Viðskipti innlent

Býst ekki við að verð­bólgan hafi á­hrif á vaxtalækkunarferlið

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Bergþóra Baldursdóttir, hagfræðingur hjá greiningardeild Íslandsbanka.
Bergþóra Baldursdóttir, hagfræðingur hjá greiningardeild Íslandsbanka. Vísir/Vilhelm

Aukning verðbólgu um 0,4 prósentustig á milli mánaða þýðir ekki að verðbólga sé farin aftur á skrið. Þetta segir hagfræðingur Íslandsbanka sem segir mælinguna í takti við væntingar og að hún búist ekki við því að hún hafi áhrif á vaxtalækkunarferli Seðlabanka Íslands. 

Tólf mánaða verðbólga jókst um 0,4 prósentustig milli mánaða og mælist nú aftur yfir fjórum prósentustigum eða 4,2 prósent. Bergþóra Baldursdóttir hagfræðingur hjá greiningardeild Íslandsbanka segir þessi tíðindi þó ekki þýða að verðbólgan sé farin á skrið að nýju.

Aukning sem tengist páskum

„Auðvitað er verðbólga að aukast en ég held að við þurfum aðeins að anda með nefinu, það er alveg eðlilegt að hún aukist aðeins á milli einstakra mánaða, svo lengi sem hún er að hjaðna hina mánuðina. Hún er alveg að aukast aðeins meira en við gerðum ráð fyrir og aðrir greiningaraðilar en helsta ástæðan fyrir því er reiknaða húsaleigan sem er leiguverðið, við það er að hækka svolítið á milli mánaða.“

Verðbólga hafi hjaðnað hratt síðan á síðasta ári, þó með undantekningum líkt og nú.

„Það er alveg eðlilegt að hún aukist milli einstakra mánaða. Við sáum þetta seinast gerast í júlí, annars hefur hún verið að hjaðna nokkuð hratt og við gerum ráð fyrir að hún haldi áfram að hjaðna, þetta sé svona þessi mánuður þar sem hún aukist lítillega, flugfargjöldin eru til dæmis að hafa þau áhrif, þau eru að hækka svolítið á milli mánaða og það er vegna páska, þannig það er svona árstíðabundin hækkun.“

Gerir enn ráð fyrir lækkun

Um er að ræða síðustu verðbólgumælinguna fyrir næsta fund peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands sem verður 21. maí. Stýrivextir eru nú 7,75 prósent. Bergþóra segist ekki telja að mælingin muni hafa neikvæð áhrif á vaxtalækkunarferlið.

„Við erum eins og ég segi að spá áframhaldandi hjöðnun á verðbólgunni þótt að ein mæling auki verðbólguna, auðvitað horfir peningastefnunefnd til fleiri þátta, hún horfir til verðbólguvæntinga, hvernig hún er uppsett og svo framvegis, þannig hún er ekki að stressa sig heldur yfir þessu þannig jájá við gerum ráð fyrir að lækkunarferlið haldi áfram, mögulega taka þau minna lækkunarskref og þar finnst okkur 0,25 prósent ekkert ólíklegt.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×