Gagnrýni

Gamaldags byrjandaverk

Ingo Hansen skrifar
Ingólfur Páll Matthíasson er 22 ára Akureyringur sem kallar sig Ingo Hansen.
Ingólfur Páll Matthíasson er 22 ára Akureyringur sem kallar sig Ingo Hansen.
Ingólfur Páll Matthíasson er 22 ára Akureyringur sem kallar sig Ingo Hansen. Hann gaf nýlega út sína fyrstu plötu, Walking Up The Wall. Öll lög og textar á plötunni eru eftir Ingó sjálfan, en það var Kristján Edelstein sem sá um útsetningar, upptökur og hljóðblöndun.

Lögin hans Ingós sækja fast í rokkhefðina og uppstillingarnar af honum á plötuumslaginu vísa líka í stórvirki úr rokksögunni (Born to Run á bakhliðinni!) Það má segja að Ingó sé gamaldags bæði í tónlist og textum. Hann er efnilegur lagasmiður og það er greinilegt að hann gefur sig allan í verkefnið. Hann mætti samt alveg leggja meira í textana, þeir eru ekki upp á marga fiska.

Útsetningar Kristjáns eru ágætar og það sama má segja um flutninginn. Þetta er ekki frumleg plata á nokkurn hátt, en hún er heiðarleg. Ingo Hansen er efnilegur höfundur og flytjandi. Hann á eflaust eftir að gera miklu betri plötu seinna á ferlinum.

Trausti Júlíusson






Fleiri fréttir

Sjá meira


×