Góðir grænjaxlar Trausti Júlíusson skrifar 15. ágúst 2012 00:01 Skemmtilegt Early Birds með Múm inniheldur skemmtileg lög frá mótunarárum sveitarinnar.
Tónlist. Early Birds. Múm. Morr music. Kimi Records Early Birds inniheldur fimmtán lög sem Gunnar Örn Tynes og Örvar Þóreyjarson Smárason hljóðrituðu á árunum 1998 – 2000. Einhver þessara laga voru gefin út í takmörkuðu upplagi, en önnur eru nú að koma út í fyrsta sinn. Þarna eru meðal annars lög sem komu út á 10" vínylplötu, lög sem voru samin fyrir leikrit (Bláa hattinn sem Andri Snær samdi og skólaleikritið Náttúruóperuna) og eitt laganna fylgdi með teiknimyndasögunni Asnakjálkar í apabúningum, sem Lóa Hjálmtýsdóttir teiknaði. Gunnar Örn og Örvar eru auðvitað forsprakkar hljómsveitarinnar múm sem hljóðritaði flest þessara laga, en þó er þarna að minnsta kosti eitt lag sem þeir gerðu með hljómsveitinni sem þeir voru í á undan múm, Andhéra. Early Birds er bráðskemmtileg plata. Tónlistin á henni er tekin upp áður en múm-hljómurinn varð til, áður en þeir Gunnar Örn og Örvar fundu fjölina sína. Á henni ægir saman alls kyns hlutum. Þetta er tilraunamennskan og gerjunin sem á endanum skapaði þá múm sem við heyrðum í á fyrstu plötunni Yesterday Was Dramatic, Today Is OK. Lokalagið á Early Birds, Enginn vildi hlusta á fiðlunginn, því strengir hans vóru slitnir – getiði ekki verið góð við mömmu okkar? (ég veit, langt nafn, en of skemmtilegt til að sleppa því) var einmitt á Yesterday Was Dramatic í nýrri útgáfu og með öðru nafni. Á Early Birds heyrast meðal annars drum and bass-taktar, sýrukenndir og æstir tónar, frumstæð raftónlist og brakandi og lágstemmd lög í ætt við sumt af því sem síðar kom frá sveitinni. Í gegnum alla tilraunamennskuna heyrist samt tilfinningin fyrir melódíunni sem einkennir tónlist múm. Early Birds er safn af lögum frá frumskeiði múm. Þetta eru ekki eintóm meistaraverk, en platan er engu að síður skemmtileg. Þetta eru góðir grænjaxlar. Niðurstaða: Bak þitt er sem rennibraut, 0,000 orð, Póst póstmaður og fleiri skemmtileg lög frá mótunarárum hljómsveitarinnar múm
Mest lesið Var mjög heit fyrir lýtalækninum Lífið „Samband okkar hefur alltaf verið flókið“ Lífið Eiður Smári og Halla Vilhjálms í skíðaævintýri Lífið Sturla elti Tinder-ástina til paradísarstrandar í Mexíkó Lífið Ævintýrapar selur fallega fyrstu eign Lífið Stórmyndir í útrýmingarhættu Lífið Eiginmaður Dolly Parton er látinn Lífið Hefndi kossins með kossi Lífið Flytur ekki inn í lúxusíbúðina Lífið Gæðadýnur á frábæru verði! Lífið samstarf Fleiri fréttir Tveggja barna miðaldra móðir sem er sjúk í strákinn Ævar vísindamaður í miðaldrakrísu Dansandi lögreglukór og fangarnir í Sniglabandinu Fyrirsjáanlegt fjölskyldudrama Bob og Robbie í bobba Fleetwood Mac: Þegar eftirlíkingin verður betri en raunveruleikinn Sjá meira