Mikið réttlætismál að MS sæti ábyrgð á brotum sínum Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í morgun frávísunarkröfu MS í máli Mjólku gegn MS. Stofnandi Mjólku fagnar úrskurðinum. Viðskipti innlent 2. júní 2021 16:28
Ákært í Eyjum fyrir nauðgun um verslunarmannahelgi Karlmaður hefur verið ákærður fyrir nauðgun gegn fimmtán ára stúlku. Stúlkan hlaut áverka á kynfærum og endaþarmi og klórför á baki. Innlent 2. júní 2021 14:13
Enskur táningur dæmdur fyrir að hafa ráðist á íslenska ferðamenn Enskur táningur var dæmdur á föstudag í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ráðist á tvo íslenska karlmenn í Brighton á Englandi. Dómari í málinu sagði að árásin væri þess eðlis að hann ætti að sitja í fangelsi en erfið fortíð piltsins hafi haft áhrif á ákvörðun hans um refsingu. Erlent 1. júní 2021 23:22
Sakfelldur fyrir nauðgun í héraðsdómi, sýknaður í Landsrétti og Hæstiréttur tekur áfrýjun ekki fyrir Hæstiréttur Íslands hefur neitað að taka fyrir áfrýjun máls þar sem maður var sýknaður í Landsrétti af nauðgun. Landsréttur sneri niðurstöðu Héraðsdóms, sem hafði sakfellt manninn en honum var gert að hafa stungið fingrum inn í leggöng konu á meðan hún var sofandi. Innlent 1. júní 2021 21:16
Níu mánaða fangelsi fyrir að brjóta á þremur börnum í Austurbæjarskóla Karlmaður var í dag dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir að hafa brotið á þremur börnum í Austurbæjarskóla haustið 2019. Maðurinn var einnig dæmdur til að greiða einu barnanna, sem var níu ára þegar brotið átti sér stað, hálfa milljón króna í miskabætur. Innlent 1. júní 2021 20:56
Menntasjóður námsmanna áfrýjar dómi héraðsdóms í ábyrgðarmannamáli Menntasjóður námsmanna hyggst áfrýja nýlegum dómi Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem sjóðurinn tapaði máli gegn ábyrgðarmanni námsláns. Innlent 1. júní 2021 12:34
Skotfélagið skaut sig í fótinn þegar það rak Stefán Rúnar úr félaginu Í vikunni féll dómur í héraði þar sem Skotíþróttafélag Kópavogs var dæmt til að greiða Stefáni Rúnari Bjarnasyni húsasmíðameistara bætur vegna ólögmætrar brottvikningar úr félaginu. Innlent 30. maí 2021 08:01
Ársfangelsi fyrir að koma ekki konu með eitrun til bjargar Landsréttur þyngdi fangelsisdóm yfir Kristjáni Markúsi Sívarssyni fyrir að hafa ekki komið barnsmóður sinni sem lést vegna alvarlegrar kókaíneitrunar undir læknishendur úr þremur mánuðum í tólf í dag. Almenn hegningarlög kveða á um skyldu til athafna við lífsháska. Innlent 28. maí 2021 18:59
Bætur hækkaðar vegna uppsagnar hjá Hagstofunni Íslenska ríkið hefur verið dæmt til að greiða tveimur fyrrverandi starfsmönnum Hagstofu Íslands sex milljónir króna í skaðabætur og 750 þúsund krónur í miskabætur vegna ólögmætrar uppsagnar árið 2018. Innlent 28. maí 2021 16:05
Sigurjón þarf að greiða fimmtíu milljónir vegna láns til Björgólfs Sigurjón Þorvaldur Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, var í dag dæmdur til að greiða slitastjórn bankans fimmtíu milljónir króna í skaðabætur. Með vöxtum og dráttarvöxtum nemur upphæðin vel á annað hundrað milljón króna. Viðskipti innlent 28. maí 2021 14:46
„Ekki einn maður haldið því fram að þetta sé sanngjarnt“ Lögmaður hjóna sem fögnuðu sigri í deilu við Íbúðalánasjóð vegna uppgreiðslugjalds sem metið var ólögmætt í héraðsdómi í desember segir nýfallinn dóm fullskipaðs Hæstarétts í málinu mikil vonbrigði. Dómurinn féll Íbúðalánasjóði í vil. Innlent 27. maí 2021 16:21
Viðsnúningur í Hæstarétti vegna uppgreiðsluþóknunar Íbúðalánasjóðs Hæstiréttur sýknaði í dag Íbúðalánasjóð í einu máli er varðaði uppgreiðsluþóknun sjóðsins og ómerkti dóm í öðru og vísaði til meðferðar í héraði á nýjan leik. Héraðsdómur hafði áður komist að þeirri niðurstöðu að uppgreiðsluþóknun Íbúðalánasjóðs hefði verið ólögmæt. Innlent 27. maí 2021 14:38
Skrautlegri sögu félags forstöðumanns Zuism lokið Einkahlutafélagið RH16 sem var í eigu Ágústs Arnars Ágústssonar, forstöðumanns trúfélagsins Zuism, hefur verið úrskurðað gjaldþrota. Það var meðal annars notað til að taka á móti fjármunum sem Ágúst Arnar er sakaður um að hafa tekið sér úr sjóðum félagsins, Viðskipti innlent 26. maí 2021 19:58
Satanisti einu skrefi nær draumanafninu Lúsífer Héraðsdómur Reykjavíkur felldi í gær úr gildi úrskurð mannanafnanefndar um að Ingólfur Örn Friðriksson mætti ekki bera nafnið Lúsífer. Innlent 26. maí 2021 15:24
Sannfærður um spillingu í Hæstarétti: Ný kynslóð elítu í dómskerfinu Skúli Gunnar Sigfússon, oftast kenndur við skyndibitakeðjuna Subway, kveðst sannfærður um að vinfengi Benedikts Bogasonar, forseta Hæstaréttar, og Sveins Andra Sveinssonar lögmanns hafi ráðið úrslitum í dómi sem féll gegn honum í vetur. Hann er viss um að mikil spilling þrífist í íslenska dómskerfinu. Innlent 26. maí 2021 07:02
„Sveinn Andri Sveinsson og Benni Boga eru saman” Það mátti greina glott á íhyglislegu andliti Benedikts Bogasonar, forseta Hæstaréttar, þegar hann las upp dóm yfir mér í Hæstarétti í vetur leið, þar sem mér var gert að greiða um hálfan milljarð til þrotabús EK 1923 ehf. (áður Eggert Kristjánsson hf. heildsala). Skoðun 26. maí 2021 07:01
Ríkissaksóknari fær ekki svör og segist ekki geta sinnt eftirlitsskyldum sínum Lögregla og héraðssaksóknari óskuðu 314 sinnum eftir heimild dómstóla til að beita rannsóknarúrræðum árið 2020 í alls 76 málum. Óskað var 413 aðgerða en 388 voru nýttar. Í 25 tilvikum var ekkert framkvæmt. Innlent 26. maí 2021 06:53
Dæmdur nauðgari fær ekki áheyrn í Hæstarétti Hæstiréttur hefur hafnað beiðni karlmanns um áfrýjunarleyfi sem sakfelldur var fyrir nauðgun á tveimur dómstigum. Rétturinn telur málið ekki hafa verulega almenna þýðingu eða að meðferð málsins fyrir dómum hafi verið stórlega ábótavant. Innlent 25. maí 2021 11:24
„Mjög sterk og ákveðin sýkna“ Bjarnfreður Ólafsson, lögmaður Sigur Rósar, segir kærkomið og löngu tímabært að meðlimir hljómsveitarinnar hafi verið sýknaðir fyrir dómstólum af ásökunum um skattalagabrot. Innlent 25. maí 2021 11:06
Tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að ganga í skrokk á eiginkonu sinni Karlmaður var dæmdur í 2,5 árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir stórfellda líkamsárás á eiginkonu sína á Hótel Borg í Reykjavík í lok janúar. Innlent 25. maí 2021 10:26
Liðsmenn Sigur Rósar sýknaðir í héraði Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í morgun fjóra liðsmenn hljómsveitarinnar Sigur Rósar af ákæru um stórfelld skattsvik. Viðskipti innlent 25. maí 2021 10:10
Angjelin játar en segist hafa verið einn að verki Angjelin Serkaj segist hafa verið einn að verki þegar hann réð Armando Beqirai bana í Rauðagerði laugardagskvöldið 13. febrúar síðastliðinn. Innlent 25. maí 2021 08:40
Atburðarásinni í Rauðagerðismálinu lýst í ákæru Morðið á Armando Beqirai var skipulagt og fylgst var með ferðum hans kvöldið sem hann var myrtur, ef marka má ákæru héraðssaksóknara í Rauðagerðismálinu svokallaða. Innlent 25. maí 2021 07:22
Ákærðu krafin um tæplega 70 milljónir í bætur Þau fjögur sem ákærð eru fyrir að hafa myrt Armando Beqirai í Rauðagerði laugardagskvöldið 13. febrúar síðastliðinn eru sameiginlega krafin um rúmlega 68 milljónir í bætur ásamt vöxtum. Þetta kemur fram í ákæru á hendur fjórmenningunum sem Vísir hefur undir höndum. Innlent 24. maí 2021 15:46
Sýknaður af ákæru um nauðgun í Landsrétti Karlmaður var sýknaður af ákæru um nauðgun í Landsrétti í gær. Dómararnir voru þó ekki allir sammála um niðurstöðu í málinu en einn þeirra skilaði inn sératkvæði. Málinu var skotið til landsréttar eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi manninn sekan í febrúar á síðasta ári. Innlent 22. maí 2021 09:43
Kristján Einar sýknaður af ákæru um líkamsárás Kristján Einar Sigurbjörnsson, unnusti söngkonunnar Svölu Björgvinsdóttur, var í dag sýknaður af ákæru um líkamsárás í Landsrétti. Dómi héraðsdóms í málinu var þannig snúið við en Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Kristján Einar fyrir líkamsárásina í desember 2019. Innlent 21. maí 2021 20:41
Verður ekki sendur aftur heim þar sem hann var pyntaður Hælisleitandi frá Sri Lanka, sem synjað var um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi í ágúst 2018, mun ekki þurfa að fara úr landi. Þetta dæmdi Landsréttur í dag. Maðurinn er talinn í verulegri hættu í heimalandi sínu en hann tilheyrir þar minnihlutahópi og segist hafa verið pyntaður í haldi yfirvalda. Innlent 21. maí 2021 16:04
Jón Ársæll sýknaður í máli vegna Paradísarheimtar Jón Ársæll Þórðarson, Steingrímur Jón Þórðarson og Ríkisútvarpið hafa verið sýknuð í einkamáli sem viðmælandi í sjónvarpsþáttunum Paradísarheimt höfðaði á hendur þeim. Var krafist fjögurra milljóna króna miskabóta og sagði konan viðtöl við sig hafa verið birt án samþykkis hennar. Innlent 20. maí 2021 12:26
Í fangelsi í tvö og hálft ár fyrir nauðgun Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Augustin Dufatanye í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa nauðgað konu. Hann verður þá að greiða út tæpa fimm og hálfa milljón vegna málsins, þar á meðal 1,8 milljón til konunnar í miskabætur og tæpar fjórar milljónir fyrir allan sakarkostnað. Innlent 19. maí 2021 18:44
Kröfu um vanhæfni meðdómsmanns í morðmáli hafnað Hæstiréttur hefur hafnað kröfu verjanda mannsins, sem var dæmdur í 14 ára fangelsi í héraði fyrir að hafa banað eiginkonu sinni í Sandgerði í fyrra, um að sérfróður meðdómsmaður viki sæti í málinu fyrir Landsrétti. Verjandinn taldi tengsl meðdómsmannsins við þá sem hafa komið að dómi og rannsókn málsins, þar á meðal réttarmeinafræðingsins sem krufði konuna. Innlent 19. maí 2021 17:51
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent