Svala stendur þétt við bak kærastans Svala Björgvinsdóttir söngkona segir kærasta sinn eina yndislegustu manneskju sem hún þekki. Þetta segir Svala á Instagram-síðu sinni þar sem hún bregst við fréttaflutningi af ákæru á hendur kærastanum Kristjáni Einari Sigurbjörnssyni. Lífið 6. desember 2020 17:34
Ólögmætt uppgreiðslugjald Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt uppgreiðslugjald lánþega á lánum sem tekin voru hjá Íbúðalánasjóði (ÍLS) á árunum 2005-13 ólögleg. ÍLS var óheimilt að krefja lánþega um greiðslu uppgreiðslugjalda þegar þeir greiddu lán sín upp. Skoðun 6. desember 2020 10:01
Fögnuðu óvæntum sigri í máli sem gæti kostað ríkið milljarða Kona sem lagði Íbúðalánasjóð í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær segist ekki hafa átt von á niðurstöðunni, en dómurinn er sagður marka tímamót og gæti kostað ríkissjóð á annan tug milljarða. Dómurinn sé sigur fyrir lántakendur. Viðskipti innlent 5. desember 2020 12:42
Sitja uppi með tífaldan málskostnað eftir að hafa neitað að greiða 80 þúsund króna skuld Eignarhaldsfélagið Summus hefur verið dæmt til að greiða tryggingarfélaginu Verði 80 þúsund króna skuld sem félögin tókust á um fyrir dómi. Summus þarf einnig að greiða Verði 800 þúsund krónur í málskostnað, tífalda þá upphæð sem deilt var um. Viðskipti innlent 5. desember 2020 09:30
Sagði 497 símtöl á 23 dögum tengjast „bílaviðskiptum“ Héraðsdómur Reykjavíkur taldi félagana Matthías Jón Karlsson og Vygantas Visinskis ekki eiga sér neinar málsbætur í stórfelldu fíkniefnamáli, sem þeir voru dæmdir í fjögurra og tæplega sex ára fangelsi fyrir í dag. Matthías og Vygantas hringdust á 497 sinnum á 23 daga tímabili í vor en sá síðarnefndi sagði að símtölin hefðu tengst „bílaviðskiptum.“ Innlent 4. desember 2020 22:09
„Í dag er fallinn tímamótadómur“ Ríkissjóður gæti þurft að greiða lántakendum hjá Íbúðalánasjóði (nú ÍL-sjóðs) á annan tug milljarða eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi uppgreiðsluþóknun sjóðsins ólögmæta í dag. Lögmaður segir þetta tímamótadóm og mikinn sigur fyrir lántakendur. Viðskipti innlent 4. desember 2020 18:30
Sýknaður af brotum gegn dóttur fyrrverandi sambýliskonu Landsréttur staðfesti sýknu karlmanns sem var ákærður fyrir að misnota dóttur fyrrverandi sambýliskonu sinnar kynferðislega þegar hún var níu til ellefu ára gömul í dag. Innlent 4. desember 2020 16:46
Sakfelldur fyrir manndráp af gáleysi en heldur ökuréttindum fyrir mistök Landsréttur staðfesti í dag dóm yfir karlmanni fyrir manndráp af gáleysi í október 2018. Var hann sakfelldur fyrir að hafa ekið bíl sínum yfir á rangan vegarhelming á Reykjanesbraut í Hafnarfirði með þeim afleiðingum að árekstur varð við bíl sem kom úr gagnstæðri átt. Innlent 4. desember 2020 16:31
Gagnaversþjófur fékk tæplega sex ára dóm í dópmáli Matthías Jón Karlsson, sem hlaut dóm í Bitcoin-málinu svokallaða, hefur verið dæmdur í fimm ára og níu mánaða fangelsi fyrir stórfellda fíkniefnaframleiðslu. Vygantas Viskinskis hlaut fjögurra ára dóm í málinu. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Innlent 4. desember 2020 16:07
Studdust við staðsetningarforrit og leituðu án leyfis í herbergi hælisleitenda Tekist verður á um það í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur hversu háa fjárhæð tveir hælisleitendur fá í skaðabætur frá ríkinu vegna fjölmennrar leitar lögreglu að síma sem grunur var um að stolið hefði verið af barni í Reykjanesbæ. Innlent 4. desember 2020 09:01
Fagnar því að neytandinn hafi haft sigur Formaður Neytendasamtakanna fagnar dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli konu, sem neitað var um að fá hægindastól afhentan sem hún greiddi að stærstum hluta fyrir með inneignarnótum og gjafabréfi. Hann segir málið ódæmigert; flest mál sem tengist inneignarnótum og rati inn á borð samtakanna varði gildistíma. Viðskipti innlent 3. desember 2020 21:21
Fær loksins milljón króna hægindastólinn sem hún keypti með inneignarnótum Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Pennann ehf. í síðustu viku til að afhenda konu milljón króna hægindastól, sem hún greiddi nær alfarið fyrir með inneignarnótum og gjafabréfi. Penninn vildi ekki afhenda konunni stólinn og bar því fyrir sig að konan hefði fengið inneignarnóturnar með „óeðlilegum hætti“ á skiptibókamarkaði, auk þess sem þær mætti ekki nota til húsgagnakaupa. Neytendur 3. desember 2020 18:13
Segja af og frá að lögregla leiti Samherjamanna Í yfirlýsingu frá Samherja segir að ekkert sé hæft í fréttaflutningi um að namibíska lögreglan leiti starfsmanna fyrirtækisins. Innlent 3. desember 2020 16:05
Þinghald verður opið í Bræðraborgarstígsmálinu Þinghald verður opið í máli Marek Moszczynski, karlmanns á sjötugsaldri sem ákærður er fyrir manndráp og íkveikju á Bræðraborgarstíg í sumar. Svo segir í úrskurði Landsréttar sem staðfesti niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis. Verjandi Mareks hafði farið fram á að þinghaldi yrði lokað þegar hann og geðlæknar gæfu skýrslu. Innlent 3. desember 2020 15:36
Dómsmálaráðuneytið þarf frí frá Sjálfstæðisflokknum Helga Vala Helgadóttir, þingman Samfylkingarinnar, telur afar mikilvægt að dómsmálaráðuneytið fái frí frá Sjálfstæðisflokknum næstu kjörtímabil. Skoðun 3. desember 2020 14:43
Ákærður fyrir að stefna lífi starfsmanna í hættu með húsnæði Eigandi starfsmannaleigunnar 2findjob ehf. hefur verið ákærður fyrir hættubrot og brot gegn lögum um brunavarnir með því að hafa látið starfsmenn leigunnar búa í iðnaðarhúsnæði í Reykjavík án tilskilinna leyfa og fullnægjandi brunavarna. Hann er sakaður um að hafa stofnað lífi og heilsu starfsmannanna í háska í ábataskyni. Innlent 3. desember 2020 10:54
Séra Skírnir stefnir Agnesi og þjóðkirkjunni Fyrrverandi héraðsprestur á Suðurlandi hefur stefnt biskupi Íslands og þjóðkirkjunni og fer fram á tæplega tíu milljónir króna í miska- og skaðabætur. Hann telur þau bera ábyrgð á skaða sem hann hafi hlotið vegna færslu í embætti árið 2015, í kjölfar kvörtunar hans vegna eineltis, og svo brottrekstri úr kirkjunni fyrr á árinu. Innlent 2. desember 2020 16:48
Jón Páll áfrýjar nauðgunardómnum Jón Páll Eyjólfsson, fyrrverandi leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, ætlar að áfrýja skilorðsbundnum fangelsisdómi fyrir nauðgun sem hann hlaut í Héraðsdómi Reykjavíkur á mánudag. Þetta segir Björgvin Jónsson, lögmaður Jóns Páls, í samtali við Ríkisútvarpið. Innlent 1. desember 2020 23:55
Beit lögreglumann eftir að upp úr sauð í pottapartýi Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær konu í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að bíta lögreglumann í höndina. Lögregla var kölluð til í útskriftarveislu konunnar, sem varð að „pottapartýi“ líkt og lýst er í dómi, hvar upp úr sauð með fyrrgreindum afleiðingum. Innlent 1. desember 2020 21:42
Lýsti í afmæli sínu hvernig afi léti sig strjúka „upp og niður“ Karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að brjóta gegn stúlkubarni sem leit á hann sem afa sinn. Þá var hann sömuleiðis dæmdur fyrir vörslu og áhorf á myndir sem sýndu börn á kynferðislegan hátt. Hann var dæmdur til að greiða stúlkunni 1,5 milljónir króna í miskabætur. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Innlent 1. desember 2020 15:36
Ríkið dæmt til að greiða Elko 18,7 milljónir Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt íslenska ríkið til að greiða Elko hf, rekstraraðila raftækjaverslana Elko, 18,7 milljónir vegna ólögmætrar gjaldtöku ríkisins í tengslum við innflutning á raftækjum. Viðskipti innlent 1. desember 2020 14:52
Sigríður segir dóm Mannréttindadómstólsins engu breyta Sigríður Andersen segir dóm yfirdeildar Mannréttindadómstólsins ekki koma á óvart. Hún hafi sinnt rannsóknarskyldu sinni og dómur Hæstaréttar um hæfni dómara við Landsrétt gildi. Ríkinu sé ekki gerð skaðabótaskylda með niðursötu yfirdeildarinnar og því þurfi ekki að taka upp mál fyrir Landsrétti. Innlent 1. desember 2020 12:22
Fékk „hálfgert taugaáfall“ nóttina eftir sautján tíma frelsissviptingu og barsmíðar Karlmaður á fertugsaldri, sem ákærður er fyrir að hafa ráðist á leigusala sinn í júní, er einnig ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og frelsissviptingu gegn félaga sínum í íbúð í Bríetartúni í Reykjavík í apríl. Félaginn lýsti því fyrir dómi í síðustu viku að maðurinn hefði bundið sig, lamið með kúbeini og haldið honum föngnum í íbúðinni í rúman hálfan sólarhring. Innlent 30. nóvember 2020 21:37
Brotaþolar geti fylgst með máli sínu í stafrænni gátt Unnið er að uppsetningu rafrænnar gáttar þar sem þolendum kynferðisbrota verður gert kleift að fylgjast með framgangi mála sinna þannig að þeir geti fylgst með því hvar mál þeirra er statt í ferlinu. Innlent 30. nóvember 2020 21:13
Jón Páll dæmdur fyrir að hafa nauðgað konu árið 2008 Jón Páll Eyjólfsson, fyrrverandi leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs skilorðsbundið fangelsi fyrir nauðgun. Brotið átti sér stað fyrir tólf árum eða árið 2008. Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm sinn síðdegis og staðfestir niðurstöðuna skriflega við fréttastofu. Innlent 30. nóvember 2020 17:17
Fagnar sigri og biður þolendur ofbeldis að gefast ekki upp Rúmlega fimm ára baráttu Rúnu Guðmundsdóttur við kerfið lauk í gær þegar Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi fyrrverandi sambýlismann hennar til þess að greiða henni 1,3 milljónir í skaðabætur vegna heimilisofbeldis. Rúna segir þungu fargi af sér létt, það sé ómetanlegt að kerfið viðurkenni að hún hafi verið beitt ranglæti. Innlent 28. nóvember 2020 23:20
Nauðgaði tvisvar sömu nótt en á skilorði vegna dráttar á máli Landsréttur hefur staðfest 18 mánaða fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjaness yfir manni sem gerðist sekur um að nauðga fyrrverandi unnustu sinni í tvígang. Landsréttur mildar hins vegar refsingu að því leyti að dómurinn skuli skilorðsbundinn til tveggja ára vegna verulegs dráttar á meðferð málsins. Innlent 28. nóvember 2020 13:37
Refsingu frestað fyrir mótmæli í flugvél Icelandair Landsréttur hefur komist að þeirri niðurstöðu að fresta refsingu Jórunnar Eddu Helgadóttur og Ragnheiðar Freyju Kristínardóttur og skilorðsbinda til tveggja ára. Innlent 27. nóvember 2020 15:12
Uppfletting landamæravarðar í LÖKE fer fyrir Hæstarétt Hæstiréttur hefur veitt landamæraverði áfrýjunarleyfi sem dæmdur var fyrir að brot í opinberu starfi. Þetta kemur fram á vef Hæstaréttar en rétturinn tekur fyrir minnihluta þeirra mála sem dæmd hafa verið í Landsrétti. Þá helst ef málin hafa fordæmisgildi. Innlent 27. nóvember 2020 13:00
Lýsti því eins og í dýralífsþætti þegar hún horfði í augun á árásarmanninum Kona sem varð fyrir hnífaárás í íbúð sinni við Langholtsveg í sumar segist viss um að hún hefði látið lífið í árásinni, sem leigjandi hennar til skamms tíma er ákærður fyrir, ef ekki hefði verið fyrir snör viðbrögð af hennar hálfu. Hún lýsir því að hún hafi vikið sér undan ítrekuðum atlögum mannsins og varðist einnig hnífsstungum með þvottakörfu. Atburðarásin hafi verið óraunveruleg og maðurinn ítrekað hótað henni lífláti. Innlent 27. nóvember 2020 07:00
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent