Engum til gagns Það er óðs manns æði að reyna að fara í stígvél hollenska brjálæðingsins Pauls Verhoeven, en hann leikstýrði vöðvabúntinu Arnold Schwarzenegger í kvikmyndinni Total Recall árið 1990. Leikstjórinn Len Wiseman reynir það engu að síður og kallar það nýja uppfærslu á smásögunni sem gamla myndin er byggð á. Gott og vel, við leyfum honum það. Gagnrýni 13. ágúst 2012 22:00
Margt leynist í mixinu Fín plata frá Beatmakin Troopa. Maður heyrir vel að þeir félagar Troopa og Þorkell hafa legið yfir hverju hljóði. Hljómburðurinn er líka mjög góður og það leynast mörg flott hljóð í mixinu þegar vel er hlustað. Gagnrýni 13. ágúst 2012 14:00
Sjónlistalíf á Akureyri Listagilið, Deiglan og Sundlaug Akureyrar Listagilið á Akureyri iðar af myndlistar- og sjónlistalífi þessa dagana, upp úr og niður úr. Gagnrýni 10. ágúst 2012 21:30
Skemmtilegur subbuskapur Exorcist-kempan William Friedkin nálgast nú áttrætt en heldur sig við efnið og sendir nú frá sér hina subbulegu Killer Joe. Myndin hlaut hinn óvinsæla NC-17 stimpil frá kvikmyndaeftirlitinu vestanhafs, en það þýðir að engum undir 17 ára aldri er hleypt inn á myndina. Aldurstakmarkið getur haft í för með sér umtalsvert tekjutap fyrir framleiðendur en engu að síður var Killer Joe látin flakka óstytt í bíó. Gagnrýni 5. ágúst 2012 08:00
Billy Corgan í fínu formi Besta Smashing Pumpkins-platan í langan tíma. Lagasmíðarnar eru margar fínar og platan hefur ágætt heildaryfirbragð. Þetta er ekkert meistarastykki, en gamlir aðdáendur ættu ekki að hika við að bæta Oceaniu í safnið. Gagnrýni 3. ágúst 2012 20:00
Kátir og klúrir Klaufar Tónlistin á Óbyggðum er íslenskt kántrípopp. Stemningin á plötunni minnir svolítið á gamlar íslenskar stuð- og sveitaballagrúppur: Það er sungið um vín og víf, skálað og slegist. Klaufar eru líka stundum klúrir og grípa tækifærið til að vera tvíræðir. Þetta er ágætis gleðipoppplata. Lögin eru mörg fín og þó að Klaufar séu ekki að gera neitt nýtt þá gera þeir vel það sem þeir eru að gera. Á heildina litið þokkalegasta poppplata. Gagnrýni 2. ágúst 2012 21:00
Annar hljómur, sömu lætin Einar Örn og Curver fá hjálp frá David Byrne, Alan Vega og fleiri góðum gestum á nýju plötunni. Á heildina litið er Division of Culture and Tourism mjög flott Ghostigital-plata og ein af bestu plötum ársins til þessa. Tónlist Ghostigital er óvægin og höfðar ekki til allra. Hún fer seint í síspilun á Bylgjunni. Allir þeir sem eru til í smá læti ættu hins vegar hiklaust að tékka á þessari nýju plötu. Gagnrýni 2. ágúst 2012 11:00
Hljómsveit sem eldist með reisn Fleiri frábær lög og textar frá Magga Eiríks og Pálma Gunn. Í blómabrekkunni er fín Mannakornaplata. Lög og textar svíkja ekki, útsetningarnar eru hágæða og tilgerðarlausar og Pálmi syngur jafn vel og áður. Gagnrýni 1. ágúst 2012 22:00
Hví svo alvarlegur? Helst til þunglamalegur lokakafli en mikil veisla fyrir augað. Mig langar þó að þakka Nolan fyrir metnaðarfulla seríu og þá sérstaklega fyrir miðjumyndina. Honum hefur svo sannarlega tekist að leiðrétta mistök forvera síns, leikstjórans Joel Schumacher, sem breytti uppáhalds ofurhetjunni minni í súrrealískt BDSM-sirkusatriði og lét sauma á hana leðurgeirvörtur. Gagnrýni 1. ágúst 2012 11:00
Ekki krúttlegur lengur Átta ára að aldri óskaði John Bennett þess að bangsinn hans lifnaði við. Óskin rættist og krúttbangsinn Ted vann hug og hjarta heimsbyggðarinnar. En síðan eru liðin tæp þrjátíu ár og í dag eru félagarnir lítið krúttlegir. Þeir sitja bólufreðnir öllum stundum fyrir framan sjónvarpið, Ted er orðinn mikill strigakjaftur og kærasta Johns er orðin þreytt á bangsanum. Gagnrýni 14. júlí 2012 11:00
Lói fyrir lengra komna Sorrí Tobey Maguire, en nú sést það enn betur hvað þú varst lélegur Spædermann. Það bendir ýmislegt til þess að Kóngulóarmaðurinn eigi bjarta framtíð fyrir sér á þessum trausta grunni sem hér er byggður. Brellurnar eru fyrsta flokks og brandararnir til staðar. Það sem skiptir þó lykilmáli er að Lói er loksins orðinn bíóhetja sem haldandi er með. Gagnrýni 6. júlí 2012 12:00
Þessi afmarkaða stund Ansi hreint góð ljóðabók, þar sem allir bestu kostir skáldsins Braga Ólafssonar njóta sín. Bragi er hæglátur og heillandi höfundur. Hann hefur þetta „eitthvað“ sem veldur því að maður staldrar alltaf við, til að fylgjast með og lesa það sem hann skrifar. Hingað til sýnist mér hann hafa nýtt tíma sinn vel og hann er vinsamlegast beðinn að halda því áfram. Og yrkja. Gagnrýni 5. júlí 2012 14:30
Útpælt og proggað popp Skolli fín plata. Ein af þeim betri það sem af er árs. Maður fylgir hljómsveitinni í gegnum söguna og hvert margkaflaskipt lagið á fætur öðru. Lögin eru öll góð, þó að maður grípi þau misfljótt. Gagnrýni 4. júlí 2012 10:45
Fjölbreytt fullorðinspopp Hljómsveitin Melchior starfaði upphaflega á áttunda áratugnum, en kom saman fyrir nokkrum árum og tók upp plötuna Melchior sem kom út fyrir þremur árum. Nú er sveitin búin að gera plötu númer tvö á þessu seinna skeiði og það er auðheyrt á laga- og textasmíðunum á Matur fyrir tvo að meðlimir hennar þjást ekki af skrifteppu. Gagnrýni 28. júní 2012 10:00
Buslað í barnalauginni Gamanmyndin What to Expect When You're Expecting er byggð á gamalli amerískri óléttuhandbók og snertir á helstu flötum þess að ganga með barn og koma því í heiminn. Ágætis óléttugrín sem skilur þó alla eftir ósnortna. Gagnrýni 25. júní 2012 11:30
Bætir, hressir og kætir Franska gamanmyndin Intouchables segir frá smákrimmanum Driss sem gerist aðstoðarmaður lamaða auðmannsins Phillippe. Sá ríki er einmana en nokkuð brattur, harðneitar að láta vorkenna sér, er mikill menningarviti og fer bæði í óperuna og á málverkasýningar. Driss er hins vegar dóni og letihaugur, en með gott hjarta. Þrátt fyrir ólíka skapgerð og þjóðfélagsstöðu verða þeir hinir mestu mátar og eins og í öllum alvöru andstæðumyndum ná þeir á endanum að læra eilítið hvor af öðrum. Gagnrýni 21. júní 2012 11:00
Einfalt en margslungið Þriðja plata Hildar Guðnadóttur fyrir Touch-útgáfuna er athyglisvert sambland af raftónlist og nýklassík. Á heildina litið er þetta mjög flott verk sem virkar best spilað á góðum styrk. Í senn einfalt og margslungið. Gagnrýni 20. júní 2012 06:00
Í hjarta veraldar Besta bók Elísabetar. Einlægur og fallegur texti og knöpp ljóð með sterku myndmáli sem fara með lesandann í ferðalag inn í hjarta veraldar. Gagnrýni 18. júní 2012 17:30
Dáleiðandi lágtækni Á hinu annars ruglingslega og óaðlaðandi Hlemmsvæði í Reykjavík, er hægt að njóta myndlistar í nokkrum mæli. Svæðið hefur enda í áratugi verið í nágrenni við merkar listastofnanir eins og Myndlista- og handíðaskólann – síðar Listaháskólann og Kjarvalsstaði, að ógleymdu Gallerí Hlemmi sem rekið var um nokkurt skeið við Hlemmtorgið. Gagnrýni 14. júní 2012 12:30
Tilfinningarík og persónuleg Það var ólík sýn sem beið manns þegar maður gekk inn í Elborgarsal Hörpu á laugardagskvöldið, heldur en á tónleikum Bryans Ferry um daginn eða á Hljómskálatónleikunum. Á sviðinu voru bara tveir stólar, eitt lítið borð með drykkjum á, þrír hljóðnemar og nokkrir litlir sviðshátalarar. Gagnrýni 13. júní 2012 20:00
Eins manns stórskotalið Hljóðhnökrar og pirringur í upphafi viku fyrir samblandi af eldmóði og reynslu Costello. Frábærir tónleikar. Elvis var einn á sviðinu í hartnær þrjá klukkustundir og lagði allt sitt í giggið svo rann af honum svitinn, sem er alltaf jafn mikið ánægjuefni. Gagnrýni 12. júní 2012 11:00
Grúví danspopp Hárdoktorinn Jón Atli og Gísli Galdur með flotta rafpoppplötu. Lögin eru misgóð og sums staðar mætti vera aðeins meiri kraftur, en á heildina litið er þetta samt mjög fín danspoppplata sem óhætt er að mæla með. Gagnrýni 11. júní 2012 16:00
Alþjóðlegt fjölbragðapopp Tónlist Kiriyama Family er mjög skemmtilegt sambland af tónlist ólíkra áhrifavalda, en í henni felst líka ný nálgun á viðfangsefnið. Þetta er tækifærissinnuð tónlist í bestu merkingu þess orðs. Ég er strax farinn að hlakka til að heyra meira! Gagnrýni 8. júní 2012 14:00
Köld krumla fortíðarinnar Dauði næturgalans er þriðja bókin sem fjallar um dönsku hjúkrunarkonuna Ninu Borg. Hún starfar í búðum fyrir flóttamenn í Kaupmannahöfn og fléttast inn í þeirra flækjur og fortíð. Nina er ágætlega uppbyggður karakter og hennar flókna sambandi við sjálfa sig og þörfina til að bjarga heiminum eru vel gerð skil í bókinni. Gagnrýni 8. júní 2012 06:00
Frændinn loks mættur Prometheus er áhugaverð og kærkomin, sérstaklega ef bág staða vísindaskáldskapar nútímans er tekin með í reikninginn. Það er þó ekki sjálfgefið að ástríðufyllstu aðdáendur Alien-seríunnar taki þessum náskylda frænda opnum örmum, þó hans hafi verið beðið í ofvæni. Umgjörðin er glæsileg og andrúmsloftið þrælmagnað. Þess vegna á Prometheus skilið svo miklu vandaðra handrit. Gagnrýni 7. júní 2012 20:00
Sígildar vangaveltur Myndlistarþáttur Listahátíðar í Reykjavík í ár heitir (I)ndependent People, eða Sjálfstætt fólk. Skírskotunin í Ísland, Íslendinga, íslenska þjóðarsál (er hún til?) og jafnvel íslenska pólitík samtímans er ekki víðsfjarri í íslenska heitinu, en í því enska er snúið upp á hugmyndina með því að taka I-ið í Independent út fyrir sviga, eða sjálfið tekið úr sjálfstæðinu. Þessar vangaveltur um sjálfið í samhengi við hópinn sem það tilheyrir, eða tilheyrir ekki, eru sígildar, en framsetningin í þessari sýningu er á margan hátt nútímaleg. Gagnrýni 7. júní 2012 06:00
Fínir Hljómskálafélagar Listahátíðardagskrá Hljómskálans í Hörpu tókst prýðilega. Á dagskránni voru ný og gömul lög og nokkur þeirra laga sem sérstaklega hafa verið samin fyrir sjónvarpsþættina. Tónleikarnir fóru rólega af stað og í byrjun var hljómburðurinn í salnum slæmur, a.m.k. þar sem ég sat á ellefta bekk. Maður hafði smá áhyggjur af því að þetta yrði sundurklippt og fullt af kynningum þar sem tónleikunum var sjónvarpað beint, en þær áhyggjur voru óþarfar; tónleikaformið var tekið fram yfir sjónvarpsþáttaformið og tónlistin fékk að hljóma án truflana. Gagnrýni 6. júní 2012 20:00
Skemmtilegur trúðleikur Leikrit Hallgríms H. Helgasonar um þessa tvo í raun einmana menn er sneisafullt af snjöllum tengingum og margt í samskiptum þeirra botnar í ýmsu sem gerst hefur hér á landi. Manni varð hugsað til margra þekktra tvíeykja í bókmenntum og bíómyndum, og hvernig annar nær valdi yfir hinum er sérlega vel gert. Skemmtilegur trúðaleikur, aðeins of lengi í gang, en sprenghlægilegur í lokin. Gagnrýni 6. júní 2012 06:00
Sviplaust og leiðinlegt Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands á Listahátíð var boðið upp á stórvirkið Rómeó og Júlíu eftir Berlioz. Því hefði betur verið sleppt. Litlaus túlkun hljómsveitarstjóra, drafandi kórsöngur og mistækir einsöngvarar. Gagnrýni 5. júní 2012 20:00
Hugljúfur Hemingway Hinn snjalli brúðulistamaður Bernd Ogrodnik hefur enn og aftur dottið niður á góða frásögn sem smellur að aðferðum hans við sína listsköpun. Í agnarlitlu þorpi á suðrænum slóðum hanga nokkur hvítkölkuð hús á sjávarkambi, fyrir utan er hafið endalaust, stórt og magnað. Inni í einu þessara litlu húsa býr hann, þessi maður sem leggst til atlögu við stóra og kannski stærsta fiskinn í sjónum. Gagnrýni 5. júní 2012 10:00