áhyggjur af netárásum birtast í kröftugum tekjuvexti Syndis Mikill tekjuvöxtur hjá Syndis, sem hefur ráðandi markaðshlutdeild í netöryggislausnum hér á landi, endurspeglar sívaxandi áhyggjur íslenskra fyrirtækja af netárásum. „Eftirspurnin hefur aukist mikið og við eigum eftir að sjá enn stærra stökk árið 2022,“ segir Valdimar Óskarsson, framkvæmdastjóri Syndis. 20.4.2022 06:04
Íslenskir eftirlitsstjórar lengur við völd en gengur og gerist á Norðurlöndum Forstjórar Fjarskiptastofu og Samkeppniseftirlitsins hafa setið lengur í embætti en aðrir forstjórar eftirlitsstofnana á Norðurlöndum og í meirihluta tilfella munar áratug eða meira. 12.4.2022 06:12