1,2 milljón krónur safnast í söfnun Eddu á Karolina Fund Alls hafa nú safnast 1,2 milljón krónur í söfnun sem hlaðvarpsstjórnandinn Edda Falak stendur fyrir á Karolina Fund en markið er sett á 1,5 milljón krónur. Innlent 8. apríl 2023 09:14
Edda hyggst áfrýja málinu að ósk dótturinnar Edda Falak hyggst áfrýja máli, þar sem hún var dæmd fyrir brot gegn friðhelgi einkalífs, til Landsréttar. Í aðsendri grein á Vísi, sem unnin er í samráði við Eddu og dóttur móðurinnar sem höfðaði málið, er niðurstaða dómsins harðlega gagnrýnd. Blásið hefur verið til söfnunar til að gera Eddu kleift að áfrýja dómnum. Innlent 7. apríl 2023 22:03
Þungir dómar í ljósi þess að mennirnir voru ekki höfuðpaurar Þungir dómar féllu í stóra kókaínmálinu svokallaða í héraðsdómi í dag. Afbrotafræðingur segir dómana þunga í ljósi þess að hinir sakfelldu hafi ekki verið höfuðpaurar. Huga verði að eftirspurnarhliðinni þar sem ljóst sé að refsistefnan sé ekki að bera tilætlaðan árangur. Innlent 5. apríl 2023 22:37
Páll timbursali hlaut þyngsta dóminn í stóra kókaínmálinu Fjórir íslenskir karlmenn voru í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun dæmdir í sex til tíu ára fangelsi fyrir aðild sína að stóra kókaínmálinu svokallaða. Tólf ára fangelsi er hámarksrefsing í málaflokknum. Elsti sakborningurinn er tæplega sjötugur og hlaut þyngstu refsinguna. Hinir þrír um þrítugt. Innlent 5. apríl 2023 10:04
Dæmdur fyrir að hafa káfað á ólögráða kærustu frænda síns Karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðislega áreitni, með því að hafa káfað á þáverandi kærustu frænda síns. Manninum ber að greiða 500 þúsund í miskabætur og rúmar 2,2 milljónir í sakarkostnað. Innlent 4. apríl 2023 18:57
Hæstiréttur vísar deilu Slayer við Secret Solstice aftur til Landsréttar Deila bandarísku þungarokkssveitarinnar Slayer við aðstandendur tónlistarhátíðarinnar Secret Solstice heldur áfram að velkjast um fyrir íslenskum dómstólum eftir að Hæstiréttur vísaði hluta málsins aftur til Landsréttar í dag. Eitt félaganna sem tók við rekstri hátíðarinnar var sýknað af kröfu hljómsveitarinnar. Innlent 4. apríl 2023 14:02
Safnaðist fyrir tveimur þriðjuhlutum dómssektarinnar Páll Vilhjálmsson, framhaldsskólakennari og bloggari, segir að um hundrað manns hafi lagt til samtals tvo þriðjuhluta þeirrar upphæðar sem hann var dæmdur til að greiða blaðamönnum vegna ummæla sem hann viðhafði á blogginu sínu. Innlent 4. apríl 2023 07:04
Tekin með kókaínpakkningar límdar við lærið Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt konu í níu mánaða fangelsi fyrir að hafa reynt að smygla um 700 grömmum af kókaíni með flugi til landsins. Konan kom til landsins frá Barcelona á Spáni og var með efnin falin í tveimur pakkningum sem voru límdar á læri hennar við komuna til landsins. Innlent 3. apríl 2023 12:55
Hlaut dóm fyrir peningaþvætti en fékk samt milljónir í miskabætur Karlmanni hafa verið dæmdar sex milljónir króna í miskabætur fyrir gæsluvarðhald að ósekju. Maðurinn hlaut tveggja mánaða dóm fyrir peningaþvætti en sat í gæsluvarðhaldi í 269 daga, margfaldan tíma fangelsisvistarinnar. Landsréttur hafði áður fallist á miklu hærri skaðabætur. Innlent 2. apríl 2023 13:19
Héraðsdómari kærir Margréti fyrir meiðyrði Barbara Björnsdóttir, héraðsdómari, hefur kært Margréti Friðriksdóttur, ritstjóra frettin.is, fyrir meiðyrði. Margrét var yfirheyrð af lögreglu vegna málsins í fyrradag. Innlent 1. apríl 2023 11:05
Edda Falak dæmd fyrir brot á friðhelgi einkalífsins Edda Falak hefur verið dæmd fyrir brot gegn friðhelgi einkalífsins fyrir að hafa spilað tiltekið hljóðbrot í þættinum Eigin konur. Viðmælandi þáttarins sagðist hafa verið beitt andlegu ofbeldi af hálfu móður og spilaði hljóðupptökur af samtölum þeirra mæðgna. Innlent 31. mars 2023 15:59
Landsréttur þyngir dóm yfir nýdæmdum barnaníðingi Barnaníðingurinn Brynjar Joensen Creed hefur verið dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir nauðganir og önnur brot gegn ólögráða stúlkum. Landsréttur kvað upp dóm í málinu í dag og þyngdi dóm héraðsdóms um eitt ár. Innlent 31. mars 2023 14:49
Fara fram á tólf til sextán ára fangelsi yfir Magnúsi Ákæruvaldið fer fram á að Magnús Aron Magnússon verði dæmdur í tólf til sextán ára fangelsi fyrir að hafa myrt Gylfa Bergmann Heimisson í júní árið 2022. Verjandi Magnúsar fer fram á að Magnús verði sakfelldur fyrir líkamsárás sem leiddi til dauða en ekki fyrir manndráp. Innlent 31. mars 2023 14:06
Taka fyrir deilu um hvenær starfsmenn séu í vinnunni og hvenær ekki Hæstiréttur hefur samþykkt áfrýjunarbeiðni Reykjavíkurborgar í skaðabótamáli fyrrverandi leikskólakennara sem slasaðist í hópefli starfsmanna þar sem þeir voru að leika sér í svokölluðum blöðruboltum. Í málinu er deilt um hvort slysið hafi átt sér stað á vinnutíma eða í frítíma. Innlent 30. mars 2023 15:31
Mikil vanræksla og ofbeldi í æsku Geðlæknar og sálfræðingar sem mátu andlegt ástand Magnúsar Arons Magnússonar segja hann ekki glíma við neina alvarlega geðsjúkdóma en hann sé líklegast á einhverfurófinu. Faðir Magnúsar neitaði að senda hann í greiningarviðtal eftir að hann hitti sálfræðing á unglingsaldri. Innlent 30. mars 2023 15:10
Áverkar eftir skósóla Magnúsar á þeim látna Mynstur var á áverkum á hægri hlið ennis Gylfa Bergmann Heimissonar sem samsvara skósóla Magnúsar Arons Magnússonar sem ákærður er fyrir að hafa myrt Gylfa. Höggin sem ollu áverkunum komu ofan frá. Innlent 30. mars 2023 12:22
SBF ákærður fyrir að reyna að múta kínverskum stjórnvöldum Sam Bankman-Fried, stofnandi rafmyntafyrirtækisins FTX, er sagður ætla að lýsa sig saklausan af ákæru um að hann hafi brotið bandarísk kosningalög og mútað kínverskum yfirvöldum. Hann hefur þegar lýst sig saklausan af ákærum um stórfelld fjársvik. Viðskipti erlent 30. mars 2023 11:53
Þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir manndrápstilraun á nýársnótt Karlmaður á fertugsaldri var dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir tilraun til manndráps í Reykjanesbæ á nýársnótt árið 2020. Fórnarlambs manndrápstilraunarinnar var sýknað af ákæru um sérstaklega hættulega líkamsárás. Innlent 30. mars 2023 11:12
Dæmdur fyrir að nauðga konu með þroskahömlun í tvígang Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt karlmann í tveggja ára og átta mánaða fangelsi og greiðslu miskabóta fyrir að hafa í tvígang nauðgað konu sem er með þroskahömlun í júní 2021. Innlent 30. mars 2023 10:32
„Þetta var náttúrulega visst sjokk fyrir okkur; við ætluðum svo sem aldrei að svíkja eitt né neitt“ „Já já, þetta gerði skaða. Þetta gerði meiri skaða en við héldum,“ segir Georg Hólm, bassaleikari Sigur Rósar, um skattamál sem meðlimir sveitarinnar hafa haft hangandi yfir höfðum sér frá árinu 2014. Málinu virðist nú vera lokið, eftir að Landsréttur vísaði eftirstöðum málsins frá í síðustu viku. Innlent 30. mars 2023 07:27
Magnús furðulega rólegur miðað við aðstæður Fjöldi lögreglumanna gaf vitnisburð sinn fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í dag í máli saksóknara gegn Magnúsi Aroni Magnússyni sem grunaður er um að hafa drepið nágranna sinn í júní á síðasta ári. Sammæltust þeir flestir um það að Magnús hafi virst of rólegur miðað við aðstæður. Innlent 29. mars 2023 22:01
Grunaður um að hafa siglt undir fölsku flaggi á Íslandi Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að karlmaður skyldi sæta gæsluvarðhaldi og einangrun á meðan á því stendur. Maðurinn er grunaður er um að hafa búið og starfað hér frá árinu 2021 á grundvelli dvalarleyfis á nafni annars manns. Hann er einnig grunaður um skjalafals og peningaþvætti, auk þess að hafa brotið lög um atvinnuréttindi útlendinga og lög um útlendinga. Sterkar vísbendingar eru uppi um að nokkur fjöldi einstaklinga geti mögulega tengst sakarefni málsins. Innlent 29. mars 2023 20:46
Nágrannarnir fylgdust með hörmungum í næsta garði Nágrannar Magnúsar Arons Magnússonar sem ákærður er fyrir að hafa myrt Gylfa Bergmann Heimisson við Barðavog í Reykjavík í fyrrasumar lýstu því fyrir dómi hvernig þau sáu Magnús traðka á Gylfa á meðan hann lá meðvitundarlaus fyrir utan hús sitt. Magnús sagðist fyrir dómi ekki hafa snert manninn eftir að hann féll á jörðina meðvitundarlaus. Innlent 29. mars 2023 15:43
Dæmdur fyrir að þvætta illa fengið fé Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann á fertugsaldri fyrir peningaþvætti með því að tekið við og nýtt millifærslur frá erlendum fyrirtækjum, samtals um 13,5 milljónir króna, inn á eigin reikning og tekið upphæðina svo út í reiðufé og afhent óþekktum aðila. Innlent 29. mars 2023 14:54
Minnti lögreglu áhyggjufullur á morð í Hafnarfirði en sagt að slaka á Tæplega þrítugur karlmaður sem bjó á miðhæð í húsi við Barðavog í Reykjavík þar sem karlmanni var ráðinn bani í júní í fyrra lýsti því að tvítugur karlmaður, grunaður um morðið, hafi ráðist á sig af engu tilefni tæplega sólarhring fyrr. Hann segir lögreglu hafa talið hann vera að bregðast of hart við þeirri árás og ekki hlustað á áhyggjur hans. Hinn látni hafi verið áberandi góður maður sem hafi viljað öllum vel. Innlent 29. mars 2023 13:16
Magnús margsaga um atburðarásina örlagaríku í Barðavogi Magnús Aron Magnússon sem ákærður er fyrir morð í Barðavogi í fyrra neitaði fyrir við aðalmeðferð málsins fyrir dómi í dag að hafa sparkað ítrekað í höfuð Gylfa Bergmanns Heimissonar sem lést af áverkum sínum. Hann hafði þó lýst slíkum spörkum við lögreglumenn daginn örlagaríka en sú frásögn var tekin upp á búkmyndavél lögreglumanns. Magnús Aron hafði litlar skýringar á því hvers vegna litlir áverkar hefðu verið á honum eftir átökin. Innlent 29. mars 2023 11:39
Dæsti og bað dómarann um að tala hærra Aðalmeðferð í Barðavogsmálinu svokallaða hófst í aðalsal Héraðsdóms Reykjavíkur í morgun. Magnús Aron Magnússon, tvítugur karlmaður, er ákærður fyrir að hafa orðið karlmanni á fimmtugsaldri að bana í Barðavogi í júní í fyrra. Innlent 29. mars 2023 09:57
Þrjátíu daga skilorð fyrir árás á fyrrverandi kærustu: „Ég get ekki leyft neinum að leggja á mig hendur, aldrei“ Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á fyrrum unnustu sína á heimili sínu á Akureyri. Árásin átti sér stað í september 2021. Innlent 28. mars 2023 18:07
Móðir sýknuð af því að sparka í og slá fimm ára son sinn Héraðsdómur Reykjaness hefur sýknað móður af því að hafa sparkað í og slegið fimm ára gamlan son sinn. Það var þáverandi eiginmaður konunnar og faðir drengsins sem tilkynnti um málið. Innlent 27. mars 2023 11:55
Taldi lögreglu hafa hótað sér í skýrslutökum Endurupptökudómur hefur hafnað beiðni Guðlaugs Agnars Guðmundssonar, sem dæmdur var fyrir peningaþvætti í tengslum við stórkostlegt fíkniefnasmygl, um endurupptöku á dómnum. Guðlaugur byggði meðal annars á því að við rannsókn málsins hafi lögregla beitt hann hótunum um að gera föður hans að sakborningi í málinu. Innlent 26. mars 2023 21:28