Mörg hundruð vígamenn frá Írak til aðstoðar Assad-liðum Hundruð meðlima írakskra vopnahópa hafa streymt yfir landamærin til Sýrlands í dag. Þar ætla þeir að aðstoða sveitir Bashar al-Assad, forseta Sýrlands, gegn uppreisnar- og vígamönnum sem tóku stjórn á borginni Aleppo og stórum nærliggjandi svæðum í vikunni. 2.12.2024 18:38
„Nú þarf maður bara að treysta þjóðinni“ Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segist jákvæð fyrir deginum og að stemningin innan Samfylkingarinnar sé gríðarleg. 30.11.2024 15:32
Gríðarlegur kraftur í sjálfstæðisvélinni Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir kosningabaráttuna hafa verið snarpa, fjörlega og skemmtilega. Það hafi verið gott að kjósa í dag, í loka hnykknum í baráttunni. 30.11.2024 15:07
„En ég heyri alveg gríðarlegan stuðning víða“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir það skemmtilega hátíðartilfinningu að mæta á kjörstað. Hann segist vongóður með daginn. 30.11.2024 14:18
Hröð barátta og skortur á dýpt Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata, segir alltaf frábært að setja x við P. Það gerði hún í morgun. Hún sagðist þá ætla að verja deginum í kosningamiðstöð þar sem hún stefnir á að hringja í nokkra óákveðna kjósendur. 30.11.2024 13:33
Samtöl við kjósendur standa upp úr Jóhannes Loftsson, stofnandi Ábyrgrar framtíðar segir það sérstakt að kjósa en geta ekki veitt sjálfum sér atkvæði, þar sem hann býr í Reykjavík suður en flokkurinn býður fram í Reykjavík norður. 30.11.2024 12:58
Heyrir fleiri segja þörf á VG á þingi Svandís Svavarsdóttir, formaður Vinstri grænna, segist bjartsýn fyrir daginn, þó flokkurinn hafi ekki verið að koma vel út úr könnunum en hann hefur þó bætt við sig í síðustu könnunum. Hún segist finna fyrir því að fólk sé að snúa aftur til VG. 30.11.2024 11:29
Heldur aftur af sér svo hún gangi ekki um syngjandi Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segist þurfa að halda aftur af sér, svo hún gangi ekki syngjandi um því það liggi svo vel á henni í dag. Hún segist vonast til þess að marka megi skoðanakannanir. 30.11.2024 11:26
Auðvelt val þótt hann geti ekki kosið sjálfan sig Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn og frambjóðandi Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, segir valið hafa verið auðvelt á kjörstað í morgun, þó hann sé í þeirri skrítnu stöðu að geta ekki kosið sjálfan sig. 30.11.2024 10:15
„Við verðum að fá öflugan vinstri flokk“ Sanna Magdalena Mörtudóttir, leiðtogi Sósíalistaflokksins í Alþingiskosningunum, greiddi atkvæði í Vesturbæjarskóla á slaginu níu í morgun, þar sem hún var fyrst til að kjósa. Í samtali við fréttastofu sagðist Sanna vongóð fyrir daginn. Hún sagðist ánægð með alla þá sem hafa komið að framboði Sósíalistaflokksins undanfarin misseri. 30.11.2024 09:15