Lífið

Sví­virt á sam­fé­lags­miðlum eftir at­vikið í Bucking­ham-höll

Fanndís Birna Logadóttir skrifar
Ngozi Fulani greindi frá óviðeigandi spurningum fyrrverandi hirðdömu drottningarinnar í síðustu viku.
Ngozi Fulani greindi frá óviðeigandi spurningum fyrrverandi hirðdömu drottningarinnar í síðustu viku. Skjáskot/ ITV

Ngozi Fulani segist hafa orðið fyrir holskeflu áreitis og svívirðinga eftir að hún greindi frá óviðeigandi spurningum fyrrverandi hirðdömu Elísabetar heitinnar Bretlandsdrottningar. Á sama tíma hafi hún þó fengið mikinn stuðning og fullyrðir að ástin sigri hatrið. 

Fulani, sem er yfirmaður góðgerðarstofnunarinnar Sistah Space í Bretlandi, greindi frá atvikinu í síðustu viku þar sem hún sagði Susan Hussey, fyrrverandi hirðdömu drottningarinnar og guðmóður Vilhjálms Bretaprins, hafa ítrekað spurt um uppruna Fulani. 

Hussey hafi ekki sætt sig við svör Fulani, sem sagðist vera frá Bretlandi, heldur spurt ítrekað hvaðan hún væri í raun og veru.

Í viðtölum við BBC og ITV eftir að málið komst í hámæli sagðist Fulani hafa upplifað spurningar Hussey sem ofbeldi og að um hálfgerða yfirheyrslu væri að ræða. Hussey steig til hliðar eftir atvikið og baðst innilegrar afsökunar á meðan konungsfjölskyldan sagði málið óásættanlegt.

Í yfirlýsingu sem Fulani birti í gær sagðist hún hafa orðið fyrir miklu áreiti eftir að hún greindi frá atvikinu.„Síðasta vika hefur verið hrikalega erfið fyrir okkur öll hjá Sistah Space. Teymið mitt, fjölskyldan og ég höfum fundið fyrir gríðarlegum þrýstingi og orðið fyrir skelfilegum svívirðingum á samfélagsmiðlum,“ sagði Fulani.

Hún bætti þó við að á sama tíma hafi hún fundið fyrir miklum stuðningi og þakkaði hún fyrir það en það hafi sýnt henni að ástin sigri alltaf hatrið. Þá sé hún tilbúin til að mæta í Buckingham-höll eða aðra staði til að reyna að ná fram breytingum en atvik sem þessi séu því miður allt of algeng.

Netverjar á öndverðum meiði

Málið vakti mikla athygli og vildu ýmsir netverjar meina að atvikið væri enn eitt dæmið um rasisma af hálfu konungsfjölskyldunnar. Aðrir gerðu lítið úr atvikinu og vísuðu til þess að Hussey væri 83 ára. Enn aðrir töldu fráleitt að um rasisma væri að ræða, heldur frekar eðlileg viðbrögð í ljósi útlits Fulani. 

Að sögn Fulani gekk Hussey upp að henni á viðburðinum, sem var til að vekja athygli á heimilisofbeldi, og færði á henni hárið til að geta lesið á nafnspjald hennar. Það eitt og sér að sögn Fulani hafi verið yfir strikið en síðan hafi Hussey byrjað að spyrja hana út í uppruna hennar.

„Ofbeldi er ekki alltaf líkamlegt, það getur verið munnlegt og ég upplifði þetta sem ofbeldi. Og þegar þú kemur við hárið á mér eins og ég sé ekki einu sinni manneskja, þú getur bara gert það sem þú vilt og sagt það sem þú vilt, þá vil ég ekki vera í nærveru þinni,“ sagði Fulani í viðtali hjá BBC.

Í myndbandi sem hún birti á Instagram í dag sagðist hún þó ekki ætla að láta atvikið hafa áhrif á sig og baráttu sína í framtíðinni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.