IFS mælir með sölu á Símanum og Sýn IFS greining mælir með því að fjárfestar selji í Símanum og Sýn. Markaðsvirði félaganna er lítillega hærra en virðismat IFS gefur til kynna. Innherji 6. apríl 2023 11:01
Engin viðlíka ákvæði um kveikjuviðburð í AT1-bréfum bankanna AT1-gerningar Arion banka og Íslandsbanka nytu ávallt forgangs fram yfir hlutafé ef á það myndi reyna en í skilmálum skuldabréfanna er ekki að finna sambærileg ákvæði í skilmálum sömu bréfa hjá Credit Suisse. Þetta kemur fram í svari frá fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands við fyrirspurn Innherja. Innherji 5. apríl 2023 11:02
Elskum öll! Heimurinn sem við búum í er dásamlegur á svo margan hátt. En hann getur líka verið flókinn og erfiður, þrátt fyrir alla þá tækni og þægindi sem við njótum í daglegu lífi. Við vitum að tækni getur auðveldað líf fólks og fyrirtækja og skapað aukin verðmæti. En við þurfum að kunna að umgangast tæknina og passa að hún stjórni okkur ekki, ýti ekki undir fordóma eða hafi slæm áhrif á líðan okkar. Skoðun 5. apríl 2023 08:00
Norski olíusjóðurinn seldi stóran hluta eigna sinna í íslenskum ríkisbréfum Olíusjóður Noregs, stærsti fjárfestingasjóður í ríkiseigu í heiminum, seldi nærri helming allra skuldabréfa sem hann átti á íslenska ríkið á liðnu ári á sama tíma og hann jók talsvert við stöðu sína í skuldabréfum á bankanna hér á landi. Verðbréfaeign sjóðsins á Íslandi, sem nemur jafnvirði um 30 milljarðar króna, hélst nánast óbreytt á milli ára. Innherji 5. apríl 2023 07:01
Arion viðurkennir brot og greiðir tugi milljóna Arion banki hefur viðurkennt brot sín á banni við uppgreiðslugjöldum á lánum til lítilla fyrirtækja. Forsvarsmenn bankans sýndu ríkan samstarfsvilja á meðan rannsókn Samkeppniseftirlitsins á málinu stóð yfir og hafði það verulega þýðingu við mat á fjárhæð sekta. Viðskipti innlent 4. apríl 2023 16:52
Kaupir fyrir rúmlega tvöhundruð milljónir í Regin Halldór Benjamín Þorbergsson, sem tekur við starfi forstjóra Regins í sumar, er búinn að kaupa hlutabréf í félaginu fyrir rúmlega tvöhundruð milljónir króna. Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að kaupin eru gerð í gegnum Optio ehf. en um er að ræða félag sem er alfarið í eigu Halldórs. Viðskipti innlent 3. apríl 2023 16:22
Hildur ráðin forstöðumaður Eignastýringar Íslandsbanka Hildur Eiríksdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Eignastýringar Íslandsbanka, en hún hefur að undanförnu gegnt þar stöðu viðskiptastjóra. Viðskipti innlent 3. apríl 2023 09:22
Flugfreyjur í stuttum pilsum þurftu að teygja sig upp Þær byrjuðu margar að fljúga á árunum upp úr 1960 og voru fyrsta kynslóðin sem gerði flugfreyjustarfið að ævistarfi. Þær halda enn hópinn, sem telur meira að segja fyrrverandi forsætisráðherra, og rifja upp gamlar sögur úr fluginu. Lífið 2. apríl 2023 06:21
Lánastarfsemi Símans gæti orðið „eins og sparisjóður að stærð“ Útlánastarfsemi er orðin það stór þáttur í rekstri Símans að ekki er hægt að líta fram hjá honum lengur og haldi vöxturinn áfram gæti starfsemin nálgast það að verða „eins og sparisjóður að stærð“ eftir nokkur ár. Innherji 1. apríl 2023 09:08
Sjóvá skilaði sínu þrátt fyrir að ytri aðstæður væru þær verstu í áratugi Sjóvá er kannski „ekkert sérlega töff“ en það skilaði sínu árið 2022, þrátt fyrir að ytri aðstæður á tryggingarmarkaði voru þær verstu í áratugi. Þjóðfélagið tók við sér að krafti, verðbólgan var á hvínandi siglingu, segir í hlutabréfagreiningu. Innherji 31. mars 2023 15:31
Hlutabréfaverð rýkur upp eftir ráðninguna Hlutabréfaverð í Regin hefur hækkað um 5,69 prósent það sem af er degi. Greint var frá því í gærkvöldi að Halldór Benjamín Þorbergsson, fráfarandi framkvæmdastjóri SA, tæki við sem forstjóri Regins í sumar. Viðskipti innlent 31. mars 2023 13:30
Helga Lára og Hjalti Már ráðin til fyrirtækjaráðgjafar Arion Helga Lára Hauksdóttir og Hjalti Már Hauksson hafa verið ráðin til fyrirtækjaráðgjafar Arion banka. Viðskipti innlent 31. mars 2023 13:14
Jafnar byrðar – ekki undanþágur Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá mörgum að íslensk stjórnvöld hafa lagt talsverða vinnu í að Evrópusambandið taki landfræðilega legu Íslands til greina þegar aukinn kostnaður mun leggjast á flugfélög innan álfunnar vegna kolefnislosunar á næstu árum. Skoðun 31. mars 2023 08:31
Kurr meðal hluthafa Nova sem sýndu Hugh Short reisupassann Óánægju gætti með störf Hugh Short sem var stjórnarformaður Nova þar til að hluthafar kusu hann úr stjórn með afgerandi hætti í gær. Sagt er að hann hafi ekki rækt hlutverk sitt sem skyldi. Klinkið 30. mars 2023 15:18
Arnar Már snýr aftur í framkvæmdastjórn Play Arnar Már Magnússon, flugstjóri og einn af stofnendum Play, mun senn taka aftur við sem framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs félagsins. Viðskipti innlent 30. mars 2023 09:12
Farið að hægja á miklum verðhækkunum á matvöru frá birgjum Farið er að hægja á verðhækkunum frá birgjum, að sögn heildsala og smásala á matvörumarkaði, en ástandið er þó enn afar krefjandi og borið hefur á verðhækkunum frá innlendum framleiðslufyrirtækjum á undanförnum vikum vegna nýrra kjarasamninga. Vísbendingar eru um að lækkandi hrávöruverð á heimsmarkaði hafi ekki enn skilað sér í lægra innkaupverði. Innherji 30. mars 2023 07:01
Stjórnarformaður og annar stærsti hluthafi Nova felldur í kjöri til stjórnar Hugh Short, stjórnarformaður Nova, hlaut ekki brautargengi í kosningu til stjórnar fjarskiptafélagsins á aðalfundi sem lauk fyrir skemmstu, samkvæmt heimildum Innherja, þrátt fyrir að hafa verið á meðal þeirra fimm einstaklinga sem tilnefningarnefnd hafði mælt með. Innherji 29. mars 2023 19:00
Festi skoðar sölu á 60 prósenta hlut sínum í Olíudreifingu Festi, sem meðal annars er móðurfélag N1, skoðar nú hvort selja eigi 60 prósenta hlut sinn í Olíudreifingu. Að sögn stjórnenda Festi er um að ræða „frumskoðun á framtíðareignarhaldi“ félagsins, sem er undir ströngum skilyrðum af hálfu Samkeppniseftirlitsins, en eftirstandandi hlutur er í eigu Olís. Innherji 29. mars 2023 15:05
Verðbólguálagið togast niður og um leið væntingar um topp vaxtahækkana Snörp gengisstyrking krónunnar síðustu daga, meðal annars drifin áfram af fjármagnsinnflæði, og væntingar um að verðbólgan sé búin að toppa hefur togað verulega niður verðbólguálag á skuldabréfamarkaði og um leið aukið trúverðugleika Seðlabankans í aðgerðum sínum. Þótt óvissan um framhaldið sé enn mikil, að sögn sérfræðings á skuldabréfamarkaði, þá gera fjárfestar nú ráð fyrir að vaxtahækkunarferli bankans ljúki fyrr en áður var talið. Innherji 29. mars 2023 09:48
Arion hækkar vextina Arion banki hefur hækkað inn- og útlánsvexti bankans í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabanka Íslands í síðustu viku. Viðskipti innlent 29. mars 2023 09:40
Origo segir skilið við Kauphöllina í lok næsta mánaðar Nasdaq Iceland hefur orðið við beiðni Origo um afskráningu í Kauphöll. Síðasti dagur viðskipta með bréf í félaginu verður 25. apríl. Viðskipti innlent 29. mars 2023 07:52
Stilla upp ráðgjöfum fyrir viðræður um stærsta samruna Íslandssögunnar Rúmlega mánuði eftir að stjórn Íslandabanka féllst á beiðni Kviku um að hefja formlegar viðræður um mögulega sameiningu félaganna, sem yrði þá verðmætasti banki landsins, hafa bankarnir gengið frá ráðningum á helstu lögfræði- og fjármálaráðgjöfum sínum fyrir samrunaferlið. Vænta má þess að viðræðurnar, sem hafa farið nokkuð hægt af stað, verði tímafrekar og krefjandi, meðal annars vegna væntanlegra skilyrða Samkeppniseftirlitsins. Innherji 28. mars 2023 17:29
„Feigðarflan“ að toga tilnefningarnefndir fjær hluthöfum Það er feigðarflan að toga tilnefningarnefndir fjær hluthöfum, sagði reyndur stjórnarmaður. Ráðgjafi á sviði stjórnarhátta velti því upp hvort það væri óvinnandi fyrir tilnefningarnefndir að stilla upp góðri stjórn. Yfirlögfræðingur lífeyrissjóðs hugnast ekki að stjórnarmenn sitji í tilnefningarnefndum. Innherji 28. mars 2023 14:21
Topp 10 fermingargjafir sem hitta í mark Fermingar eru fram undan og veislur um allt land að því tilefni. Margt getur verið á óskalistanum fyrir stóra daginn en Origo mælir með gjöf sem nýtist fermingarbarninu vel og það getur tekið með sér inn í framtíðina.Við hjá Origo höfum að því tilefni tekið saman okkar tíu bestu hugmyndir að fermingargjöf frá flottustu og bestu vörumerkjunum okkar, gjafir sem munu án efa hitta beint í mark. Samstarf 28. mars 2023 09:11
Flýta vinnslu á Grænlandi eftir sjö milljarða lánsfjármögnun Auðlindafélagið Amaroq Minerals, sem heldur á víðtækum rannsóknar- og vinnsluheimildum á Grænlandi, hefur gengið frá sjö milljarða króna lánsfjármögnun. Fjármagnið verður nýtt til að hefja gullvinnslu í Nalunaq námunni fyrr en ella. Þá kannar félagið nú skráningu á aðalmarkaði Nasdaq á Íslandi. Viðskipti innlent 28. mars 2023 07:46
Máni kveður Sýn: „Þetta hefur verið áhugavert ferðalag í rúm 25 ár" Máni Pétursson fjölmiðlamaður hefur sagt skilið við Sýn eftir 25 ára starf. Hann lauk formlega störfum um síðustu mánaðamót. Lífið 27. mars 2023 23:40
Forstjóri Brims gagnrýnir „lýðskrum“ í umræðu um sjávarútveg Forstjóri og aðaleigandi Brims, eins stærsta útgerðarfyrirtækis landsins, segir „málsmetandi aðila kynda undir öfund og óánægju í garð sjávarútvegs á fölskum forsendum“ en gagnrýnin er sett fram á sama tíma og stjórnvöld vinna nú að breytingum á lögum um stjórn fiskveiða. Hann rifjar upp að bætt afkoma Brims megi rekja til umdeildra ákvarðana sem voru teknar fyrir fáeinum árum, sem varð til þess að Gildi seldi allan hlut sinn, og lærdómurinn af því sé að „ekki er allaf rétt að forðast ágreining.“ Innherji 27. mars 2023 10:16
Leggja slagorðinu þar sem æ fleiri skilja ekki til hvers sé vísað Sláturfélag Suðurlands hefur á undanförnum vikum kynnt til sögunnar nýtt útlit á 1944-skyndiréttunum og samhliða breytingunum verður hætt við notast við slagorð réttanna – „Matur fyrir sjálfstæða Íslendinga“. Forstjóri segir að sífellt fleiri skilji ekki vísun slagorðsins til ártalsins – það er réttirnir dragi nafn sitt af ártalinu þegar Íslendingar lýstu yfir sjálfstæði frá Danmörku. Neytendur 26. mars 2023 10:00
Kerfi sem bjóði þingmönnum upp á spillingu Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir fyrirkomulag við bókanir ríkisstarfsmanna á flugferðum bjóða upp á spillingu. Þarna sé verið að viðhalda kerfi sem hvetji starfsmenn ríkisins til þess að beina viðskiptum sínum til ákveðins flugfélags. Innlent 24. mars 2023 16:56
Þingmenn fá punkta á sitt kort fyrir flugferðir greiddar af ríkinu Þingmenn sem ferðast til útlanda vegna starfs síns fá flugpunkta á kort sín fljúgi þeir með ákveðnum flugfélögum, þrátt fyrir að ferðin sé greidd af ríkinu. Punktana geta þeir svo notað sjálfir þegar flogið er í persónulegum erindagjörðum. Forstjóri Play segir að þarna sé svakalegur hvati sem stýri viðskiptum þingmannanna. Innlent 24. mars 2023 09:50