Snjallsímar og geðveiki meðal barna og unglinga Fyrr á þessu ári kom út bók eftir bandaríska sálfræðinginn Jonathan Haidt sem heitir The anxious generation: How the great rewiring of childhood is causing an epidemic of mental illness. Á íslensku gæti hún kallast Kvíðna kynslóðin: Hvernig róttæk umbreyting bernskunnar veldur faraldri geðrænna sjúkdóma. Útgefendur eru Penguin Press í Bandaríkjunum og Allen Lane á Bretlandi. Bókin er 374 blaðsíður að lengd. Ítarefni og viðbætur má finna á vefsíðunni anxiousgeneration.com. Skoðun 10. júlí 2024 16:30
Staða drengja kolsvört og versnar enn Tryggvi Hjaltason, greinandi hjá CCP var fenginn til að vinna skýrslu um stöðu drengja í skólakerfinu fyrir barna- og menntamálaráðuneytið. Niðurstöður skýrslunnar eru sláandi. Innlent 9. júlí 2024 15:54
NATO styrkir verkefni Bifrastar um tugi milljóna: Ætla að tryggja nettengingu í tilfelli árásar Atlantshafsbandalagið styrkir umfangsmikið verkefni Háskólans á Bifröst um tugi milljóna króna en verkefnið snýr að því að koma upp gervihnattakerfi sem gæti viðhaldið internettengingu við umheiminn í tilfelli þess að sæstrengir til landsins rofni vegna árásar eða náttúruhamfara. Verkefnið er unnið í samstarfi við virta háskóla og stofnanir á borð við Cornell-háskóla í Bandaríkjunum, ETH í Sviss og sænska varnarmálaháskólann. Innlent 8. júlí 2024 23:18
Fjölskyldan í öndvegi í Ölfusi Börnin eru grunnur samfélagsins og á okkur öllum hvílir sú skylda að vernda þau og styðja. Á tímum mikillar íbúafjölgunar skiptir það sköpum að setja þarfir barna í forgrunn. Það fylgja því vissulega margar áskoranir þegar íbúum fjölgar um 6% til 9% á ári eins og nú er og mikilvægt að allir innviðir byggist upp í takt við íbúaþróun. Við í Ölfusi leggjum áherslu á að umgjörð utan um barnafjölskyldur sé til fyrirmyndar og farsæl. Við erum að stíga farsældarskrefin og leggjum áherslu á að fjölskyldufólki líði vel. Skoðun 8. júlí 2024 11:01
Hvað verður um Kára? Í Kópavogi býr sjö manna fjölskylda. Foreldrar, unglingur í menntaskóla, þrjú börn í Kópavogsskóla og svo er það Kári. Skoðun 5. júlí 2024 14:01
Vill gera smokkinn sexí aftur Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnastýra Jafnréttisskólans í Reykjavík segir áríðandi að gera smokka sexí aftur. Auk þess þurfi að tryggja betra aðgengi að þeim. Í gær var greint frá því að fjölgun hefði orðið í greiningum kynsjúkdóma. Sóttvarnalæknir segir það mögulega tengjast minni notkun smokksins og breyttri kynhegðun ungs fólks. Innlent 5. júlí 2024 12:01
Slæleg vinnubrögð álagi og tímapressu að kenna Páll E. Winkel fangelsismálastjóri harmar úrskurð dómsmálaráðuneytisins þar sem komist er að þeirri niðurstöðu að verulegir ágallar séu á inntökuferli í fangavarðanám. Stjórnendur fangelsanna, yfirmenn umsækjenda, hafi metið andlegt og líkamlegt heilbrigði umsækjenda sem fengu ekki boð í viðtal. Innlent 4. júlí 2024 15:22
Það er verið að grafa dýpri fátæktargjá Á embættistíma núverandi barnamálaráðherra hefur barnafátækt á Íslandi aukist verulega. Á sama tíma hefur hlutfall barna sem útskrifast úr 10. bekk með lélegan lesskilning eða ólæsi hækkað úr 22% í um 50% frá árinu 2016. Þessi börn standa frammi fyrir ógnvekjandi veruleika þar sem tækifæri þeirra til að blómstra eru skert af kerfisbundinni mismunun. Skoðun 3. júlí 2024 09:31
Vesturnorræna samstarfið aldrei verið mikilvægara Eyjólfur Guðmundsson fráfarandi rektor háskólans á Akureyri hefur tekið við stöðu stjórnarformanns Grænlandsháskóla, Ilisimatusarfik á máli þeirra. Eyjólfur segist hafa tekið við stöðunni með það í huga að stuðla að auknu samstarfi norrænu eyjaþjóðina í ljósi viðsjárverðar stöðu í heimsmálunum. Innlent 2. júlí 2024 11:52
Metaðsókn erlendra ríkisborgara í framhalds- og háskólanám Nemendur á skólastigum fyrir ofan grunnskóla á Íslandi voru 43.446 haustið 2023 og hafði fækkað um 618 frá fyrra ári, eða um 1,4 prósent. Ekki hafa verið færri 16 ára nemendur síðan 2018. Mikil fjölgun er meðal erlendra ríkisborgara og hafa þeir aldrei verið fleiri í námi eftir grunnskóla. Flestir þeirra eru Pólverjar. Þetta kemur fram í nýrri frétt á vef Hagstofunnar. Innlent 2. júlí 2024 10:11
Klámáhorf barna enn að dragast saman Þrír af hverjum fjórum strákum í framhaldsskóla hafa horft á klám. Hlutfall stelpna er nokkru lægra eða 41 prósent. Lægra hlutfall bæði stráka og stelpa á unglingastigi og á framhaldsskólaaldri segjast hafa horft á klám nú en 2021. Innlent 2. júlí 2024 08:02
Nýtt heilbrigðisvísindahús háskólans rís Ritað var undir samning um uppsteypu og frágang á nýju húsi heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands, sem rísa mun á Landspítalalóðinni. Áætlað er að nýtt hús og endurbættur Læknagarður muni hýsa stóran hluta af starfsemi sviðsins og að framkvæmdir taki alls um fimm ár. Innlent 1. júlí 2024 23:13
Starfsfólkið í fyrsta sæti og börnin í öðru Leikskólinn Sólborg í Reykjavík, sem um þessar mundir fagnar 30 ára afmæli, er eini leikskóli landsins sem hefur sérhæft sig í kennslu heyrnalausra og heyrnarskertra barna. Lífið 1. júlí 2024 21:01
Spennt fyrir menningarlífinu og náttúrunni á Akureyri Áslaug Ásgeirsdóttir er frá og með deginum í dag formlega tekin við embætti rektors Háskólans á Akureyri. Innlent 1. júlí 2024 09:55
Fleiri foreldrar í vanda með máluppeldi en áður Tinna Sigurðardóttir talmeinafræðingur segi foreldra þurfa meiri og betri leiðbeiningar fyrir talþjálfun barna sinna. Tinna rekur Tröppu, fyrirtæki sem sérhæfir sig í fjarþjónustu fyrir börn, og hefur gert það síðustu tíu árin. Hún segir ekki margt hafa breyst í vanda barna en að foreldrar þurfi meiri aðstoð nú en áður. Innlent 30. júní 2024 07:01
Nýr tækniskóli rís við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði Það má segja að vegferðin hafi farið af stað sumarið 2021 þegar viljayfirlýsing um framtíðarhúsnæði Tækniskólans var undirrituð hér í Hafnarfirði, m.a. af þáverandi menntamálaráðherra. Það var því stór stund í Hafnarfirði síðastliðinn fimmtudag þegar stjórnvöld, Hafnarfjarðarbær og Tækniskólinn undirrituðu skuldbindandi samkomulag þess efnis að nýr Tækniskóli verði staðsettur í Hafnarfirði og verkefnið fari nú af stað af fullum krafti í samræmi við stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar. Skoðun 29. júní 2024 15:00
Unnur Anna nýr forseti Heilbrigðisvísindasviðs Unnur Anna Valdimarsdóttir, prófessor í faraldsfræði við Læknadeild Háskóla Íslands, hefur verið ráðin nýr forseti Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands. Hún tekur við starfinu af Unni Þorsteinsdóttur. Innlent 28. júní 2024 10:26
Fjölga leikskólaplássum í miðbænum Samþykkt var á í borgarráði í dag að fjölga leikskólaplássum í leikskólanum Miðborg í miðbæ Reykjavíkur um 75. Rekstarleyfi leikskólans Miðborgar hefur verið fært upp 161 barn en sem stendur eru þar 86 börn með pláss. Innlent 27. júní 2024 16:25
Muni styrkja bæinn og starfsemi skólans gríðarlega Í dag var undirritað samkomulag um byggingu nýs Tækniskóla í Hafnarfirði. Með samkomulaginu er fjármagn til byggingar nýs skóla tryggt og hægt að fara í útboð á framkvæmdum og hönnun skólans. Innlent 27. júní 2024 13:20
Semja um 27 milljarða króna Tækniskóla í Hafnarfirði Nýr tækniskóli rís við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði. Stjórnvöld, Hafnarfjarðarbær og Tækniskólinn undirrituðu skuldbindandi samkomulag þess efnis í dag. Næstu skref eru undirbúningur hönnunar og framkvæmdar með áætluð verklok haustið 2029. Heildarkostnaður er áætlaður 27 milljarðar króna. Innlent 27. júní 2024 10:58
Sjálfbærniskólinn: Mörg fyrirtæki að gera geggjað góða hluti án þess að átta sig á því „Það eru mörg fyrirtæki að gera geggjaða hluti nú þegar, án þess endilega að átta sig á því að margt af því telst nú þegar til sjálfbærninnar,“ segir Elva Rakel Jónsdóttir framkvæmdastjóri Festu og gestgjafi í Sjálfbærniskólanum sem hefst í haust í Opna háskólanum, Háskóla Reykjavíkur. Atvinnulíf 27. júní 2024 07:00
Ógreindir víkingar Getur verið að víkingarnir sem réðu hér öllu um þar síðustu aldamót hafi verið meira og minna ofvirkir? Að þeir hafi siglt yfir úfin höf vegna þess að þeir voru mögulega búnir að brenna allar brýr að baki sér eða fengu einfaldlega þessa frábæru hugmynd og létu vaða! Skoðun 27. júní 2024 07:00
Ekki hægt að sitja bara á Bessastöðum og bíða Fráfarandi forseti lýðveldisins segir heimsóknir á leikskóla og hjúkrunarheimili mikilvægan hluta af verkefnum forseta, ekki síður en fundi með mikilsmetnum þjóðhöfðingjum. Innlent 26. júní 2024 23:13
Opið bréf til Ásmundar Einars barnamálaráðherra Ásmundur Einar Daðason, þú ert Mennta- og Barnamálaráðherra, þú ferð með yfirumsjón Mennta- og Barnamálaráðuneytisins og þú berð þar með ábyrgð á meginhlutverkum ráðuneytisins. Skoðun 26. júní 2024 15:30
Gera úttekt á mat í skólum Árborgar: Gjörunnin matvæli þrisvar í viku Foreldrar og kennarar í Árborg hafa mörg miklar áhyggjur af matnum sem nú er boðið upp á í grunn- og leikskólum bæjarfélagsins. Til stendur að gera úttekt á innihaldi og næringu matarins en um ár er síðan matráðum leikskólanna var sagt upp í hagræðingarskyni. Þá þurfti sveitarfélagið að gera ýmsar ráðstafanir vegna bágrar fjárhagsstöðu. Innlent 26. júní 2024 14:00
Sjálfbærniskólinn opnar: Reglugerðin mun líka hafa áhrif á lítil og meðalstór fyrirtæki „Vissulega nær reglugerðin aðeins til stærri fyrirtækja, með 250 manns eða fleiri og smærri félög tengd almannahagsmunum. Hugmyndafræðin nær hins vegar til allra fyrirtækja, sem þýðir að fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki munu breyttar leikreglur líka hafa áhrif,“ segir Ketill Berg Magnússon, mannauðsstjóri hjá Marel í Norður Evrópu og einn af gestgjöfum Sjálfbærniskólans sem hefst í Opna Háskólanum, Háskóla Reykjavík í haust. Atvinnulíf 26. júní 2024 07:00
Coolbet áberandi í útilegu Verzlinga Veðmálafyrirtæki með ólöglega starfsemi hér á landi var í áberandi samstarfi við útilegu framhaldsskólanema í Grímsnesi um helgina. Skólastjóra Verzlunarskóla Íslands er ekki skemmt. Coolbet og fleiri veðmálafyrirtæki auglýsa grimmt á samfélagsmiðlum án aðgerða stjórnvalda. Innlent 25. júní 2024 18:57
Fjórtán aðgerðir gegn ofbeldi meðal barna Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, og Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra kynntu aðgerðir stjórnvalda gegn ofbeldi meðal barna á blaðamannafundi í Hannesarholti í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Innlent 25. júní 2024 13:55
Þakklát eftir fund með „viljugum“ Bjarna Sylvía Briem Friðjónsdóttir, sem síðustu daga hefur vakið athygli bágri stöðu nýbakaðra foreldra í tengslum við leiksólapláss og fæðingarorlof, átti fund með forsætisráðherra í dag og fór yfir stöðuna. Innlent 24. júní 2024 16:58
Tækniskólinn og Kvennaskólinn vinsælastir Innritun nemenda í framhaldsskóla er nú lokið en alls bárust 4.677 umsóknir fyrir haustið. Flestar umsóknir voru með Tækniskólann eða Kvennaskólann í vali eitt eða tvo. Öllum umsækjendum var tryggt pláss í skóla fyrir veturinn. Innlent 24. júní 2024 16:57