Eiður kippir sér ekki upp við ummæli Mourinho Eiður Smári Guðjohnsen lét sér fátt um finnast í dag þegar hann var spurður út í ummæli fyrrum stjóra síns í sinn garð, en Jose Mourinho kallaði hann leikara fyrir leik Barcelona og Chelsea í síðasta mánuði. Fótbolti 17. nóvember 2006 14:16
Peningasekt er ekki nóg fyrir ríku liðin Lennart Johansson, forseti knattspyrnusambands Evrópu, vill að refsingum fyrir ríkari félög verði breytt ef þau fara yfir strikið. Fótbolti 6. nóvember 2006 12:00
Ole Gunnar frá í nokkrar vikur Norski markaskorarinn Ole Gunnar Solskjær hjá Manchester United verður frá keppni í nokkrar vikur eftir að hafa tognað aftan á læri í Meistaradeildarleiknum á Parken í gærkvöldi. Alex Ferguson knattspyrnustjóri liðsins segist hafa verið feginn að heyra að vandamálið var ekki alvarlegra en raun bar vitni og sagðist hafa óttast að hnéð hefði gefið sig þegar hann fór að haltra undir lok leiksins. Fótbolti 2. nóvember 2006 15:30
Stórhuga í Meistaradeildinni Jose Mourinho segir að lið sitt sé að spila betur en nokkru sinni fyrr í Meistaradeild Evrópu og bendir á að þó samkeppnin sé hörð, hafi hans menn alla möguleika á að fara alla leið í keppninni að þessu sinni. Fótbolti 2. nóvember 2006 15:00
Hugsanlega besti leikur okkar í Meistaradeildinni Arsene Wenger var ekkert að velta sér upp úr því að lið hans hafi farið illa með fjölda færa og því þurft að sætta sig við markalaust jafntefli á heimavelli við CSKA Moskva í kvöld. Hann segir spilamennsku liðsins hafa verið frábæra. Fótbolti 1. nóvember 2006 23:24
Við verðum að ná í stig gegn Celtic Sir Alex Ferguson var ekki á þeim buxunum að koma með lélegar afsakanir í kvöld eftir að hans menn afhentu FC Kaupmannahöfn fyrsta sigur sinni í Meistaradeildinni í sögu félagsins. Ferguson sagði sína menn hafa fengið á baukinn fyrir að nýta ekki færi sín. Fótbolti 1. nóvember 2006 23:20
United lá í Kaupmannahöfn Manchester United þurfti að sætta sig við 1-0 tap fyrir FC Kaupmannahöfn í Danmörku í kvöld og Arsenal og CSKA Moskva gerðu markalaust jafntefli í G-riðli, þar sem allt er nú opið. Fótbolti 1. nóvember 2006 21:37
Dauft hjá enskum í fyrri hálfleik Ensku liðunum Arsenal og Manchester United hefur ekki gengið vel í fyrri hálfleik í leikjum sínum í Meistaradeild Evrópu sem sýndir eru beint á sjónvarpsstöðvum Sýnar í kvöld, en raunar hafa fá mörk verið skoruð í leikjunum átta sem standa yfir. Fótbolti 1. nóvember 2006 20:36
Meiðsli Eiðs ekki alvarleg Ökklameiðsli landsliðsfyrirliðans Eiðs Smára Guðjohnsen í leiknum gegn Chelsea í Meistaradeildinni í gærkvöld voru ekki eins alvarleg og talið var í fyrstu og svo gæti farið að hann yrði klár í slaginn um helgina þegar meistararnir mæta Deportivo í deildinni. Fótbolti 1. nóvember 2006 18:16
Arsenal - CSKA Moskva í beinni Leikur Arsenal og CSKA Moskvu í meistaradeild Evrópu verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld klukkan 19:30 og á sama tíma verður leikur FC Kaupmannahöfn og Manchester United sýndur á Sýn Extra. Fótbolti 1. nóvember 2006 17:00
Baunar áfram á Barcelona Jose Mourinho hrósaði baráttuanda sinna manna í gærkvöld þegar lið Chelsea náði jöfnu gegn Barcelona í Meistaradeildinni, en hann gat ekki stillt sig um að bauna aðeins á Frank Rijkaard þjálfara. Fótbolti 1. nóvember 2006 14:44
Öruggt hjá Liverpool Liverpool átti ekki í neinum vandræðum með að leggja Bordaeux af velli á heimavelli sínum í Meistaradeildinni í kvöld. Lokatölur urðu 3-0 og er Liverpool búið að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum, rétt eins og PSV sem sigraði Galatasary, 2-0. Fótbolti 31. október 2006 21:43
Gleði og sorg hjá Eiði Smára Eiður Smári Guðjohnsen skoraði en meiddist illa þegar Barcelona og Chelsea skildu jöfn, 2-2, í stórleik kvöldsins í Meistaradeildinni. Eiður Smári kom Barca í 2-1 á 58. mínútu en meiddist, að því er virtist alvarlega, á ökkla um stundarfjórðungi síðar. Didier Drogba jafnaði leikinn í uppbótartíma. Sport 31. október 2006 21:33
Barcelona leiðir í hálfleik Staðan á Nou Camp leikvanginum í Barcelona er 1-0 fyrir heimamönnum gegn Chelsea þegar flautað hefur verið til hálfleiks í leik liðanna í Meistaradeildinni. Það var Portúgalinn Deco sem skoraði markið strax á 4. mínútu leiksins. Liverpool er yfir gegn Bordeaux á Anfield. Sport 31. október 2006 20:35
Eiður Smári í byrjunarliðinu Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Barcelona sem tekur á móti Chelsea í Meistaradeild Evrópu eftir örfáar mínútur. Leikurinn hefst kl. 19:45 og er í beinni útsendingu á Sýn. Sport 31. október 2006 19:18
Shevchenko og Drogba með Chelsea á Spáni Framherjarnir Andriy Shevchenko og Didier Drogba fóru báðir með liði Chelsea til Spánar þar sem liðið sækir Evrópumeistara Barcelona heim í Meistaradeildinni á þriðjudagskvöld. Báðir leikmenn hafa átt við meiðsli að stríða. Fótbolti 29. október 2006 15:56
Hefðum átt að vinna stærra Jose Mourinho var mjög sáttur við sigur sinna manna á Barcelona í Meistaradeildinni í kvöld og sagðist helst ósáttur við að ná ekki að gera út um leikinn fyrr með því að skora fleiri mörk. Hann segist nú hafa sett stefnuna á að halda toppsætinu í riðlinum. Fótbolti 18. október 2006 22:07
Drogba tryggði Chelsea sigur á Barcelona Chelsea vann í kvöld sannfærandi sigur á Barcelona 1-0 í Meistaradeild Evrópu. Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Barcelona en náði sér ekki á strik frekar en félagar hans í liðinu og var skipt af velli á 60. mínútu. Didier Drogba skoraði sigurmarkið á 47. mínútu með laglegu skoti og Chelsea er komið í vænlega stöðu í riðlinum með fullt hús eftir þrjá leiki. Fótbolti 18. október 2006 20:34
Jafnt í hálfleik á Stamford Bridge Nú hefur verið flautað til hálfleiks á Stamford Bridge í leik Chelsea og Barcelona í Meistaradeild Evrópu. Ekkert mark er enn komið í leikinn og besta færið átti Didier Drogba hjá Chelsea eftir 15 mínútna leik, en náði ekki að skora. Eiður Smári er í byrjunarliði Barcelona en hefur fengið úr litlu að moða enn sem komið er. Fótbolti 18. október 2006 19:32
Eiður í byrjunarliði Barcelona Nú styttist í að flautað verði til leiks í Meistaradeild Evrópu. Stórleikur kvöldsins er viðureign Chelsea og Barcelona og verður leikurinn sýndur beint á Sýn. Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Barcelona gegn sínum gömlu félögum og tekur við heiðursverðlaunum frá Chelsea fyrir leikinn. Fótbolti 18. október 2006 18:14
Sigur á Bordeaux gæfi okkur meðbyr í deildinni Rafa Benitez vonast innilega eftir sigri á franska liðinu Bordeaux í Meistaradeildinni í kvöld og telur að útisigur í kvöld gæfi liði sínu byr undir báða vængi fyrir erfiðan leik við Manchester United í úrvalsdeildinni á sunnudag. Liverpool er aðeins í tíunda sæti í úrvalsdeildinni. Fótbolti 18. október 2006 17:15
Xavi segir Chelsea í hefndarhug Spænski miðjumaðurinn Xavi hjá Barcelona á von á því að Englandsmeistarar Chelsea séu í hefndarhug í leik liðanna í Meistaradeildinni í kvöld, eftir að spænska liðið sló þá út úr keppninni á síðustu leiktíð. Fótbolti 18. október 2006 16:45
Risaleikir í beinni í kvöld Sjónvarpsstöðvar Sýnar gera Meistaradeild Evrópu góð skil að venju í kvöld, en þá verður á dagskrá einn af leikjum ársins þegar Eiður Smári og félagar í Barcelona sækja fyrrum félaga hans í Chelsea heim á Stamford Bridge klukkan 18:30. Fótbolti 18. október 2006 16:00
Eiður sæmdur verðlaunum fyrir leikinn í kvöld Eiður Smári Guðjohnsen verður sæmdur sérstökum verðlaunum fyrir ár sín hjá Chelsea skömmu fyrir leik Chelsea og Barcelona í Meistaradeildinni í kvöld. Það verður stjórnarformaðurinn Bruce Buck sem afhendir Eiði verðlaunagripinn, en landsliðsfyrirliðinn vann tvo Englandsmeistaratitla með félaginu áður en hann gekk í raðir Barcelona í sumar. Fótbolti 18. október 2006 15:26
Við erum miklu betri en Chelsea Victor Valdes hefur nú sent liðsmönnum Chelsea góða ögrun fyrir stórleik liðanna á Stamford Bridge í Meistaradeildinni í kvöld, en markvörðurinn ungi sagði Sky sjónvarpsstöðinni í dag að Barcelona væri einfaldlega betra lið en Chelsea. Fótbolti 18. október 2006 15:19
Van Nistelrooy og Beckham í sögubækurnar Félagarnir Ruud Van Nistelrooy og David Beckham skráðu nöfn sín í sögubækurnar í kvöld í stórsigri Real Madrid á Steua Búkarest. Beckham spilaði sinn 100. leik á ferlinum í keppninni og þá varð Nistelrooy aðeins þriðji leikmaðurinn til að skora 50 mörk í Meistaradeildinni þegar hann skoraði glæsilegt fjórða mark spænska liðsins. Fótbolti 17. október 2006 22:43
Ferguson hrósar fyrirliðanum unga Sir Alex Ferguson hlóð Wayne Rooney hrósi eftir 3-0 sigur Manchester United á FC Kaupmannahöfn í Meistaradeildinni í kvöld, en framherjinn ungi tók við fyrirliðabandinu í fyrsta sinn í fjarveru þeirra Ryan Giggs og Rio Ferdinand. Fótbolti 17. október 2006 22:31
Á von á skemmtilegum leik á morgun Jose Mourinho segist eiga von á skemmtilegum leik þegar hans menn í Chelsea taka á móti Barcelona í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Fótbolti 17. október 2006 22:15
Ánægður með óvænt gengi Celtic Gordon Strachan var að vonum ánægður með sigur sinna manna í Glasgow Celtic á portúgalska liðinu Benfica í Meistaradeildinni í kvöld. Hann segir árangur liðsins til þessa í keppninni framar sínum björtustu vonum. Fótbolti 17. október 2006 22:11
Kennir dómaranum og vallaraðstæðum um tapið Arsene Wenger kennir dómaranum og lélegum vallaraðstæðum um tap Arsenal gegn CSKA Moskvu í Meistaradeildinni í kvöld, en viðurkennir að heimamenn hafi ráðið ferðinni löngum stundum í leiknum. Fótbolti 17. október 2006 21:20