Ætlar ekki niður á fjóra fætur til að ná samningi Formaður VR segir tímarammann fyrir skammtímasamning vera mjög knappan en klára þurfi slíkan samning á allra næstu dögum. Ef það takist ekki þurfi að ræða langtímasamninga og því kunni að fylgja átök. Þó markmiðið sé að klára samninga fljótt og vel segist formaðurinn ekki ætla að fara niður á fjóra fætur til að ná samningi fyrir jól. 7.12.2022 14:29
Skurðstofur standa tómar á meðan biðlistar lengjast: „Það er krísa sem þarf að taka á“ Að minnsta kosti fimm skurðstofur standa tómar daglega á Landspítala þar sem ekki tekst að manna þær. Nóg er af skurðlæknum en skortur er á skurðhjúkrunarfræðingum. Biðlistar blása út og formaður Félags skurðlækna segir stöðuna aldrei hafa verið verri og skurðlæknar lýsa því að vera með kvíðahnút í maganum fyrir hönd sjúklinga. 7.12.2022 11:41
Leituðu í alla nótt og fara nú yfir gögnin Leit með neðansjávarfari að skipverjanum á Sighvati GK-57 hélt áfram í alla nótt og var leit hætt nú skömmu fyrir klukkan tíu í morgun. Farið verður yfir gögnin og staðan tekin aftur síðar í dag. 7.12.2022 10:32
Gera ráð fyrir að aðstoða tvö þúsund heimili fyrir jólin: „Þetta er þungur róður fyrir marga“ Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur gerir ráð fyrir að tvö þúsund heimili leiti til þeirra fyrir jólin en um er að ræða ívið meiri fjölda en á fyrri árum. Ljóst sé að staðan í samfélaginu reynist mörgum erfið og er róðurinn þungur víða. 6.12.2022 17:00
Svívirt á samfélagsmiðlum eftir atvikið í Buckingham-höll Ngozi Fulani segist hafa orðið fyrir holskeflu áreitis og svívirðinga eftir að hún greindi frá óviðeigandi spurningum fyrrverandi hirðdömu Elísabetar heitinnar Bretlandsdrottningar. Á sama tíma hafi hún þó fengið mikinn stuðning og fullyrðir að ástin sigri hatrið. 6.12.2022 14:19
Leggja til að þrettán milljarðar króna fari í kjarabætur Formaður Samfylkingarinnar kynnti í dag kjarapakka þar sem lagt er til að fallið verði fá gjaldahækkunum ríkisstjórnarinnar og að fjármagnstekjuskattur verði hækkaður. Þá er meðal annars lagt til að húsnæðisbætur til leigjenda, vaxtabætur til millitekjufólks, og barnabætur verði hækkaðar. Þrettán milljarðar fari alls í kjarabætur og mótvægisaðgerðir skili sautján milljörðum. 6.12.2022 13:30
Einn eftir í gæsluvarðhaldi vegna árásinnar á Bankastræti Club Öllum nema einum hefur verið sleppt úr gæsluvarðhaldi vegna hnífstunguárásarinnar á Bankastræti Club en þrjátíu eru með stöðu sakbornings í tengslum við málið. Rannsókn lögreglu miðar nú að því að komast að tilefni árásarinnar. 6.12.2022 11:14
Berjast um síðasta sætið í öldungadeildinni mánuði síðar Íbúar í Georgíu-ríki Bandaríkjanna ganga til kosninga í annað sinn á rúmum mánuði í dag til að ákveða hver hreppir sæti í öldungadeild þingsins. Prestur og fyrrverandi fótboltamaður keppast um sætið en með sigri gætu Repúblikanar jafnað þingmannafjölda Demókrata, þó ólíklegt þyki. 6.12.2022 00:19
Forystufólk einbeiti sér að eigin samningum í stað þess að rífa niður aðra Formaður Starfsgreinasambandsins segir formann Eflingar hafa tekið meðvitaða ákvörðun um að vera ekki í samfloti við aðra fyrir kjaraviðræður og leggur til að hún einbeiti sér að því að ná kjarasamnningi handa sínu fólki frekar en að rífa niður samning Starfsgreinasambandsins. Formaður Eflingar segir gagnrýni sína fullkomlega réttmæta og segir samninginn til marks um óþolinmæði. 5.12.2022 23:09
Skipverjinn þriggja barna faðir sem flutti til Íslands ungur Skipverjinn á Sighvati GK-57 í Grindavík sem leitað hefur verið að frá því á laugardag heitir Ekasit Thasaphong og er fæddur árið 1980. Hann býr í Grindavík ásamt eiginkonu og þremur börnum. 5.12.2022 20:49