Fastir pennar

Fastir pennar

Fréttamynd

Deilan um „óreiðumannastefnuna“

Lítið jafnvægi er í Evrópusambandsumræðunni. Aðildarandstaðan hefur skýrt markmið og lýtur sterkri pólitískri forystu sem hefur verið miklu fyrirferðarmeiri en ríkisstjórnin. Aðild er á hinn bóginn ekki markmið ríkisstjórnarinnar. Hún ber aðeins embættislega ábyrgð á að framkvæma ákvörðun Alþingis um aðildarviðræður sem samþykkt var án sameiginlegs skilnings um markmið.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ráðherrann og fyrirspyrjandinn

Fyrirspurnir alþingismanna til ráðherra eru mikilvægur þáttur í aðhaldi þingsins með framkvæmdarvaldinu. Þessi réttur þingmanna er þó stundum misnotaður; stundum liggja svörin þegar fyrir og stundum spyrja þeir spurninga sem leiða af sér mikla vinnu fyrir ráðuneytin án þess að við blasi að upplýsingarnar skipti miklu máli.

Fastir pennar
Fréttamynd

Maðurinn í myndinni

Maður sést misþyrma átta ára barni á hreyfimynd. Á myndinni er hægt að þekkja bæði mann og barn. Það er því miður ekki hægt á flestum þess konar myndum sem rekur á fjörur lögreglunnar, hvað þá að hægt sé að rekja viðkomandi einstaklinga til ákveðins heimilisfangs. Þegar hægt er að bera kennsl á mann, barn og athæfi á hreyfimyndum er líka hægt að sanna svo ekki sé um villst að glæpur hafi verið framinn og réttvísin hlýtur að ganga hreint til sinnar fyrstu skyldu: að vernda samfélagið.

Bakþankar
Fréttamynd

Dómskerfi nr. 2

Það fyrirkomulag sem viðhaft er við ákærur og dómsmál á hendur ráðherrum hérlendis og í nokkrum nágrannalanda virkar hvorki sérlega rökrétt né raunar sérlega geðslegt. Hvorki ákæruferlið né dómsferlið samræmast hugmyndum um hvernig best skuli staðið að slíkum málum innan réttarkerfisins. Betra væri að hafa eitt dómskerfi í landinu en tvö.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hvað er áróður?

Deilan um auglýsingar alþjóðlegu dýraverndunarsamtakanna IFAW og Samtaka hvalaskoðunarfyrirtækja í Leifsstöð er áhugaverð. Í auglýsingunum voru ferðamenn hvattir til að skoða hvali fremur en að leggja sér þá til munns. Fólk var hvatt til að yfirgefa ekki Ísland með óbragð í munni.

Fastir pennar
Fréttamynd

Forsetaþingræði á Íslandi

Eins og prófessorarnir Sigurður Líndal og Svanur Kristjánsson hafa lýst öðrum betur í ræðu og riti, hafa margir haft rangar hugmyndir um stjórnarskrárbreytinguna, sem samþykkt var í þjóðaratkvæðagreiðslu 1944. Sumir hafa haldið því fram, og margir virðast enn halda, að stjórnarskrárbreytingin 1944 hafi verið gerð í skyndingu og án vandlegrar umræðu; að fyrir og eftir breytinguna hafi landið í megindráttum haft sömu stjórnskipun, þingræðisstjórn; og að forseti Íslands væri valdalítill þjóðhöfðingi samkvæmt stjórnarskránni og einnig í reynd. Ekkert af þessu er þó rétt.

Fastir pennar
Fréttamynd

Sjálfsfróun og kynhneigð

Hæ Sigga, mig langar að vita hvað er að vera bi-curious og hversu mörgum líður þannig? Er þetta algeng tilfinning og fylgir fólk henni eftir?

Fastir pennar
Fréttamynd

Vandinn í raun

Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Framsóknarflokksins og formaður Heimssýnar, spurði í grein hér í blaðinu í gær: "Hver er í raun vandi Grikkja?“ Greininni lauk hann reyndar án þess að svara spurningunni, en helzt var á honum að skilja að vandinn væri í því fólginn að hið vonda Evrópusamband skipaði nú Grikkjum að skera niður ríkisútgjöld og einkavæða ríkisfyrirtæki.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hetjur óskast

Ég minnist stúlku, sem óð inn í miðjan strákahóp til að verja varnarlausan dreng. Hún sýndi hugrekki. Ég minnist félaga, sem hjólaði í valdakerfi og forkólfa þess vegna þess að honum misbauð óréttlæti. Ég veit um nokkur, sem hafa staðið með fórnarlömbum þrátt fyrir hæðnisglósur og þrýsting. Þau eru hetjur og ég dáist að þeim.

Bakþankar
Fréttamynd

Skylda að ná góðum samningi

Nýtt skeið í aðildarviðræðum Íslands og Evrópusambandsins hófst í gær. Þá lauk formlega rýnivinnunni þar sem löggjöf Íslands og ESB var borin saman og hinar eiginlegu samningaviðræður hófust.

Fastir pennar
Fréttamynd

Hjálpi þeim hver heilagur

Ég fer að sofa klukkan ellefu á kvöldin. Ég borða hollt og reglulega, vinn sjö tíma á dag og flæki ekki líf mitt að óþörfu. Með þessu móti get ég ágætlega sinnt starfi og foreldrahlutverki. Ef vinnudagarnir vinda aukaklukkustundum upp á sig sést það fljótt. Skrifborðið mitt fer að líkjast kókkæli eftir jarðskjálfta, heilinn, sem þráir hvíld, gerir mér skráveifur og prófarkalesarar reyta hár sitt. Að slíkum vinnuvikum loknum líður mér eins og eftir endajaxlatöku og ég legg ekki í einn auman þvottabala.

Bakþankar
Fréttamynd

Nauðsynlegt að börnin segi frá

Fréttaflutningur af kynferðisbrotum innan kaþólsku kirkjunnar hefur vakið sérlega mikinn óhug meðal fólks undanfarnar tvær vikur. Í kjölfar góðrar umfjöllunar Þóru Tómasdóttur á Fréttatímanum hefur opnast flóðgátt og tugir fyrrverandi nemenda í Landakotsskóla hafa greint frá ofbeldisverkum fólksins sem þar stjórnaði, þó fæstir þeirra hafi lent í kynferðislegu ofbeldi. Fólkið sem um ræðir er á öllum aldri og var í skólanum allt fram á þessa öld.

Fastir pennar
Fréttamynd

Alræðisríkið í Landakoti

Þeir voru með ýmsu móti kennararnir mínir í Vogaskóla. Einn grét í tímum. Annar var stundum kenndur og fór einu sinni að segja okkur frá alveg pottþéttri aðferð sem hann kynni við að sigra alltaf í fjárhættuspili en til allrar hamingju var ég of lélegur í reikningi til að ná að tileinka mér fræðin; annar stærðfræðikennari niðurlægði valda nemendur jafnan uppi við

Fastir pennar
Fréttamynd

Sjávarútvegsstefnan útilokar ESB-aðild

Álit hagfræðinganefndarinnar um áhrif sjávarútvegsstefnu ríkisstjórnarinnar á þjóðarhag hefur eðlilega vakið athygli. Það dregur skýrt fram þann skaða sem þjóðarbúið verður fyrir. Enginn ágreiningur er um þá niðurstöðu. En eins og oft áður lítur þó hver sínum augum silfrið.

Fastir pennar
Fréttamynd

Allt annað mál

Sú yfirlýsing RÚV að stöðin myndi ekki sýna barnaþætti þar sem erlendum orðum er skotið í samræður, gjarnan í kennsluskyni, er án efa með fýlupúkalegri fréttum á þeim hluta ársins 2011 sem er að líða.

Fastir pennar
Fréttamynd

Kjötkatli lokað

Alþingismenn tóku rétta ákvörðun þegar þeir urðu sammála um að hætta að úthluta sjálfir alls konar smástyrkjum til góðra mála, eins og venjan hefur verið lengi. Eins og Fréttablaðið sagði frá í gær hefur fjárlaganefnd nú ákveðið að færa þessa úthlutun frá þinginu og í hendur sjóða, sveitarfélaga og ráðuneyta.

Fastir pennar
Fréttamynd

Tegundinni útrýmt?

Tvær fréttir vöktu sérstaka athygli mína síðustu daga, þegar blöðunum var flett yfir fyrsta kaffibolla dagsins. Fréttirnar eru annars vegar að sjötíu prósent dýrara er að aka hringinn í kringum Ísland og hins vegar að kjördæmapot hafi nú verið upprætt af fjárlaganefnd.

Bakþankar
Fréttamynd

Starfinu miðar áfram

Hvar sem ég kem verð ég var við áhuga fólks á störfum Stjórnlagaráðs. Gagnlegar athugasemdir og ábendingar berast dag hvern frá almenningi inn á vef ráðsins og eftir öðrum leiðum. Á fyrri tíð kom fyrir, að stjórnlagaþing þurftu að koma saman á afskekktum stöðum til að fá frið fyrir ágangi kröfuharðra hagsmunahópa. Svo er ekki nú. Við komum saman á opnum fundum í alfaraleið og bjóðum öllum, sem þess óska, að leggja hönd á plóg. Endurskoðun stjórnarskrárinnar er samstarfsverkefni, þar sem margir koma að málum. Þess vegna höfum við óskað eftir að hafa þjóðina með í ráðum skref fyrir skref frá upphafi til enda frekar en að vinna fyrir luktum dyrum og leggja fram fullmótaðar tillögur að loknu verki. Allir hafa aðgang að Stjórnlagaráði. Útlendingar hafa sýnt þessu opna vinnulagi áhuga og sagt frá því í erlendum blöðum og sjónvarpi.

Fastir pennar
Fréttamynd

Af hverju leynd?

Fréttir Fréttablaðsins af stundvísi flugfélaga hafa vakið talsverða athygli og viðbrögð. Blaðið sagði frá því í fyrradag að yfir sumarmánuðina, þegar ferðalög landsmanna eru í hámarki, var í fyrra einungis rúmlega þriðjungur flugferða Iceland Express um Keflavíkurflugvöll á áætlun og tæplega 74 prósent ferða Icelandair. Hins vegar var norræna flugfélagið SAS á áætlun í rúmlega 93 prósentum tilvika.

Fastir pennar
Fréttamynd

Eltingaleikur við sólina

"Við eltum bara góða veðrið,“ segja Íslendingar gjarnan glaðir í bragði þegar þeir eru inntir eftir því hvert eigi að halda í sumarfríinu. Enda ekki annað hægt, veður eru ótrygg í meira lagi á skerinu og erfitt að stóla á marga sólardaga í röð á sama stað. Við höfum því vanið okkur á að haga seglum eftir vindi. Pökkum bæði sandölum og síðerma peysum og eigum flest frostþolna svefnpoka fyrir tjaldferðir. Til útlanda er heldur ekki auðvelt að komast, flugmiðar kosta hönd og löpp og ekki eru margir möguleikar sjóleiðis. Við sitjum í fjötrum á okkar fjarlægu eyju en reynum að gera gott úr því.

Bakþankar
Fréttamynd

Banvænt daður

Fáir þora að segja nokkuð um það upphátt af ótta við að vera uppnefndir kaldrifjaðir markaðsdýrkendur og frjálshyggjublesar – eða jafnvel bara almennir lúsablesar. En það er hvíslað í myrkustu skúmaskotum samkvæma, á kaffistofunni í gætilega völdum félagsskap, í heita pottinum eftir að óþekktu andlitin fara upp úr. Spurningin liggur í loftinu: Hvað er málið með landsbyggðina?

Bakþankar
Fréttamynd

Sáttaleiðin

Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, hefur nú sagt sitt álit á hugmyndum ríkisstjórnarinnar um róttækar breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Það er mjög samhljóða skýrslu innlendra hagfræðinga, sem sjávarútvegsráðherra fékk til að rýna frumvarp sitt til breytinga á fiskveiðistjórnunarlögunum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Manndómur

Stundum finnst manni sumir stjórnmálamenn og smáhópar innan stjórnmálahreyfinga gera lítinn greinarmun á stjórnmálaflokki og sértrúarsöfnuði. Standa eins og hundar á roði á kennisetningum og trúa því að það sé af hugsjón og heiðarleika, eða yfirburða vitsmunum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Gerum við okkar bezta?

Í tilefni af alþjóðadegi flóttamanna í gær birti Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) skýrslu um stöðu flóttamanna á heimsvísu. Þar eru ýmsar sláandi upplýsingar. Þegar Flóttamannahjálpin var stofnuð fyrir 60 árum fór hún með mál um 2,1 milljónar flóttamanna, sem hafði hrakizt frá heimilum sínum vegna ófriðarins í Evrópu. Nú er hins vegar talið að flóttamenn séu tæplega 44 milljónir.

Fastir pennar
Fréttamynd

Aðskiljum til jöfnuðar

Það er kannski eins og að sparka í liggjandi trúarsöfnuð að ætla að tjá sig um málefni þjóðkirkjunnar nú um stundir. Hins vegar er erfitt að láta undir hælinn leggjast að velta fyrir sér málefnum þeirrar stofnunar nú um stundir. Látum vera hennar innri málefni, sem mér sem utan hennar stendur ættu ekki að koma við. Um þau mega innanbúðarmenn véla að vild. Verra þykir mér þegar þeir gera það á launum frá mér og hvorki ég, né þeir fulltrúar sem ég kýs til að hafa áhrif fyrir mína hönd, fá um það ráðið. mönnum kann að þykja ýmislegt um þjóðkirkjuna.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ísland í öfganna rás

Það sem okkur tókst að barma okkur yfir þessu kalda vori. Þrátt fyrir velbyggðu húsin og upphituðu bílana leið okkur eins og við værum tötrumklæddir niðursetningar sem sendir hefðu verið upp á heiði í leitir frostaveturinn mikla og ættum von á kalsárum frá tám og upp undir handarkrika. Okkur tók sárar að sjá hitastigið falla en gengi íslensku krónunnar, enda ef til vill orðin því vön. "Það var búið að lofa / hnattrænni hlýnun,“ segir í Júníhreti, ljóði Gyrðis Elíassonar úr Nokkrum almennum orðum um kulnun sólar. Margir hafa eflaust hugsað svipað.

Bakþankar