Málið sé bænum ekki til framdráttar Raunir ungrar fjölskyldu sem hefur verið á hrakhólum í fjögur ár eftir að byggingarfulltrúi stöðvaði framkvæmdir á húsi þeirra í Reykjanesbæ eru bænum ekki til framdráttar. Þetta segir bæjarfulltrúi minnihlutans. Málið verði að leysa. Innlent 10. febrúar 2023 13:00
Mismunandi áhyggjur en allir sammála um þyngri róður Verðbólgan og vaxtahækkanirnar að undanförnu hafa ekki farið framhjá almenningi. Nokkrir viðmælendur fréttastofu lýsa yfir miklum áhyggjum af stöðu unga fólksins. Neytendur 8. febrúar 2023 23:54
Alvarlegar athugasemdir við hækkun æfingagjalda í Reykjavík Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkurborgar hefur gert alvarlegar athugasemdir við hækkanir einstaka íþróttafélaga í Reykjavík á æfingagjöldum. Ráðið óskar eftir því að félögin endurskoði hækkanir sínar. Innlent 8. febrúar 2023 15:01
Endurreikna lán og hafa samband staðfesti æðri dómstólar dóminn Landsbankinn reiknar líkt og Neytendasamtökin með að áfrýja dómi þess efnis að bankinn skuli greiða hjónum tvö hundruð þúsund krónur vegna oftekinna vaxta af láni með breytilegum vöxtum. Komist æðri dómstólar að sömu niðurstöðu ætlar bankinn að eiga frumkvæði að því að endurreikna öll lán sem falli undir fordæmið. Neytendur 8. febrúar 2023 14:41
Seðlabankastjóri segir Íslendinga í góðærisvanda Seðlabankastjóri segir Íslendinga í góðærisvanda. Lakari horfur í efnahagsmálum stafi einkum af meiri launahækkunum en reiknað hefði verið með, gengissigi krónunnar og minna aðhalds í fjárlögum. Meginvextir Seðlabankans voru hækkaðir í 6,5 prósent í morgun og hafa ekki verið hærri í tæp þrettán ár. Viðskipti innlent 8. febrúar 2023 12:03
Landsbankinn tapaði máli sem gæti varðað um 70 þúsund lán Landsbankanum hefur verið gert að greiða hjónum um 200 þúsund krónur vegna oftekinna vaxta af láni með breytilegum vöxtum. Málið var rekið fyrir héraðsdómi með stuðningi Neytendasamtaka sem telja að um 70 þúsund sambærileg lán hafi verið tekin á undanförnum árum. Komist var að öndverðri niðurstöðu í sambærilegu máli gegn Arion banka. Viðskipti innlent 7. febrúar 2023 18:54
Innkalla MUNA hampolíu vegna of mikils THC Icepharma hefur sent frá sér tilkynningu um innköllun á framleiðslulotu af MUNA hampolíu vegna of hás innihalds af THC (tetrahydrocannabinol). Ráðist er í innköllunina í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. Viðskipti innlent 7. febrúar 2023 12:34
Margt sem bendi til svipaðrar þróunar og fyrir hrun Margt bendir til þess að á Íslandi gætu farið að gerast hlutir sem ekkert eru ósvipaðir því sem gerðist við aðdraganda hruns að sögn formanns VR. Efnahagsráðgjafi SA segir stöðuna vera snúna en með mjög litlum hætti sambærilega við hvernig hún var stuttu fyrir hrun. Neytendur 7. febrúar 2023 11:54
„Allt í þessum drykk er bara drasl“ Elísabet Reynisdóttir næringarfræðingur er harðorð þegar kemur að innihaldinu í íþróttadrykknum Prime. Drykkurinn hefur verið afar vinsæll hér á landi á meðal barna og ungmenna. Neytendur 6. febrúar 2023 14:01
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar þögul sem gröfin um fjögurra ára hrakfarir Engin svör er að fá hjá bæjarstjórn Reykjanesbæjar vegna rauna ungrar fjölskyldu, sem hefur verið á hrakhólum í fjögur ár eftir að byggingarfulltrúi stöðvaði framkvæmdir á húsi þeirra. Öll leyfi höfðu verið gefin út og framkvæmdir langt komnar þegar þær voru stöðvaðar. Innlent 6. febrúar 2023 12:32
Á hrakhólum í yfir þrjú ár: „Gríðarlegur kostnaður sem fylgir svona skrípaleik“ Fjölskylda hefur verið á hrakhólum milli húsa í fjögur ár eftir að byggingarfulltrúi í Reykjanesbæ stöðvaði framkvæmdir á húsi þeirra þrátt fyrir að öll leyfi hafi verið gefin út. Kostnaður vegna húss sem þau geta ekki flutt inn hleypur á tugum milljóna króna. Fjölskyldan segir mikilvægt að íbúar geti treyst útgefnum leyfum embættismanna og segja að málið verði ekki svæft, þrátt fyrir tilraunir sveitarfélagsins. Innlent 5. febrúar 2023 18:59
Stóryrtur Breki lagði smálánafyrirtækin í annarri lotu Landsréttur hefur sýknað Breka Karlsson, formann Neytendasamtakanna, vegna ummæla sem hann lét falla um starfsemi smálánafyrirtækisins Ecommerce. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði í september 2021 dæmt fjögur ummæli Breka, um að smálánin og innheimta þeirra væri ólögleg, dauð og ómerk. Innlent 3. febrúar 2023 17:39
Alexandra Helga kaupir í Ármúla og Von fer í Síðumúla Alexandra Helga Ívarsdóttir hefur keypt verslunarhúsnæði í Ármúla 40 fyrir 260 milljónir króna. Þar er verslunin Von staðsett en hún verður flutt í Síðumúla á næstunni. Lífið 2. febrúar 2023 13:21
Ekki bara skortur á mat heldur færi allt of mikið í ruslið Forstjóri Innnes, eins stærsta heildsalans á höfuðborgarsvæðinu, segir að verði úr verkföllum Eflingar hjá Samskipum og Olíudreifingu geti heildsalinn aðeins haldið úti starfsemi í nokkra daga. Viðskipti innlent 2. febrúar 2023 11:15
Spá elleftu hækkuninni í röð Hagfræðingar Landsbankans spá því að Seðlabanki Íslands muni hækka stýrivexti um 0,5 prósentur í næstu viku. Gangi þessi spá eftir verður það ellefta stýrivaxtahækkun Seðlabankans í röð. Viðskipti innlent 2. febrúar 2023 10:31
Funduðu með ráðherra um afnám tolla á blómum, frönskum og fuglakjöti Fulltrúar VR, Landssambands íslenzkra verslunarmanna, Rafiðnaðarsambandsins og Félags atvinnurekenda funduðu með Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra í morgun, þar sem rætt var um tollamál. Viðskipti innlent 1. febrúar 2023 12:18
Verðbólga og vísitala: „Þetta er hugtak sem allir hafa heyrt“ Verðbólgan jókst í janúar og vísitala neysluverðs heldur áfram að hækka. Sérfræðingur í vísitöludeild Hagstofunnar segir fólk stundum skorta dýpri skilning á hvað vísitalan felur í sér og hvaða áhrif hún hefur á verðbólguna. Hægt sé að taka dæmi um matarkörfu til að útskýra muninn. Neytendur 31. janúar 2023 17:19
Stjórnvöld þurfi að sýna að þau standi með almenningi Verkefnastjóri verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands segir að hið opinbera sé að kynda undir verðbólguna með ýmsum nýlegum hækkunum á opinberum gjöldum. Stjórnvöld þurfi að fara að sýna að þau standi með almenningi. Neytendur 31. janúar 2023 10:33
Sátu alvarlega fundi um tómatsósu og guacamole Sérfræðingar Samkeppniseftirlitsins sátu alvarlega fundi um tómatsósu og guacamole þegar þeir unnu að ógildingu á samruna tveggja majónesrisa. Ítarlegar sósuskilgreiningar í úrskurði málsins hafa vakið kátínu, sem forstjóri segir skiljanlegt. En hagsmunir neytenda hafi verið í húfi. Viðskipti innlent 31. janúar 2023 07:01
Breki segir Bjarna tolla bús, bíla og búvörur í botn Stjórn Neytendasamtakanna lýsir yfir gífurlegum vonbrigðum með aðgerðir stjórnvalda sem stjórnin segir leiða til þeirrar miklu verðbólgu sem fréttir berast af í dag. Neytendur 30. janúar 2023 17:08
Áskriftir að knattspyrnuútsendingum hækka um allt að 33 prósent „Kostnaður vegna samninga við Premier League hefur hækkað, veiking krónunnar hefur mjög neikvæð áhrif og annar kostnaður til dæmis aðföng, laun, útsendingarkostnaður og fleira hefur hækkað.“ Neytendur 30. janúar 2023 09:00
Nýjar upplýsingar um erlenda netverslun landsmanna Lengi hefur verið skortur á upplýsingum um erlenda netverslun landsmanna en mikið hefur verið leitað til Rannsóknaseturs verslunarinnar (RSV) eftir þeim upplýsingum. Undanfarið árið hefur RSV unnið að því, í samstarfi við tollsviði Skattsins, að greina pakkasendingar einstaklinga til landsins sem skilgreina má sem erlenda netverslun. Í kjölfarið kynnir rannsóknasetrið nú til leiks Netverslunarvísi RSV. Skoðun 30. janúar 2023 07:00
Fólk forðist smálán eins og heitan eldinn: „Ekki er allt gull sem glóir“ Ákvörðun smálánafyrirtækis um að bjóða verðlaun fyrir þá sem taka lán hefur vakið furðu meðal netverja. Formaður Neytendasamtakanna segir athæfið ekki ólöglegt en bendir á að kostnaður geti verið mun hærri en mögulegur ávinningur. Ekki sé allt gull sem glóir og fólk hvatt til að forðast smálán eins og heitan eldinn. Neytendur 27. janúar 2023 12:31
Bleiki liturinn settur í sviðsljósið með nýjum kerrum Nokkrar Bónusverslanir hafa fengið bleikar innkaupakerrur sem viðskiptavinir geta nýtt sér þegar verslað er. Kerrurnar eru minni en þær gulu en markaðsstjórinn segir nýju kerrurnar vera það sem viðskiptavinir hafa verið að kalla eftir. Viðskipti innlent 27. janúar 2023 10:28
Icelandair hefur áætlunarflug til Krítar Icelandair tilkynnir í dag Krít á Grikklandi sem nýjan áfangastað í leiðakerfi sínu. Flogið verður einu sinni í viku, á föstudögum, frá Keflavíkurflugvelli til Chania flugvallar á Krít. Viðskipti innlent 26. janúar 2023 13:27
Óverðtryggð íbúðalán greidd upp í fyrsta sinn í sex ár Uppgreiðslur óverðtryggðra íbúðalána í desember voru meiri en veiting nýrra lána af sama tagi en þetta var í fyrsta sinn í sex ár sem hrein ný óverðtryggð íbúðalán í bankakerfinu voru neikvæð í einum mánuði. Innherji 25. janúar 2023 16:02
Ég ætla að fá að skila þessu, takk Í beinu framhaldi af hátíð ljóss og friðar vaknar gjarnan upp eldgamla og sígilda tuggan um rétt neytenda til að skila ógallaðri vöru. Furða margir sig á að ekki sé í lögum sérstaklega fjallað um slíkan rétt neytenda. Skoðun 20. janúar 2023 11:30
BYKO með ánægðustu viðskiptavinina sjötta árið í röð Íslenska ánægjuvogin kynnti fyrir helgi niðurstöður mælinga á ánægju viðskiptavina fjörutíu íslenskra fyrirtækja í fjórtán atvinnugreinum á árinu 2022. Í flokki byggingavöruverslana hlaut BYKO hæstu einkunnina sjötta árið í röð og hefur því sigrað óslitið í þeim flokki frá upphafi mælinga í honum. Samstarf 19. janúar 2023 08:45
Hafa samþykkt 59 prósent umsókna um hlutdeildarlán Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur samþykkt 59 prósent af þeim umsóknum sem borist hafa um hlutdeildarlán frá því að opnað var fyrir umsóknir í nóvember 2020. Viðskipti innlent 18. janúar 2023 13:42
„Íslendingar eru farnir að finna vel fyrir hækkandi verðlagi og háu vaxtastigi“ Kortavelta jókst um rúmlega eitt prósent að raunvirði í desember síðastliðinn miðað við sama mánuð 2021. Svo hægur hefur vöxtur kortaveltunnar ekki verið síðan í febrúar 2021. Ætla má að einkaneysla verði talsvert hægari á lokafjórðungi ársins 2022, eftir metvöxt á fyrstu níu mánuðunum. Viðskipti innlent 17. janúar 2023 10:27