Neyðarástandi lýst yfir í New York vegna skyndiflóða Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í New York borg vegna skyndiflóða sem hafa orðið í kjölfar mikilla rigninga í ríkinu. Erlent 29. september 2023 22:43
Mótvægisaðgerðir megi ekki gleymast þó aðlögun sé hafin Formaður ungra umhverfissinna fagnar því að stjórnvöld séu farin að huga að hvernig aðlaga megi samfélagið að loftslagsbreytingum. Mótvægisaðgerðir megi þó ekki gleymast og enn eigi eftir að tryggja fjármagn í aðlögunaraðgerðir sem kynntar voru í gær. Innlent 27. september 2023 21:31
Unga fólkið gegn 32 ríkjum vegna loftslagsmála tekið fyrir hjá MDE Ellefu ára stúlka frá Portúgal er meðal sex ungmenna sem hafa höfðað mál gegn 32 ríkjum fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Ungmennin segja ríkin hafa brotið gegn mannréttindum sínum með því að grípa ekki til aðgerða gegn loftslagsvánni. Erlent 27. september 2023 10:50
Þurfum að aðlagast veðuröfgum: „Sorglegt en staðreynd“ Öfgakenndari úrkoma, fleiri skriður og aukin flóðahætta er meðal þess sem blasir við Íslendingum á næstu árum, segir sérfræðingur á Veðurstofu Íslands. Auka þarf rannsóknir og gera þær aðgengilegar svo allir geti skipulagt sig út frá breyttum veruleika. Innlent 26. september 2023 21:15
Bein útsending: Loftslagsþolið Ísland Stýrihópur sem Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, skipaði til að vinna tillögur fyrir gerð Landsáætlunar um aðlögun að loftslagsbreytingum, hefur skilað tillögum sínum og verða þær kynntar á blaðamannafundi sem hefst klukkan 14:30. Innlent 26. september 2023 14:01
Gjallgígur gægist undan ís á Hvannadalshnjúki Forn gjallgígur virðist vera að koma í ljós eftir því sem snjór og ís hopa á toppi Hvannadalshnjúks. Jarðfræðingur telur að gígurinn hafi eflaust myndast löngu fyrir landnám. Innlent 21. september 2023 13:52
Sagði engan öruggan ef Pútín yrði leyft að búta Úkraínu í sundur Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, segir heiminn verða að standa við bakið á Úkraínumönnum og standa gegn ofstopa Rússa. Engin þjóð yrði örugg ef Rússum yrði leyft að búta Úkraínu í sundur. Erlent 19. september 2023 16:52
Fundaði með Guterres Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra átti tvíhliða með António Guterres, aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna í New York í gær. Innlent 19. september 2023 08:56
Rannsaka óvissuþætti við að skjóta brennisteinsögnum í heiðhvolfið Við Institute for Futures Studies í Svíþjóð er nú verið að byggja upp þverfaglegt teymi sem mun rannsaka ýmsa þætti er varða „solar geoengineering“ eða „solar radiation management“. Meðal annars verður horft til þeirrar óvissu sem fylgir tækninni og raunar óþekktra óvissuþátta. Innlent 18. september 2023 11:30
Fjárlagafrumvarpið, ólögmætt samráð og hinseginleikinn Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og hér á Vísi frá klukkan tíu til tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem eru efst á baugi í samfélaginu hverju sinni. Innlent 17. september 2023 09:31
Réttlát umskipti fyrir öll, ekki bara þau efnameiri Baráttan gegn loftslagsbreytingum er á sama tíma baráttan fyrir réttlátari og betri heimi. Aðgerðir stjórnvalda þurfa að taka mið af því og tryggja það að öll geti tekið þátt í grænu umskiptunum, ekki bara þau efnameiri. Því miður hefur þetta verulega skort í aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Skoðun 14. september 2023 17:01
Hvetja ríki til að banna inngrip til að stýra veðuröflunum Climate Overshoot Commission, alþjóðleg nefnd sérfræðinga á sviði loftslagsmála, hvetur stjórnvöld heims til að heimila vísindarannsóknir á inngripum í náttúrulega ferla á borð við veðrabreytingar en banna framkvæmd þeirra. Erlent 14. september 2023 08:57
Vonast eftir markvissari aðgerðaáætlun í væntanlegri uppfærslu Ríkisstjórnin stefnir að því að leggja fram uppfærða aðgerðaáætlun í loftslagsmálum fyrir lok ársins. Formaður loftslagsráðs segir að áætlunin þurfi að verða mun markvissari með tölulegum markmiðum og skýrari ábyrgðarskiptingu en sú sem nú er í gildi. Innlent 14. september 2023 07:01
Lögregla sprautaði vatni á aðgerðasinna Lögreglan í Haag í Hollandi beittu vatnssprautum á loftslagsaðgerðarsinna sem mótmæltu á hraðbraut skammt frá borginni í dag. Erlent 9. september 2023 17:03
Tíu látnir í flóðunum í Grikklandi og fleiri saknað Tala látinna í flóðunum í Grikklandi hækkar enn. Nú eru tíu taldir af og fjögurra til viðbótar er saknað. Björgunarlið flytur enn hundruð íbúa þorpa á hamfararsvæðinu burt með þyrlum og bátum. Erlent 8. september 2023 15:48
Loftslagsmál í lausagangi hjá umhverfisráðherra Forystuleysi ríkisstjórnarinnar er að verða að sjálfstæðu vandamáli í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Hjá umhverfisráðherra birtist það gjarnan í því að hann víkur sér undan umræðu um aðgerðir með því að fara með margtuggða rullu um hitaveituvæðinguna. Horfir til fortíðar frekar en framtíðar. Skoðun 8. september 2023 13:30
Hlýjasta sumarið á norðurhveli frá upphafi Sumarið á norðurhveli var það hlýjasta sem hefur nokkru sinni mælst. Ágúst var hlýjasti ágústmánuður á jörðinni frá upphafi mælinga og næsthlýjasti mánuðurinn á eftir júlí í sumar. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir heimsbyggðina standa frammi fyrir „loftslagshruni“. Erlent 6. september 2023 10:23
Tími hænuskrefa er liðinn Fjölmörg fyrirtæki víða um heim hafa áttað sig á því að ganga einungis út frá því að hámarka ágóða óháð öllu öðru stenst einfaldlega ekki tímans tönn. Fyrsta skrefið sem mörg þessara fyrirtækja tóku í átt að ábyrgari viðskiptaháttum var að átta sig á því að það er mikilvægt að huga að siðferði þegar kemur að viðskiptum. Skoðun 6. september 2023 09:01
Að minnka kolefnisspor íslensks atvinnulífs Sumarið er frábær tími og í uppáhaldi hjá mörgum, en upp á síðkastið hafa sumrin vakið blendnar tilfinningar. Á þessu ári, líkt og undanfarin ár, hafa borist fréttir af uggvekjandi veðuröfgum. Sögulegur fjöldi hitameta var sleginn víða um heim, við heyrðum fregnir af miklum þurrkum, mannskæðum skógareldum, ofsarigningum, flóðum og risahagléli – oft á stöðum sem Íslendingar heimsækja í sínum sumarfríum. Skoðun 5. september 2023 14:01
Mannskæðir vatnavextir í úrhelli á Spáni Að minnsta kostir tveir eru látnir í miklum vatnavöxtum á Spáni. Fólki hefur verið bjargað af húsþökum og vegir og járnbrautarlínur hafa lokast vegna úrhellisrigningarinnar sem byrjaði að falla í gær. Erlent 4. september 2023 12:24
Afskræmd umfjöllun um áhrif hvala í tengslum við loftslagsmálin Samkvæmt stöðu þekkingar sem við höfum öðlast fyrir tilstuðlan fjölda alþjóðlegra rannsókna vitum við að hvalir og önnur stór sjávardýr hafa vistmótandi áhrif á umhverfi sitt. Þeir styrkja vistferla og stuðla að heilbrigði vistkerfa. Skoðun 31. ágúst 2023 11:00
Losun frá flugi og siglingum jókst um 95 prósent eftir faraldurinn Útblástur gróðurhúsaloftegunda vegna alþjóðasamgangna frá Íslandi jókst um 95 prósent á milli ára í fyrra þegar ferðatakmörkunum eftir heimsfaraldurinn var aflétt. Losun á beinni ábyrgð íslenskra stjórnvalda stóð svo gott sem í stað á milli ára í fyrra samkvæmt bráðabirgðatölum Umhverfisstofnunar. Innlent 31. ágúst 2023 08:59
Ísland og Kyoto bókunin uppgjör með kaupum á ódýrum losunarheimildum Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra tilkynnti nýverið að ritað hefði verið undir samning ásamt umhverfisráðherra Slóvakíu um kaup Íslands á 3,4 m kolefniseiningum frá Slóvakíu fyrir um 350 m.kr. Þessi tilhögun mun gera Íslandi fært að standa við skuldbindingar sínar á 2. tímabili Kýótó-bókunarinnar enda í stað þess að draga úr losun um 20% jók Ísland losun um 20%. Skoðun 29. ágúst 2023 13:02
Náttúran, næringin og endurgjöfin Nýlega las ég úr hvaða frumefnum mannslíkaminn er gerður. Ég hafði lengi vitað að við erum að mestum hluta úr vatni, en ekki pælt mikið meira í þessu. Líkaminn er að mestu byggður upp af súrefni (O), eða um 65%, kolefni (C) 18.5 %, vetni (H) 9.5% og nítur (N) 3.2%, en þetta er um 96% af líkamanum, og svo koma kalk, fosfór, kalín og brennisteinn og fleiri efni og snefilefni. Skoðun 28. ágúst 2023 10:01
Drögum vagninn í mark Loftlagsmálin hafa verið í brennidepli undanfarin ár og snerta í raun alla anga samfélagsins á einn eða annan hátt. Öll erum við til dæmis látin flokka heimilissorpið með ítarlegri hætti en áður og atvinnulífið vinnur af miklum móð til að mæta metnaðarfullum og lögfestum markmiðum stjórnvalda um kolefnishlutlaust Ísland árið 2040. Skoðun 25. ágúst 2023 11:30
„Allir sem telja sig græna í stjórnmálum annars staðar í heiminum berjast fyrir grænni orku” Umhverfisráðherra segir umræðuna hér á landi hvað varðar græna orku skrítna og ekki i samræmi við það sem þekkist annars staðar. Samkvæmt nýrri raforkuspá Landsnets munu markmið stjórnvalda um orkuskipti ekki nást árið 2040 eins og stefnt var að, heldur árið 2050. Innlent 24. ágúst 2023 21:01
Loftslagsréttur skyldufag í lagadeild Lagadeild Háskólans á Bifröst hefur fyrst allra íslenskra lagadeilda gert loftslagsrétt að skyldufagi í meistaranámi við deildina. Innlent 24. ágúst 2023 13:59
Borgaryfirvöld í Barcelona dreifa vatni og derhúfum til heimilislausra Hitamet hafa fallið síðustu nætur í Barcelona, þar sem hitinn fór lægst í um 30 gráður á 24 klukkustunda tímabili. Hitinn í gær fór í 38,8 stig, sem er nýtt met en gamla metið var 37,4 gráður. Erlent 24. ágúst 2023 12:56
Telja markmið um orkuskipti ekki munu nást fyrr en áratug seinna Samkvæmt nýrri raforkuspá Landsnets sem kynnt verður í dag munu markmið stjórnvalda um orkuskipti ekki nást árið 2040 eins og stefnt var að, heldur árið 2050. Innlent 24. ágúst 2023 08:34
Átján lík fundust á víðavangi eftir gróðurelda í Grikklandi Átján fundust látnir við kofa nærri þorpinu Avantas, skammt frá borginni Alexandroupolis á Grikklandi, við eftirlit slökkviliðsmanna eftir að gróðureldar fóru um svæðið. Erlent 23. ágúst 2023 07:32