Hagnaður Stefnis jókst um þriðjung þótt eignir í stýringu hafi minnkað
![Jón Finnbogason er framkvæmdastjóri Stefnis.](https://www.visir.is/i/3758DA71DE4B616F1664E0DB57BCFC62A1A675BF0B650B68335F1F9BA6C49344_713x0.jpg)
Sjóðastýringarfyrirtækið Stefnir, sem er í eigu Arion banka, skilaði hagnaði á fyrri árshelmingi upp á tæplega 707 milljónir króna og jókst hann um liðlega 33 prósent frá sama tíma fyrir ári samhliða „krefjandi“ fjárfestingarumhverfi. Nettó innlausnir í stærsta almenna hlutabréfasjóði landsins námu samtals um einum milljarði en talsverðar verðlækkanir einkenndu innlendan hlutabréfamarkað á tímabilinu.