Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra og formaður Flokks fólksins, segir fyrirhugaðar breytingar á lögum og reglum um strandveiðar fela í sér margt annað en að auka kvóta. Hún átti í snörpum orðaskiptum við þáttarstjórnanda á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun varðandi áform ríkisstjórnarinnar í strandveiðum. Forsætisráðherra viðurkennir að margt sé ekki að fullu útfært í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og gefur ekki upp hversu mikil boðuð hækkun auðlindagjalda eigi að vera. 22.12.2024 19:08
Umferðartafir vegna bílveltu á Mýrum Bíll valt út af vegi á þjóðvegi 54 á Mýrum í Borgarfirði síðdegis í dag. Vegurinn var lokaður um tíma og aðstoðaði slökkvilið við aðgerðir á vettvangi. Nokkur hálka er á veginum að sögn vegfarenda en samkvæmt upplýsingum fréttastofu hefur vegurinn verið opnaður á nýjan leik. 22.12.2024 18:41
Segir Helga Magnús óhæfan til að gegna embættinu Helgi Magnús Gunnarsson uppfyllir að sögn ríkissaksóknara ekki lengur almenn hæfisskilyrði til að gegna embætti vararíkissaksóknara. Þetta kemur fram í tilkynningu sem birt er á heimasíðu ríkissaksóknara í dag. Helgi er sagður óhæfur til að gegna embættinu með vísan til laga um hæfisskilyrði hæstaréttardómara þar sem kveðið er á um að viðkomandi megi ekki hafa sýnt af sér háttsemi sem geti rýrt það traust sem dómarar verði almennt að njóta. 22.12.2024 17:36
Þakklæti, auðmýkt, rok og söngur ríkisstjórnarinnar Það voru upp til hópa auðmjúkir og þakklátir ráðherrar sem formlega tóku sæti í ríkisstjórn á Bessastöðum á vetrarsólstöðum, þremur dögum fyrir jól. Þannig lýsa ráðherrarnir tilfinningunni sjálfir. Tíu af ellefu ráðherrum ríkisstjórnarinnar hafa aldrei setið í ríkisstjórn áður og í fyrsta sinn í lýðveldissögunni eru konur í meirihluta í ríkisstjórn. Kristrún Frostadóttir er jafnframt sú yngsta í sögunni til að gegna embætti forsætisráðherra. 22.12.2024 00:24
„Kurr í greininni í dag um að þetta skuli hvort tveggja vera á matseðlinum“ Ákveðnar áhyggjur og kurr ríkir innan ferðaþjónustunnar eftir daginn í dag þegar ný ríkisstjórn sýndi á spilin og kynnti stefnuyfirlýsingu sína. Meðal annars stendur til að leggja á auðlinda- og komugjöld á greinina sem veldur nokkrum áhyggjum innan greinarinnar að sögn framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. Hann fagnar því þó að ekki standi til að hækka virðisaukaskatt á greinina og hlakkar til samstarfs með nýjum ráðherra. 21.12.2024 22:43
Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir Olaf Scholz Þýskalandskanslari heimsótti Magdeburg í dag til að minnast þeirra sem féllu í mannskæðri árás þar í borg í gær og votta hinum særðu virðingu sína. Hann hefur heitið því að málið verði rannsakað til hlítar. Á meðan fjöldi fólks, meðal annars fjölskyldur fórnarlamba árásarinnar og viðbragðsaðilar, sóttu minningarathöfn í dómkirkjunni, létu mótmælendur eftir sér taka á götum borgarinnar. 21.12.2024 21:29
Breytingar á ráðuneytum taka ekki gildi fyrr en í mars Lyklaskipti fara fram í ráðuneytum síðdegis á morgun þegar ráðherrar í ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins taka við lyklavöldum, einn af öðrum, úr hendi fráfarandi ráðherra starfsstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. 21.12.2024 20:07
Ný ríkisstjórn Íslands: „Við erum orðnar vinkonur“ Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og Inga Sæland, félagsmálaráðherra komu syngjandi út af ríkisráðsfundi á Bessastöðum sem lauk á sjötta tímanum í dag. Líkt og kunnugt er var ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins skipuð á fundi ríkisráðs Íslands á Bessastöðum í dag. Þess má geta að Kristrún verður yngsti forsætisráðherra Íslandssögunnar en í stjórninni eru konur einnig í miklum meirihluta en stjórnina skipa sjö konur og fjórir karlar. 21.12.2024 18:48
Allt um nýja ríkisstjórn Íslands í kvöldfréttum Ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins var skipuð á fundi ríkisráðs Íslands á Bessastöðum í dag. Kristrún Frostadóttir er nýr forsætisráðherra og mun leiða ríkisstjórn þar sem konur verða í meirihluta. 21.12.2024 18:29
Vaktin: Ný ríkisstjórn kynnt fyrir landanum Ný ríkisstjórn Flokks fólksins, Samfylkingarinnar og Viðreisnar var kynnt Íslendingum í dag. Þá kynntu valkyrjurnar svokölluðu; Inga Sæland, Kristrún Frostadóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir stjórnarsáttmála þeirra og ráðherra. 21.12.2024 08:29