Þorvaldur er nýr tæknistjóri Miðeindar Þorvaldur Páll Helgason hefur gengið til liðs við Miðeind, hugbúnaðarfyrirtæki sem vinnur að máltækni og gervigreind fyrir íslensku. Hann tekur við starfi tæknistjóra (CTO) og hefur yfirumsjón með tækni- og vöruþróun fyrirtækisins. Viðskipti innlent 2. nóvember 2023 12:17
Nýr forstöðumaður hjá Arion kemur frá Landsbankanum Guðmunda Ósk Kristjánsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður fasteigna og innviða hjá fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði Arion banka. Hún kemur til Arion frá Landsbankanum. Viðskipti innlent 2. nóvember 2023 10:20
Tekur við markaðsmálunum hjá Advania Einar Örn Sigurdórsson hefur verið ráðinn markaðsstjóri Advania. Hann hefur síðustu ár starfað sem ráðgjafi og hugmyndaleiðtogi í markaðssetningar- og mörkunarverkefnum í Bandaríkjunum, Japan og á Íslandi. Viðskipti innlent 2. nóvember 2023 09:57
Guðni Rafn er nýr framkvæmdastjóri Gallup Guðni Rafn Gunnarsson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri Gallup á Íslandi en hann var ráðinn úr hópi fjölda umsækjenda. Þetta kemur fram í tilkynningu. Viðskipti innlent 1. nóvember 2023 14:13
Ingunn tekur við Olís af Frosta Ingunn Svala Leifsdóttir hefur verið ræaðin í starf framkvæmdastjóra Olís og tekur hún við stöðunni um næstu áramót. Hún tekur við af Frosta Ólafssyni sem hefur óskað eftir því að láta af störfum Viðskipti innlent 31. október 2023 16:41
Ráðinn úr hópi 29 til að passa upp á fjármál Ríkisútvarpsins Björn Þór Hermannsson hefur verið ráðinn í starf fjármálastjóra Ríkisútvarpsins. Starfið var auglýst í september og alls sóttu 29 um starfið. Intellecta annaðist ráðningarferlið sem var bæði vandað og ítarlegt að því er segir í tilkynningu frá Ríkisútvarpinu. Viðskipti innlent 31. október 2023 15:23
Aðstoðarmaður Ásmundar í tímabundið leyfi Sóley Ragnarsdóttir, aðstoðarmaður Ásmundar Einars Daðasonar mennta- og barnamálaráðherra, fer í tímabundið leyfi frá störfum frá fyrsta nóvember. Leyfinu mun ljúka þann 30. apríl á næsta ári. Innlent 31. október 2023 13:52
Mætir með tuttugu ára reynslu hjá Ölgerðinni til Kælitækni Valur Ásberg Valsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Kælitækni frá og með 1. nóvember næstkomandi. Hann lét af störfum hjá Ölgerðinni í mars síðastliðnum. Viðskipti innlent 30. október 2023 10:13
Fimm ráðin til Maven Þjónustu- og ráðgjafafyrirtækið Maven hefur ráðið til sín fimm nýja starfsmenn. Erna Guðrún Stefánsdóttir hefur verið ráðin nýr mannauðs- og skrifstofustjóri, Ragnar Stefánsson sérfræðingur í gagnavísindum og þau Sigrún Inga Ólafsdóttir, Darri Rafn Hólmarsson og Einar Þór Gunnlaugsson sem gagnasérfræðingar. Viðskipti innlent 30. október 2023 09:43
Ken afhenti Barbí lyklavöldin að forstjóraskrifstofunni Gylfi Ólfasson, fráfarandi forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, afhenti Hildi Elísabetu Pétursdóttur, tímabundnum forstjóra, lyklavöldin í gær, í búningi Ken. Hildur Elísabet var klædd eins og Barbí. Lífið 28. október 2023 17:44
Tinna er ný markaðsstýra Orku náttúrunnar Orka náttúrunnar hefur ráðið Tinnu Jóhannsdóttur í starf markaðsstýru fyrirtækisins og hefur hún nú þegar hafið störf. Þetta kemur fram í tilkynningu. Viðskipti innlent 27. október 2023 14:46
Ráðin sviðsstjóri sölusviðs Hreint Sólrún Björk Guðmundsdóttir hefur verið ráðin sviðsstjóri sölusviðs hjá ræstingafyrirtækinu Hreint. Hlutverk hennar verður að efla og samræma sölustarf og auka ráðgjöf til viðskiptavina. Viðskipti innlent 27. október 2023 10:24
Barbara Inga ráðin regluvörður Íslandsbanka Barbara Inga Albertsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Regluvörslu Íslandsbanka. Viðskipti innlent 27. október 2023 09:55
Valdís ráðin mannauðsstjóri Sýnar Valdís Arnórsdóttir hefur verið ráðin mannauðstjóri Sýnar. hún leiða áfram teymi mannauðsmála og eignaumsýslu hjá félaginu. Viðskipti innlent 27. október 2023 09:08
Marinó tekur við Mílu af Marion Marinó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóri Kviku banka, hefur verið kjörinn stjórnarformaður Mílu. Hann tekur við hlutverkinu af Marion Calcine, sem sinnti hlutverkinu tímabundið en situr áfram í stjórn félagsins. Viðskipti innlent 26. október 2023 09:10
Bergný og Elín ráðnar til Kadeco Kadeco hefur ráðið til starfa þær Bergnýju Jónu Sævarsdóttur og Elínu R. Guðnadóttur. Bergný er nýr sjálfbærnistjóri Kadeco og Elín nýr yfirverkefnastjóri. Viðskipti innlent 25. október 2023 09:57
Telma til Héðins Telma Sveinsdóttir hefur verið ráðin mannauðsstjóri véltæknifyrirtækisins Héðins. Viðskipti innlent 25. október 2023 09:56
Átta sóttu um embætti dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur Átta sóttu um stöðu héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur sem dómsmálaráðuneytið auglýsti lausa til umsóknar þann 29. september síðastliðinn. Innlent 24. október 2023 11:39
Ráðin framkvæmdastjóri Two Birds og Aurbjargar Ásdís Arna Gottskálksdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjártæknifyrirtækisins Two Birds ehf. sem er rekstraraðili Aurbjorg.is. Hún kemur til Two Birds frá Abler þar sem hún starfaði sem fjármála - og rekstrarstjóri og bar meðal annars ábyrgð á fjármálum, áætlunum og daglegum rekstri félagsins. Viðskipti innlent 23. október 2023 09:57
Halldóra Anna stýrir markaðsmálum Vinnupalla Halldóra Anna Hagalín hefur verið ráðin til að sjá um markaðsmál Vinnupalla. Viðskipti innlent 23. október 2023 08:30
Tótla hættir hjá Samtökunum '78 Tótla I. Sæmundsdóttir, fræðslustýra Samtakanna '78, hefur tilkynnt að hún ætli að hætta störfum hjá samtökunum. Innlent 21. október 2023 17:43
Helgi nýr framkvæmdastjóri sviðs fjármála og rekstrar hjá HH Helgi Þorsteinsson hefur verið ráðinn í stöðu framkvæmdastjóra sviðs fjármála og rekstrar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og mun hann taka til starfa bráðlega. Viðskipti innlent 19. október 2023 12:50
Breytingar í stjórnendateymi TM Fríða Ásgeirsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri markaðsmála og sölu hjá TM. Þá hefur Garðar Þ. Guðgeirsson verið ráðinn framkvæmdastjóri stefnu og áhættu og mun Kjartan Vilhjálmson taka sæti í framkvæmdastjórn yfir lögfræðiþjónustu og vöruþróun hjá félaginu. Viðskipti innlent 19. október 2023 07:48
Í forstjórastól eftir að hafa setið í öllum mögulegum stólum Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað Elísabetu Dolindu Ólafsdóttur forstjóra Geislavarna ríkisins frá 1. desember næstkomandi. Frá árinu 2016 hefur hún gegnt starfi aðstoðarforstjóra stofnunarinnar samhliða hlutverkum gæðastjóra og starfsmannastjóra. Innlent 18. október 2023 16:22
Tólf sóttu um embætti forstjóra HSS Sveitarstjóri, núverandi starfsmenn og aðrir sérfræðingar eru meðal umsækjenda um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar HSS. Skipað verður í embættið í mars á næsta ári, til fimm ára. Fráfarandi forstjóri sækir ekki um starfið og hefur stefnt ríkinu og heilbrigðisráðherra. Innlent 18. október 2023 15:34
Bjarni Þór og Sæunn til Heimkaupa Bjarni Þór Logason hefur verið ráðinn innkaupastjóri Heimkaupa og Sæunn Viggósdóttir mannauðsstjóri. Viðskipti innlent 18. október 2023 08:42
Áslaug María ráðin aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar Áslaug María Friðriksdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar. Meginverkefni hennar verða tengd undirbúningi stjórnarskrárvinnu og samhæfingu mála milli ráðuneyta. Innlent 17. október 2023 15:17
Sigurður Álfgeir frá Deloitte til Síldarvinnslunnar Síldarvinnslan hefur ráðið Sigurð Álfgeir Sigurðarson, endurskoðanda, til starfa hjá fyrirtækinu. Sigurður verður firmaður reikningshalds hjá Síldarvinnslusamstæðunni og kemur þaðan frá Deloitte. Viðskipti innlent 16. október 2023 12:38
Elva Rakel tekur við af Hrund hjá Festu Elva Rakel Jónsdóttir hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra Festu - miðstöð um sjálfbærni. Hún tekur við starfinu af Hrund Gunnsteinsdóttur sem hefur leitt störf Festu síðastliðin fjögur ár. Viðskipti innlent 16. október 2023 11:36
Yngvi hættur hjá Sýn Stjórn Sýnar og Yngvi Halldórsson, forstjóri, hafa í dag gert samkomulag um starfslok forstjóra. Viðræður um starfslokin áttu sér stað að frumkvæði forstjóra. Hann hefur látið af störfum. Viðskipti innlent 16. október 2023 09:28