Fujimori er látinn Alberto Fujimori, fyrrverandi forseti Perú, er látinn, 86 ára að aldri. Erlent 12. september 2024 07:59
Hilmar B. Jónsson matreiðslumeistari látinn Hilmar Bragi Jónsson matreiðslumeistari er fallinn frá. Hilmar var einn þekktasti matreiðslumaður landsins og lifði ævintýralegu lífi; eldaði ofan í kónga, drottningar, þjóðhöfðingja, sendiherra, varaforseta, þingmenn og aðra hátt setta embættismenn víða um heim. Innlent 11. september 2024 16:52
James Earl Jones er látinn Bandaríski leikarinn James Earl Jones er látinn, 93. ára að aldri. Jones var hvað þekktastur sem röddin á bakvið illmennið Svarthöfða í Stjörnustríðsmyndunum. Lífið 9. september 2024 21:07
Sergio Mendes höfundur Mas Que Nada látinn Brasilíski tónlistarmaðurinn Sergio Mendes, sem hjálpaði til við alþjóðavæðingu bossa nova tónlistar á sjöunda áratugnum með hljómsveitinni Brasil '66, er látinn. Mendes var 83 ára gamall. Tónlist 7. september 2024 22:32
Ron Yeats látinn Liverpool goðsögnin Ron Yeats er látinn. Hann var meðal þeirra sem spiluðu fyrsta Evrópuleik í sögu félagsins þegar liðið mætti KR á Laugardalsvelli árið 1964. Enski boltinn 7. september 2024 11:31
Rich Homie Quan er allur Bandaríski rapparinn Rich Homie Quan er látinn 33 ára að aldri. Hann lést á sjúkrahúsi í Atlanta í gær, en dánarorsök liggur ekki fyrir að svo stöddu. Lífið 6. september 2024 10:17
Hneig niður á miðjum tónleikum Bandaríski rapparinn Fatman Scoop er látinn, 53 ára að aldri. Scoop hneig niður á sviði á miðjum tónleikum sínum í Conneticut í Bandaríkjunum í gær. Hann var fluttur með sjúkrabíl á nærliggjandi sjúkrahús og síðar úrskurðaður látinn. Erlent 31. ágúst 2024 17:33
Missti móður sína og systur sama daginn Bæði móðir og systir bandarísku söngkonunnar Mariah Carey létust um helgina. Dánarorsök þeirra eru enn ókunn. Lífið 26. ágúst 2024 22:50
Sven-Göran Eriksson látinn Sænski fótboltaþjálfarinn Sven-Göran Eriksson er látinn, 76 ára að aldri, eftir baráttu við ólæknandi krabbamein. Fótbolti 26. ágúst 2024 11:27
Annar ferðamannanna er látinn Annar ferðamannanna sem náð var undan ísfargi á Breiðamerkurjökli í kvöld er látinn. Hann var úrskurðaður látinn á vettvangi. Hinn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann og er líðan hans stöðug. Innlent 25. ágúst 2024 23:56
Christoph Daum látinn Einn fremsti fótboltaþjálfari Þýskalands á sínum tíma, Christoph Daum, lést í gær, sjötíu ára að aldri. Banamein hans var lungnakrabbamein. Fótbolti 25. ágúst 2024 11:32
Golden State hetjan Al Attles látin Al Attles, sem gerði Golden State Warriors að NBA-meisturum 1975, er látinn, 87 ára að aldri. Körfubolti 21. ágúst 2024 20:16
Elsta manneskja heims látin Maria Branyas Morera, áður elsta manneskja í heimi, er látin. Hún varð 117 ára og 168 daga gömul. Hún lést í svefni í gær að sögn fjölskyldu hennar. Erlent 21. ágúst 2024 13:38
Alain Delon látinn Franska kvikmyndastjarnan Alain Delon er látinn, 88 ára að aldri. Lífið 18. ágúst 2024 09:44
Halldór Bragason lést í eldsvoðanum Tónlistarmaðurinn Halldór Bragason lést þegar eldur kom upp á heimili hans við Amtmannsstíg í Reykjavík í gær. Halldór, betur þekktur sem Dóri, var meðal lykilmanna í blústónlistarsenunni hér á landi. Innlent 14. ágúst 2024 13:05
Susan Wojcicki er látin Hin bandaríska Susan Wojcicki lést í gær, föstudag, 56 ára að aldri eftir tveggja ára baráttu við lungnakrabbamein. Eiginmaður hennar Dennis Troper greinir frá andlátinu á samfélagsmiðlum. Viðskipti erlent 10. ágúst 2024 09:17
Keppandi á heimsleikunum í CrossFit drukknaði í keppni Forsvarsmenn heimsleikana í CrossFit hafa staðfest að keppandi hafi fundist látinn eftir að hafa drukknað í einni af greinum dagsins. Leit hafði staðið yfir eftir að keppandinn skilaði sér ekki yfir endalínuna í sundhluta greinarinnar. Sport 8. ágúst 2024 15:59
Árni Þórður er látinn Árni Þórður Sigurðarson, sonur Sigga storms, lést á heimili sínu á Völlunum í Hafnarfirði á mánudag. Hann veiktist lífshættulega árið 2021, en talið var að hann væri orðinn heill. Innlent 7. ágúst 2024 16:35
Þorvaldur Halldórsson látinn Tónlistarmaðurinn Þorvaldur Halldórsson er látinn tæplega áttræður eftir glímu við veikindi. Hann hafði verið búsettur á Spáni í nokkurn tíma. Innlent 7. ágúst 2024 12:27
Ólafur Vignir píanóleikari látinn Ólafur Vignir Albertsson píanóleikari er látinn. Fjölskylda Ólafs greinir frá andlátinu í tilkynningu: Innlent 4. ágúst 2024 22:32
Séra Frank M. Halldórsson sóknarprestur látinn Séra Frank Martin Halldórsson fyrrum sóknarprestur í Nessókn, lést á bráðadeild Landsspítalans í Fossvogi 31. júlí, níræður að aldri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá systkinum hans. Innlent 4. ágúst 2024 14:28
Haukur Halldórsson myndlistarmaður látinn Haukur Halldórsson myndlistamaður lést á heimili sínu í Hafnarfirði 30. júlí síðastliðinn, 87 ára að aldri. Hann skilur eftir sig börn, barnabörn og barnabarnabörn. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 12. ágúst klukkan 15. Lífið 2. ágúst 2024 23:13
Craig Shakespeare látinn Fyrrverandi knattspyrnustjóri Leicester City, Craig Shakespeare, er látinn, sextugur að aldri. Enski boltinn 1. ágúst 2024 22:01
Fjöldamorðingi í My Lai látinn Bandarískur liðsforingi úr Víetnamstríðinu sem var sá eini sem var látinn sæta ábyrgð á fjöldamorðinu alræmda í þorpinu My Lai er látinn, áttræður að aldri. Bandarískir hermenn drápu hundruð óbreyttra borgara í My Lai, þar á meðal konur og börn. Erlent 30. júlí 2024 11:48
Nágrannastjarnan Janet Andrewartha látin Leikkonan Janet Andrewartha sem fór með hlutverk Lyn Scully í sápuóperunni Nágrönnum er látin, 72 ára að aldri. Greint er frá fráfalli hennar á Instagram-síðu sjónvarpsþáttanna vinsælu en persónan Lyn Scully var móðir Stephanie, Felicity og Michelle, og var gift Joe, í um tuttugu ár frá árinu 1999. Lífið 28. júlí 2024 16:02
Siggi Kristins gítarleikari og bílaspekúlant er allur Sigurður Kristinsson, sem var meðal stofnmeðlima hinnar fornfrægu hljómsveitar Sniglabandsins, er allur. Hann átti við vanheilsu að stríða síðustu árin. Innlent 24. júlí 2024 11:02
Four Tops söngvarinn Abdul „Duke“ Fakir látinn Söngvarinn Abdul „Duke“ Fakir, sem söng með Motown-hópnum Four Tops, er látinn 88 ára að aldri. Four Tops-hópurinn var þekktastur fyrir lögin Reach Out I'll Be There og I Can't Help Myself (Sugar Pie Honey Bunch). Tónlist 23. júlí 2024 08:13
Fyrrverandi þingkona skotin til bana Fyrrverandi þingkona á úkraínska þinginu var skotinn til bana á götum Lvív-borgar í gær. Lögregla leitar að banamanninum en hann er enn ófundinn. Erlent 20. júlí 2024 12:34
Eastwood kveður kærustu sína Christina Sandera Christina Sandera, veitingakona og kærasta hins víðfræga leikstjóra Clint Eastwood er látin. Hún var 61 árs að aldri. Lífið 19. júlí 2024 20:20