Líf og fjör í London Kvikmyndahátíðin í London hófst í gær en þetta er í fimmtugasta sinn sem hátíðin er haldin í borginni. Gala-opnunarmynd hátíðarinnar er The Last King of Scotland þar sem Forest Whitaker þykir fara á kostum í hlutverki Idi Amins, fyrrverandi einræðisherra í Úganda. Bíó og sjónvarp 19. október 2006 13:30
Með ástríðu fyrir Ástríði Leikkonan Edda Björgvinsdóttir mun taka sér örstutt skólaleyfi til þess að sýna nokkrar sýningar á verkinu Alveg brilljant skilnaði í Borgarleikhúsinu enda kveðst hún komin með ástríðu fyrir Ástríði. Bíó og sjónvarp 19. október 2006 13:15
Leika ástkonur í nýrri bíómynd Leikkonurnar ungu Keira Knightley og Lindsey Lohan munu leika lesbískar ástkonur í nýrri mynd sem byggist á ævi breska ljóðskáldsins Dylan Thomas. Leikkonurnar eiga það sameiginlegt að vera afar vinsælar um þessar mundir en Lohan hefur verið gagnrýnd mikið fyrir partílifnað upp á síðkastið og að mæta of seint á tökustaði. Bíó og sjónvarp 18. október 2006 12:45
Clint ánægður með Ísland Rúmt ár er síðan Sandvík var hertekin af kvikmyndagerðarfólki frá Hollywood og Clint Eastwood fyrir kvikmyndina Flags of Our Fathers. Óðum styttist í að Íslendingar fái að sjá afraksturinn af þessum rúmlega mánaðartökum á Reykjanesi. Bíó og sjónvarp 18. október 2006 12:00
Velgengni leikskálds Breska leikskáldið Peter Morgan gerir það gott þessa dagana. Handrit hans að kvikmyndinni The Queen fellur í kramið hjá flestum sem sjá þessa ágætu mynd. Bíó og sjónvarp 18. október 2006 10:00
Goodman í Hafnarfirði Í kvöld verður bandarísk kvikmyndin The Benny Goodman Story (1955) í leikstjórn Valentine Davies sýnd í Bæjarbíó á vegum Kvikmyndasafnsins. Hefst sýningin kl. 20. Bíó og sjónvarp 17. október 2006 14:30
Götustrákar í Feneyjum Sýningar á ævintýramyndinni The Thief Lord hófust um helgina. Myndin er gerð eftir vinsælli skáldsögu Corneliu Funke sem greinir frá ævintýrum tveggja munaðarlausra drengja, Prosper og Bo. Þeir strjúka úr þrúgandi vist vondrar frænku og flýja til Feneyja þar sem þeir lenda á vergangi. Bíó og sjónvarp 17. október 2006 14:00
Stefán Karl talar íslensku í bandarískri stórmynd Stefán Karl Stefánsson leikur á móti Ben Stiller og Owen Wilson. Ben Stiller hittir fyrir nokkra víkinga í myndinni og það vantaði því íslenskar víkingaraddir í myndina, segir Stefán Karl Stefánsson, leikari, sem mun láta í sér heyra í gamanmyndinni Night at the Museum sem skartar stórstjörnum á borð við Robin Williams, Owen Wilson, Ricky Gervais og Mickey Rooney. Bíó og sjónvarp 15. október 2006 11:30
Rokland kvikmynduð á næsta ári Marteinn Þórsson, framleiðandi, skrifar undir samning þess efnis að hann skrifi kvikmyndahandrit eftir sögu Hallgríms Helgasonar, Rokland. "Það er rétt, ég skrifa undir samningin í dag og því er þetta í höfn,“ sagði Marteinn þegar Fréttablaðið innti hann eftir þessu. Bíó og sjónvarp 4. september 2006 14:30
Handhafar Eddu 2004 Edduverðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn á hótel Nordica þann 14. nóvember 2004. Hlaut kvikmyndin Kaldaljós flest verðlaun. Heiðursverðlaun ÍKSA 2004 hlaut Páll Steingrímsson kvikmyndagerðarmaður fyrir langan og farsælan feril á sviði heimildamynda, með sérstaka áherslu á náttúru og umhverfi. Bíó og sjónvarp 28. október 2005 19:56
Takk fyrir Takk fyrir þátttökuna. Nafn þitt fer nú pott og verður dregið úr nöfnum þátttakenda að lokinni kosningu. Einn heppinn þátttakandi fær miða fyrir tvo á verðlaunahátíð Eddunnar á Hótel Nordica sunnudaginn 13. nóvember. Haft verður samband við vinningshafa. Bíó og sjónvarp 28. október 2005 19:35
Latibær með flestar tilnefningar Tilnefningar til Edduverðlaunanna voru kynntar á blaðamannafundi í hádeginu í dag. Latibær fær flestar tilnefningar eða fimm talsins; Strákarnir okkar, One Point O og Voksne mennesker fá fjórar hver og Stelpurnar og Reykjavíkurnætur þrjár hver. Önnur verk fá tvær eða færri. Stöð2 hlýtur flestar tilnefningar vegna sjónvarpsefnis. Bíó og sjónvarp 28. október 2005 18:59
Heiðursverðlaunahafi Eddunnar 2005 Vilhjálmur Hjálmarsson fær heiðursverðlaun ÍKSA árið 2005 fyrir framlag sitt til stofnunar Kvikmyndasjóðs Íslands árið 1978. Bíó og sjónvarp 28. október 2005 17:50
Tilnefningar til Eddunnar:: Sjónvarpsmaður ársins Hægt er að velja á milli 53 sjónvarpsmanna og kvenna að þessu sinni, konurnar eru 21 og karlarnir 32. Að lokinni kosningu hér á Vísi verður kosið um fimm efstu í SMS-kosningu sem fram fer meðan á á EDDU-hátíðinni stendur, 13. nóvember. Bíó og sjónvarp 28. október 2005 17:45
Tilnefningar til Eddunnar:: Hljóð og tónlist Tónlist og hljóðvinnsla þriggja verka er tilnefnd til EDDU-verðlauna í flokknum "Hljóð og tónlist." One Point Zero, Voksne Mennesker og Töframaðurinn. Bíó og sjónvarp 28. október 2005 17:42
Tilnefningar til Eddunnar: Útlit myndar Útlit tveggja verka þótti verðskulda tilnefningu til EDDU-verðlauna. Leikmyndin í ONE POINT ZERO, brúðurnar í LATABÆ og búningarnir í LATABÆ. Bíó og sjónvarp 28. október 2005 17:38
Tilnefningar til Eddunnar: Myndataka og klipping Myndataka þriggja verka var tilnefnd í flokknum "Myndataka og klipping". Þetta eru GARGANDI SNILLD, HEIMUR KULDANS og LATIBÆR. Bíó og sjónvarp 28. október 2005 17:34
Tilnefningar til Eddunnar: Heimildamynd ársins Fimm myndir hlutu tilnefningu í flokknum "Heimildamynd ársins." RITHÖFUNDUR MEÐ MYNDAVÉL eftir Helgu Brekkan, RAGNAR Í SMÁRA eftir Guðnýju Halldórsdóttur, AFRICA UNITED eftir Ólaf Jóhannesson, UNDIR STJÖRNUHIMNI. eftir Helga Felixson og Titti Johnson og GARGANDI SNILLD eftir Ara Alexander. Bíó og sjónvarp 28. október 2005 17:26
Tilnefningar til Eddunnar: Leikstjórn ársins Þrír karlar hlutu tilnefningu til EDDU-verðlauna fyrir leikstjórn. Dagur Kári (Voksne Mennesker), Ólafur Jóhannesson (Africa United) og Marteinn Þórsson & Jeff Renfro (1.0). Bíó og sjónvarp 28. október 2005 17:22
Tilnefningar til Eddunnar: Handrit ársins Þrjú verk eru tilnefnd í flokknum "Handrit ársins". Africa United, Voksne Mennesker og Latibær. Bíó og sjónvarp 28. október 2005 17:16
Tilnefningar til Eddunnar: Sjónvarpsþáttur ársins Stöð2 og RÚV hlutu tvær tilnefningar hvor og Skjár1 eina tilnefningu í flokknum "Sjónvarpsþáttur ársins." Bíó og sjónvarp 28. október 2005 17:10
Tilnefningar til Eddunnar: Skemmtiþáttur ársins IDOL stjörnuleit 2, Sjáumst með Silvíu Nótt og Það var lagið, hlutu tilnefningu sem "Skemmtiþáttur ársins." Bíó og sjónvarp 28. október 2005 17:06
Tilnefningar til Eddunnar: Tónlistarmyndband ársins Þrjú myndbönd voru tilnefnd í flokknum "Tónlistarmyndband ársins." Whatever með Leaves, Find what you get með Bang Gang og Crazy Bastard með 70mínútur vs.Quarashi. Bíó og sjónvarp 28. október 2005 16:59
Tilnefningar til Eddunnar: Leikið sjónvarpsefni ársins: Latibær, Stelpurnar og Danskeppnin hlutu öll tilnefningu í flokknum "Leikið sjónvarpsefni ársins." Bíó og sjónvarp 28. október 2005 16:45
Stuttmynd ársins: "Töframaðurinn", "Þröng sýn" og "Ég missti næstum vitið" keppa um EDDU-verðlaunin í flokki stuttmyndar ársins. Bíó og sjónvarp 28. október 2005 16:40
Kvikmynd ársins: Þrjár myndir keppa um titilinn "Kvikmynd ársins". Voksne Mennesker, Strákarnir okkar og One Point O. Bíó og sjónvarp 28. október 2005 16:33
Leikari / leikkona í aukahlutverki Fimm karlar eru tilnefndir til verðlauna í flokknum "Leikari / leikkona ársins í aukahlutverki." Bíó og sjónvarp 28. október 2005 16:26
Leikari / leikkona í aðalhlutverki: Fimm listamenn eru tilnefndir til verðlauna í flokknum "Leikari / leikkona ársins í aðalhlutverki," þrjár konur og tveir karlar. Bíó og sjónvarp 28. október 2005 14:58
Slást um að verða framlag Íslands Kvikmyndirnar Í takt við tímann, sem Ágúst Guðmundsson leikstýrði, og Strákarnir okkar, í leikstjórn Róberts Douglas, munu á næstu dögum berjast um að verða framlag íslenskra kvikmynda til Óskarsverðlaunanna. Það eru meðlimir Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar sem munu ákveða hvor myndanna verður framlag Íslands. Um 850 manns hafa atkvæðisrrétt en kosið verður daganna 26. og 27. september. Bíó og sjónvarp 22. september 2005 00:01
Dagskrá kvikmyndahátíðar kynnt Dagskrá Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík var kynnt í dag en hátíðin verður opnuð 29. september og stendur til 9. október. Bíó og sjónvarp 21. september 2005 00:01
Bestu augnablikin á kosninganótt: Þórhallur að veipa, enskuslettur Sólveigar og Inga að syngja Lífið