Blökastið hringir inn jólin Litlu jól Blökastsins verða haldin í beinni útsendingu á Vísi og sjónvarpsstöðinni Vísi klukkan 19:30 í kvöld. Lífið 10. desember 2023 16:01
Bók um blæðingar „líka fyrir okkur karlpungana til að lesa“ Bóksali á Suðurlandi er viss um að jólin verði góð jólabók en viðurkennir þó að lestur jólabóka hafi minnkað og þar kennir hann snjallsímunum um. Bóksalinn gefur út 30 bækur fyrir jólin, meðal annars bók um blæðingar kvenna, sem hefur nú þegar verið tilnefnd til verðlauna. Lífið 10. desember 2023 13:15
Vildu gera alvöru partýlag fyrir jólin Rapparinn Emmsjé Gauti er kominn í partýgírinn fyrir jólin en hann var að senda frá sér lagið Partýjól ásamt Steinda Jr. og Þormóði. Lagið var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM í dag. Tónlist 9. desember 2023 17:01
Jólaljós á myrkum tímum Ég skil ekki hvernig á að vera hægt að halda jól í ár. Helmingurinn af því sem ég les á netinu er um þjóðarmorð, hinn helmingurinn um að hafa það kósí um jólin, og þar á milli ekkert nema öskrandi þögn og myrkur. Ég hef setið tvo barnamenningarviðburði nýlega, einn um bækur, hinn um bíómyndir, þar sem spurningin um muninn á að skrifa fyrir börn og fullorðna hefur komið upp. Á báðum stöðum, sama svarið: munurinn er von. Skoðun 9. desember 2023 07:00
Njóta eða þjóta á aðventu og jólum Nú er veturinn genginn í garð og rútína og hversdagsleiki orðinn fastur í sessi á flestum heimilum. Margir þekkja að það getur verið heilmikil áskorun að púsla saman öllu því sem þarf að gera í dagsins önn. Boltarnir eru oft ansi margir, bæði í einkalífi og starfi og margir þurfa að hafa sig alla við til að halda öllu gangandi. Þegar álag verður of mikið og varir of lengi getur það haft neikvæð áhrif á andlega og líkamlega heilsu okkar og við förum að finna fyrir streitu. Skoðun 8. desember 2023 21:30
Heitustu jólagjafir ársins fyrir hana Jólin nálgast nú óðfluga og er ekki seinna vænna að huga að jólagjöfum. Gjafirnar geta verið vandfundnar fyrir þá sem eru manni kærastir en mikilvægt er að minna sig á að það er hugurinn sem gildir. Lífið á Vísi tók saman lista yfir heitustu jólagjafir ársins. Jól 8. desember 2023 16:17
„Ef ég þekki mína menn rétt þá verður jólaglögg“ Litlu jól Blökastsins fara fram í annað skiptið í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi á sunnudagskvöld. Auðunn Blöndal hlakkar til að gleðja áskrifendur sína með veglegum gjöfum. Lífið 8. desember 2023 14:48
Jólalest Coca-Cola leggur af stað á morgun Jólalest Coca-Cola er fastur liður í aðventunni og á sér kæran sess í hugum margra. Í ár keyrir jólalestin sinn árlega hring um höfuðborgarsvæðið í 28. skipti á morgun, laugardaginn 9. desember. Lífið 8. desember 2023 13:56
Besta jólagjöfin Nú á dögum okkar hraða samfélags og komandi jóla er gott að huga að því hvað skiptir í raun máli. Börnin okkar vaxa úr grasi og þroskast hratt og þar á meðal málþroskinn. Skoðun 8. desember 2023 13:31
Myndaveisla: Grindvíkingar áttu hjartnæma stund saman Börn frá Grindavík brostu úr að eyrum á aðventugleði sem fram fór í dag þegar íbúar komu margir saman í fyrsta sinn frá því að bærinn var rýmdur. Lífið 7. desember 2023 22:47
Passar upp á að vera meðvitaður um forréttindi sín Tónlistarmaðurinn Gauti Þeyr, þekktur sem Emmsjé Gauti, segir spilakvöld áralanga hefð innan fjölskyldunnar á aðventunni þar sem keppnisskapið gerir vart við sig. Til að viðhalda spennunni og bæta í gleðina fyrir jólin ákvað hann og Arnar „no face“, vinur hans og meðstjórnandi hlaðvarpsins Podkastalinn, að gefa út nýtt spil. Lífið 7. desember 2023 14:32
Hlýjar jólagjafir sem gleðja Icewear býður upp á mikið úrval af hlýjum jólagjöfum á mjög breiðu verðbili þar sem allir ættu að geta fundið jólagjafir fyrir fjölskyldu og vini. Lífið samstarf 7. desember 2023 13:07
RÚV uppfærir verðskrána og hættir að rukka fyrir táknið Ríkisútvarpið hefur breytt gjaldskránni fyrir svokallaðar Jólakveðjur Ríkisútvarpsins, þar sem kveðjur landsmanna til ástvina eru lesnar upp á Rás 1 að kvöldi 22. desember og alla Þorláksmessu. Viðskipti innlent 7. desember 2023 11:40
Jólagjöf ársins 2023 Samverustund er jólagjöf ársins samkvæmt Rannsóknarsetri verslunarinnar. Þetta eru frábærar fréttir fyrir okkur og umhverfið! Rannsóknir sýna að þau sem leggja áherslu á samveru, gæðastundir og umhverfisvænni neysluvenjur eru almennt ánægðari með jólin heldur en þau sem leggja áherslu á að eyða peningum og þiggja gjafir. Skoðun 7. desember 2023 11:00
Afhendir fyrsta jólakortið á leiðinni í dag Göngugarpurinn Einar Skúlason hefur lokið um þriðjungi göngu sinnar fjórum dögum eftir að gangan hófst á mánudag, eða alls um 74 kílómetra. Hann ætlar sér að ganga 280 kílómetra frá Seyðisfirði til Akureyrar, svokallaða póstleið, á tveimur vikum. Lífið 7. desember 2023 10:56
Jólagjöfin í ár er gjafabréf á förðunarnámskeið Ertu í vandræðum með að velja jólagjöf sem hentar? Við í Eliru Beauty erum með einstakt úrval af fallegum og góðum snyrtivörum sem henta vel fyrir allan aldur. Lífið samstarf 7. desember 2023 08:52
„Ég verð meira jólabarn með hverju árinu sem líður“ Salka Sól Eyfeld tónlistarkona segist verða meira jólabarn með hverju árinu sem líður. Hún þakkar það börnunum sínum tveimur og segist kunna að meta jólahefðir foreldra sinna enn betur. Laufabrauðsgerð sé órjúfanlegur þáttur í aðdraganda jóla. Jól 7. desember 2023 07:00
Sinfóníuhljómsveit Suðurlands í Þykkvabæ Það verður líf og fjör í íþróttahúsinu í Þykkvabæ laugardaginn 9. desember klukkan 16:00 þegar Sinfóníuhljómsveit Suðurlands verður þar með stórtónleika undir stjórn Guðmundar Óla Gunnarssonar. Menning 6. desember 2023 20:15
Fullt út úr dyrum og fólk beið í röð Fullt var út úr dyrum þegar Jólasýningin í Ásmundarsal opnaði í sjötta sinn um helgina en samkvæmt forsvarsmönnum sýningarinnar var fólk byrjað að mynda röð hálftíma áður en sýningin opnaði. Menning 6. desember 2023 20:01
Jólahátíðin okkar snýr aftur Jólahátíðin okkar, jólahátíð fyrir fatlaða, snýr aftur í kvöld. Hátíðin hefur verið haldin árlega í rúma fjóra áratugi en pása var gerð á henni undanfarin ár vegna faraldurs Covid. Tónlist 6. desember 2023 17:42
Jólaísarnir frá Skúbb eiga eftir að slá í gegn Jólaísinn frá Skúbb hefur heldur betur slegið í gegn síðustu árin enda er góður jólaís ómissandi þáttur í jólahaldi landsmanna. Lífið samstarf 6. desember 2023 12:00
„Ég hlakka til að sýna henni litla landið mitt“ Tónlistarmaðurinn Auðunn Lúthersson, þekktur sem Auður, hlakkar til að verja jólunum í faðmi fjölskyldunnar og kærustunnar Cassöndru á Íslandi. Hann treður upp í Iðnó 16. desember en þetta er í fyrsta sinn sem hann spilar opinberlega á Íslandi eftir að hafa dregið sig í hlé um langt skeið. Auðunn er viðmælandi í Jólamola dagsins. Jól 6. desember 2023 11:27
Heilsusveinki vekur athygli á TikTok Hinn svokallaði Heilsusveinki hefur vakið gríðarlega athygli á samfélagsmiðlinum TikTok en við skulum skyggnast inn í heim hans og kynnast hans venjum á jólunum. Lífið samstarf 6. desember 2023 09:04
Börnin elska jólaþorpið hans afa Eitt glæsilegasta jólaþorp landsins er að finna í sjálfum höfuðstaðnum og fyllir heilt herbergi. Börnin elska meistaraverkið en mega bara horfa, ekki snerta. Jól 5. desember 2023 20:31
Leikstýrði tónlistarmyndbandi við lag pabba síns Vísir frumsýnir í dag nýtt tónlistarmyndband við lagið Sérhver jól með þér. Lagið er nýjasta afurð hljómsveitarinnar Löðurs. Tónlist 5. desember 2023 10:15
Ómissandi jólakaffi í sparilegum búningi Hið sívinsæla jólakaffi Te & Kaffi kom í verslanir á dögunum. Jólakaffið er ómissandi á mörgum heimilum á aðventunni og er að þessu sinni fáanlegt í kaffihylkjum og púðum til viðbótar við malað kaffi og baunir. Lífið samstarf 5. desember 2023 08:35
Jólatónleikar í Salnum náðu ekki flugi Rokktónlistarmaðurinn spilar þrjá hljóma fyrir þúsund áheyrendur, en djassarinn spilar þúsund hljóma fyrir þrjá áheyrendur. Þessi brandari er lýsandi fyrir það hve djassinn er miklu þróaðri og fjölbreyttari en rokkið, en líka hve hið síðarnefnda er vinsælt. Gullöld djassins er löngu liðin, en hann á sér samt ennþá aðdáendur. Fleiri en þrír áheyrendur voru á jóladjasstónleikum í Salnum í Kópavogi á föstudagskvöldið; þar var troðfullt. Gagnrýni 5. desember 2023 08:00
Setti óvart heilt bæjarfélag inn í morðöldu „Ég var náttúrulega búin að vera að skrifa um Akranes sem ég gerði mér ekki alveg grein fyrir hvað þýddi þegar ég var að skrifa fyrstu bókina. Að ég væri að taka svona heilt bæjarfélag og setja það inn í einhvers konar drápsöldu,“ segir rithöfundurinn Eva Björg Ægisdóttir í þættinum Jólasögu. Menning 5. desember 2023 07:00
„Kransarnir mínir eru fullkomlega ófullkomnir“ Lára Ósk Hjörleifsdóttir lífskúnstner og fagurkeri segir eftirspurn eftir viðburðum tengdum skreytingum og einstakri framsetningu mun meiri hér á landi en hún gerði sér grein fyrir. Í aðdraganda jóla töfrar Lára fram hvern jólakransinn á fætur öðrum. Jól 4. desember 2023 20:01