ÍBV stal þremur stigum undir lokin í Keflavík Eyjakonur lögðu Keflvíkinga 2-1 á útivelli í leik liðanna í Pepsi Max deild kvenna í knattspyrnu í kvöld. Sigurmarkið kom þegar ein mínúta var eftir af venjulegum leiktíma. Íslenski boltinn 27. maí 2021 19:30
Þróttur skoraði fimm í Garðabænum annað árið í röð Þróttur vann sinn fyrsta leik í Pepsi Max-deild kvenna á tímabilinu þegar liðið sigraði Stjörnuna, 1-5, í Garðabænum í gær. Guðjón Guðmundsson fór yfir leikinn. Íslenski boltinn 27. maí 2021 15:31
Bæði lið eiga mikið inni en eru samt á góðum stað Margrét Lára Viðarsdóttir segir erfitt að geta sér til um að hvað gerist í stærsta leik tímabilsins í Pepsi Max-deildar kvenna til þessa, milli Vals og Breiðabliks í kvöld. Íslenski boltinn 27. maí 2021 12:30
Gummi Ben: Þetta er bara ekki í lagi Guðmundur Benediktsson og sérfræðingar hans í Pepsi Max Stúkunni eru á því að Fylkismenn hafi ekki ekkert upp á Víkinga að klaga þrátt fyrir að hafa verið mjög ósáttir með mótherja sína í seinna marki Víkinga í gær. Íslenski boltinn 26. maí 2021 13:01
Lof og last: Elfar, Sævar, Jason, föst leikatriði Keflavíkur, væl Fylkis og Meistaravellir Það er leikið ört í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu og lauk 6. umferð í gærkvöld. Umferðin var leikin á tveimur dögum og hefur mikið gengið á, hér að neðan má sjá hvað á skilið lof og hvað á skilið last. Íslenski boltinn 26. maí 2021 11:01
„Ekki viss um að sumir vinnuveitendur mínir hafi vitað hvað ég heiti fullu nafni“ Óvæntasta stjarna Pepsi Max-deildar karla í sumar er líklegast stóri maðurinn í marki KA sem er samt kallaður Stubbur. Eftir að hafa leikið neðri deildunum allan sinn feril hefur Steinþór Már Auðunsson gripið sitt fyrsta tækifæri í efstu deild með báðum höndum. Íslenski boltinn 26. maí 2021 10:01
Sjáðu dramatísk jöfnunarmörk, Sævar Atla afgreiða FH og öll hin mörkin í sjöttu umferðinni Sjöttu umferð Pepsi Max deildar karla í fótbolta lauk í gær með þremur leikjum þar sem Fylkir og HK náðu jafntefli á útivelli en nýliðar Leiknis unnu athyglisverðan heimasigur á FH. Íslenski boltinn 26. maí 2021 08:01
Draga fimm leikja bann til baka Áfrýjunardómstóll KSÍ hefur fellt úr gildi úrskurð aga- og úrskurðarnefndar í máli þar sem leikmanni var gert að sæta leikbanni í fimm leiki í keppnum á vegum KSÍ og banni frá Dalvíkurvelli á meðan bannið varir. Íslenski boltinn 26. maí 2021 07:02
Umfjöllun og viðtöl: KR - HK 1-1 | Stefan bjargaði stigi fyrir HK KR og HK skildu jöfn 1-1 er þau mættust á Meistaravöllum í 6. umferð Pepsi Max-deildar karla í fótbolta í dag. Stefan Alexander Ljubicic bjargaði stigi fyrir HK undir lokin. Íslenski boltinn 25. maí 2021 22:30
Davíð Þór: Áttum ekki skilið að fá stig úr þessum leik Davíð Þór Viðarssyni, aðstoðarþjálfara FH, var ekki skemmt eftir tapið fyrir Leikni, 2-1, í kvöld. Íslenski boltinn 25. maí 2021 22:15
Kjartan Henry: Þetta er ógeðslega pirrandi „Þetta er eins svekkjandi og það gerist,“ sagði Kjartan Henry Finnbogason, leikmaður KR, eftir 1-1 jafntefli liðsins við HK á Meistaravöllum í Vesturbæ í kvöld. HK jafnaði undir lokin en KR hefur enn ekki unnið leik á heimavelli í sumar. Íslenski boltinn 25. maí 2021 22:05
Umfjöllun og viðtöl: Víkingur - Fylkir 2-2 | Nikulás bjargaði sárum Fylkismönnum Víkingur R. og Fylkir gerðu 2-2 jafntefli í Fossvogi í kvöld í leik þar sem fjörið var langmest á lokamínútunum. Þar með mistókst Víkingum að komast aftur á topp Pepsi Max-deildar karla í fótbolta. Íslenski boltinn 25. maí 2021 22:05
Sævar Atli: Getur alltaf sagt að liðsheildin sé góð en hún er virkilega góð í Efra-Breiðholtinu Sævar Atli Magnússon, fyrirliði Leiknis, brosti breitt eftir sigurinn á FH, 2-1, í kvöld. Hann skoraði bæði mörk Leiknismanna í leiknum. Íslenski boltinn 25. maí 2021 22:01
Kári hætti við landsleikina vegna Covid: „Get ekki gert Víkingi né sjálfum mér það að taka þennan séns“ Kári Árnason segir að kórónuveirufaraldurinn sé ástæða þess að hann hafi ákveðið að draga sig út úr landsliðshópnum sem mætir Mexíkó, Póllandi og Færeyjum ytra í vináttulandsleikjum á næstunni. Íslenski boltinn 25. maí 2021 21:41
Umfjöllun og viðtöl: Leiknir - FH 2-1 | Frækinn sigur Leiknismanna Sævar Atli Magnússon skoraði bæði mörk Leiknis þegar liðið vann frækinn sigur á FH, 2-1, í 6. umferð Pepsi Max-deildar karla í kvöld. Íslenski boltinn 25. maí 2021 21:37
Kári Árnason dregur sig úr landsliðshópnum Guðmundur Benediktsson fullyrti nú í kvöld að landsliðsmiðvörðurinn Kári Árnason hefði dregið sig úr íslenska landsliðshópnum sem á að mæta Mexíkó, Færeyjum og Póllandi á næstu dögum. Íslenski boltinn 25. maí 2021 20:25
Tveir Blikar fengu inngöngu í Harvard Tveir leikmenn Breiðabliks hafa fengið inngöngu í einn virtasta og frægasta háskóla heims, Harvard í Massachusetts í Bandaríkjunum. Íslenski boltinn 25. maí 2021 13:00
Fékk að vita af hverju hetja KA-manna er kallaður Stubbur Ein óvæntasta stjarnan í Pepsi Max deild karla í sumar en KA markvörðurinn Steinþór Már Auðunsson sem kom óvænt inn í liðið og hefur staðið sig frábærlega. Íslenski boltinn 25. maí 2021 11:01
Sjáðu hornin hjá Val, sigurmark í boði varamanna KA og markaveislu á Skaganum Valur, KA og Breiðablik sóttu öll þrjú stig á útivöll í Pepsi Max deild karla í fótbolta í gærkvöldi og nú er hægt að sjá mörkin úr leikjunum hér inn á Vísi. Íslenski boltinn 25. maí 2021 08:01
Vildum fá inn ferska fætur Jóhannes Karl Guðjónsson var ekki sáttur í leikslok eftir 3-2 tap ÍA gegn Breiðabliki í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu en var þó ánægður með ýmsa hluti í leik sinna manna. Íslenski boltinn 24. maí 2021 22:46
Þau mega alveg gagnrýna en ég veit alveg hvað ég get og greinilega landsliðsþjálfarinn líka Rúnar Þór Sigurgeirsson, leikmaður Keflavíkur, var ekki sáttur við 1-2 tap gegn Val í kvöld. Íslenski boltinn 24. maí 2021 22:25
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Valur 1-2 | Meistararnir unnu nýliðana í hörkuleik Valur sótti stigin þrjú í Keflavík með 1-2 sigri. Rasmus Christiansen og Birkir Már Sævarsson sáu um mörkin fyrir gestina en Joey Gibbs minnkaði muninn fyrir heimamenn. Íslenski boltinn 24. maí 2021 22:15
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - KA 0-1 | Enn bíður Stjarnan fyrsta sigursins KA vann 1-0 sigur á Stjörnunni í 6. umferð Pepsi Max-deildar karla á Samsung-vellinum í Garðabæ í kvöld. Stjarnan leitar enn að sínum fyrsta sigri í deildinni. Íslenski boltinn 24. maí 2021 21:45
Umfjöllun og viðtal: ÍA - Breiðablik 2-3 | Breiðablik kláraði ÍA í seinni hálfleik Flóðgáttirnar gáfu sig í síðari hálfleik upp á Skaga þar sem Breiðablik vann 3-2 sigur á heimamönnum í ÍA er liðin mættust í Pepsi Max deild karla í kvöld. Íslenski boltinn 24. maí 2021 21:15
Lof og last: Reynsla Víkinga, miðvarðarpar KR, Kórinn, varnarleikur Keflavíkur og andleysi Garðbæinga Fimmtu umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu lauk á laugardag. Það hefur mikið gengið á undanfarna daga og hér að neðan má sjá hvað á skilið lof, hvað á skilið last og hvað flokkast sem hvorki né. Íslenski boltinn 24. maí 2021 10:00
„Rétt að byrja en fyrstu kynni eru góð“ Matthías Vilhjálmsson, framherji FH-inga var ekki sáttur með frammistöðu liðsins á Kaplakrikavelli í dag er liðið tapaði 2-0 fyrir KR í stórleik 5. umferðar Pepsi Max deildar karla. Íslenski boltinn 22. maí 2021 19:13
„Gerðum það sem við þurftum til að vinna leikinn“ Rúnar Kristinsson var ánægður með frammistöðu síns liðs þegar KR-ingar unnu FH á Kaplakrikavelli í dag. Íslenski boltinn 22. maí 2021 18:24
Umfjöllun og viðtöl: FH - KR 0-2 | Auðvelt hjá KR í Krikanum KR, sem hafði ekki unnið síðan í 1. umferð, lenti ekki í miklum vandræðum með FH í Kaplakrika í stórleik 5. umferðar. Íslenski boltinn 22. maí 2021 17:55
Sjáðu öll mörk gærkvöldsins í Pepsi Max-deild karla Fimm leikir voru á dagskrá í Pepsi Max-deild karla í fótbolta í gærkvöld þar sem 16 mörk voru skoruð. Hér má sjá þau öll. Íslenski boltinn 22. maí 2021 11:31
Hrósuðu leikstíl Tindastóls sem og fjölda uppaldra leikmanna Farið var yfir lið Tindastóls í síðasta þætti Pepsi Max Markanna og þá sérstaklega 2-1 sigur liðsins á ÍBV nýverið. Nýliðarnir fengu mikið hrós fyrir gott upplegg og fjölda heimakvenna sem spila með liðinu. Íslenski boltinn 22. maí 2021 08:00