Innlent

Á­fram land­ris og skjálftar á Reykja­nes­skaga

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Kort sem sýnir yfirfarna skjálfta frá því eldgosið hófst 1. apríl til dagsins í dag (klukkan 11).
Kort sem sýnir yfirfarna skjálfta frá því eldgosið hófst 1. apríl til dagsins í dag (klukkan 11).

Síðasta sólahring hafa um 550 jarðskjálftar mælst á Reykjanesskaga og út á Reykjaneshrygg. Mælingar sýna greinilega að landris sé hafið undir Svartsengi en erfitt er að meta hraða kvikusöfnunar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá náttúruvárvakt Veðurstofunnar.

Þar kemur fram að fjórir stærstu skjálftarnir hafi verið um 3 að stærð og verið staðsettir norðvestur við Kleifarvatn og á Reykjanestá.

Þó GPS-mælingar sýni „nokkuð greinileg merki“ um að landris sé hafið undir Svartsengi þurfi að bíða í nokkra daga til að meta frekari þróun kvikusöfnunar undir Svartsengi.

Eldgosið hófst 1. apríl síðastliðinn og lauk rétt rúmum tveimur sólarhringum síðar. Jarðskjálftavirkni hefur mælst áfram á svæðinu en þó hefur dregið töluvert úr henni.

Súluritin sýna fjölda skjálfta á dag og klukkustund sem sjálfvirka jarðskjálftakerfið hefur staðsett frá 1. apríl.

Tengdar fréttir

Stuttu eldgosi lokið

Í uppfærslu á skýrslu sem jarðvísindamenn Veðurstofunnar hafa skrifað segir að stuttu eldgosi sé nú lokið, en sjálftavirkni mælist áfram. Landsig mælist ekki lengur í Svartsengi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×