„Fyrir mér virðist ég vera mjög auðvelt fórnarlamb“ Tæplega fimmtugur karlmaður sem er grunaður um að hafa stungið karlmann að tilefnislausu á gatnamótum Hofsvallagötu og Hringbrautar í Reykjavík um nótt í janúar lýsir sjálfum sér sem venjulegum fjölskylduföður. Hann segist vera fórnarlamb í málinu. Brotaþoli hlaut lífshættulega áverka. Innlent 9. september 2024 11:12
Stal verðmætum fyrir 6,3 milljónir á tveimur árum Karlmaður hefur verið dæmdur í átta mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna fjölda brota, en flest þeirra vörðuðu þjófnað. Brotin sem málið varðar náðu frá 14. mars síðasta árs til 15. mars þessa árs, en andvirði þýfis mannsins voru rúmlega 4,5 milljónir króna. Innlent 7. september 2024 09:40
Hnífstungumaður talinn sakhæfur og fer fyrir dóm Aðalmeðferð í máli karlmanns á fimmtugsaldri sem er ákærður fyrir tilraun til manndráps í Vesturbæ Reykjavíkur í vetur á að hefjast á mánudag. Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því í janúar. Hann er talinn sakhæfur. Innlent 5. september 2024 21:12
Mæðgurnar fengu nei í fyrstu tilraun en gefast ekki upp Fjölskylda Söndru Sigrúnar Fenton vinnur nú að því með íslenskum lögmanni að reyna að fá hana framselda til Íslands. Lögmaðurinn hefur rætt við íslensk stjórnvöld og er í sambandi við dómsmálaráðuneytið vegna málsins. Innlent 5. september 2024 17:00
Hæstiréttur tekur ummæli Páls ekki fyrir og sýknan stendur Hæstiréttur mun ekki taka fyrir meiðyrðamál tveggja blaðamanna gegn Páli Vilhjálmssyni, bloggara og kennara. Páll var sýknaður af öllum kröfum blaðamannanna í Landsrétti, og því standa ummæli hans. Innlent 5. september 2024 14:31
Unglingspiltur dæmdur fyrir þrjár hnífaárásir Unglingspiltur hefur hlotið átján mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna ýmissa brota, en þrjú þeirra voru ofbeldisbrot framin með hníf. Innlent 5. september 2024 12:14
Sveitarfélagið dæmt fyrir að brjóta á tónlistarkennurum Héraðsdómur Norðurlands vestra hefur dæmt Sveitarfélagið Skagafjörð til að greiða samtals þremur tónlistarkennurum fyrir þann tíma sem þeir vörðu í akstur til að komast á milli starfstöðva innan sveitarfélagsins. Innlent 30. ágúst 2024 12:34
Framburður lykilvitnis fyrir dómi ekki talinn trúverðugur Héraðsdómur Reykjavíkur telur að framburður Péturs Jökuls Jónassonar í stóra kókaínmálinu hafi í öllum aðalatriðum verið ótrúverðugur. Hið sama megi segja um framburð lykilvitnis í málinu sem hafi um langt skeið verið útsettur fyrir verulegri hættu á eftirmálum ef hann tengdi Pétur Jökul við málið. Innlent 30. ágúst 2024 11:48
Dæmd fyrir kynferðisleg skilaboð til ólögráða drengs Kona hefur verið dæmd til sextíu daga skilorðsbundins fangelsis fyrir blygðunarsemisbrot sem fólst í óviðeigandi skilaboðum til ólögráða drengs á Instagram. Innlent 30. ágúst 2024 08:05
Talinn raðnauðgari sem nýti sér sofandi konur Karlmaður búsettur í Reykjavík hefur verið ákærður fyrir að hafa nauðgað þremur konum auk þess að taka upp myndefni af þeim án leyfis. Bótakröfur brotaþola nema tæplega tuttugu milljónum króna. Innlent 29. ágúst 2024 16:18
Pétur Jökull dæmdur í átta ára fangelsi Pétur Jökull Jónasson var dæmdur í átta ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir aðild sína að stóra kókaínmálinu. Saksóknari segir dóminn í samræmi við það sem lagt var upp með. Innlent 29. ágúst 2024 11:40
Skúli í Subway boðar hópmálsókn gegn Sveini Andra Lögmaður Skúla Gunnars Sigfússonar athafnamanns hefur gert kröfu á hendur Sveini Andra Sveinssyni, lögmanni, um greiðslu á því sem út af stóð af kröfum félaga í eigu Skúla Gunnars við gjaldþrotaskipti þrotabús EK1923 ehf., sem jafnframt var í eigu hans. Viðskipti innlent 27. ágúst 2024 07:46
Fluttu kókaín til landsins í kaffikönnu og útvarpstæki Þrír menn hafa verið dæmdir til fangelsisvistar fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot eftir að hafa reynt að smygla kókaíni til landsins. Annars vegar voru efnin flutt í kaffikönnu frá Frakklandi, og hins vegar í útvarpstæki frá Sviss. Innlent 26. ágúst 2024 23:55
Sextán ára drengur í gæsluvarðhaldi vegna stunguárásarinnar Sextán ára drengur sem er grunaður um að hafa stungið þrjú ungmenni með hnífi í miðborginni í gærkvöld var í kvöld úrskurðaður í gæsluvarðhald í héraðsdómi Reykjavíkur til 30. ágúst að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 25. ágúst 2024 22:24
Skemmdi rúður í lögreglubílum dag eftir dag Kona hefur verið dæmd fyrir héraðsdómi í skilorðsbundið 14 mánaða fangelsi fyrir eignaspjöll. Fólust þau í því að brjóta ítrekað rúður lögreglubíla með neyðarhamri í sumar. Konan hótaði einnig lögreglumanni með skilaboðum á rúðuþurrku. Innlent 20. ágúst 2024 13:51
Helgi Magnús situr heima meðan Guðrún leitar sér ráðgjafar Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra getur ekki sagt til um hvenær mál Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara verður afgreitt innan ráðuneytisins. Á meðan situr Helgi Magnús heima. Innlent 20. ágúst 2024 12:59
Fengu ábendingu um Guðlaug, Halldór og Svedda Tönn Lögreglu grunar að Guðlaugur Agnar Guðmundsson, Halldór Margeir Ólafsson og Sverrir Þór Gunnarsson séu lykilmenn í stóra kókaínmálinu sem nú er til aðalmeðferðar í Héraðsdómi Reykjavíkur. Enginn þeirra hefur þó verið ákærður í málinu. Innlent 20. ágúst 2024 09:00
Virðir ekki nálgunarbann og í gæsluvarðhaldi þar til vísað úr landi Karlmaður sem stendur til að vísa úr landi þarf að sæta gæsluvarðhaldi þar til brottflutningurinn er framkvæmdur. Talið er að mikil hætta sé á að hann rjúfi nálgunarbann gagnvart fjórum dætrum sínum. Innlent 19. ágúst 2024 15:01
Sagði Pétri Jökli að skipta um síma í snarheitum Verjandi Péturs Jökuls Jónassonar í stóra kókaínmálinu telur lögreglu hafa farið fram úr sér þegar hún dró þá ályktun að huldumaður sem skipulagði innflutninginn héti Pétur. Í framhaldi hefði allt verið gert til að tengja Pétur Jökul við málið. Hann hafi ráðlagt Pétri Jökli að losa sig við símann sinn í Taílandi svo yfirvöld þar gætu ekki haft uppi á honum. Innlent 16. ágúst 2024 17:56
Pétur Jökull hljóti að vera einstaklega óheppinn Saksóknari í stóra kókaínmálinu segir að Pétur Jökull Jónasson sé býsna óheppinn einstaklingur sé það algjör tilviljun hve margt bendi til þess að hann hafi verið viðriðinn innflutning á tæplega hundrað kílóum af kókaíni. Horfa verði til þess að lykilvitni í málinu sé stöðu sinnar vegna ekki stætt að staðfesta að hann hafi verið í samskiptum við Pétur Jökul. Innlent 16. ágúst 2024 14:20
Krefst að lágmarki sex og hálfs árs fangelsis yfir Pétri Jökli Saksóknari gerir þá kröfu að Pétur Jökull Jónasson fái að lágmarki sex og hálfs árs fangelsisdóm fyrir aðild sína að stóra kókaínmálinu. Verjandi hans segir mikinn galla á rannsókn lögreglu þar sem dregið hafi verið stórar ályktanir án beinna sönnunargagna. Aðalmeðferð málsins lýkur í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Innlent 16. ágúst 2024 11:55
Hlé vegna gagna frá ChatGPT Gera þurfti stutt hlé á aðalmeðferð í þætti Péturs Jökuls Jónassonar í stóra kókaínmálinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun eftir að verjandi Péturs Jökuls lagði fram ný gögn í málinu. Gögnin voru fengin af gervigreindarsíðunni ChatGPT. Innlent 16. ágúst 2024 09:34
Gripin með óhrein peningabúnt í Leifsstöð Íslensk kona á fertugsaldri sætir ákæru fyrir peningaþvætti eftir að hafa verið stöðvuð með jafnvirði rúmlega þrettán milljóna króna í reiðufé á Keflavíkurflugvelli. Innlent 14. ágúst 2024 15:30
Gísla Pálma refsað fyrir akstur undir áhrifum Rapparinn Gísli Pálmi Sigurðsson hefur verið dæmdur til að greiða 420 þúsund krónur í sekt fyrir að aka án ökuleyfis og undir áhrifum. Þetta er í annað sinn sem Gísli Pálmi er gripinn við akstur undir áhrifum á hálfu ári. Innlent 14. ágúst 2024 12:30
Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Lögreglufulltrúi segir Sverri Þór Gunnarsson, betur þekktan sem Svedda tönn, hafa rætt um fíkniefnaviðskipti við notanda sem lögregla telur ljóst að sé Pétur Jökull Jónasson. Pétur Jökull sætir ákæru fyrir aðild að stóra kókaínmálinu sem kom upp sumarið 2022. Lögreglufulltrúinn kafaði ofan í samskipti Sverris Þórs á Signal. Innlent 13. ágúst 2024 21:00
Svipaður hlátur á öllum upptökunum Sérfræðingur í raddbeitingu við Háskólann í Árósum segir ýmislegt benda til þess að rödd Péturs Jökuls Jónassonar sé sú sem heyrist á upptöku sem er meðal helstu sönnunargagna lögreglu í stóra kókaínmálinu. Þetta kom fram við aðalmeðferð á þætti Péturs Jökuls Jónassonar í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Innlent 13. ágúst 2024 13:45
Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Lögreglufulltrúar sem rannsökuðu stóra kókaínmálið lýstu því fyrir dómi í morgun að sakborningar hefðu endurtekið skipt út símum og breytt um notendanöfn í þeim tilgangi að hylja slóð sína við innflutninginn. Þeir komust á sporið í málinu við rannsókn á saltdreifaramálinu svokallaða vegna tengingar milli aðila í því máli og stóra kókaínmálinu. Innlent 13. ágúst 2024 12:35
Þvert nei á línuna kom saksóknara í opna skjöldu Allir sakborningar í stóru fíkniefnamáli þar sem kókaín var flutt í pottum sem farþegar höfðu með sér í skemmtiferðaskipi neituðu sök við þingfestingu málsins í dag. Það kom saksóknara og dómara í málinu í opna skjöldu að allir neituðu sök. Innlent 12. ágúst 2024 15:43
Hafnar því að hafa reynt að drepa mann og dreifa dópi Karlmaður á fertugsaldri sem ákærður er fyrir tilraun til manndráps og aðild að umfangsmiklu fíkniefnamáli neitaði sök við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Hann játaði þó vopna- og fíkniefnalagabrot í málinu. Innlent 12. ágúst 2024 14:17
Þögull sem gröfin Birgir Halldórsson, sem hlaut sex og hálfs árs fangelsi í Landsrétti fyrir aðild að stóra kókaínmálinu, neitaði alfarið að svara spurningum sækjanda og verjanda fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Birgir er einn fjögurra sem hlotið hafa dóm í málinu og Pétur Jökull Jónasson sá fimmti sem sætir ákæru fyrir aðild. Innlent 12. ágúst 2024 12:17