Þarf að grisja trjálundinn eftir að nágrannaerjur fóru fyrir dóm Íbúi í einbýlishúsi í Hjallahverfi Kópavogs hefur þrjá mánuði til þess að klippa trjágróður í trjálundi við húsið og á lóðamörkum við nærliggjandi parhús niður í ákveðna hæð, ella sæta dagsektum, eftir að nágrannaerjur um hæð gróðursins fóru fyrir dóm. Íbúinn þarf jafn framt að greiða nágrönnum sínum 1,6 milljónir króna í málskostnað vegna málsins. Tilraunir til sátta báru ekki árangur. Innlent 6. janúar 2023 07:02
Vilja frekar vera í fangelsi en á götunni Dæmi eru um að fangar vilji ekki ljúka afplánun þar sem þeir hafa ekki í nein hús að venda eftir fangelsisvist. Þeir sæki því ekki um reynslulausn og í einstaka tilvikum brjóti viljandi af sér í fangelsinu til að lengja dóminn. Verkefnastjóri Rauða krossins segir skort á húsnæði stærsta vandamál sem þessi hópur fólks glími við. Innlent 5. janúar 2023 23:00
Svikarar narra leigjendur í neyð með fölskum gylliboðum Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segir að um alveg sérlega ósvífna tegund af svikastarfsemi sé að ræða en brögð eru að því að óprúttnir hrappar geri út á neyð leigjenda. Þeir auglýsa íbúðir til leigu, sem er tilbúningur en heimta sérstakt umsóknargjald svo leigjendur eigi möguleika á að sækja um íbúðina. Innlent 5. janúar 2023 12:47
Viðbúið að heimilin muni færa sig í auknum mæli yfir í verðtryggð lán Verðtryggð lán njóta aukinna vinsælda um þessar mundir að sögn hagfræðings hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Vextir á verðtryggðum lánum séu hagkvæmari og það hafi ekki sést í nokkur ár en fæstir geti fjármagnað íbúðakaup með óverðtryggðu láni. Viðbúið sé að heimili muni í auknum mæli færa sig yfir í verðtryggð lán, sem Seðlabankastjóri hefur sagst hafa áhyggjur af. Viðskipti innlent 23. desember 2022 13:30
Ófögur reynslusaga af samskiptum við leigufélagið Ölmu Katrín María Blöndal hefur hörmungasögu að segja af samskiptum sínum við leigufélagið Ölmu sem hefur verið mjög í deiglunni að undanförnu vegna hækkunar á leigu og hörku í samskiptum við leigjendur sína. Katrín María telur einsýnt að þar á bæ sé hugsað um eitt og aðeins eitt; að græða á þeim sem minna mega sín. Innlent 23. desember 2022 09:49
Íbúðum í sölu fjölgar og færri seljast yfir ásettu verði Íbúðum í sölu hefur fjölgað en þær eru nú 2.392 á landinu öllu en voru 2.145 í byrjun nóvember. Þar af eru 1.429 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu og hefur þeim fjölgað um 112. Viðskipti innlent 23. desember 2022 06:42
Verðbólgan mjakast upp á við og mælist 9,6 prósent Verðbólga síðustu tólf mánaða hækkaði lítillega á milli mánaða. Mælist hún nú 9,6 prósent en stóð í 9,3 prósent í síðasta mánuði. Viðskipti innlent 22. desember 2022 09:12
Alma hækkar leigu úkraínskra flóttamanna að meðaltali um 83 prósent Til stendur að leiguverð sextán íbúða sem úkraínskir flóttamenn hafa verið að leigja hækki um allt að 116 prósent. Íbúarnir hafa hingað til leigt af félaginu Einhorn en Alma leigufélag tekur yfir útleiguna í byrjun apríl á næsta ári. Innlent 21. desember 2022 17:43
Verð sérbýla leiðir lækkun íbúðaverðs Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,3 prósent í nóvember frá október. Ástæða lækkunarinnar er 1,2 prósent lækkun verðs sérbýla en verð íbúða í fjölbýli stendur í stað. Viðskipti innlent 21. desember 2022 11:43
Verðmæti bensínstöðvalóðanna sjö til átta milljarðar Fyrirhugað er að byggja um það bil 700 til 800 íbúðir á ellefu lóðum í Reykjavík, þar sem áður voru bensínstöðvar. Lóðirnar telja samtals um 40 þúsund fermetra. Innlent 21. desember 2022 06:52
Borgin ryður land fyrir 7-9 þúsund nýjar íbúðir og atvinnuhúsnæði Nýtt hverfi með sjö til níu þúsund íbúðum fyrir um tuttugu þúsund íbúa mun rísa á næstu árum á Keldnalandi. Formaður borgarráðs er bjartsýnn á að byggingaframkvæmdir geti hafist eftir um tvö ár en uppbyggingin er mjög tengd borgarlínu. Innlent 20. desember 2022 19:31
Nýtt hverfi í Reykjavík rís á Keldnalandinu Á næstu árum mun rísa nýtt hverfi á Keldum og Keldnaholti en ríkið afsalaði sér landinu með formlegum hætti til Betri samgangna ohf. í gær. Skipulagsvinna hefst strax á næsta ári en svæðið er sagt vera álíka stórt og miðborg Reykjavíkur. Innlent 20. desember 2022 12:35
Verðbólgin heimili Hversu mörg heimili standa óvarin þegar stýrivextir eru hækkaðir? Ég leitaðist við að fá þessu svarað í haust þegar Seðlabanki kom á fund fjárlaganefndar með fyrirspurn um hversu stórt hlutfall heimila er með óverðtryggð lán á breytilögum vöxtum. Skoðun 15. desember 2022 08:02
Samstarf um stöðugleika Þegar ég bauð mig fram til Alþingis síðastliðið haust var það vegna þess að ég vildi gera vel. Ástandið í heiminum hefur haft áhrif á efnahagsástandið hér á landi sem og annar staðar. Við getum þó ornað okkur við það að allar líkur eru á að um tímabundið ástand sé að ræða, staða ríkissjóðs er mun sterkari en áður var gert ráð fyrir og viðsnúningur getur því orðið hraður þegar ástandið færist aftur í eðlilegt horf. Við þurfum þó að stíga varlega til jarðar næstu mánuði, tryggja stöðugleika og ná niður verðbólgu og vöxtum. Skoðun 14. desember 2022 17:01
Vanskil heimila og fyrirtækja lægri en fyrir faraldurinn Vanskil heimila og fyrirtækja hjá stóru viðskiptabönkunum þremur eru nú lægri en fyrir heimsfaraldurinn. Þá er atvinnuleysi lítið í kjölfar kraftmikillar fjölgunar starfa að undanförnu. Innlent 14. desember 2022 11:20
Biðst afsökunar á ónærgætni við tilkynningu um hækkun leiguverðs Formaður stjórnar Ölmu leigufélags biðst afsökunar á því að hafa ekki sýnt nægilega nærgætni þegar leigjanda hjá félaginu var tilkynnt um þrjátíu prósent hækkun á leiguverði. Hann segir að búið sé að endurskoða verkferla fyrirtækisins og uppfæra þá. Viðskipti innlent 14. desember 2022 11:02
„Óásættanleg“ framganga leigufélaga Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir framgöngu sumra leigufélaga óásættanlega. Hún hvetur leigufélög til að axla ábyrgð og sýna hófstillingu. Vinna við endurskoðun húsaleigulaga hefst fljótlega. Innlent 13. desember 2022 22:57
„Þetta eru plástrar á svöðusár“ Ásthildur Lóa Þórsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna og þingmaður Flokks fólksins, segir að þær aðgerðir sem ríkisstjórnin kynnti í gær vegna kjarasamninga sýni að hún geri sér enga grein fyrir því hversu slæmt ástandið sé á mörgum heimilum hér á landi Innlent 13. desember 2022 15:21
Nú hægt að fylgjast með íbúðauppbyggingu í rauntíma Nýtt gagnvirkt Íslandskort Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) er komið í loftið. Þar er hægt að skoða öll byggingaráform á landinu í rauntíma sem og skoða allar íbúðir í byggingu. Hingað til hafa upplýsingarnar einungis verið birtar tvisvar á ári. Tölfræðingur hjá HMS segir að kortið verði mikilvægt stjórntæki á sviði húsnæðismála. Innlent 13. desember 2022 12:16
Segja óhóflegar hækkanir óásættanlegar og vilja leiguþak Þingmenn Flokks Fólksins, Samfylkingar og Vinstri grænna eru sammála um að setja þurfi á leiguþak eða grípa til sambærilegra aðgerða til að bregðast við stöðunni á leigumarkaði. Þingmaður Vinstri grænna á von á að hugað verði að því á næstunni. Þingmaður Samfylkingarinnar segir ríkisstjórnina hafa getað komið í veg fyrir stöðuna en þau hafi svikið loforð um leigubremsu. Innlent 11. desember 2022 16:00
Uppgangur og íbúðaskortur í Ísafjarðarbæ Eftir áratuga fólksfækkun er íbúum aftur farið að fjölga í Ísafjarðarbæ og nú er íbúðaskortur á svæðinu. Bæjarstjóri segir þetta nýja og spennandi stöðu. Þétta þurfi byggð og stækka eyrina í Skutulsfirði í náinni framtíð. Innlent 10. desember 2022 19:31
Landsbankinn hækkar vexti Vextir Landsbankans hækka frá og með 12. desember næstkomandi. Breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum hækka um 0,25 prósentustig, sem og breytilegir vextir á verðtryggðum íbúðalánum. Viðskipti innlent 9. desember 2022 15:04
Segir félagið nauðbeygt til að hækka leiguverð Stjórnendur Ölmu leigufélags segjast nauðbeygðir til að hækka leiguverð á þeim samningum sem eru að renna út en segja að félagið muni eftir fremstu megni reyna að halda þeim hækkunum í lágmarki. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Ingólfi Árna Gunnarsyni, framkvæmdastjóra Ölmu en Ingólfur hefur ekki viljað ræða við fréttastofu vegna nýlegrar hækkunar á leigu öryrkja sem leigt hefur íbúð hjá félaginu undanfarin ár. Innlent 8. desember 2022 18:55
Brynja fær íbúð en óttast einangrun á Ásbrú Brynja Hrönn Bjarnadóttir, 65 ára öryrki sem fékk 30 prósenta hækkun á leiguverði í hausinn frá leigufélaginu Ölmu, flytur eftir tvær vikur úr Reykjavík á Ásbrú. Hún er þakklát að vera komin með nýja íbúð en kvíðir einangrun á Suðurnesjum enda geti hún ekki ekið bíl sjálf. Innlent 8. desember 2022 15:45
Framkvæmdastjóri Ölmu í felum og neitar að svara spurningum Framkvæmdastjóri leigufélagsins Ölmu hefur ekki viljað ræða við fréttastofu vegna nýlegrar hækkunar á leigu öryrkja sem leigt hefur íbúð hjá félaginu undanfarin ár. Fjármálaráðherra segir hækkunina óforsvaranlega og formaður VR hefur kallað eftir neyðarlögum á leigufélög. Viðskipti innlent 8. desember 2022 13:14
Bjarni segir umdeilda hækkun á leiguverði óforsvaranlega Fjármálaráðherra telur umdeilda hækkun íbúðafélagsins Ölmu á leiguverði óforsvaranlega. Þingmaður Flokks fólksins krefst þess að sett verði neyðarlög til þess að vernda leigjendur gegn gegndarlausum hækkunum. Innlent 8. desember 2022 11:50
Leigufélag með methagnað krefur öryrkja um þriðjungs hækkun Þrátt fyrir að Íbúðafélagið Alma hafi skilað 12,4 milljarða methagnaði á síðasta ári hækkar félagið leigu hjá sínu fólki um þriðjung eftir áramót. Öryrki segist ekki geta greitt leiguna og sér fram á að lenda á götunni. Innlent 7. desember 2022 19:00
Kallar eftir neyðarlögum um leigufélög og myndarlegri aðkomu ríkisins Formaður VR segir að það muni líklega ekki taka lengri tíma en daginn í dag til að meta hvort flötur sé á samningi við Samtök atvinnulífsins. Hann segir gríðarlega mikilvægt að ríkisstjórnin liðki fyrir viðræðum og helst með neyðarlögum um leigufélög. Staða til dæmis leigjenda og fólks með húsnæðislán með breytilegum vöxtum sé alvarlegri en svo að kjarasamningar einir og sér dugi til. Innlent 7. desember 2022 13:27
„Fólk sem fórnar öllu til að geta staðið í skilum og á svo varla fyrir mat“ „Þetta er einfaldlega raunveruleikinn hjá fólki á leigumarkaði. Þetta er svo langt frá því að vera eina dæmið,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR í samtali við Vísi. Ragnar birti fyrr í dag færslu á facebook þar sem hann vakti athygli á dapurlegri stöðu 65 ára íslenskrar konu sem sér sig tilneydda til að segja upp samningi sínum við Ölmu leigufélag þar sem mánaðarleigan hefur rokið upp úr öllu valdi. Innlent 6. desember 2022 23:00
Leigufélag lækkar leiguna um þriðjung í desember Leigufélagið Bríet hyggst veita leigjendum sínum 30 prósenta afslátt af leigu nú í desembermánuði. Leigutökum var tilkynnt þetta bréfleiðis í morgun og ættu þeir að sjá lægri upphæðir en vanalega á greiðsluseðlum í heimabankanum sínum. Viðskipti innlent 30. nóvember 2022 08:05